Þjóðviljinn - 13.03.1974, Side 16
DMÐVIUINN
Miðvikudagur 13. marz 1974.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsimi blaðamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Kvöld-, nætur- og helgarvarsla
lyfjabúðanna i Reykjavik vikuna
8.—14. mars er i Lyfjabúðinni Ið-
unni og Garðsapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspltalans *
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Stöðvun í dag
á kittisframkvæmdunum i Hveragerði, ef Ólafur
Þorgrimsson og félagar láta ekki undan?
Heilbrigðisráðuneytið hefur
fyrir sitt leyti hafnað öllum
frestum á aðgerðum til
stöðvunar á framkvæmdum
við fyrirhugaða kittisverk-
smiðju i Hverageröi, og
forsvarsmenn hennar fóru
ekki eftir leiðbeiningu sýslu-
manns Arnessýslu um að
leggja fram gögn af sinni
hálfu á mánudaginn, ef þeim
ætti aö veitast frekari frestur.
Eins og mál stóðu siðdegis i
gær, voru allar likur á þvi að
lögregluaðgerðum yrði beitt i
dag til stöðvunar allra verka i
þágu kittisverksm iðju-
byggingarinnar i Hveragerði.
Þjóðviljinn sagði itarlega
frá þessu máli á föstudaginn,
og kom þar fram hvað heil-
brigðisráðuneytið hefur við
framkvæmdir og aðferðir
Sameinuðu efnasmiðjanna að
athuga.
1 simtali blaðsins við Ingi-
mar Sigurðsson lögfræðing i
heilbrigðisráðuneytinu i gær
kom fram, að forsvarsmaður
kittisverksmiðjunnar, ólafur
Þorgrimsson hrl., hefur beitt
sérkennilegum aðferðum og
haldið uppi þófi til að tefja
fyrir þvi að lögmæt krafa
ráðuneytisins næði fram að
ganga.
En hér er einungis um það
að ræða, að þeir kittismenn
sæki um leyfi vegna fyrir-
hugaðrar starfsemi sem ugg-
vænt þykir um, að valdið geti
mengun. Heilbrigðisráðu-
neytið á lögum samkvæmt að
fjalla um slikar leyfis-
veitingar, og hefur vald til að
stöðva atvinnurekstur og
framkvæmdir, sé fyrirmælum
þess ekki hlýtt.
Sameinuðu efnasmiðjurnar
hafa haft ærin tækifæri og
nægan tima til að bæta ráð sitt
og fara að settum lögum og
reglum, og það er engin
ástæða til þess að þeir aðilar
sitji ekki við sama borð og
aðrir i þessu landi, sagði Ingi-
mar Sigurðsson að lokum. hj-
BRÆÐRALAGSANDINN í NA TO:
4
Leður-
blakan
Eins og kunnugt er þá hefur hin
sigilda óperetta Johann Strauss,
Leðurblakan, verið sýnd við
metaðsókn siðan á jólum I Þjóð-
leikhúsinu. Uppselt hefur veriö á
öllum sýningum. óperettan
vcrður sýnd I 30. skiptiö n.k.
föstudag þann 15. mars. Greini-
legt er að fáir söngleikir hafa
hlotið jafn aimennar vinsældir og
Leðurblakan gerir nú á fjölum
Þjóðleikhússins. — Myndin cr af
Svölu Niclsen og Garðari Cortes I
hlutverkum sinum.
Kissinger hefur í
hótunum við EBE
BONN 12:3 — Embættismenn
EBE-Iandanna nlu koma saman
til fundar I Bonn i dag til að ræða
uppkast að stefnuyfirlýsingu um
BERN 12/3. — Samkvæmt
heimildum frá svissnesku rikis-
stjórninni hefur Aleksandr Solt-
sénitsin ákveðið aö setjast að I
Sviss. Stjórnin hefur beðið sendi-
ráð sitt á> Moskvu að láta fjöl-
skyldu rithöfundarins fá vega-
bréfsáritun til Sviss. Ekkert er að
sögn þvi til fyrirstöðu að fjöl-
skyldan fái að yfirgefa Sovétrikin
og er gert ráð fyrir að kona
Solsénitsins, þrjú börn þeirra,
sonur frúarinnar frá fyrra hjóna-
bandi og móðir hennar muni
samstarf Bandarikjanna og
Vestur-Evrópu i framtiðinni.
Bandarikin taka ekki þátt I þeim
viðræðum, enda eru ráöamenn
koma til Sviss 19. mars n.k.
Soltsenitsin hyggst setjast að i
Ziirich, þar sem hann býr nú i
stórri ibúð. önnur vestur-evrópsk
lönd sem hann hefur heimsótt eru
Vestur-Þýskaland, Danmörk og
Noregur. — Sovéska ádeiluritið
Krókódil birti i dag niðkvæði um
frú Soltsénitsins, þar sem hún er
kölluð „gjaldeyrissvin sem selji
land sitt og hræki á þjóð sina.”
Höfundur kvæðiskorns þessa er
moldaviski rithöfundurinn J.
Barsjanski.
þeirra grautfúlir út i EBE-rlkin
fyrir að hafa ákveðið að semja við
arabisku oliuframleiðslurikin án
afskipta Bandarikjanna.
1 ræðu sem Henry Kissinger,
utanrikisráðherra Bandarikj-
anna, flutti i Washington i gær-
kvöld, komst hann svo að orði að
vinaþjóðir Bandarikjanna I
Vestur-Evrópu væru orðnir þeim
til öllu meiri vandræða en óvinir
þeirra. Sagði hann Bandarikja-
stjórn ekki geta sætt sig við sjálf-
stæða utanrikisstefnu Vestur-
Evrópurikja, ef slik stefna fæli i
grundvallaratriðum i sér „fjand-
skap” við hentugleika Bandarikj-
anna.Kissinger hafði aukheldur i
hótunum við bræður sina I Nató
og sagði að ef þeir kysu fremur
samkeppni við Bandarikin 1 efna-
hags-og orkumálum en samstarf,
mættu þeir vita að þeir hefðu
verra af, þar eð Bandarikin væru
miklu auðugri en Vestur-Evrópa
og réðu yfir miklu meiri auð-
lindum.
Soltsénitsin œtlar
að setjast að í Sviss
Yfirlýsing Finnlandsstjórnar:
IB njósnaði
í Finnlandi
HELSINKI 12/3 — I til-
kynningu/ sem finnska
utanríkisráðuneytið kunn-
gerði i kvöld, er þvi haldið
fram að sænska njósna-
stofnunin IB hafi stundað
njósnir í Finnlandi.
Þá er fengin mikilvæg stað-
festing á einu ákæruatriðanna,
sem blaðamenn sænska timarits-
ins FIB/Kulturfront báru fram
gegn umræddri njósnastofnun.
Birtu blaðamennirnir gögn þess
efnis að IB hefði njósnað i Finn-
landi I félagi við CIA, bandarisku
leyniþjónustuna.
1 tilkynningunni segir að Max
Jakobson, ambassador Finnlands
i Stokkhólmi, hafi þegar fyrir
mánuði gefið utanrikisráðherra
Sviþjóðar, Sven Andersson, til
kynna að rannsóknir finnskra
yfirvalda hefðu leitt i ljós að IB
hefði verið á stúfunum á finnsku
landi. Jakobson lagði áherslu á að
finnska stjórnin harmaði mjög
þetta háttalag og gæti á engan
hátt sætt sig við það.
Ekki bætir hér úr skák að I
DUBLIN 12/3 — Billy Fox, þrjátiu
og sex ára gamall öldungardeild-
arþingmaður i irska þinginu,
fannst i dag myrtur skammt frá
landamærum Norður-lrlands.
Hafði hann verið skotinn gegnum
höfuðið. Fox var rænt i gær úr
húsi á þeim slóðum, og voru ræn-
ingjarnir tólf saman, vopnaðir og
grimuklæddir.
febráar, þegar Andersson utan-
rikisráðherra var i heimsókn i
Helsinki, fullyrti hann upp á æru
og trú i viðræðum við Kekkonen
Finnlandsforseta og Ahti
Karjalainen utanrikisráðherra að
IB hefði aldrei njósnað eða gert
neitt annað af sér i Finnlandi.
Kommúnisti
varaforseti
EBE-þings
STRASBOURG 12/3 — Þing-
samkunda Efnahagsbanda-
lags Evrópu kaus sér i dag i
fyrsta sinn varaforseta úr hópi
kommúnista, þrátt fyrir
heiftarlega mótspyrnu þing-
fulltrúanna frá svokölluðum
kristilegum lýðræðisflokkum,
sem eins og kunnugt er eru
öflugustu Ihaldsflokkar EBE-
landa. Kommúnistinn sem
kjörinn var er Frakkinn
Gerard Bordu.
Að sögn létu kristilegir
demókratar undan i þessu
máli eftir mikið hugarstrið, og
þó ekki fyrr en þeim hafði
verið heitið þvi að
kommúnistar fengju ekki for-
mannsstöðu i neinni af
nefndum þingsins.
Alþýðubandalagið
Benedikt Guðmundur Eðvarö
Umræðufundur um verkalýðsmál
Alþýðubandalagið I Reykjavik heldur umræðufund um verkalýösmál
á fimmtudagskvöld kl. 20.30. Fundurinn verður haldinn að Grettisgötu
3. Þar munu þeir Benedikt Daviðsson, Eðvarð Sigurðsson og
Guðmundur J. Guðmundsson svara fyrirspurnum og ræða um
nýafstaðna kjarasamninga. Eðvarð var, sem kunnugt er, formaður
samninganefndar ASl, Guðmundur fjallaöi um skattamálin i sérstakri
nefnd og Benedikt var i nefnd um húsnæðismálin.
Alþýðubandalagið I Reykjavik hvetur félaga sina og áhugafólk um
verkalýðsmál til þess aö koma á fundinn.
Viðtalstlmi borgarfulltrúa
Viötalstimi borgarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins I Reykjavik er á miðvikudögum kl. 5 — 6
siðdegis að Grettisgötu 3 á skrifstofu Alþýöu-
bandalagsins. Simi 19835. í dag mætir Adda
Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Munið fimmtudagskvöldin að Strandgötu 41
(Skálanum) Opið frá klukkan 9. Stjórnin.
Alþýðubandalagið i Árnessýslu
Alþýöubandalagið i Arnessýslu heldur fund um heilbrigðismál á sunnu-
daginn kemur klukkan 2 s.d. i Hótel Selfossi.
Adda Bára Sigfúsdóttir verður frummælandi á fundinum. Frjálsar
umræður að lokinni ræðu frummælanda. — Fundurinn er öllum opinn.
Aðalfundur kjördæmisráðsins I Reykjaneskjördæmi verður haldinn
n.k. laugardag kl. 3 siðdegis i Framsóknarhúsinu i Keflavik.
Arshátið Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin I Alþýðuhúsinu
n.k. laugardag.
Adda Bára