Þjóðviljinn - 19.03.1974, Side 8

Þjóðviljinn - 19.03.1974, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 19. marz 1974. ítalskir stjórnmálaflokkar ganga fyrir mútufé Olíuhneykslið hefur varpað ljósi á eðli stjórnmála og valdatafls í landinu - og víðar Síðasta ítalska stjórnar- kreppan var að því er séð varð afleiðing mjög alvar- legrar efnahagskreppu. En ýmislegt fleira og dul- arfyllra bættist við. Til dæmis þjóðaratkvæða- greiðslan um hjónaskiln- aðarlöggjöfina, sem mörg- um stendur stuggur af. Og svo er það olíuhneykslið, sem hlestu foringjar st jórnarf lokkanna voru flæktir i. Það dró stórum úr trausti þjóðarinnar á stjórninni, og var það þó ekki mikið fyrir. Tiu minútum áður en næst sið- asta stjórn Marianos Rumors, sem mið- og vinstri flokkar stóðu að, sagði af sér, tilkynnti forsæt- isráðherrann, sem er úr flokki Kristilegra demókrata, að þjóð- aratkvæðagreiöslan um skilnað- arlöggjöfina yrði tólfta mai n.k. Þetta var raunar eina afdráttar- lausa ákvörðunin, sem þessi stjórn tók á sinum sjö mánaða ferli. Með þeirri ákvörðun gekk fráfarandi stjórn greinilega i ber- högg við ihaldssamari arm Kristilegra demókrata, sem að visu átti frumkvæðið að þjóðarat- kvæðagreiðsiunni, en er nú orðinn hræddur um að tapa henni og vill þvi helst að ekkert verði úr henni. La Malfa og Giolitti Hin opinbera skýring á stjórn- arkreppunni var, að stjórninni hefði ekki verið stætt eftir aö Ugo la Malfa efnahagsmálaráðherra, sem er úr Lýðveldisflokknum, sagði af sér i mótmælaskyni við kröfur ráðherranna úr Sósialista- flokknum um aðgerðir i efna- hagsmálum. La Malfa vildi spara og safna i sjóði, Antonio Giolitti, fjármálaráðherra úr Sósialista- flokknum, lagði hins vegar áherslu á fjárfestingar. Þessi ágreiningur kom sérstaklega áberandi fram þegar Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn veitti Italiu lán upp á 1.200 miljónir dollara. Lánið átti að fara til þess að jafna greiðsluhallann á utanrikis- viðskiptunum, sem er meiri en hjá Bandarikjunum og nemur ti- unda hluta verðgildis vergrar þjóðarframleiðslu ftala. La Malfa byggði afsögn sina á þvi að Giolitti hefði ekki viljað sam- þykkja öll skilyrði sjóðsins fyrir lánveitingunni, en þau skilyrði hefðu raunar, ef samþykkt hefðu verið, fellt úr gildi stefnustjórnar- innar, sem gekk út á verulegar umbætur i félags- og efnahags- málum. Olíuauðvaldið stjórnar landinu En i stað umbóta á einu eða öðru sviði hallar nú stöðugt undan fæti fyrir Itölum i efnahagsmál- um. Atvinnuleysi fer stöð- ugt vaxandi, verðbólgan magnast og hvert spillingarhneykslið öðru verra riður húsum. A hinn bóginn dregur bæði úr framleiðslunni og trausti almennings á stjórnmála- mönnum. Undir þessum kring- umstæðum hefur komið skýrt og ruddalega fram, hve fjarri þvi fer að stjórnmálamenn mið- og vinstriflokkanna, sem eru i stjórn, séu hinir raunverulegu valdhafar landsins. Hver er það þá sem stjórnar? Margt sem hefur komið fram sið- ustu vikurnar bendir til þess að það sé oliuauðvaldið, og kannski ekki aðeins það italska. Eitt helsta einkenni italska þjóðfélagsins er pólitiskur glund- roði, og hann hefur þann kost að erfiðara er að fela það, sem mið- ur fer, en i þjóöfélögum þar sem kerfið er rækilega njörvað niður. Spennan er svo mikil og hinar pólitisku andstæður svo sterkar, að hneykslismálin eru rokin upp á yfirborðið áður en auðdrottnum og senditikum þeirra i stjórnmál- unum gefst tóm til ráðstafana til þess að breiða yfir þau. Þetta á einnig við um oliuhneykslið fræga. I raun og veru er italska þjóðfélagið varla spilltara en gengur og gerist um vestræn auð- valdsþjóðfélög. Versta hneykslið eftir stríð Oliuhneykslið er þó að sögn versta hneykslið i ftaliu eftir sið- ari heimsstyrjöld, og þarf þá nokkuð til. I þvi sambandi er þeg- ar búið að ákæra um fimmtiu stjórnmálamenn, embættismenn og framámenn i oliuviðskiptum. Fimmtán blaðamenn eru ákærðir fyrir að hafa þegið mútur og til þess að gera meira úr oliuskortin- um en efni stóðu til. Fimm ráð- herrar eru einnig sagðir mútu- þegar oliuauðvaldsins, svo og aðalleiðtogar fjögurra stjórnar- flokka, kristilegra demókrata, sósialdemókrata, lýðveldissinna og sósialista. Heildarupphæð mútufjárins er áætluð frá sjö miljörðum króna upp i þrjátiu miljarða. Mútubjóðarnir kváðu vera foringjar fimmtán oliu- hringa, italskra, erlendra og al- þjóðlegra, og tilgangurinn með þeim var auðvitað sá að fá stjórn og flokka til þess að koma af stað verðhækkunum og lagabreyting- um, sem yrðu oliujörlunum hag- stæðar. Oliukreppan varð til bess aö koma upp um hneykslið. Akæru- valdið fékk i hendur simskeyti og bandupptökur, sem sýndu að ftal- ir voru prýðilega birgir af oliu, meira að segja svo að tankskip- um var snúið við frá hreisnunar- stöðvunum, af þvi að þær gátu ekki tekið við meiru. Skjöl, sem gerð hafa verið upptæk á skrif- stofum oliufyrirtækjanna, sýna að bókhald þeirra yfir kostnað og birgðir var margfalsað. Ráðherrar og f lokksmenn Eins og nærri má geta er þessi spilling ekki nýtilkomin. 1 skjöl- unum, sem gerð hafa verið upp- tæk, kváðu vera sannanir fyrir þvi að alþjóðlegu oliuhringarnir, sem skipta við Itali, hafi i fjölda ára falsað bókhald sitt yfir þau viðskipti. Samkvæmt bókhaldi italskra útibúa þessara hringa hafa þau verið álika örugg meö að tapa á sinum rekstri og is- lenskir útgerðarmenn. Sagt er,að gerð hafi verið upptæk trúnaðar- bréf frá útibúunum til höfuð- stööva hringanna i Bandarikjun- um og komi þar fram að hring- arnir hafi i raun og veru stórgrætt á skiptum sinum við Itali. Ráðherrar þeir fimm er ákærð- ireru fyrir mútuþægni eru þrir úr hópi kristilegra demókrata og tveir sósialdemókratar. Krists- demókratarnir eru Giulio Andre- otti (tvisvar forsætisráðherra), Athos Valsecchi (fjórum sinnum ráðherra) og Silvio Gava (fimm sinnum ráðherra). Sósialdemó- kratarnir eru Luigi Preti (fjár- málaráðherra i sjö ár, flutninga- málaráðherra i stjórninni sem var að fara frá) og Mauro Ferri (fyrrum formaður flokksins og iðnaðarmálaráðherra). En ekki er sopið kálið þótt i aus- una sé komið, og það á jafnt við um italska oliuskandalinn og Watergatefarganið hjá Kananum. Ekki er hægt að stefna ráð- herrunum fyrir rétt, nema þvi að- eins að þingnefnd leggi blessun sina yfir það og siðan þjóðþingið sjáift með leynilegri atkvæða- greiðslu. Erfðavenjur í spillingunni Eins og nærri má geta á jafn gömul menningarþjóð og ttalir sér ævagamlar erfðavenjur varð- andi spillingu og fylgir þeim furðu fast, þrátt fyrir nýja og breytta tima. Spillingin i oliumál- um hefur til að mynda verið skipulögð með allsvipuðu móti og svindlið i þróunarhjálpinni til Suður-ítaliu. Oliufélögin bera fé á stjórnmálamenn og stjórnmála- flokka, sem borga fyrir sig með þvi að sjá oliuhringunum fyrir rikisstyrk og lagasetning- um, sem eru eingöngu gerðar með hagsmuni oliufyrirtækjanna fyrir augum. Ein af ákærunum er frá 1967, en þá veitti italska rikið oliufyrirtækjunum styrk vegna tjóns, sem þau kváðu sig hafa orðið fyrir vegna lokununar Súes- skurðar. Þessi styrkur var einnig veittur félögum, sem aldrei létu skip sin sigla um skurð þennan. 1971-72 sáu vinir oliujarlanna i stjórnmálunum til þess að skattar vorujækkaðir á þeim að miklum mun. Akæruvaldið hefur náð bréfum, þar sem skýrt er tekið fram hverjir einstaklingar og flokkar þágu mútur og til hvers. Akær- urnar gegn ráðherrunumeru tald- ar sérstaklega alvarlegar en sið- ur kærurnar á framkvæmda- stjóra flokkanna, þar eð gengið er út frá þvi að þeir hafi aðeins tekið við mútunum fyrir flokkanna hönd sem starfsmenn þeirra. Og það er næstum opinberlega viður- kennt að stjórnmálaflokkarnir ganga fyrir beinu eða óbeinu mútufé frá peningavaldi og iðju- höldum. St jórnmá laf lokka rnir ganga fyrir mútufé Úr hópi kristilegra demókrata hefur komið fram uppástunga þess efnis, að rikið taki að sér fjárhagslegan rekstur allra stjórnmálaflokka, þannig að þeir séu ekki lengur neyddir til þess að láta múta sér til að fá peninga i flokkssjóðina. Allir flokkar virð- ast jafnhrifnir af uppástungunni, en almenningur er tortrygginn. Fólkið grunar að rikisstyrkurinn myndi aðeins hafa i för með sér enn meira áróðursmoldviðri af hálfu flokkanna — flestum þykir nóg um það fyrir — en mútur myndu þeir þiggja á laun jafnt sem áður. Þeir sem komu upp um oliu- hneykslið voru þrir ungir rann- sóknardómarar i Genúu, sem i fé- lagi hafa sankað að sér firnum af sönnunargögnum gegn oliudólg- unum og mútuþegum þeirra. Italskar réttarreglur eru þannig, að rannsóknardómarar hafa mjög svo frjálsar hendur meðan málið er á rannsóknarstigi. En svo verða þeir að afhenda gögnin æðra ákæruvaldi, sem ákveður hvað gert skuli með þau. Og full- trúar þessa æðra ákæruvalds eru venjulega eldri og ihaldssamari en rannsóknardómararnir, sem margir eru ungir, róttækir eða fúsir til frægðarverka. Ungir _ og harðskeyttir rann- sóknardómarar hafa undanfarið getið sér verulega frægð i sam- bandi við annað mál, sem reis út af sprengjutilræði i Milanó 1969. Akæruvaldið ákvað þá þegar að klina sökinni á anarkista, en fá- einir rannsóknardómarar hófu sjálfstæðar rannsóknir með þeim árangri að nú þykir sýnt að i Milanó hafi engir anarkistar um vélt, heldur fasistar, sem iðka það gjarnan að fremja glæpi óg kenna anarkistum og kommún- istum um, að þvi er virðist stund- um i samráði við lögreglu og yfir- völd. Það er ein af erfðavenjunum i sambandi við hneykslismál á ítaliu að gamlir ihaldsjálkar ákæruvaldsins svæfi þau þegar þeir hafa tekið við þeim úr hönd- um ofurhuganna ungu, rannsókn- ardómaranna. Almenningur á ttaliu gerir fastlega ráð fyrir að þannig fari með oliuskandalinn. Og áreiðanlega stendur ekki á oliuhringunum að borga lög- mönnum ákæruvaldsins rausnar- lega fyrir að láta málið fyrnast. (Að mestu úr Information, dþ.)

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.