Þjóðviljinn - 19.03.1974, Page 16
DJOÐVIUINN
Þriðjudagur 19. marz 1974.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsimi biaðamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Kvöld-, nætur- og helgarvarsla
lyfjabiiða i Reykjavik 15.—21.
mars er i Austurbæjarapóteki og
Lyfjabúðinni Iðunni.
Launastefna Heaths afnumin
Þingmenn Skota
björguðu stjórn
W ilsons
Bratteli
Bratteli
rœðir við
Kosigín
MOSKVU 18/3 Bratteli, for-
sætisráðherra Noregs kom i
átta daga opinbera heimsókn
til Moskvu i dag. Meðal þeirra
sem tóku á móti honum á flug-
velli voru þeir Kosigin forsæt-
isráðherra og Gromiko utan-
rikisráðherra.
Búist er við þvi að forsætis-
ráðherrarnir munu fyrst og
fremst ræða mál er lúta að
skiptingu efnahagslögsögu i
Barentshafi, en sú skipting
getur orðið einkar þýðingar-
mikil ef að olia og gas finnst
þar á hafsbotni eins og likur
benda til. Þá munu Sovétmenn
hafa látið i ljós ugg um að oliu-
leit á þessum slóðum verði
notuð til að njósna um skipa-
ferðir þeirra frá Múrmansk.
LONDON 18/3 Michael
Foot verklýðsmálaráð-
herra hinnar nýju stjórnar
Wilsonsgerði lýðum Ijóst á
þingi i dag, að stjórnin
mundi innan skamms af-
nema lögbundna bindingu
launa, sem stjórn Heaths
kom á. Sjö skoskir þjóðern-
issinnar, sem sæti eiga á
þingi, lýstu því yfir eftir
ræðu Foot, að þeir mundu
styðja stjórn Wilsons, og
þar með var afstýrt hættu
á að hún félli á atkvæða-
greiðslu um stefnu þá, sem
boðuð var í hásætisræðu.
Ihaldsmenn og Frjálslyndir
höfðu skorað stjórnina á hólm
með breytingartillögu við hásæt-
isræðuna. Þeir flokkar hafa sam-
tals 309 þingsæti.en Verkamanna-
flokkurinn 299. Tveir þjóðernis-
sinnar frá Wales og þrír óháðir
verklýðsþingmenn höfðu fallist á
að styðja stjórnina, og þvi gátu
Skotarnir sjö ráðið hvort stjórnin
lafði.
Skotarnir eru sagðir hafa viljað
fá loforð um aukna sjálfstjórn
lands sins að launum fyrir stuðn-
inginn, og er ekki vitað hvernig sú
málaleitan fór.
íhaldsmenn og Frjálslyndir
hafa. snúið sér gegn stefnu stjórn-
ar Wilsons á þeim forsendum, að
hún lofi verðlagseftirliti án þess
að laun séu bundin.
Breska alþýðusambandið lýsti i
dag yfir stuðningi við tillögur um
hærri skatta á tekjur, sem nema
meira en 3000 pundum á ári.
Oliubanni á
USA aflétt
VÍN 18/3 — Arabisk oliuriki munu hætta oliubanni
sinu á Bandarikin frá og með deginum i dag, að þvi
er Jamani, oliumálaráðherra Saudi-Arabiu upplýsti
i gær.
Olíusala til Bandarikjanna var Þaö voru einkum Egyptaland
stöðvuð I striðinu við tsrael I °S Saudi-Arabia sem beittu sér
fyrra. Bann þetta var rækilega fyrir Þvi> að banninu væri aflétt,
notað af oliufélögunum stóru til °S mun það vera hluti af sam-
að skrúfa upp verð á oliuvörum. komulagi þeirra við Kissinger
utanrikisráðherra USA. Sýrland
Oliuframleiðendur i OPEC °g Libýa börðust á móti, og vildu
samþykktu á fundi i Vin um helg- ab oiiubanninu væri beitt áfram
ina að halda hráoliuverði ó- Þ31- israelskur her er á brott
breyttu til fyrsta júli. En þeir frá hernumdum svæðum. Ekki er
hafa einnig gefið til kynna, að vitað, hvort framleiðslan á oliu
verðið muni hækka ef að verð á verði aukin en hún er nú 85% af
iðnaðarvörum sem oliulöndin Þvi sem hún var i Arabalöndun-
þarfnast muni hækka að mun. um fyrir striðið i haust.
Þótt ekki séu hávaxin tré meðfram götum borgarinnar, eru sums stað-
ar reisulegir Ijósastaurar. Marga vegfarendur furðar á þvi að ljós eru I
krónum þessara málmtrjáa fram undir hádegi, enda þótt mjög sé farið
að iengja dag. (Ljósm. S.dór)
Atök í Portúgal:
Uppþot i hernum
fór út um þúfur
LISSABON 18/3 — Stjórn-
völd í Portúgal virðast
hafa aftur náð tökum á her
sinum. Á laugardag gerði
herflokkur uppreisnartil-
raun, og voru um 200 liðs-
foringjar handteknir henn-
ar vegna.
Þá er talið að 30 yngri liðsfor-
ingjar úr öðrum hersveitum hafi
verið handteknir, einnig fyrir
stuðning sinn við Antonio da Spin-
ola. Honum var á föstudag vikið
úr embætti varaformanns her-
ráðsins fyrir gagnrýni hans á ný-
lendustefnu Portúgala i bók sem
hann nefnir „Portúgal og fram-
tiðin”. Þar leggur hann til að ný-
lendunum verði veitt aukin sjálfs-
stjórn, enda verði þeim ekki hald-
ið með hervaldi. Þetta hefur
De Spinola: Bragð er að...
svartasta afturhaldið I landinu,
með Caetano forsætisráðherra
innanstokks, ekki mátt heyra
nefnt.
Meðal þeirra sem handteknir
hafa verið er Joao Almeida Bruno
yfiriiðþjálfi, sem hefur hlotið
fleiri orður en aðrir portúgalskir
hermenn fyrir 13 ára framgöngu i
nýlendustriðum i Afriku.
Slysavarðstofa Borgarspitalans *
.er opin allan sólarhringinn.
'Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Harðir
bardagar i
Vietnam og
Kambodju
SAIGON 18/3. Harður bardagi
sem geisað hafði i tvo sólar-
hringa skammt frá Kontum i
Suður-Vietnam miðju, fjaraði
út i dag. Báðir aðilar urðu fyr-
ir miklu manntjóni.
Saigonherinn kveðst hafa
fellt 440 andstæðinga og hafi
þar verið Norður-Vietnamar
sem hefðu viljað bæta stöðu
sina fyrir monsúnrigningar.
Talsmaður Þjóðfrelsisfylking-
arinnar i Saigon sagði, að 230
hermenn Saigon-stjórnar hafi
verið felldir eða teknir til
fanga i árás á svæði á valdi
ÞFF norður af Kontum.
Frá Kambodju berast þær
fregnir, að þjóðfrelsisher
Khmer Rouge hafi tekið Oud-
ong, sem áður var aðseturs-
staður konungs Kambodju. Er
þetta um 15000 manna borg,
aðeins 30 km frá Phnom Penh.
Þetta er fyrsta meiriháttar
borgin sem þjóðfrelsisliðar
taka i langan tima. Þá berjast
um 10 þúsund manns af hörku
um hafnarbæinn Kapot.
r
Atta féllu á
N-Irlandi
BELFAST 18/3 Atta manns létu
lifið I átökum á Norður-lrlandi
um helgina. Þar af voru þrir
breskir hermenn, og tveir liðs-
menn IRA létust þegar sprengja
sem þeir höfðu meðferðis sprakk
of snemma. Hafa þá alls 977
manns fallið á hálfu fimmta ári á
Norður-lrlandi. frski lýðveldis-
herinn, IRA, hefur gefið til kynna,
að hann hyggi á nýja sókn gegn
bresku herliði I landinu.
Asgeir Magnússon, lögfræðing-
ur, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri Samvinnutrygg-
inga, liftryggingafélagsins And-
vöku og Endurtryggingafélags
Samvinnutrygginga hf. frá 1.
ágúst 1958 lætur af þvi starfi að
eigin ósk hinn 15. mai n.k. Eins og
komið hefur fram i fréttum, hefur
hann frá sama tima verið ráðinn
framkvæmdastjóri við Bæjarút-
gerð Reykjavikur.
Um leið og stjórnin þakkar As-
geiri vel unnin störf i þágu félag-
anna, óskar hún honum velfarn-
aðar i nýju starfi.
Blaðdreifing
Blaðberar óskast i
eftirtalin hverfi:
Skipasund
Seitjarnarnes
Melahverfi
Grimsstaðaholt
Háskólahverfi
Miðbæ
Þingholt
Blönduhlið
Skipholt
Sólheima
Álfheima
Fossvog 2
DIOÐVIUINN