Þjóðviljinn - 21.05.1974, Qupperneq 1
UOBVIUINN
ÞAÐ BQRGAR SIG
AÐ VERZLA Í KRON
Þriðjudagur 21. mail974—39 árg.—80. tbl.
IPOTEK
OPID OLL KVÖLD TIL KL 7,
NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 2,
SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3
I SiMI 40102
Þorbjörn Broddason, þriðji maður á G-listanum í Reykjavik:
Mál að linni hálfrar
aldar yaldaeinokun
Sjálfstœðisflokksins í borgarstjórn. Aðalandstöðuafl
Sjálfstœðisflokksins er Alþýðubandalagið
Þorbjörn
Stjórnmál snúast um
málefni/ ekki einstakar
persónur. Þeir sem héldu,
og vildu, að stjórnmál
snerust fyrst og fremst um
Alþýðu-
bandalagið:
Tveir listar
vegna
alþingis-
kosninga
Jónas Árnason
A sunnudaginn var gengið
frá tveimur framboðslistum
Alþýðubandalagsins vegna
alþingiskosninganna 30. júni
næstkomandi. Það var á
Vesturlandi, þar sem Jónas
Arnason verður i efsta
sætinu, og i Norðurlandskjör-
dæmi eystra þar sem Stefán
Jónsson skipar efsta sætið. Á
siðu 4 segir frá kjördæmis-
ráðsfundi Alþýðubandalagsins
á Vesturlandi og þar er birtur
i heild framboðslistinn. A 11.
siðu er birtur i heild fram-
boðslisti Alþýðubandalagsins i
Norðurlandskjördæmi eystra.
einstakar persónur, standa
skyndilega frammi fyrir
þjóðinni rúnir bæði máls-
svörum og málstað. En
stefna hinna sem misstu
ekki sjónar á málefnunum,
er skýrari og ótvíræðari en
nokkru sinni fyrr.
Meðal annars á þessa leið
komst Þorbjörn Broddason, þriðji
maður G-listans i borgarstjórnar-
kosningunum i Reykjavik, að orði
i sjónvarpsumræðunum sl.
sunnudag.
Þorbjörn lagði siðan áherslu á
að það væri auðveldara nú en
oftast áður að gera upp hug sinn
gagnvart flokkum og frambjóð-
endum á málefnalegum grund-
velli og i ljósi stefnumiða.
Siðan sagði Þorbjörn Brodda-
son:
,,A íslandi, eins og i fjöl-
mörgum öðrum löndum, togast á
i stjórnmálum tvær grundvallar-
aðstæður, oft kenndar við hægri
og vinstri, eða kapitalisma, þ.e.
auðmagnshyggju, og sósialisma
eða félagshyggju. Ekki þarf
neinum blöðum um það að fletta
að Sjálfstæðisflokkurinn er hið
mikla og eina forystuafl islenskra
hægrimanna þótt hinu sé ekki að
leyna, að honum hefur löngum
stundum borist liðveisla þaðan
sem sist skyldi. Ég fullyrði einnig
að einungis einn isienskur stjórn-
málaflokkur, Alþýðubandalagiö,
haldi merki félagshyggjunnar svo
á lofti, að ekki verði um villst,og
Alþýðubandalagið er þvi miður
eini flokkurinn sem treystandi er
i herstöðvamálinu.
2.600 — 3.500
Þorbjörn ræddi siðan einflokks-
Framhald á bls. 17.
Pólitískt
framh j áhald
tltvarpið hafði í gær viðtal við þremenningana, Hannibal, Björn og
Karvel, og voru þeir mjög gramir yfir þvi að Magnús Torfi skuii leiða
Samtökin i kosningasænd með Möðruvellingum. Sjálfir hugðust þeir
samrekkja Gylfa og Alþýðuflokknum. Björn kvaðst ekki taka mark á
samþykkt 10 manna i flokksstjórn Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna.
Hvorki Björn né Karvel vildu segja neitt um það hvort þeir myndu
verða I framboði fyrir einhvern.
Magnús T og möðru-
vellingar sameinast
Gylfi og Hannibal að flosna upp i flokkum sinum
Um helgina var haldinn
flokksráðsfundur Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna. Þar fór
fram uppgjör milli fylgismanna
Magnúsar Torfa og Hannibals.
Fylgismenn Magnúsar Torfa
börðust þar gegn same,iginlegum
framboðum með Alþýð'.flokknum
og kröföust þess að til kosninga
yrði gengið mcð það markmið i
huga, að vinstra samstarf um
rikisstjórn héldi áfram og unnið
yrði að brottför hcrsins. Hannibal
og hans menn beittu sér hins
vegar fyrir samstöðu með Gylfa
Þ. Miklar sviftingar voru á
fundinum, en Magnús Torfi hafði
betur og létu Hannibalistar undan
og gáfust upp.
Samþykkt var ályktun þar sem
þvi var lýst yfir að staðið skyldi
að sameiginlegum framboðum
með Möðruvellingum, en
kjördæmisráðin ráði hvort þau
Utvarpsumrœður um
borgarmál í kvöld
Þorbjörn Broddason,
Adda Bára Sigfúsdóttir og
Sigurjón Pétursson tala í
almennum útvarpsumræð-
um fyrir Alþýðubanda-
lagið og í þeirri röð sem
þau voru hér talin. Um -
ferðirnar verða þrjár og
hefst útvarpsumræðan kl.
20.30 í kvöld.
Adda
Sigurjón
semja við aðra aðila um
sameiginleg framboð. 1 útvarpinu
i gær var síðan tilkynnt að stofnuð
hafi verið sameiginleg kosninga-
stjórn fylgismanna Magnúsar og
Möðruvellinga, en nöfn þeirra
þremenninganna Hannibals,
Björns og Karvels komu þar
hvergi nærri. 1 þessari til-
kynningu kom fram að þessi aðili
myndi beita sér fyrir sameigin-
legum framboðum sem viðast.
Þá er talið liklegt, að ýmsir Al-
þýðuflokksmenn, sem lengi hafa
verið óánægðir með flokks-
forystunajhyggi nú á brotthlaup
úr krataflokknum og ganga til
liðs við nýstofnaða kosninga-
stjórn. Ef það reynist rétt þá
virðast atburðir síðustu vikna
hafa þær afleiðingar i för með sér
að tveir flokkar SFV og Alþýðu-
flokkurinn sundrist, eftir standi
Gylfi og Hannibal með sundurtætt
lið, en nýtt stjórnmálaafl óháð
foringjunum, sem ætluðu að
ráðskast með fylgismenn að þeim
forspurðum, risi upp sem sjálf-
stætt afl. Fróðlegt verður að
fylgjast með framboðsraunum
þeirra Gylfa og Hannibals, en lik-
legt er talið að þeir kjósi að biða
sameiginlegt skipsbrot.
Ætlar að taka
upp kartöflur
í júnílok
Þetta myndarlega kartöflu-
gras er sprottið i garði Geirs
Jónssonar, iðnverkamanns i
Borgarnesi. Geir setti niður
kartöflur siðasta vetrardag,
og býst við að taka fyrstu
kartöflurnar um mánaða-
mótin júni júli. Geir sagði
fréttamanni blaðsins að allur
gróður væri nú mánuði fyrr á
fcrðinni en venjulega og
myndi hann ekki aðra eins tið
og vcrið hefur i apríl og mai.
sj.
í DAG
SPARKAR
ALRERT
ELLERTI?
Tveir fornfrægir knattspyrnu-
kappar eiga nú i áköfu pólitísku
fótasparki um sæti á lista
ihaldsins i Reykjavik i alþingis-
kosningunum.
Sjá bls. 5.