Þjóðviljinn - 21.05.1974, Qupperneq 13
Þriðjudagur 21. mai 1974. ÞJ6ÐVILJINN — SÍÐA 13
Bókasafn KHI
Kennslufræðilegt safn
með 20 þús. bindum
Blaöamönnum var
nýlega kynnt starfsemi
bókasafns Kennaraháskól-
ans sem tekið hefur
miklum stakkaskiptum á
siðustu tveimur árum. Á
fundinum afhenti Kristján
J. Gunnarsson fræðslu-
stjóri Reykjavikurborgar
safninu veglega bókagjöf
frá Fræðsluskrifstofunni.
bann 1. október árið 1972 var i
fyrsta sinn ráðinn bókavörður i
fullu starfi að KHl og varð fyrir
valinu Kristin Indriðadóttir bóka-
safnsfræðingur. Safn skólans var
þá i þröngu og ófullnægjandi hús-
næði en eftir að Kristin kom til
starfa var hafist handa um að
flytja það i fyrirhugaðan lestrar-
sal á annarri hæð skólahússins
sem áður gegndi hlutverki skóla-
stofu.
Bækur safnsins eru nú um 13
þúsund bindi að frátalinni hinni
nýju bókagjöf. Alls hafa verið
flokkuð um 7 þúsund bindi og
þeim komið fyrir i lestararsaln-
um. Afgangurinn biður skrán-
ingar. Safnið eykur stöðugt við
sig og má nefna að siðan Kristin
tók til starfa hafa um 3 þúsund
nýjar bækur komið i safnið.
Alls eru nú 34 lessæti á safninu
en það var opnað i hinu nýja hús-
næði i nóvemberbyrjun 1972. Það
sem helst háir vexti og viögangi
safnsins er skortur á húsnæði og
vinnuafli. Það er ekki á heppi-
legum stað i húsinu og stækk-
unarmöguleikar þess eru mjög
takmarkaðir. 1 febrúar sl. var
ráðinn bókasafnsfræðingur til
þess að koma skipulagi á skóla-
safn Æfinga- og tilraunaskólans
en hún hefur jafnframt unnið við
þetta safn.
Kennslufræðisafn
Eins og gefur að skilja er i
bókakaupum safnsins lögð
megináhersla á bækur um
kennslufræði og skyld fög. Það
varð þvi niðurstaða Fræðsluskrif-
stofu Reykjavikur er hún var að
kanna það hvernig best væri að
nýta þær bækur sem hún. átti að
auka við þann visi að kennslu-
fræðibókasafni sem til er við KHl.
Fræðsluskrifstofunni hefur
smám saman áskotnast talsvert
safn kennslufræðilegra bóka. Eru
þær tilkomnar þannig að borgar-
yfirvöld hafa á hverju ári veitt
smáupphæðir til handbókasafna
kennara i skólum borgarinnar
en jafnframt hafa skrifstofunni
öðru hverju borist bækur að gjöf,
td. þegar haldnar eru bókasýn-
ingar. Stærsta bókagjöfin er
komin frá dr. Braga Jósefssyni en
Með þvi væri þó vandi skólans og
þörf á bókakosti aðeins að nokkru
leystur og þá einkum sá hluti
hans er að nemendum snýr. Hins
vegar væri það brýn nauðsyn
kennurum og skólamönnum að
eiga aðgang að sem best búnu
safni kennslufræðilegra hand-
bóka, þar sem þeir geta aukið
þekkingu sina og haldið henni við
með þvi að fylgjast með nýj-
ungum og þar sem þeir geta unnið
að rannsóknarstörfum i fræði-
Bókaverðir við Bókasafn Kennaraháskólans sjást hér við hluta safns-
ins
þar er um að ræða gott safn
bandariskra fræðibóka um
kennslufræðileg efni sem hann
safnaði þegar hann dvaldist i
Bandarikjunum. Alls eru þessar
bækur hátt i sjö þúsund talsins.
1 desember sl. fór fræðsluráð
borgarinnar þvi þess á leit við
borgarráð að það heimilaði
ráðinu að mega ráðstafa safninu
til Kennaraháskólans „með þeim
skilyrðum að bókasafnið verði á
venjulegum starfstima opið
kennurum við skóla reknum á
vegum Reykjavikur og að
kennslufræðideild fræðsluskrif-
stofunnar geti fengið þaðan að
láni til timabundinna afnota
bækur, sem hún þarf á að halda
vegna starfsemi sinnar ”. Féllst
borgarráð á þessa ósk.
Fræðslustjóri sagði af þessu til-
efni að með grunnskólalögunum
hefði verið lögfest að komið verði
upp bókasafni við hvern skóla.
greinum sinum.
Þegar fræðsluskrifstofan
kannaði hugmyndir um það
hvernig bókasafn hennar kæmi að
sem bestum notum hefði komið til
álita hvort ekki væri skynsamleg-
ast að stefna að þvi að koma upp i
höfuðborginni á einum stað góðu
og tiltölulega stóru kennslufræði-
legu bókasafni á okkar mæli-
kvarða. Hefði verið talið eðlileg-
ast að sliku bókasafni væri valinn
staður við Kennaraháskólann.
Broddi Jóhannesson rektor KHt
tók við gjöfinni og bar fram þakk-
læti fyrir hönd safnsins.
—ÞH
Til Botswana
og Bahama
Alþýöubandalagiö
Skráning
sjálfboðaliða
Alþýðubandalagið vantar sjálfboðaliða til
starfa strax. Fjölmörg verkefni biða vinnu-
fúsra félaga og stuðningsmanna. Nauðsynlegt
er að hef ja þegar i stað skráningu sjálfboðaliða
vegna fundarins i Laugardalshöllinni og vegna
starfa á kjördag, á sunnudaginn kemur.
Siminn er 28655. Opið allan daginn til kl. 10 á
kvöldin. Skrifstofan er að Grettisgötu 3.
Kosningasj óður
Þeir sem hafa fengið senda happdrættismiða
i Happdrætti Alþýðubandalagsins eru beðnir
um að gera skil hið fyrsta. Mörg verkefni biða
þess að fé fáist til framkvæmdanna. Skrifstof-
an á Grettisgötu 3 tekur við skilum. Allar upp-
lýsingar i sima 28655. /
án áritunar
Islendingar hafa vist ekki gert
tiðreist til Botswana, en kannski
verður breyting á, úr þvi við get-
um nú komist þangað án vega-
bréfsáritunar. Ef einhver skyldi
vera i vafa, skal minnt á að Bots-
wana er i Afriku sunnanverðri. 1
tilkynningu utanrikisráðuneytis-
ins segir svo:
Með erindaskiptum i London
hefir verið gengið frá samkomu-
lagi milli tslands og Botswana um
gagnkvæmt afnám vegábréfsá-
ritana fyrir ferðamenn miðað við
allt að þriggja mánaða dvöl.
Gekk þetta samkomulag i gildi
hinn 1. mai 1974.
Með erindaskiptum við breska
sendiráðið i Reykjavik f.h. rikis-
stjórnar Bahama hefir verið á-
kveðið, að gagnkvæmt samkomu-
lag um afnám vegabréfsáritana
milli íslands og Bahama haldi
gildi sinu með stoð i samningi ts-
lands og Bretlands, þar til nýr
samningur verður gerður við
rikisstjórn Bahama.
Hondu stolið
Þann 11. þessa mánaðar á
timabilinu frá 20-23 var Hondunni
R-290 stolið þar sem hún stóð á
móts við G.amla bió. Hjólið var
blátt að litinn, árgerð 1972. Þeir
sein kynnu að verða hjólsins
varir, innan húss eða utan, eru
beðnir að gera lögreglunni að-
vart.
Listabókstafir
Alþýðubandalagsins
og framboð sem Alþýðu-
bandalagið styður
Hreint f lokksframboð
af hálfu Afþýðubanda-
lagsins hefur listabók-
stafinn G. Við sveitar-
stjórnarkosningarnar i
kaupstöðum og hrepp-
um 26. maí stendur Al-
þýðubandalagið víða að
framboðum með öðrum,
eða það styður óháð og
sameiginleg framboð»og
er þá listabókstafurinn
ekki G.
G-listar í
kaupstöðum
í eftirtöldum kaupstöðum
býður Alþýðubandalagið fram
G-lista:
Reykjavik
Kópavogi
Hafnarfirði
Keflavik
tsafirði
Siglufirði
Akureyri
Dalvík
Neskaupstað
Eskifiröi.
Annað en G
í kaupstöðum
1 eftirtöldum kaupstöðum
stendur Alþýðubandalagið að
framboðum eða styður þau,
sem hafa annan listabókstaf
en G, og eru bókstafirnir settir
fyrir framan staðarheitið:
F Seltjarnarnesi
B Grindavik
I Akranesi
H Bolungarvik
H Sauðárkróki
H Ólafsfirði
K Húsavik
H Seyðisfirði
K Vestmannaeyjum.
G-listar í hreppum
1 eftirtöldum kauptúna-
hreppum býður Alþýðubanda-
lagið fram G-lista:
Garðahreppi
Njarðvikum
Borgarnesi
Hellissandi (Neshr.)
Grundarfirði (Eyrarsveit)
Skagaströnd (Höfðahr.)
Raufarhöfn
Egilsstöðum
Reyðarfirði
Fáskrúðsfirði (Búðahr.)
Höfn i Hornafirði
Selfossi.
Annað en G
i hreppum
í eftirtöldum kauptúna-
hreppum stendur Alþýðu-
bandalagið að framboðum eða
styður þau, sem hafa annan
listabókstaf en G, og eru bók-
stafirnir settir hér fyrir fram-
an staðarheitið:
H Sandgerði
I Garði (Gerðahr.)
H Mosfelissveit
H ólafsvik
L Stykkishólmi
I Patreksfirði
K Bildudal (Suðurfjarðahr.)
V Þingeyri
H Suðureyri
H Blönduósi
H Stokkseyri
A Eyrarbakka
t Hveragerði.
Utankjörstaða-
atkvœðagreiðslan
Utank jörstaöaat-
kvæðagreiðsla stendur
yf ir. I Reykjavík er kos-
ið í Hafnarbúðum dag-
lega kl. 10—12, 14—18 og
20—22, nema á sunnu-
dögum aðeins f rá 14—18.
Alþýðubandalagsfólk!
Kjósið nú þegar utan-
kjörstaðar, ef þið verðið
ekki heima á kjördag.
Minnið þá stuðnings-
menn á að kjósa í tíma,
sem verða f jarri heimil-
um sínum 26. maí.
Látið kosningaskrif-
stof ur vita af f jarstöddu
Alþýðubandalagsfólki
og öðrum líklegum kjós-
endum Alþýðubanda-
lagsins.
Miðstöð fyrir utan-
kjörstaðaatkvæða-
greiðslu á vegum Al-
þýðubandalagsins er að
Grettisgötu 3 í Reykja-
vík, sími 2-81-24, starfs-
menn Halldór Pétursson
og Úlfar Þormóðsson.
Kosningaskrifstofur
Miðstöð fyrir allt
landið er að Grettisgötu
3 í Reykjavík, símar 2-
86-55 (almenni siminn)
og 2-81-24 (utankjör-
fundarkosning).
Símanúmerhjá öðrum
kosningaskrifstof um
Alþýðubandalagsins eru
þessi (svæðisnúmer fyr-
ir framan);
Keflavik 92-3060
Kópavogi 91-41746
Hafnarfirði 91-53640
Akranesi (eftir kl. 19) 93-1630
Borgarnesi 93-7269
Grundarfirði 93-8731
Sauðárkróki 95-5374
Siglufirði 96-71294
Akureyri 96-21875
Húsavik 96-41452
Neskaupstað 97-7571.
Vestmannaeyjum: úti i Eyjum
simi um 02, nr. 587.
Selfossi (eftir kl. 17) 99-1888.
VEGVILLA
Þjóðviljanum hefur orðið
það á undanfarna daga að yf-
irlýsa stuðning við J-lista á
Bildudal, án þess þó að það
væri sá listi, sem Alþýðu-
bandalagið styður þar i bæ.
A Bildudal styður Alþýðu-
bandalagið K-Iistann og eru
hlutaðeigengur beðnir afsök-
unar á þessari vegvillu.
Rétt er að benda Vest-
mannaeyingum á, að listi Al-
þýðubandalagsins og Fram-
sóknarflokksins er K-listi, en
ekki H-listi eins og kosninga-
handbók Visis sagði.