Þjóðviljinn - 12.01.1975, Qupperneq 7
Sunnudagur 12. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
aBar á öllum timum árs og á mjög
breytilegum skipum og aflinn er
af mörgum tegundum. Aflabrest-
ur á einum stað eða i einni tegund
veiða þarf ekki að hafa nema litil
áhrif á heildarafkomuna. Og nú
er það fiskiðnaðurinn sem meira
máli skiptir, en sjálft aflamagnið.
Sú reynsla, sem fyrir liggur um
framleiðslu og framleiðsluaukn-
ingu islenskra atvinnuvega, er
góð og ætti að skapa traust. Þó
vitum við, að enn biða okkar á
sviði okkar gömlu og hefðbundnu
atvinnuvega, gifurlegir nýir
möguleikar. Við fáum innan tiðar
einkarétt á öllum fiskimiðum við
landið, þeim miðum, sem við höf-
um aðeins nýtt að hálfu til þessa.
Og við erum rétt að byrja á nýt-
ingu vatnsorkunnar og eigum enn
eftir stórkostlega möguleika á
hagnýtingu jarðhitans. Landbún-
aður okkar og iðnaður eiga einnig
gifurlega mikla möguleika.
Staða okkar islendinga er þvi
sannarlega ekki sú, að við „þurf-
um” eða „neyðumst” til að af-
henda útlendingum auðlindir
okkar fyrir litið verð til þess eins
að við getum fengið að vinna hjá
þeim eins og verksmiðjuþrælar.
Mikil áhætta
Samkvæmt upplýsingum sem
fyrir liggja er ráðgert að málm-
blendiverksmiðjan við Grundar-
tanga muni kosta 9500 miljónir
króna. Ný höfn við Grundartanga
myndi kosta 300—400 miljónir
króna. óhjákvæmilegt er að ráð-
ast I nýja virkjun við Hrauneyjar-
foss, ef samið verður um orkusölu
til verksmiðjunnar. Sú nýja virkj-
un mun kosta yfir 10.000 miljónir
króna. Séu það gild rök að rétt sé
að ráðstafa 1/3 af orku Sigöldu-
virkjunar til járnblendiverk-
smiðju þá gefur það auga leiö að
það hlýtur að verða jafnréttmætt
að ráðstafa einnig 1/3 af orku
Hrauneyjarfossvirkjunar einnig
til annarrar málmblendiverk-
smiðju.
Lántökur islendinga i sambandi
við allar þessar framkvæmdir
yrðu gifurlegar, eða eins miklar
og allar erlendar skuldir þjóðar-
innar voru i árslok 1973.
Og út á allt þetta eigum við að
ráöast i félagsskap við auðhring-
inn Union Carbide, sem jafnframt
á að hafa einkaréttá sölu á allri
framleiðslu verksmiðjunnar. Við-
urkennt er strax i byrjun, að
framleiðsla af þessu tagi sé mjög
áhættumikil.
Lokaorð
Hér skulu að lokum dregin
saman nokkur aðalatriði þessa
máls:
1. Stofnkostnaður málm-
blendiverksmiðjunnar
er nú áætlaður 9500 milj.
kr. fer eflaust langt
fram úr áætluðum
kostnaði.
2. Raforkusala til verk-
smiðjunnar kallar þeg-
ar í stað á byggingu nýs
raforkuvers við Hraun-
eyjarfoss, sem kosta
mun yf ir 10.000 milj. kr.
3. Ráðgert raforkuverð til
verksmiðjunnar er 82
aurar á kvst. til saman-
burðar má nefna að nú-
verandi olíuverð jafn-
gildir kr. 3.10 á kvst. til
húsahitunar. Heimilis-
taxti í Reykjavík er nú
kr. 7.76 kvst. og ráðgert
varað hækkaþað verð í
kr. 9.40 á næstunni.
4. Hægt væri að nýta alla
þá raforku, sem áform-
að er að selja verk-
smiðjunni til húsahitun-
ar og hagnast um mörg
hundruð miljónir kr. á
ári.
5. Rekstur málmblendi-
verksmiðju er talinn
mjög áhættusamur
vegna mikilla sveiflna í
markaðsverði. Union
Carbide á að hafa
einkaumboð á sölu á
allri framleiðslu verk-
smiðjunnar.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
KLEPPSSPÍTALINN
HJÚKRUNARKONUR vantar nú
þegar til starfa á deild 10 og Viði-
hlið.
STARFSSTÚLKUR óskast nú þeg-
ar.
Nánari upplýsingar veitir forstöðu-
konan, simi 38160.
Reykjavik, 10. janúar 1975.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5/SÍMI 11765
ÚTBOÐ
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum I eftirtalda verkhluta
fyrir spennistöðiua Korpu:
Steinsteyptar undirstöður og strengjastokka útivirkis.
Undirstöður og kjallaragólf rofa- og stjórnstöövar.
Jöfnun lóðar og vegarlagningu.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Landsvirkjunar,
Suðurlandsbraut 14, Heykjavik, frá og með mánudegi 13.
janúar 1975 og kosta kr. 1.000.-hvert eintak. Frestur til að
skila tilboðum er til. 14. febrúar 1975.
LANDSVIRKJUN
ÞORGEIR
ÞORGEIRSSON
SKRIFAR
UM „SJÁENDUR”
„Trén i skóginum gefa lika frá sér hljóð þvi
laufin blaka i vindinum. Það er þarna tré
með svo stórvöxnu, hvitu laufi að það verður
eins og fuglager þegar náttar.
Það get ég svarið að þetta tré hafði mál:
Úgh, úgh, úgh, úi, úi, úi, úgh, úgh, úgh, sagði
það.
Og skuggarnir af trjánum gera svosem
engum mein þó varlegra sé að stiga ekki
mikið á þá i ljósaskiptunum.
Skuggi af tré er eins og andi af manni. Þvi
andar manna eru skuggar sáiarinnar, það er
ég viss um.
Eitt er það sem okkur mönnum er ekki
gefið og það er að sjá sálina. Við getum ekki
vitað hvernig hún er á litinn.Sálin er með þvi
stórfenglegasta sem til er. 1 draumunum fá-
um við samband viðhana. Karlarnir i Kongó
sögðu að sálin væri i mönnum eins og hver
annar töframáttur og þeir töluðu um bæði
góða anda og vonda, eða fremur þá góðar og
vondar sálir, en sál hafa allir”.
Þetta segir Esteban Montejo um dvöl sina I
frumskóginum þar sem hann hafðist við einn
sins liðs árum saman. Hann var þræll á Kúbu
löngu fyrir aldamót en strauk úr þrældómn-
um og lagðist út þangað til þrælahald hafði
verið afnumið. Hann var önnur kynslóð frá
Afriku, foreldrar hans voru flutt vestur og
seld. En frumstæð galdravfsindi upprunalegs
ættarsamfélags lifa i honum undarlegu lifi.
Hann var yfir tirætt þegar mannfræðingar
tóku frásagnir hans og skoðanir upp á segul-
band. Hann lærði aldrei að lesa.
Hann er því siðan fyrir svokallaða sið-
menningu en samtimamaður okkar engu að
siður. Frumstæður galdurinn sem i honum
lifir er okkur sagt að sé sjálf rótin að öllum
visindum, trúarbrögðum og listum.
Og enginn sem les bókina hans Estebans
Montejo getur efast um það að þar kliða
sjálfar uppsprettur ljóðsins að minnsta kosti.
Sérstaða hans er fólgin i þvi að hann er
ósvikinn, hreinræktaður og heill i galdravis-
indum sínum. Hann er uppruninn sjálfur.
En I svokölluðu siðmenntuðu samfélagi lif-
ir æfaforn galdur lika góðu lifi i margvislegu
en oftlega nokkuð úrkynjuðu formi.
Og þörfin fyrir ástundun þessara úrkynj-
uðu galdra tekur á sig ýmsar myndir og
form.
-O-
Hver sem vill getur náttúrlega efast um
það að einhverskonar sögulegt samhengi sé
vakandi i nútimagaldri eins og spiritisma en
sá hinn sami verður þá að gefa viðhlitandi
skilgreiningu á lymskulegri staðreynd sem
kom I ljós hérlendis á striðsárunum siðustu.
Fyrst kom breski herinn hingað og sá alls
staðar drauga og svipi. Huliðsheimar fs-
lenskrar draugatrúar stóðu upp á gátt fyrir
hinum tradisjónsriku englendingum. Svo
komu amerikanar og sáu aldrei draug eða
svip hér á þessum sömu slóðum — enda for-
tiðarlaus þjóð, sú eina i veröldinni að þvi
manni er sagt.
Þeirra hjátrú er dollari og prógress.
En ég ætlaði að tala um Hafstein miðil.
Þátturinn um hann i sjónvarpinu á dögun-
um var býsna vel gerður fyrir það að hann
fékk að tala við hlustandann einlægt og beint
og ótruflað. Útkoman var, trúég, nokkuö skýr
mynd af þessum sérstæða manni.
Gott portrett semsé.
Þegar ég heyri á tal miðla og dularmanna
þá dettur mér alltaf i hug Esteban Montejo.
Enginn þeirra stenst neinn samanburð við
þann karl, finnst mér. En þó er alltaf eitthvað
sem minnir á hann.
Einnig Hafsteinn sér kynlegt Íif i náttúr-
unni hvarvetna. Alfa sér hann, huldufólk,
ljúflinga og blómálfa. Og búið hefur hann
með huldukonu i miðri Reykjavik um mán-
aðaskeið. Um sýnir hans efast ég ekki.
En lifssýn hans stenst ekki samanburð við
heimsmynd Estebans Montejo.
Þó hvarflar að manni þegar sýndur er
miðilsfundur með honum að i námunda við
galdur hans sé einhvers staðar að finna upp-
runa leiklistar.
En á hinn bóginn verður einkar ljóst i þess-
um seiðskrattaleik hverjar takmarkanir
spiritismans eru. útfærsla galdramessunnar
er ósvikin og ekta. Það er inntakið sem birtir
I senn takmarkanir og timaskekkju fyrirbær-
isins.
Galdurinn gamli og upprunalegi er trúlega
viðbragð samfélags i angistarfullum vanda
gagnvart heiminum. Þvilikur vandi er ekki
daglegt brauð nú um sinn, en slik angist
hendir einstaklinga gagnvart missi ástvina
og óhagganlegri staðreynd dauðans.
Þetta er trúlega ástæðan fyrir þvi að
áhugasvið nútimagaldursins takmarkast við
smáleg og persónuleg málefni einstaklinga.
Þar fyrir verður spiritisminn bundinn við
smáskitlega þröngsýni og sifellda endurtekn-
ingu á sömu sönnuninni. Verður innilokun,
eins og þráhyggja einstaklings.
Þetta gildir almennt um þá spiritista,
flesta, sem ég hef þekkt eða haft spurnir af.
Að einu'm undanteknum.
Þórbergur Þórðarson gat að visu verið
þrautleiðinlegur smásannanastaglari, en á
hinn bóginn hefur hann lika notað annars-
heimssjónarmiðin til að brýna skoðun sina á
þessum heimi.
Og engum var ljósara en Þórbergi hvernig
spiritismi er nýttur til þess að halda hugum
fólks við smáleg persónuleg málefni en i
burtu frá mikilvægri málum einmitt á svo-
kölluðum "erfiðum timum”.
Þá fer hann að þjóna félagslegri þörf ráða-
stéttarinnar.
— O —
Og svo er úrkynjaðasta og vemmilegasta
form galdursins gamla á vorum dögum.
Alþjóðleg dulfræðifyrirtæki eins og Edgar
Caycelncorporated með risastarfsemi og
fjölda starfsfólks. Mikla peningaveltu.
Heimsfrægir „sjáendur” heita þessir menn
i dagblöðunum okkar og auglýsingum út-
gáfufyrirtækja.
Langskólagengnir lögreglumenn með
glæpavisindi nútimans á bak við sie eefast
upp viö verkefni sitt og skrifa herra Croiset i
Hoílandi og biðja hann að „sjá” fyrir sig hvar
likiö i morðmálinu leynist. Það kemur
náttúrlega ekki til mála að hann komi á stað-
inn og leiti með þeim.
Og það virðist raunar skiljanlegt nú þegar
blöðin eru farin að keppast við að slá málinu
upp. Þvi hvað kemur þá upp úr kafinu nema
það að fulltrúinn sem Timinn talar við I sima
kannast ekki neitt við það sem fulltrúinn sem
Mogginn talaði við hefur sagt. Og sjáandinn
sjáifur veit ekki til þess að neitt samband
hafi verið haft við blöð um þetta mál.
Sjálf niðurstaða „sjáandaris” litur raunar
út eins og afkvæmi einfaldrar tölvu sem möt-
uð hefur verið á landslagi og aðstæðum
hvarfsins.
Það á að leita i námunda við tréverk og
vatninnan kilómetra radiuss frá heimili þess
horfna. Málið er einfalt. Finnist maðurinn þá
verður Croisetfyrirtækinu þakkað fyrir en
finnist hann ekki þá gleymist þetta, enda
stendur spádómurinn i sinu gildi. Fólk rengir
miklu fremur fundvisi lögreglunnar en spá-
dómsgáfu „sjáanda” sem öll dagblöðin hafa
haft tal af.
Eini feillinn er þetta með ósamkomulag
fulltrúanna hjá fyrirtækinu.
Sumir þeirra virðast vilja nota blöðin til að
auglýsa undireins en aðrir starfsmenn virð-
ast fara sér hægar.
Þorgeir Þorgeirsson