Þjóðviljinn - 12.01.1975, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 12.01.1975, Blaðsíða 20
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. janúar 1975. „Fellivetur” — afdalakona i Englandi. Sjónvarp í vikunni Vesturfararnir eftir Jan Troell eru á dagskrá sjónvarpsins á sunnudag. Fimmti þátturinn nefnist „Við Ki-Chi-Saga”. Þessi mynd Troells er með þvi besta, ef ekki langbesta sjónvarpsefni sem hér hefur verið sýnt. Það er með ólikindum hve vel Troell hefur tekist um alla gerð myndarinnar, myndataka er afar góð, leikur frábær og val leikara i hlutverkin hefur tekist sem best er á kosið. Sjónvarpið hefur undanfarið endursýnt hvern þátt og er aðeins gott um það að segja, af Vestur- förunum ættu menn ekki að missa. Dagskrá næstu viku er svo i hinu fasta formi: Onedin á mánu- dag, kominn 15 þáttur og allir fyrir löngu orðnir leiðir á þessum frekar ómerka framhaldsþætti. A mánudagskvöldið sýnir sjón varpið franska heimildarmynd sem nefnist ,,I nafni kynstofns- ins”. Er þar fjallað um tilraunir þýsku nasistanna til að kynbæta þýsku þjóðina með skipulögðum aðferðum. Söngur Sólveigar, finnska myndin, sem er i þrem þáttum er á dagskrá á þriðjudaginn. Það er verulegur fengur að þessari mynd, og hún, og reyndar fleiri finnskar myndir sem hér hafa verið sýndar, sýna að finnsk kvik- myndagerð er i framsókn, finnska sjónvarpið og útvarpið hefur lika lagt áherslu á að flytja leikrit eftir innlenda höfunda. Fellivetur heitir bresk heimildamynd, sem fjallar um lif fólks i afskekktu fjallahéraði i Norður-Englandi. Þetta hlýtur að vera fróðleg mynd, þvi væntan- lega er nokkuð tekið að sneiðast um „afskekkt fjallahéruð” i Englandi. Útvarp Samantekt þeirra Páls Heiðars Jónssonar og Baldurs Guðlaugs sonar um inngöngu íslands i Nató, var fróðleg á að hlýða, en fyrri hluti þáttar þeirra var á sunnudaginn var, siðari hlutinn er fluttur á sunnudaginn klukkan 14.15. Það er kannski merkilegt við þennan þátt tvimenninganna, að þeir Páll eru báðir Varðbergs- menn og þar af leiðandi sérstakir perluvinir Natós-gamla. Og menn velta þvi fyrir sér hvort einhvern tima hefði það lið- ist, að hernámsandstæðingar gerðu slikan þátt? — GG Lausar stöður skattendurskoðenda Fjármálaráðuneytið auglýsir hér með lausar til umsóknar nokkrar stöður skatt- endurskoðenda við embætti skatt- stjóranna i Reykjavik og Hafnarfirði. Umsækjendur verða að gangast undir að sækja námskeið og taka próf að þvi loknu sem sker úr um ráðningu til reynslu. Á námskeiðinu verða kennd helstu atriði i sambandi við framtöl og skattskyldu. Námskeiðið hefst 25. janúar og stendur til 1. febrúar. Innan fjögurra mánaða frá upphafi reynslutima mun verða haldið námskeið fyrir endurskoðendur skatt- framtala einstaklinga er lýkur með prófi. Laun fullgildra skattendurskoðenda eru skv. 18. launaflokki kjarasamnings BSRB og fjármálaráðherra. Umsóknum ber að skila til fjármálaráðuneytisins Arnarhvoli sem jafníramt veitir nánari upplýsingar. Fjármálaráðuneytið, 10. janúar 1975. n cj U um helgina /unnudcigui 17.00 Vesturfararnir. Sænsk framhaldsmynd, byggð á sagnaflokki eftir Vilhelm Moberg. 4. þáttur endurtek- inn. Þýðandi Dóra Haf- steinsdóttir (Nordvision) 18.00 Stundin okkar. Glámur og Skrámur láta ljós sitt skina og söngfuglarnir syngja um hana langömmu sina. F’luttar verða tvær stuttar sögur eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson, og einn- ig eru i þættinum myndir um Bjart og Búa og Jakob, og loks verður sýnd tékk- nesk mynd, byggð á þýsku ævintýri, sem heitir Doktor Alvis. Umsjónarmenn Sigriður Margrét Guðmundsdóttir og Her- mann Rágnar Stefánsson. Stjórn upptöku Kristin Páls- dóttir. 19.00 Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Dagskrárkynning og auglýsingar. 20.30 „Ein er upp til fjalla”. Fræðslumynd um rjúpuna og lifnaðarhætti hennar. Myndarhöfundur Ósvaidur Knudsen. Tal og texti dr. Finnur Guðmundsson. Ljóðalestur Þorsteinn ö. Stephensen. Fyrst á dag- skrá 17. september 1972. 20.55 Söngsveitin Þokkabót. Gylfi Gunnarsson, Halldór Gunnarsson, Ingólfur Steinsson og Magnús Reynir Einarsson leika og syngja nokkur lög i sjónvarpssal. Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson. 21.10 Heimsmynd I deiglu. Finnskur fræðslumynda- flokkur um visindamenn fyrri alda og þróun heims- myndar Vesturlandabúa. 3. þáttur. „Stjörnur það né vissu, hvar þær staði áttu”. Þýðandi Jón Gunnarsson. Þulur Jón Hólm. í þessum þætti greinir frá dananum Tycho Brahe og stjörnu- rannsóknum hans. (Nord- vision — Finnska sjónvarp- ið) 21.30 Vesturfararnir. Fram- haldsmynd, byggð á sagna- flokki eftir Vilhelm Moberg. 5. þáttur. Við Ki-Chi Saga Þýðandi Dóra Hafsteins- dóttir. (Nordvision). Efni 4. þáttar: Sex mánuðir voru liðnir siðan Karl Óskar og fólk hans lagði af stað frá Sviþjóð, og nú leitaði hann að landi undir framtiðar- heimilið. Hann hélt lengra inn i óbyggðirnar en hitt fólkið, til að finna stað við sitt hæfi. 22.25 Að kvöldi dags. Séra Valgeir Astráðsson flytur hugvekju. 22.35 Dagskrárlok. mónudoQuT] 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar. 20.35 Onedin - skipafélagið. Bresk framhaldsmynd. 15. þáttur. Spilin á borðið.Þýð- andi Óskar Ingimarsson. Efni 14. þáttar: 1 Banda- rikjunum geisar borgara- styrjöld, og Norðurrikja- menn hafa sett hafnbann á öll skip, sem eiga að flytja vörur til eða frá Suðurrikj- unum. James eygir þarna gróðavon. Hann kaupir skipsfarm af hergögnum og ýmsum nauðsynjum og sigl- ir vestur um haf. Honum tekst að komast klakklaust i höfn i Wilmington. Þar selur hann farminn og kaupir baðmull i staðinn. A heim- leiðinni taka norðanmenn skipið herfangi, en James og Frazer tekst að múta yfirmanni herdeildarinnar, og skipið kemst heilu og höldnu heim til Liverpool. 21.25 tþróttir M.a. mynd frá torfæruaksturskeppni björgunarsveitarinnar Stakks i Keflavik. 22.00 í nafni kynstofnsins. Frönsk heimildamynd um tilraunir Adolfs Hitlers og fylgismanna hans til að kynbæta þýsku þjóðina með skipulögðum aðferðum. Þýðandi Ólöf Pétursdóttir. Þulur Ingi Karl Jóhannes- son. 23.05 Dagskrárlok. 0 um helgina /unnud<i9uf 8. Morgunandakt. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlöga. Þjóð- lög frá Kanada og Mæri, sungin og leikin b. Tommy Reilly leikur á munnhörpu. 9.00 Fréttir. Otdráttur úr forustugreinum dagblað- anna. 9.15 Morguntónléikar. 11.00 Messa I Hallgrims- kirkju. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.10 Ör sögu rómönsku Ame- ríku. Sigurður Hjartarson skólastjóri flytur annað há- degiserindi sitt: Mexikó. 14.15 Innganga tslands i At- lantshafsbandalggið Sam- felld dagskrá sem Baidur Guðlaugsson og Páll Heiðar Jónsson gera; — siðari hluti. 15.30 Miðdegistónleikar: Frá tónlistarhátið I Ilelsinki i sumar. 16.25 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 Endurtekið efni: Flóra; þáttur með blönduðu efni i umsjá Gylfa Gislasonar. 1 þættinum mælir Vilborg Dagbjartsdóttir fyrir minni karla. Guðbergur Bergsson les úr „Astum samlyndra hjóna” og rætt er við Þór- berg Þórðarson. Aður út- varpað 16. júni i fyrra. 17.25 Létt tónlist frá norska út- varpinu Útvarpshljómsveit- in leikur lög eftir Arne Egg- en og Antonio Bibalo. Stjórnandi: Sverre Bruland. 17.40 Útvarpssaga barnanna: „Emil og ley nilögreglu- strákarnir” eftir Erich Kastner. Haraldur Jó- hannsson þýddi. Jón Hjart- arson leikari les (2). 18.00 Stundarkorn með Jessye Norman, sem syngur lög eftir Gustav Mahler. Til- kynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 „Þekkirðu land?” Jónas Jónasson stjórnar spurn- ingaþætti um lönd og lýði. Dómari: ólafur Hansson prófessor. Þátttakendur: Ragnheiður Bjarnadóttir og Stefán Hermannsson. 19.50 tslensk tónlista. Gunnar Egilson og Rögnvaldur Sigurjónsson leika Sónötu fyrir klarinettu og pianó eft- ir Jón Þórarinsson. b. Ingv- ar Jónasson og Guðrún Kristinsdóttir leika lög eftir Sigvalda Kaldalóns, Jón Leifs, Steingrim Hall og Sigfús Einarsson. c. Gisli Magnús leikur Pianósónötu eftir Árna Björnsson. 20.30 Albert Schweitzer — aldarminning. Lesinn kafli úr ævisögu Schweitzers eftir Sigurbjörn Einarsson biskup og brot úr ræðu Schweitzers við móttöku friðarverðlauna Nóbels 1954. Einnig leikur Albert Schweitzer orgelverk eftir Bach. 21.05 Kvöldtónleikar Pianó- trió op. 32 eftir Anton Aren- sky. Maria Littauer leikur á pianó, GyÖrgy Terebesi á fiðlu og Hannelore Michel á knéfiðlu. 21.35 Spurt og svarað.Svaia Valdimarsdóttir leitar svara við spurningum hlust- enda. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. Hulda Björnsdóttir dans- kennari velur lögin. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. mánudoQui 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05: Valdimar örnólfsson leikfimikennari og Magnús Pétursson pianóleikari (a.v.d.v.). Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. lands- málabl.), 9.00 og 10.00 Morgunbæn kl. 7.55: Séra Óskar J. Þorláksson dóm- próf. (a.v.d.v.) Morgun- stund barnanna kl. 9.15: Finnborg örnólfsdóttir les söguna „Maggi, Maria og Matthfas” eftir Hans Pett- erson i þýðingu Gunnars G u ðm u n d sso n a r og Kristjáns Gunnarssonar (10). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Búnaðar- þátturkl. 10.25: Guðmundur Jósafatsson frá Brandsstöð- um talar um forðagæslu. ís- lenskt málkl. 10.40: Endur- tekinn þáttur dr. Jakobs Benediktssonar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar 14.30 Miðdegissagan: „Söng- eyjan” eftir Yukio Mishima. Anna Maria Þórisdóttir þýddi. Rósa Ingólfsdóttir leikkona les (5). 15.00 Miðdegistónleikar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (15.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphornið. 17.10 Tónlistartimi barnanna. Ólafur Þórðarson sér um þáttinn. 17.30 Að tafli, Ingvar Ás- mundsson menntaskóla- kennari flytur skákþátt. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Mælt málBjarni Einars- son flytur þáttinn. 19.40 Um daginn og veginn. Sverrir Runólfsson talar. 20.00 Mánudagslögin, 20.25 Blöðin okkar. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. 20.35 Tannlæknaþáttur. 20.50 Til umhugsunar, Sveinn H. Skúlason stjórnar þætti um áfengismál. 21.10 Pianótónlist eftir Alex- ander Skrjabin. Roberto Szidon leikur Sónötu i es- moll. 21.30 Útvarpssagan: „Dag- renning” eftir Romain Roll- and.Þórarinn Björnsson is- lenskaði. Anna Kristin Arn- grimsdóttir les( 9). 22.00 Fréttir, 22.15 Veðurfregnir. Byggða- máLFréttamenn útvarpsins sjá um þáttinn. 22.45 Hljómplötusafnið i um- sjá Gunnars Guðmundsson- ar. 23.40 F'réttir i stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.