Þjóðviljinn - 12.01.1975, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 12.01.1975, Qupperneq 19
Sunnudagur 12. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19 klifraöi Knorrráð upp á topp flaggstangarinnar. Hann hélt um húninn, stóð utanvert við hendur sér og sat með sérstöku lagi, sem hann hafði lært af timariti flagg- stangaseta og þjálfað sig i. Skalf stöngin við hverja hreyf- ingu hans og hvein i staginu. Knorrráð rak upp ángistar- hljóð. Þau feðgin litu bæöi við. „Hann er lofthræddur”, sagði stúlkan. Mundar þá soldát vopnið og býst til affýringar. „Eigi skal skjóta”, sagði stúlk- an. „Hvað er til þess?” „Það, að þá drep ég páfagauk- inn”. „Þvi þorirðu ekki”. Hann þrýsti byssunni þétt upp i handarkrikann, vanganum að skeftinu. „Þú skalt sjá”. Framleiðandinn stóð hreyf- ingarlaus nema stúlkan sá, að fingur hans krepptust að gikkn- um. Hún hélt niðri i sér andanum og hallaði höfðinu að stinnum ham fuglsins. Hún leit niður og horfði á gljásvarta skó soldátans og kenndi þess, að þetta var faðir hennar og að hún hafði sjálf burstað skóna, á teinungana i buxunum hans og komihug,hvað hann var myndarlegur. Skotið reið af, og hún kipptist við en hugsaði þegar á eftir: þeir eru svo vekjandi þessir hvellir. Knorrráð steyptist ofan af flaggstangartoppnum og kom niður með dynk. Soldátinn var þrútinn i framan af einbeitni. Hann sló byssunni yfir öxl sér, hrópaði nokkrar fyrirskipanir, sem hann sjálfur hlýddi með þvi að skálma fram og aftur um garðstiginn. Stúlkan hljóp yfir flötina, svo hratt að fuglinn dróst á eftir henni með fjaörafoki og fúkkyrðum. Hún kraup niöur að piltinum, tók undir höfuö hans og spurði, hvar hún ætti að binda. Hún sagði, að hún vildi ekki að hann dæi, jafn- vel þótt hann væri svo fúlskeggj- aður, aö ekki væri hægt að kyssa hann nema á ennið. Knorrráð gaf ekkert hljóö frá sér. Framleiðandinn kom yfir túnið og gerði honor yfir þeim. Siðan sneri hann sér að Flaviu og sagði: „Góða skrepptu inn og hringdu upp Demos og beindu myndritan- um út um gluggann, svo að fólkið geti fest sér þessar kringumstæö- ur i minni”. Hún gerði eins og fyrir hana var lagt. Þegar hún var farin inn, tók soldátinn ofan húfuna. Hann lét þann páfagaukinn, sem ekkert hafði á hausnum, hoppa af kollin- um á sér, tók fram úr pússi sinu festi og hlekkjaði saman löpp hans og úlnlið Knorrráðs. Siðan lét hann fuglinn setjast á maga piltsins, þar sem hann lá. Hann ýti hranalega við honum og sagði: „Það er gagnslaust fyr- ir þig að vera að látast þetta, ég heyri i þér hjartslátinn”. Knorrráð opnaði augun og horföi á fuglinn. Páfagaukurinn glennti upp skoltana og sagði: „Þú”. „Hvers vegna endilega ég?” spuröi pilturinn. Soldátinn var þegar kominn á- leiðis út úr garðinum. Stúlkan gekk i veg fyrir hann og siðan til unga mannsins. „Flavia”, sagði hann. Hún hjálpaði honum á fætur og lyfti undir páfagaukinn, svo að hann gæti tekið sér stöðu á öxlinni á honum. „Hann skaut mig þá ekki”. „Húfan fór ofan i augu á hon- um”. „Nei, hann ætlaði ekki að gera það”. Faðir minn svikst aldrei um að gera skyldu sina”. Knorrráð hikaði, sagði: „Nú kom hugsjón min sér vel”. Páfagaukurinn beit hann þegar i eyrað og sagði: „Ég”. „Nei, ég”, sagði ungi maður- inn. ,„Ég”, gargaöi fuglinn. „Nei, ég”, endurtók Knorrráð. Stúlkan hrópaði og benti út i fjarskann: „Sjáðu. Tunglið er horfið”. „Pabbi þinn hefur skotið það niður”, sagði hann. Hún gaf honum ekki frekari gaum, heldur hraðaði sér yfir að blómabeðinu. Hún hafði séö ó- veðursbliku á lofti. dagDdk bókabíllinn apótek Nætur- og helgidagavarsla apóteka i Reykjavik vikuna 10. til 16. janúar er i Vesturbæjar Apóteki og Háaleitis Apóteki. Fyrrnefnda apótekið annast eitt vörslu á sunnudögum, helgidög- um og almennum fridögum. Þaö apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna á sunnudögum, helgidögum og almennum fridögum. Einnig næturvörslu frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni, virka daga. Kópavogur Kópavogsapótek er opið virka daga frá 9 til 19 og kl. 9 til 12 á hádegi á laugardögum. Hafnarfjörður Apótek Hafnarfjarðar er opið virka daga frá 9 til 18.30, laug- ardag 9 til 12.30 og sunnudaga og aðra helgidaga frá 11 til 12 f.h. læknar Slysavarðstofa Borgarspital- ans: Slysavaröstofan er opin allan sólarhringinn. Simi 8 12 00. — Eftir skiptiborðslokun 8 12 12 Kvöld- nætur- og helgidaga- varsla: 1 Heilsuverndarstööinni við Barónsstig. Ef ekki næst i heim- ilislækni: Dagvaktfrá kl. 8.00 til 17.00 mánud. til föstudags, simi 1 15 10. Kvöld- nætur- og helgi- dagavarsla, simi 2 12 30. Flókadeild Kleppsspltala: Dag- lega kl. 15.30—17. Fæöingardeildin: Daglega ki. 15—16 og kl. 19—19.30. Hvitabandiö: kl. 19—19.30 mánud.—föstud. Laugard. og sunnud. kl. 15—16 og 19—19.30. Landspitalinn Kl. 15 til 16 og 19 til 19.30 alla daga nema um jólin á almennai deildar. Fæöingardeild: 19.30 til 20 alla daga. Barnadeild: Virka daga 15 til 16, laugardögum 15 til 17 og á' sunnudögum kl. 10 til 11.30 og 15 tii 17. Kleppsspitalinn:Daglega kl 15—16 og 18.30—19 Fæöingarheimili Reykjavikur- borgar: Daglega kl. 15.30— 19.30. Heilsuverndarstööin: Kl. 15—16 og kl. 19—19.30 daglega. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15—17 á helgum dögum. Sólvangur, Hafnarfirði: Mánu- 'iag—laugard. kl. 15—16 og kl. 19.30— 20. Sunnudaga og aöra helgidaga kl. 15—16.30. félagslíf Skrifstofa Félags einstæðra foreldra er opin mánudaga og fimmtu- daga frá kl. 3—7. Aðra daga frá kl. 1—5. Simi 11822. Kvenfélag Kopavogs. Hátiðafundur verður fimmtu- daginn 16. janúar kl. 20.30 stundvislega, i félagsheimilinu uppi. Skemmtidagskrá, hátiöa- kaffi. Heimilt er að taka með sér gesti. Stjórnin. Á mánudag: Arbæjarhverfi: Hraunbær 162 — 15.30 — 17. Versl. Rofabæ 7-^9 13.30 — 15 Breiöholt: Breiðholtsskóli — 19.15—21 Háaleitishverfi: Miðbær, Háaleitisbraut — 16.30—18.15 Hoit — Hllðar: Stakkahliö 17 — 13.30—14.30 Vesturbær: KR-heimiliö — 17.30—18.30 Versl. Hjarðarhaga 47 — 19.15—21 ,Ekki nautaeyru einu sinni enn”. „Hún lofar góðu, finnst þér þaö ekki Manu- el?” Tannlæknavakt: Tannlæknavakt er i Heilsu- verndarstöðinni frá 17—18 alla laugardaga og sunnudaga. — Á laugardögum og helgidögum eru læknastofur lokaðar en læknir er til viðtals á Göngu- deild Landspitalans, simi 2 12 30. — Upplýsingar um lækna og Iyfjabúðaþjónustu eru gefnar I simsvara 18888. slökkviliðið Slökkvilið og sjúkrabilar 1 Reykjavik — simi 1 11 00 I Kópavogi — simi 1 11 00 1 Hafnarfirði— Slökkviliðið simi 5 11 00 — Sjúkrabill simi 513 36. lögreglan Lögreglan IRvik — simi 1 11 10 Lögreglan I Kópavogi — sími 4 12 00 Lögreglan i Hafnarfirði — simi 5 01 31. sjúkrahús Heimsóknartlmar: Landakotsspitali Kl. 18.30-19.30 alla daga nema iunnbdaga kl. 15-16. A barna- deild er heimsóknartlmi alla daga kl. 15-16. Barnaspltali Hringsins: kl. 15—16 virka daga kl. 15—17 laugard. og kl. 10—11.30 sunnud. Bor garspitalinn: Mánud.—föstud. kl. 18.30. 19.30. Laugard. og sunnud. kl. 13.30— 14.30 Og kl. 18.30—19. Endurhsbfingardeild Borgarspftalans: Deildirnar Grensási — virka daga kl. 18.30. Laugardaga _og sunnudaga kl. 13—17. Deildin Heilsuverndarstöðinni — daglega kl. 15—16, og 18.30— 19.30. Aðstandendur drykkjufólks Simavakt hjá Ala-Non, að- standendum drykkjufólks, er á mánudögum kl. 15 til 16 og fimmtudögum kl. 17 til 18. Fundir eru haldnir hvern laug- ardag i safnaöarheimili Lang- holtssóknar viö Sólheima. Simi 19282. Kvenfélag Kópavogs Leikfimin hjá Kvenfélagi Kópa- vogs byrjar aftur 9. janúar kl. 8 á sama stað. — Uppl. i sima 41853 — 41726 — Nefndin. Kvenfélag Háteigssóknar. Félagið býður rosknu fólki i sókninni til samkomu i Domus Medica sunnudaginn 12. janúar kl. 15. Geirlaug Þorvaldsdóttir og Sigfús Haildórsson skemmta. Einnig syngur kirkjukór Háteigssóknar undir stjórn Martin Hungers. — Stjórnin. Kirkja óháöa safnaðarins: Messa kl. 2. Séra Emil Björnsson. SUNNUDAGSGANGA 12/1. Rauðhólar og nágrenni. Verö kr. 300. Brottfararstaður BSÍ kl. 13. — Ferðfélag íslands. Sjálfsbjörg, Reykjavik Spilum að Hátúni 12 þriðjudag- inn 14. janúar kl. 8.30 stundvis- lega. Fjölmennið. Nefndin. Prentarakonur: Fundur verður haldinn að Hverfisgötu 21 mánudaginn 12. janúar. og hefst kl. 20.30. Spiluð verður félagsvist. Takið með ykkur gesti. „Ég hélt það væri nógu slæmt aðhafa konu sem nautabana”. ,,...og svo þegar hann var oröinn verulega hættulegur þá henti ég rauða flagginu og ákvað að ganga að nautinu dauðu”.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.