Þjóðviljinn - 18.01.1975, Blaðsíða 1
UOÐVIUINN
Laugardagur 18. janúar — 40. árg. 14. tbl.
' . „
Flak þyrlunnar i túnfætinum I HjarOarnesi. Bærinn i baksýn
Flugvélin fórst sunnan viO túniO i
HjarOarnesi: bæjarnafniO undir-
strikaO á kortinu.
Lúövik Karlsson, flugmaOur, 31
árs, lætur eftir sig konu og 3 börn.
Kristján S. Helgason, fram-
kvæmdastjóri, 29 ára, lætur eftir
sig konu og 3 börn.
Sjö fórust með þyrlunni
„Vélin strax eitt eldhaf,” segir sjónarvottur
Sjö menn fórust er þyrla af Sikorsky gerð hrapaði
tii jarðar við bæinn Hjarðarnes á Kjalarnesi. Þyrl-
an var eign Þyrluflugs h.f. og hafði nýlega verið
tekin i notkun. Nöfn hinna látnu birtast ásamt
myndum hér á siðunni.
Það var um hálf ellefu leytið i
gærmorgun, að sjónarvottar sáu
þyrluna koma úr suðri meðfram
Esjunni og yfir Tiðaskarði tók
hún að láta einkennilega. Vélin
mun hafa rekist i hæðina upp af
Hjarðarnesi, amk. fannst brak
á dreif um móann niður af Tiða-
skarði og niður i túnjaðarinn við
Hjarðarnes þar sem hún skall til
jarðar. Sprenging varð i vélinni
er hún snerti jörð. Þegar i stað
varð hún eitt eldhaf og brann til
kaldra kola.
Fólkið á Hjarðarnesi varð vart
við sprenginguna, sá vélina log-
andi þar i túninu og gerði strax
viðvart.
Sjúkrabifreiðir, lögreglumenn
og slökkvibill fóru þegar á stað-
inn, en ekki varð við neitt ráðið,
enda munu mennirnir sjö sem i
vélinni voru hafa látist samstund-
is.
Flak vélarinnar er litið dreift
um túnið. Hluti úr stéli þyrlunnar
og hjól undan henni hafa kastast
frá slysstaönum, en likur benda
til að þyrlan hafi ekki fallið til
jarðarúr mikilli hæð. Slysstaður-
inn, flakið brunna, myndar svart-
an blett i Hjarðarness-túnið.
Þyrlan (Sikorsky S-55, TF
LKH) mun hafa verið á leið vest-
ur i Stykkishólm með menn frá
Rafmagnsveitum rikisins. Tveir
ungir menn áttu þyrluna Lúðvik
Karlsson og Kristján S. Helgason
og fórust þeir báðir i slysinu.
Rannsóknarnefnd flugslysa
rannsakar nú orsakir slyssins, en
i gærdag vann nefndin að þvi að
safna saman vitnisburði sjónar-
votta og annarra sem staddir
voru nærri slysstaðnum.
Tvær manneskjur munu hafa
horft á slysiö, ung stúlka sem var
á gangi frá Saurbæ að Hjarðar-
nesi og bilstjóri oliubils, sem var
að fara með oliu heim að
Hjarðarnesi.
Jóhannes Snorrason, flugstjóri,
er formaður slysarannsóknar-
nefndarinnar, en aðrir i henni eru
Karl Eiriksson, Skúli Jón
Sigurðsson og Grétar öskarsson.
Vélin strax eitt eldhaf
Hjalti Jóhannsson, bilstjóri á
oliubil frá BP sagði Þjóðviljanum
svo frá: ,,Við vorum að aka gegn-
um Tiðaskarðið þar ofan við
Hjarðarnes, þegar við sáum þyrl-
una á vinstri hönd, hún var yfir
sjónum sýndist okkur, en mjög
nærri landi. Við sáum að hún var
stjórnlaus og að hrapa. Afturendi
hennar stefndi niður, hún féll
með stélið á undan. Við tveir sem
i bilnum vorum, höldum að viö
höfum horft á þyrluna á lofti i
svona eina minútu. Hún skall svo
til jarðar og varð strax eitt eld-
haf. Billinn hjá okkur var i gangi,
við heyrðum aldrei vélarhljóð frá
þyrlunni né heldur sprengingu, en
spaðar hennar snerust hægt,
kannski aðeins fyrir vindinum.
Hjónin i Hjarðarnesi voru sofandi
þegar þetta bar að, en þau hafa
sagt að þau hafi vaknað við
sprengingu”.
Hjalti Jóhannsson og félagi
hans flýttu sér niður að Hjarðar-
nesi, en er þangað kom hafði kon-
an þar tilkynnt um slysið og
maður hennar hljóp að slysstaðn-
um.
—GG
Indriði H. Einarsson, yfirverk-
fræöingur, 42 ára, lætur eftir sig
konu og 2 börn.
Sigurbjörg GuOmundsdóttir,
matráöskona, 64 ára. Lætur eftir
sig 8 uppkomin börn.
Stefán ólafsson, verkfræðingur,
50 ára, lætur eftir sig konu og
fimm börn.
Guðmundur Hannesson, verk-
stjóri, 41 árs, lætur eftir sig konu
og 4 börn.
Tómas Sigurösson, verkfræðing-
ur, 36 ára, ókvæntur.