Þjóðviljinn - 18.01.1975, Page 3
Laugardagur 18. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Flugskýlisbruninn:
RÍKIÐ BROTLEGT VIÐ EIGIN LÖG?
Aðalskipulag flugvallarins birt eftir mánaðamótin
„Mér finnst nú að steininn
taki úr, þegar umboðsmenn
rikisins lýsa þvi yfir að þeim
hafi iöngu verið kunnugt um
eldhættuna i skýlinu en þó hafi
ekki veriö gerðar viðhlitandi
ráðstafanir,” sagði Bárður
Daníeisson, forstöðumaður
Brunamáiastofnunar rikisins,
þegar Þjóðviljinn innti hann eft-
ir áiiti hans i sambandi við upp-
lýsingar þær, sem fram komu I
Morgunblaðinu i fyrradag og
hafðar eru eftir Gunnari
Sigurðssyni flugvallarstjóra á
Reykjavikurflugvelli og Erni ó.
Johnson, forstjóra Flugleiða h.f.
I umræddri frétt i Morgun-
blaðinu er haft eftir Gunnari
Sigurðssyni að tregða á fjár-
veitingum hafi valdið þvi að
nauðsynlegar ráðstafanir hefðu
ekki veriö gerðar til að draga úr
eldhættunni, og þá helst þær
að endurnýja tækjakost slökkvi-
liðs flugvallarins og draga úr
eldfimi þaksins á flugskýiinu.
Bárður kvaðst ekki vilja draga i
efa að hér væri rétt með farið,
en hinsvegar væri á það að lita
að i lögum um þetta efni væri
svo á kveðið, að eigendum fast-
eigna væri skylt, innan eðlilegra
takmarka efnahagslegrar getu,
að sjá til þess að fasteignin hefði
forsvaranlegan útbúnað til
brunavarna. 1 þessu tilfelli er
fasteignareigandinn rikið, svo
að með téðum yfirlýsingum for-
stjóra á vegum þess væri i raun
og veru verið að tilkynna að
rikið heföi ekki haldiö sin eigin
lög.
t framhaldi af þessum um-
mælum forstöðumanns Bruna-
málastofnunar má benda á að
liklega má þakka fyrir að ekki
skyldi fara enn verr, fyrst um-
rætt flugskýli var slik eldgildra
sem allir sem til þekkja virðast
sammála um að verið hafi. 1
þetta skýli munu Boeing-þotur
hafa verið teknar inn til skoðun-
ar og þá settar á tjakk og tekin
undan þeim hjólin. Hefði eldur
orðið laus i skýlinu undir þeim
kringumstæðum, hefði verið
útilokað að koma þotunni út, og
Boing-þotur munu kosta eitt-
hvað 700 milj. króna. Það sem
mun hafa ráðið úrslitum um
björgun Fokker-vélarinnar
var að ekki var búið að taka
undan henni hjólin.
Þjóðviljinn hafði tal af Gunn-
ari Sigurðssyni, flugvallar-
stjóra, og staðfesti hann fyrir
sitt leyti það, sem fram kemur i
frétt Morgunblaðsins i fyrra-
dag, nema hvað hann kvað það
mishermt i greinarlok að hann
væri sá aðili, „sem átti hús-
næðið og hafði sett trétexið upp
á sinum tima.” Hann hefði eng-
an þátt átt i að trétexeinangrun-
in var sett upp, sem hefði verið
gert af algerum vanefnum.
I sambandi við flugskýlis-
brunnann hafa vaknað umræður
um framtiðarskipulag Reykja-
vikurflugvallar og sagði Gunnar
að unnið hefði verið að gerð
aðalskipulags i rúmt ár, eða
siðan inóvember 1973. Hefði þar
verið hafður til ráðuneytis
meðal annarra erlendur flug-
málasérfræðingur, sem i tugi
ára hafði starfað hjá ICAO, al-
þjóðlegu flugmálastofnuninni,
en hefði nú látið þar af störfum
fyrir aldurs sakir. Aðalskipu-
lagið væri nú tilbúið, en eftir
væri að ræða það við hlutaðeig-
andi opinbera aðila Islenska.
Yrði skipulagið væntanlega
kunngert upp úr næstu mánaða-
mótum.
Bólað hefur á þeirri skoðun að
leggja bæri flugvöllinn niður á
þeim stað sem hann er nú, sök-
um meintrar slysahættu. Þá
skoðun sagðist Gunnar ekki
telja umræðuverða. „Eins og
allir vita, sem komiö hafa út
fyrir pollinn, er það svo viða er-
lendis að flogiö er kannski tiu
minútur yfir þéttbýli, eftir að
vélin hefur tekið sig upp af flug-
vellinum. En héðan tekur flugið
yfir þéttbýli ekki nema smábrot
af þeim tima.”
dþ.
»,T“:ie:í-
\ELKOMNA
býð eg alla iil
>S’TÓRSTREYMIS«
eu svo nefnl ée‘ íýnlníu mína á vatnslttamyndum
o£ oliumáiverkum
Neðst f Húsinu Numer 12 Yid Aöalstræti
19- JATMÚAR Tir, 2. FEBRVAR 1975 - OPIÞ 16-22
4
„Stórstreymi”
hjá Ólafi
„Stórstreymi”, kallar ólafur
H. Torfason málverkasýningu
sina, sem hann opnar á sunnu-
daginn á þeim stað sem áður hét
„Galleri Grjótaþorp”. Húsa-
kynnin eru að Aðalstræti 12 i
kjallara, þar sem oft gætir flóðs
þegar stórstreymt er.
„Það verður stórstreymi þann
23 miljónir
í Norðfjarð-
arsöfnunina
Norðfjarðarsöfnunin nemur
nú 23 miljónum og 60 þúsundum.
Búið er að senda austur 5
miljónir króna og úthluta þeim
þar.
1 Grimsey söfnuðust 130 þús-
und krónur. A Höfn i Hornafirði
söfnuðust 378 þúsund. Elliheim-
ilið Grund -gaf 100 þúsund, og
Þorsteinn RE 303 gaf 100 þús-
und.
Þá hafði söfnunarnefnd borist
viðbótarsöfnunarfé frá Húsavik
167.108 krónur en áður haföi
borist frá húsvikingum 634.500
krónur. Alls hafa þvi safnast á
Húsavik rúmar átta hundruð
þúsund krónur, og svarar það til
380 króna á hvern ibúa.
—úþ
Reykjavikurborg tekur gjald
fyrir veitt kvöldsöluleyfi. Þessi
tekjustofn borgarinnar er lágur
miðað við heildartekjurnar. A
næsta ári er gert ráð fyrir að
kvöldsöluleyfin gefi miljón i
borgarsjóðinn — en heildarskatt-
lagning borgarinnar nemur hins
vegar um 5,9 miljörðum króna.
29. janúar n.k.” sagði Ólafur H.
Torfason er Þjóðviljinn ræddi við
hann, „og það er vel til i þvf, að ég
verði þá að forða mér með mynd-
irnar — maður vonar samt að svo
fari ekki”.
Sýning ólafs stendur frá 19.
janúar til 2. febrúar og sýnir hann
vatnslitamyndir og oliumálverk.
Samtals eru myndirnar um þrjá-
tiu talsins, margar þeirra til sölu
og allar málaðar á siðasta ári.
„Ég teiknaði mikið og málaði
liér áður, siðan snéri ég mér mjög
að ritstörfum, en siðan tók ég til
við penslana aftur”, sagði Ólafur.
Listamaðurinn hefur dvalið
lengi i Kaupmannahöfn, en er nú
kominn heim. Aðgangur að sýn-
ingunni er ókeypis.
—GG
Kristinn Jónsson á Seljanesi
Við hringdum í gær í
Kristinn Jónsson á
Af rækjustríðinu við Húnaflóa
BLÖNDU ÓSING AR
ÆTLA AÐ RÓA!
Skagstrendingar ásakaðir um skemmdarstarfsemi i bátunum,
en stóðu i ströngu við að bjarga þeim i fárviðrinu!
Rækjustriðið á Blönduósi snýst
nú ekþi lengur einvörðungu um
það hvort þeim nyröra tekst að
beygja sjávarútvegsráðherra til
þess að heimila rækjuvinnslu á
Blönduósi og gefa út rækjuveiði-
leyfi til báta þaðan, heidur er nú
hafinn nýr þáttur i deilum
þessum. Er um að ræða ásakanir
eigenda bátanna á hendur skag-
strendingum um að hafa gert til-
raunir til þess að eyðileggja
bátana, en þeir iiggja i höfninni á
Skagaströnd.
Sturla Þórðarson, fréttaritari
Þjóðviljans á Blönduósi, sagði
blaðinu á fimmtudag, að eftir
upplýsingum frá forstjóra rækju-
vinnslunnar, færu rækjubátarnir
þaðan á sjó liklega nú um helgina,
þrátt fyrir bann sjávarútvegs-
ráðuneytisins.
Annar rækjubáturinn frá
Blönduósi, Aðalbjörg, lekur eitt-
hvað, og mun sá leki hafa komið á
hana nú i óveðrinu, þar sem hún
liggur i höfninni á Skagaströnd.
Gæti svo farið að hún yrði að fara
i slipp á Siglufirði.
A þriðjudagskvöldið mun hafa
borist kæra til sýslumannsins á
Blönduósi vegna bruna, sem varð
um borð i Aðalbjörgu. Sá sem
kærði var eigandi bátsins, og
hefur sýslumaður, Jón Isberg,
eftir honum i Morgunblaðinu
nýlega, að skemmdarverk hafi
einnig verið unnið á vél bátsins.
Þá munu skagstrendingar hafa
tilkynnt, að þeir afgreiði ekki oliu
til Blönduóssbátanna, þar eð
sömu útgerðaraðilar og þá gera
út nú, skuldi oliu á Skagaströnd
frá þvi þeir voru með útgerð fyrir
nokkrum árum.
Þjóðviljinn hafði i gær tal af
Kristni Jóhannssyni, hafnarveröi
á Skagaströnd, og spurði hann um
þessi mál. Sagði Kristinn að
bruninn, sem um væri að ræða
hefði orðið i dinu i bestikki
bátsins: brunabletturinn væri svo
sem 15x15 sm.
Siðan sagði Kristinn: „Ég veit
ekki betur en menn héðan hefðu
verið að bjarga bátunum þeirra
frá þvi að sökkva, og voru þeir við
það i fleiri klukkutima meðan
veðrið var sem verst. Þetta var
bæði erfitt og hættulegt starf i þvi
veöri sem hér var, en áhafnir
bátanna komu þar hvergi nærri,
þvi þær héldu sig heima hjá sér á
Blönduósi. Settist svo mikil ising
á bátana, að heita má vist að þeir
hefðu sokkið ef skagstrendingar
Framhald á 17. siðu.
1 rá höfninni á Skagaströnd
Mikill reki á Ströndum
Seljanesi/ sem nú er
einn nyrsti bær i byggð i
Strandasýslu. Við
spurðum Kristinn,
hvernig þeim i Árnes-
hreppi hefði vegnað i
stórviðrinu á dögunum
og lét Kristinn vel yfir
því.
Taldi hann, að ekki hefðu
orðið verulegir skaðar i
hreppnum, en vissi þó til að
járn hefði fokið af súrheys-
tóttum og sums staðar höfðu
rúður brotnað. Kristinn sagði,
að ekki hefði verið neinn um-
talsverður vöruskortur hjá i-
búum Arneshrepps og væri
kaupfélagið á Norðurfirði vel
birgt af helstu nauðsynjavör-
um. Flogið er reglulega að
Gjögri tvisvar i viku, og sagði
Kristinn að ekki hafi verið
mikið um það i vetur að flug
félli niður, nema þá meðan
hvassviðrið var mest nú á
dögunum. Flugiö að Gjögri er
ibúum Arneshrepps mjög dýr-
mætt, sem nærri má geta, þar
sem ekki er að reikna með
samgöngum á landi yfir vetr-
artimann og skipaferðir
strjálar.
Kristinn á Seljanesi sagði,
að snjór væri ekki mikill á jörð
nú, mikið hefði fokið i rokinu á
dögunum. A Seljanesi er um-
sýslun með rekaviðnum og
vinnsla úr honum helsta at-
vinnugreinin, þvi að Kristinn
hefur hvorki sauðfé né kýr,
sem aðrir bændur.
Kristinn sagði okkur, að i
veðrinu um daginn, sem var af
austan, norð-austan, hafi rek-
ið alveg óvenjulega mikið, i
mörg ár hafi ekki komið svona
mikill reki á jafn skömmum
tima. Þetta taldi Kristinn, að
mætti fullyrða um miðsveitina
i Arneshreppi, en enginn hefur
komist til að kanna, hversu
mikið hefur rekið i veðrinu i
nyrsta hluta hreppsins, sem er
i eyði nú. I stórviðrum gengur
mikið af rekaviðnum svo hátt
á land, að ekki þarf menn til
að bjarga honum undan sjó, en
Kristinn sagði, að siðustu
daga hafi þeir feðgar á Selja-
nesi fengist viö að bjarga und-
an sjó nokkru af þeim reka á
sinum fjörum, sem vænta
mátti að sjórinn næði ella á ný.
Og svo erum við að gera við
bát, sagði Kristinn.