Þjóðviljinn - 18.01.1975, Page 5
Laugardagur 18. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Nú er að koma sá tími
þegar fólk tekur að huga
að skattaf ramtölum sín-
um. Þjóðviljinn birtir í dag
framtalsleiðbeiningar
ríkisskattstjóra og hér
fara á eftir upplýsingar
um það hvernig persónu-
frádráttur, skattstigi,
skattaafsláttur o.fl. breyt-
ast frá fyrra ári.
Við afgreiðslu fjárlaga-
frumvarpsins í desember,
var ákveðið, að skattvísi-
talan hækki um 51% frá
fyrra ári til samræmis við
hækkun f ramfærsluvísi-
tölu.
Samkvæmt þessu hækkar per-
sónufrádráttur einhleypings úr
238. þús. krónum i 359.380,- krón-
ur. Persónurfrádráttur hjóna
hækkar úr kr. 355.000,- i kr.
536.050,-, og persónufrádráttur
fyrir hvert barn hækkar úr kr.
50.000,- i krónur 75.500,-. Aukafrá-
dráttur einstæðs foreldris hækkar
úr kr. 96 þús. i kr. 144.960.-, og frá-
dráttur einstæðs foreldris fyrir
hvert barn hækkar úr kr. 11.000,- i
kr. 15.610,-. Frádráttur nýgiftra
vegna heimilisstofnunar hækkar
úr kr. 84.700,- i kr. 127.897.-.
Skattstiginn breytist einnig til
samræmis við hækkun skattvisi-
tölunnar um 51%
Nú skal greiða 20% i tekjuskatt
af fyrstu 150 þús. krónunum, sem
tekjur skattskyldar eru, (i stað
fyrstu 100 þús. i fyrra), siðan 30%
af næsta þrepi, sem er frá kr.
151.000,- til kr. 302.000,-, en siðan
40% af öllu, sem er umfram kr.
302.000,-af tekjum til tekjuskatts.
Sinar eigin tekjuskattskyldu
tekjur getur hver einstakur fund-
ið með þvi að draga bæði per-
sónufrádrátt sinn og fjölskyldu
sinnar, svo og heildarupphæð frá-
dráttarliða á framtalseyðublaði
frá brúttótekjunum.
Þá verða einnig breytingar á
skattaafslætti frá fyrra ári til
samræmis við hækkun skattvisi-
tölunnar, en þegar tekjurskattur
hefur verið lagður á samkvæmt
þeim reglum, sem raktar voru
hér að ofan, þá á eftir að lækka þá
upphæð svo sem skattafslættinum
nemur til að fá út lokatöluna um
upphæð tekjuskatts. Skattaaf-
slátturinn fyrir einhleyping verð-
ur nú kr. 16.610,- en var kr.
11.000,-i fyrra. Skattaafslátturinn
fyrir hjón verður kr. 27.935,- i stað
kr. 18.500,- i fyrra, og skattaaf-
sláttur fyrir hvert barn verður nú
kr. 4983,- i stað kr. 3300 i fyrra. Þá
hækkar aukaafsláttur fyrir ein-
stætt foreldri og verður kr. 9815
og aukaafsláttur fyrir hvert barn
einstæðs foreldris verður kr. 906,-
. Þá hækkar skattaafslátturinn
fyrir aldraða og öryrkja einnig
um 51% i samræmi við breytta
skattvisitölu.
Þá skal þess getið, að útsvar á
þessu ári verður væntanlega hér i
Reykjavik og viðar 11% af brúttó-
tekjum þar sem félagsmálaráðu-
neytið hefur lýst yfir, að það muni
heimila borginni að bæta við
aukaprósentinu, en ella væri út-
svarið 10% brúttótekna.
Nú hefur fjármálaráðuneytið á-
kveðið að hækka fyrirfram-
greiðslu þinggjalda á fyrrihluta
þessa árs úr 60% af þinggjöldum
fyrra árs i 66,7%.
Með þessar upplýsingar' við
hendina ásamt leiðbeiningum um
framtal frá rikisskattstjóra ættu
ærið margir lesendur að geta
reiknað út eigin skattbyrði á
þessu ári.
Eftir stjórnarskiptin og gengisfellinguna tók fyrir alla sölu nýrra bila og innflytjendur sem gert höfðu ráð fyrir að kaupmáttur héldist
óbreyttur sátu uppi með óseljanlega vöru I röðum á hafnarbakkanum.
2133 bílar óseldir á bakkanum og fleiri á leiðinni
Otsvör i Reykjavik á næsta ári
verða samkvæmt áætlun um 3.200
miljónir króna. I ár reyndust
álögð útsvör 1.950 milj.kr. Hér er
um að ræða nærri 70% hækkun frá
fyrra ári.
Alls eru tekjur borgarinnar —
eða skattheimta hennar —
áætlaðar um 5.900 milj.kr. á
næsta ári og sést af þvi að útsvör-
in eru þar meginhlutinn. Það er
þvi aðaláhersla lögð á að skatt-
leggja tekjurnar.
Þær Guðlaug Þorsteinsd. og
Birna Nordahl tefldu spennandi
skák i fyrrakvöld sem lyktaði
með jafntefli. Guðlaug var i tima-
hraki og fylgdust margir þekktir
skákmenn með tafllokunum af
spenningi miklum og var þeim
siðan kiappað lof i lófa að keppn-
inni lokinni. Þær Guðlaug og
Birna eru nú i 2.-3. sæti með 3,5
vinninga, en Ásta Gunnsteins-
dóttir, sem fylgist með viðureign-
inni er i 4.-6. sæti.
(Ljósm. Sj.)
Kvennaskákmótið eftir 4 umferðir
ÓLÖF EFST
í öðru sæti eru þær Guðlaug Þor-
steinsdottir og Birna Nordahl
með 3,5 vinning, en þær tefldu
saman á fimmtudagskvöldið, og
var sú skák hörð og skemmtileg
að sögn sjónarvotta.
í 4-6. sæti eru þær Aslaug
Kristjánsdóttir, Sóley Theodórs-
dóttir og Asta Gunnsteinsdóttir
með 3 vinninga.
Eins og áður hefur verið frá
sagt i blaðinu eru þátttakendur 22
á þessu fyrsta kvennaskákmóti,
sem haldið er hérlendis. Næstu
tvær umferðir verða tefldar i
Skákheimilinu við Grensásveg á
fimmtudagskvöldið kemur.
Lokið er sex umferðum i ung-
lingaflokki. Skiptist hann i tvo
riðla, og er Jóhann Hermannsson
efstur í öðrum með sex vinninga,
en Jóhann Jónsson i hinum með 5
vinninga.
Teflt var i gærkvöldi á Skák-
þingi Rvikur og 7. umferð verður
tefld á sunnudag. Staðan á skák-
þinginu er óljós vegna biðskáka.
-úþ
Kvennaskákmótinu var haldið
áfram á fimmtudagskvöldið og
þá tefldar tvær umferðir, 3. og 4.
umferð.
Eftir fjórar umferðir er Clöf
Þráinsdóttir efst með 4 vinninga.
An morg-
unverðar
í skólann
A skólaárinu 1971/72 fór
fram könnun á vegum
Fræðsluráðs Reykjavikur á
samfelldri skóladvöl nemenda
i skólum borgarinnar. Þá var
m.a. gerð athugun á neyslu-
venjum unglinga varðandi
morgunverð og nestispakka.
Það kom fram, að nær 25%
nemenda mæta i skólanum, án
þess að hafa neytt fullnægj-
andi morgunverðar og 36% af
nemendum höfðu ekki með sér
nesti i skólann. Tæplega 8% af
nemendum höfðu hvorki neytt
morgunverðar eða höfðu með
sér nesti i skólann.
Það er von þeirra, er stóðu
að mjólkurdeginum i gær að
með útgáfu bæklingsins um
morgunverð og nestispakka
verði athygli foreldra skóla-
barna og unglinga vakin á
nauðsyn þess, að nemendur
séu vel undir daginn búnir,
hlaðnir orku, til að takast á við
mismunandi skemmtileg
verkefni f skólunum.
Hvernig á að reikna
út skattana?
Persónufrádráttur fyrir hjón verður kr. 536.050
Verðmæti 1,6
mili ar ður
Tvö þúsund eitt hundrað þrjátiu
og þrir bilar standa nú óseidir á
hafnarbakkanum og 244 bilar eru
á leiðinni til landsins. Samtals
mun verðmæti þessará bifreiða
nema um 1.6 miljarði króna.
Þetta kemur fram viðtali Morg-
unblaðsins við Gunnar Asgeirs-
son, formann Bilgreinasam-
bandsins i gær. Aður hafði Morg-
unblaðið sagt að verðmæti ó-
setdra bila á hafnarbakkanum
væri ekki nema um einn miljarð-
ur.
t viðtaiinu við Gunnar koma
fram fróölegar tölur:
— Nú er vitað að fjöldinn allur
af ónotuðum bilum stendur á
hafnarbakkanum, óseldur. Er
einhver von til þess, að þeir selj-
ist?
,,Það er rétt og nú eru á hafnar-
bakkanum yfir 2000 óseldir bilar
sem þar standa og biða þess að
verða keyptir. Flestir eru þeir af
árgerð 1975, en ekki 1974 eins og
sagt hefur verið. Bilgreinasam-
bandið hefur nú látið taka saman
skrá um fjölda þessara bila og
kemur i ljós að þeir eru 2133, en
innflytjendur bifreiða eru alls 22.
Af þessum fjölda eru 1.960 fólks-
bilar, 100 sendibilar, 72 vörubilar
og 1 almenningsvagn. Þá eru á
leiðinni til landsins eða á hafnar-
bakka erleridis 244 bilar, sem fyr-
irtækin eru skuldbundin að taka.
Af þessu magni eru ekki nema
10—12% af árgerð 1974. En ástæð-
an fyrir þvi að mikið af þessum
bilum er enn óselt er að margar
pantanir voru afgreiddar seinna
en ráð var fyrir gert, vegna tafa
hjá verksmiðjum og farmanna-
verkfalls. 1 öðru lagi er það ekki
óeðlilegt að flytja inn 400—500 bila
á mánuði. Þá voru mjög margir
búnir að panta sér nýja bila af ár-
gerð 1975 þegar gengisbreytingin
varð i september og þvi hafa
þessir sömu aðilar ekki veriö að
hraða sér að leysa þessa nýju bila
út i þeirri vissu, að nýir skattar
eða ný gengisbreyting sé ekki
framundan. Aftur á móti verða
bifreiðaumboðin að gera samn-
inga við sinar verksmiðjur allt að
ár fram i timann og geta þvi ekki
stöðvað afgreiðslu þótt til tima-
bundinnar stöðvunar komi”.
Og siðar i viðtalinu segir Gunn-
ar:
— Hvert er útsöluverð þessara
2100 bila, sem nú eru óseldir?
,,Þaðm mun vera um 1600 milj.
kr., en aftur á móti er gjaldeyris-
verðmæti þeirra ekki nema um
550 milj. kr. þannig að rikið fær
800—1000 milj. kr. i tolla og önnur
gjöld af þessum bifreiðum. Að
sjálfsögðu er það baggi á innflytj-
endum að hafa þessa bila liggj-
andi á bakkanum svona lengi og
má nefna sem dæmi að innflytj-
andi sem á 200 bila, greiðir 35 þús.
kr. i vexti á dag að viðbættum 15
þús. kr. i geymslugjald til við-
komandi skipafélags. Þvi þarf
enginn að halda, að hægt sé að
lækka verð á þessum bih’m”.
Loðnan stendur djúpt
Jakob Jakobsson, fiskifræðing-
ur um borð i rannsóknarskipinu
Arna Friðrikssyni, sagði Þjóð-
viljanum i gær, að sér virtist
loðnan vera seinna á ferð nú en I
fyrra. Voru þeir á Arna 60 milur
austur af Dalatanga.
í fyrrakvöld var mikið kastað.
Var þá flotinn 20-50 sjómilum
norðar en Arni Friðriksson, er við
töluðum við hann i gær.
Veðrið á loðnumiðunum
batnaði nokkuö i fyrradag, sagði
Jakob. Sagði hann að loðnan hefði
fundist þá um miðnættið. Loðnan
stóð djúpt og var ákaflega stygg,
þannig að veiði var heldur litil þó
að mikið væri kastað. Flestir bát-
anna fengu þó eitthvað, en allir
litið.
Jakob sagði að þeir hefðu
verið að lóða á ágætar torfur þar
sem þeir voru á Arna Friðriks-
syni. Þar var þá ágætis veður.
Amk. 25 bátar munu vera
komnir á miðin.
-úþ