Þjóðviljinn - 18.01.1975, Qupperneq 9
Laugardagur 18. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
LEIÐBEININGAR
við útfyllingu skatt-
framtals árið 1975
INNGANGSORÐ
Efnisröð leiðbein-
inganna og sam-
svörun hennar
við framtalið
I leiðbeiningunum er fyrst f jall-
að um áritun framtalsins. Eöli-
legt þótti að gera þvi næst grein
fyrir útfyllingu þeirra reita á
hægra helmingi 1. siðu framtals-
ins sem ætlast er til að framtelj-
endur útfylli eftir þvi sem við
getur átt. Þvi næst vikja leiðbein-
ingarnar óslitið að útfyllingu tölu-
liða i I. — V. kafla á bls. 1 og 2 og
þar næst að útfyllingu stafliða
A—G á bls. 3 og 4. Þó ber þess að
gæta að eigi er unnt að fylla út
suma töluliði framtalsins fyrr en
lokið er útfyllingu stafliða.
— O —
1. Áritun.
Framtalseyðublaðið, sem árit-
að er i skýrsluvélum, skal senda
skattyfirvöldum, sbr. þó 3. mgr.
Notið aukaeintak af eyðublaði til
að taka afrit af framtali yðar og
geymið afritið með þeim upplýs-
ingum og gögnum til stuðnings
framtali sem yöur ber að geyma
a.m.k. i 6 ár miðað við framleng-
ingu skattskrár. Framteljanda
skal bent á að athuga hvort árit-
anir gerðar af skýrsluvélum,
nöfn, fæðingardagar og -ár, svo
og heimilisfang, séu réttar miðaö
við 1. des. sl., sbr. 2. mgr. Ef svo
er ekki skal leiðrétta það á fram-
talinu. Einnig skal bæta við upp-
lýsingum um breytingar á fjöl-
skyldu i desember, t.d. giftur
(gift), hverri (hverjum), hvaða
dag, nafn barns og fæðingardagur
eða óskrið(ur) dóttir (sonur)
fædd(ur) hvaða dag.
Ef áritanir eru ekki réttar mið-
að við 1. des. sl. skal framtelj-
anda bent á að senda einnig leið-
réttingu til Hagstofu tslands
(þjóðskrá), Reykjavik.
Ef áritað eyðublað er ekki fyrir
hendi skal fyrst útfylla þær eyður
framtalsins sem ætlaðar eru fyrir
nafn og nafnnúmer framteljanda,
fæðingardag hans og -ár svo og
heimilisfang hans 1. des. sl.
Eyður fyrir nafn eiginkonu.
fæðingardag hennar og -ár svo og
nöfn, fæðingardag og -ár barna,
sem fædd eru áriö 1959 og siðar,
skal útfylla á sama hátt.
2. Fengið meðlag
og barnalifeyrir.
Fengið meðlag með börnum,
yngri en 16 ára, skal færa i þar til
ætlaöa eyðu neðan við nöfn barn-
anna. Sama gildir um barnalif-
eyri frá almannatryggingum ef
annað hvort foreldra er látið eða
barn er ófeðrað. Hins vegar skal
tilgreina i G-lið framtals, bls. 4,
sambærilegar greiðslur greiddar
með börnum á sautjánda ári.
önnur meðlög, aðrar barnalif-
eyrisgreiðslur frá almannatrygg-
ingum og allar barnalifeyris-
greiðslur frá öðrum (t.d. lifeyris-
sjóðum) skal hinsvegar telja und-
ir tekjulið 13, „Aðrar tekjur”.
3. Greidd meðlög.
Upplýsingar um greidd meðlög
með börnum, yngri en 16ára, skal
framteljandi færa i þar til ætlað-
an reit á fyrstu siðu framtalsins.
Hins vegar skal tilgreina i G-lið
framtals, bls. 4, greidd meðlög
með börnum á sautjánda ári.
4. Greidd heimilisaðstoð.
Greidda heimilisaðstoð, sem
ber að gefa upp á launamiðum
(eyðublöð fást hjá skattyfirvöld-
um), skal tilgreina i kr. dálk.
5. Álagt útsvar.
Hér skal tilgreina i kr. dálk
álagt útsvar á gjaldárinu 1974.
6. Greidd húsaleiga.
Hér skal tilgreina i kr. dálk
greidda húsaleigu og aðrar þær
upplýsingar sem um er beðið i
þessum reit.
7. Slysatrygging
við heimilisstörf.
Skv. ákvæðum 30. gr. laga nr.
67/1971 um almannatryggingar
geta þeir sem heimilisstörf
stunda tryggt sér rétt til slysa-
bóta við þau störf með þvi að skrá
i framtal sitt ósk um það i þar til
gerðan reit. Ársiðgjald verður nú
1.924 kr.
Þeir sem atvinnurekstur hafa
með höndum geta tryggt sér og
mökum sfnum, sem með þeim
starfa að atvinnurekstrinum, rétt
tilslysabóta, sbr. upplýsingar þar
um á launamiðafylgiskjölum.
Óski þessir aðilar að tryggja sér
eða mökum sinum jafnframt rétt
til slysabóta við heimilisstörf
skulu þeir geta þess i áður um-
ræddum reit og mun þá slysa-
tryggingin i heild reiknast 52 vik-
ur á vikugjaldi þess áhættuflokks
sem hærri er.
I. Eignir
31. des. 1974
1. Hrein eign samkv.
meðfylgjandi
efnahagsreikningi.
Framtölum þeirra sem
bókhaldsskyldir eru skv. ákvæð-
um laga nr. 51/1968 um bókhald
skal fylgja efnahagsreikningur.
1 efnahagsreikningi eða i gögn-
um með honum skal vera sundur-
liðun á öllum eignum sem máli
skipta, svo sem innistæðum i
bönkum og sparisjóðum, vixil-
eignum og öðrum útistandandi
kröfum (nafngreina þarf þó ekki
kröfur undir 10.000 kr.), birgðum
(hráefnum, rekstrarvörum, hálf-
unnum eða fullunnum vörum),
skuldabréfum, hlutabréfum og
öðrum verðbréfum, stofnsjóðs-
innistæðum, fasteignum, (nafn-
greindum á þann veg er greinir i
3. tl. — Fasteignir), vélum og
tækjum og öðrum þeir eignum
sem eru i eigu framteljanda. All-
ar fyrnanlegar eignir skulu til-
greindar á fyrningsskýrslu.
Greinargerð um mat birgða skal
fylgja framtali á þar til gerðu
eyðublaði. Sjá 1. mgr. 1. tl. III.
kafla leiðbeininganna.
A sama hátt ber að sundurliða
allar skuldir svo sem yfirdráttar-
lán, samþykkta vixla og aðrar
viðskiptaskuldir nafngreina þarf
þó ekki viðskiptaskuldir undir
10.000 kr.) veðskuldir og önnur
föst lán svo og aðrar skuldir
framteljanda.
Einnig skal sýna á efnahags-
reikningi hvernig eigið fé
framteljanda breytist á uppgjörs-
árinu.
Ef i efnahagsreikningi eru f jár-
hæðir, sem ekki eru i samræmi
við ákvæöi skattalaga, svo sem
tilfært verð fasteigna eða eru
undanþegnar eignaskatti, sbr.
t.d. 21. gr. skattalaga, skal úr þvi
bætt með áritun á efnahagsreikn-
inginn eða gögn með honum.
Hreina skattskylda eign skal sið-
an færa á framtal i 1. tölulið I.
kafla eða Skuldir umfram eignir i
C-lið, bls. 3.
2. Bústofn skv. meðf.
landbúnaðarskýrslu.
Framtölum bænda og annarra,
sem bústofn eiga, skulu fylgja
landbúnaðarskýrslur og færist
bústofn skv. þeim undir þennan
lið.
3. Fasteignir.
Fasteignir skal telja til eignar á
gildandi fasteignamatsverði skv.
aðalmati sem gildi tók 31. des.
1971 eða siðar staðfestum mats-
gjörðum fyrir árslok 1974. Ef
staðfest fasteignamat á
fullbyggðu mannvirki er ekki
fyrir hendi, má þó áætla mats-
verð.
Metnar fasteignir ber að til-
greina i lesmálsdálk og kr. dálk á
þann veg er hér greinir:
Rita skal nafn og heiti hverrar
sérmetinnar fasteignar i lesmáls-
dálk eins og það er tilgreint i fast-
eignamatsskrá. Sé fasteign stað-
sett utan heimilissveitar fram-
teljanda ber einnig að tilgreina
það sveitarfélag, þar sem fast-
eignin er.
1 fasteignamatsskrám er hverri
fasteign skipt niður i ýmsa mats-
hluta eða matsþætti. T.d. er jörð-
um i sveitum skipt i eftirtalda
matsþætti: tún, land, hlunnindi,
ibúðarhús, útihús. o.s.frv. öðrum
sérmetnum fasteignum er skipt i
eftirtalda matshluta eða -þætti:
land eða lóð, hlunnindi, sér-
byggðar (sérgreindar) byggingar
eða önnur mannvirki. Hins vegar
er sérbyggðum byggingum ekki
skipt eftir afnotum t.d. i ibúðar-
og verslunarhúsnæði sem vera
kann i sömu sérbyggðri bygg-
ingu.
I lesmálsdálk ber að tilgreina
einstaka matshluta eða -þætti
fasteignarinnar sem eru i eigu
framteljanda, eins og með
sama nafni og þeir eru tilgreindir
i faSteignamatsskrá. Sé matshluti
eða -þáttur ekki að fullu eign
framteljanda ber að geta eignar-
hlutdeildar. Séu sérbyggðar
byggingar notaðar að hluta til
ibúðar og að hluta sem atvinnu-
rekstrarhúsnæði ber einnig að
skipta þeim eftir afnotum og skal
skiptingin gerð i hlutfalli við rúm-
mál. Sérreglur, sbr. næstu máls-
grein, gilda þó um skiptingu
leigulanda og leigulóðir til eignar
milli landéiganda og leigutaka.
Fjárhæð fasteignamats hvers
matshluta eða -þáttar skal færö i
kr. dálk i samræmi við eignar-
eða afnotahlutdeild.
Eigendur leigulanda og leigu-
lóða skúlu telja afgjaldskvaðar-
verðmæti þeirrar til eignar.
Afgjaldkvaðarverðmætið er
fundið með þvi að margfala árs-
leigu ársins 1974 með 15. 1 les-
málsdálk skal tilgreina nafn
landsins eða lóðarinnar ásamt
ársleigu en i kr. dálk skal til-
greina ársleigu x 15. Leigjendur
leigulanda og leigulóða skulu
telja sér til eignar mismun fast-
eignamatsverðs og afgjalds-
kvaðarverðmætis leigulandsins
eða -lóðarinnar. 1 lesmálsdálk
skal tilgreina nafn landsins eða
lóðarinnar svo og fullt fasteigna-
matsverð lóðarinnar eða landsins
eða þess hluta, sem framteljandi
hefur á leigu, og auðkenna sem
„Ll.” en i kr. dálk skal tilgreina
mismun fasteignamatsverðs og
afgjaldskvaðarverðmætis (sem
er land- eða lóðarleiga ársir.s 1974
x 15).
Mannvirki, sem enn eru i bygg-
ingu eða ófullgerð, svo sem hús,
Ibúðir, bilskúra og sumarbústaði,
svo og ómetnar viðbyggingar og
breytingar eða endurbætur á þeg-
ar metnum byggingum eða öðr-
um mannvirkjum, skal tilgreina
sérstaklega i lesmálsdálki undir
nafni skv. byggingarsamþykkt
eða byggingarleyfi og kostnaðar-
verð þeifra i árslok 1974 i kr. dálk.
Eigendum slikra eigna ber að úi
fylla húsbyggingarskýrslu sem
fylgja skal framtali. Hafi eigandi
bygginga eða annarra mann-
virkja, sem byggð eru á leigu-
landi eða leigulóð, ekki greitt
leigu fyrir landið eða lóðina á ár-
inu 1974 ber land- eða lóðareig-
anda að telja faseignamatsverð
lands eða lóðar að fullu til eignar.
4. Vélar, verkfæri
og áhöld.
Hér skal færa i kr. dálk bókfært
verð landbúnaðarvéla og -tækja
skv.landbúnaðarskýrslu. Enn
fremur skal hér færa eignarverð-
mæti véla, verkfæra, tækja og
áhalda, annarra en bifreiða, sem
ekki eru notuð i atvinnurekstrar-
skyni eða ekki ber að telja i efna-
hagsreikningi, sbr. tölulið 1. Slik-
ar eignir skuli teljast á kaup- eða
kostnaðarverði i kr. dálk. Heimilt
er þó að lækka þetta verð um 8%
fyringu á ári miðaða við kaup-
eða kosnaðarverð svo og um áður
reiknaða fyrningu. Þó má aldrei
telja eignarverð lægra en 10% af
kaup- eða kostnaðarverði. Fyrn-
ing þessi kemur aðeins til lækk-
unar á eign en ekki til frádráttar
tekjum.
5. Bifreiö.
Hér skal færa i kr. dálk kaup-
eða kostnaðarverð bifreiða sem
ekki eru notaðar i atvinnurekstr-
arskyni eða ekki ber að telja i
efnahagsreikningi, sbr. töluliðl.
Heimilt er þó að lækka verðið um
10% fyringu á ári miðaða við
kaup- eöa kosnaðarverö svo og
um áður reiknaða fyrningu. Þó
má aldrei telja eignarverð lægra
en 10% af kaupverði. Fyrning
þessi kemur aðeins til lækkunar á
eign en ekki til frádráttar tekjum.
6. Peningar.
Hér á aðeins að færa peninga-
eign um áramót en ekki aðrar
eignir svo sem vixla og verðbréf.
7. Inneignir.
Hér skal færa i kr. dálk samtölu
skattskyldra innistæðna og verð-
bréfa i A-lið, bls. 3, i samræmi við
leiðbeiningar og útfyllingu hans.
8. Hlutabréf.
Rita skal nafn hlutafélags i les-
málsdálk og nafnverð hlutabréfa
i kr. dálk ef hlutafé er óskert. Sé
hlutafé skert skal aöeins færa
raunverulegt verðmæti þess til
eignar.
9. Verðbréf/ útlán,
stofnsjóösinnistæður o.f I.
Hér skal færa i kr. dálk samtölu
eigna i B-lið, bls. 3, i samræmi við
leiðbeiningar um útfyllingu hans.
10. Eignir barna.
Hér skal færa i kr. dálk samtölu
skattskyldra eigna barna i E-lið,
bls 4, i samræmi við leiðbeiningar
um útfyllingu hans, nema farið sé
fram á sérsköttun barns (barna)
til eignarskatts.
11. Aðrar eignir.
Hérskal færa þær eignir (aðrar
en fatnað, bækur húsgögn og aðra
persónulega muni) sem eigi er
getið um hér að framan.
II. Skuldir alls
Hér skal færa i kr. dálk samtölu
skulda i C-liö, bls. 3, I samræmi
við leiðbeiningar um útfyllingu
hans.
III. Tekjur
árið 1974
1. Hreinar tekjur af
atvinnurekstri eða
sjálfstæðri starfsemi
skv. meðfylgjandi
rekstrarreikningi eða
landbúnaðarskýrslu.
Framtölum þeirra sem bók-
haldsskyldir eru skv. ákvæðum
laga nr. 51/1968 um bókhald skal
fylgja rekstrarreikningur. Þeir
sem landbúnað stunda skulu nota
þar til gerða landbúnaðarskýrslu.
Gögnum þessum skal fylgja fyrn-
ingaskýrsla þar sem fram komi
a.m.k. sömu upplýsingar og til er
ætlast að komi fram á fyringa-
skýrslueyðublöðum sem fást hjá
skattyfirvöldum. Enn fremur
skal fylgja á þar til gerðu eyðu-
blaði greinargerð um mat vöru-
birgða, samanburður söluskatts-
skýrslna og ársreikninga og yfir-
lit um launagreiðslur, eftir þvi
sem við á.
Þegar notuð er heimild i D-lið
22. gr. skattalaga til sérstaks frá-
dráttar frá matsverði birgða skal
breytingu frádráttar milli ára til-
greind sem sérliður i rekstrar-
reikningi, sbr. áðurnefnda
greinargerð um mat birgða.
Þegar notuð er heimild 4. tl. 7.
gr. laga nr. 7/1972 um breyting á
lögum nr. 68/1971 til óbeinna
fyrninga skv. verðhækkunar-
stuðli, sbr. auglýsingu fjármála-
ráðuneytisins, nr. 381 i B-deild
Stjórnartiðinda 1974, skal fylgja
framtali fullnægjandi greinar-
gerð um notkun heimildarinnar.
Fjárhæð óbeinna fyrninga skal
ekki færa á fyrningaskýrslu held-
ur sem sérliö á rekstrarreikning
eða landbúnaðarskýrslu ellegar
beint i 7. tölulið IV. kafla
framtals. Þessi óbeina fyrning
breytir ekki bókfærðu verði eign-
anna.
Ef i rekstrarreikningi (þ.m.t.
landbúnaðarskýrsla) eru fjár-
hæðir, sem ekki eru i samræmi
við ákvæði skattalaga, svo sem
þegar taldar eru til tekna fjár-
hæðir sem ekki eru skattskyldar
eða til gjalda fjárhæöir sem ekki
eru frádráttarbærar, skal úr þvi
bætt með áritun á rekstrarreikn-
inginn eða gögn með honum.
Sama gildir ef framteljandi vill
nota heimild til frestunar á skatt-
lagningu skattskylds hluta sölu-
hagnaðar eigna en sú fjárhæð
skal enn fremur sérgreind á efna-
hagsreikningi.
Gæta skal þess sérstaklega að i
rekstrarreikningi séu aðeins þeir
liðir færðir er tilheyra þeim at-
vinnurekstri sem reikningurinn á
að vera heimild um. Þannig skal
t.d. aðeins færa til gjalda vexti af
þeim skuldum sem til hefur verið
stofnað vegna atvinnurekstrarins
en ekki vexti af öðrum skuldum
og ei skal færa til gjala á rekstr
arreikning önnur persónuleg
gjöld, sem ekki tilheyra atvinnu-
rekstrinum, þótt frádráttarbær
séu, svo sem lifeyris- og liftrygg-
ingariðgjöld, heldur skal færa
þau i viðkomand liði i frádráttar-
hlið framtals. Sama gildir um
tekjur sem ekki eru tengdar at-
vinnurekstrinum, svo sem eigin
húsaleiga, vaxtatekjur og arð.
Þessar tekjur skal færa i viðkom-
andi liði i teknahliö framtals.
Tekjur af útleigu eða reiknaða
húsaleigu af ibúðarhúsnæði svo
og öll gjöld vegna hennar, svo
sem fasteignagjöld, fyrningu,
viðhald og vaxtagjöld, sem til-
greind eru á rekstrarreikningi,
ber á sama hátt að draga út úr
rekstrarreikningi með áritun þar
á eða gögn með honum. Hreinar
tekjur af útleigðu ibúðarhúsnæöi
ber að telja til tekna i tölulið 2
eins og þar er fyrir mælt. Reikn-
aða húsleigu skal telja til tekna i
tölulið 3 en gjöld tengd henni til
frádráttar, sbr. töluliði 1 og 2 i V.
kafla framtals.
Endurgjaldslaus afnot laun-
þega ( og fjölskyldu hans) af
ibúðarhúsnæði i eigu vinnuveit-
anda hans ber vinnuveitandanum
að telja til gjalda i rekstrarreikn-
ingi með 4% af gildandi fast-
eignamati hlutaðeigandi ibúðar-
húsnæðis og lóðar en sömu fjár-
hæð ber honum að telja til tekna i
tölulið 3 I teknahlið framtals.
Sama gildir ef hluti ibúðarhús-
næðis i eigu atvinnurekanda er
notaður vegna atvinnurekstrar-
ins.
Láti vinnuveitandi starfsmönn-
um sinum i té bifreiðar til afnota
endurgjaldslaust eða gegn óeðli-
lega lágu endurgjaldi ber að láta
fylgja rekstrarreikningi sundur-
iiðun á rekstrarkostnaði bifreið-
anna með meðtöldum fyrningum,
ásmt upplýsingum um afnotin i
eknum km, fjárhæð endurgjalds
og nöfn notenda. Hafi atvinnurek-
andi hins vegar sjálfur, fjölskylda
hans eða aðrir aðilar bifreiðar
hans til afnota ber að láta fylgja
rekstrarreikningi sundurliðun á
rekstrarkostnaði bifreiðanna að
meðtöldum fyrningum, ásamt
upplýsingum um heildarakstur
hverrar bifreiöar á árinu og um-
rædd afnot af eknum km og draga
gjöld vegna þessara afnota frá
rekstrargjöldum með áritun á
rekstrarreikninginn eða gögn
með honum.
Vinni einstaklingur eða hjón .
annað hvort eða bæði eða ófjár-
ráöa börn þessara aðila, við eig-
inn atvinnurekstur eða sjálfstæða
starfsemi ber ■ að geta þess með
athugasemd á rekstrarreikning-
inn eða gögn með honum og til-
greina vinnuframlag framtelj-
anda sjálfs, maka hans og ófjár-
ráða barna hans.
Laun reiknuð framteljanda sjálf
um eða maka hans, sem hafa ver-
ið færð til gjalda á rekstrarreikn-
ingnum, ber að tilgreina sérstak-
lega á honum, aðskilið frá launa-
greiðslum til annarra launþega,
og gera viðeigandi úrbætur, sbr.
4. mgr. þessa töluliðar.
Hreinar tekjur skal siðan færa i
1. tölulið III. kafla eða
rekstrartap i 12. tölulið V. kafla
framtals.
2. Hreinar tekjur af eignaleigu,
þ.ni.t. útleiga ibúöarhúsnæðis