Þjóðviljinn - 28.02.1975, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 28.02.1975, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. febrúar 1975 Skemmtileg keppni á skákþingi Kópavogs Nú er lokið 7 umferöum i und- ankeppni Skákþings Kópavogs. Keppt er í 2 riðlum í meistara- flokki, 10 keppendur i hvorum riðli. Mótið er mjög vei skipað. Sigurvegarinn fær réttindi til að tefla í landsiiðsflokki á skákþingi islands og hefur það dregiö að marga sterka skákmenn. UMSJÓN JÓN G. BRIEM 1 A-riðli stendur Helgi Ólafsson best að vigi. Hann er með 5.5v. og eina óteflda skák. Helgi sigraði i meistaraflokki á skákþingi Is- lands í fyrra og hefur því þegar öðlast þátttökurétt i landsliðs- flokki. Jóhannes Jónsson er með 5.5 v. úr 7 skákum. Benedikt Jónasson er með 4.5 v. Július Friðjónsson og Björn Sigurjóns- son eru einnig i A-riðli en eiga ekki möguleika á efstu sætunum. Af þvi má sjá hve vel mótið er skipað. t B-riðli eru Bragi Halldórsson og Eirikur Karlsson með 5.5 v. Kristján Guðmundsson er með 5 v. og eina biðskák. Ásgeir Þór Árnason er með 4 v. og tvær bið- skákir sem liklega eru unnar. Hann getur þvi náð 6 v. i 7 um- ferðum og staðið þannig best að vigi i riðlinum. Tveir efstu menn i hvorum riðli munu siðan tefla 4 manna mót um titilinn skákmeistari Kópavogs 1975. Fyrir 7. umferð stóð Erikur Karlsson best að vigi i B-riðli með 5.5 v. af 6. Hann hafði hvitt I þeirri sjöundu gegn Braga Halldórs- syni. Bragi beitti Grunfelds vörn og tefldi frumlega. t 7. leik fórnar hann peði. Eirikur hefði átt að svara þvi með Dxb7, en þáði peðsfórnina. Þar með var Bragi kominn á bragðiö og hélt áfram að fórna peðum og bætti jafn- íramt stöðu sina. Eftir 23 leiki er hann kominn með menn sina i þannig stöður að hvitur er alger- lega varnariaus. Hann nær ekki að hróka og drottning hans er eini maöurinn sem eitthvert gagn gerir. í 39. leik lætur hann þó verða af hrókun en mátti sam- Helgi Óiafsson. stundis gefast upp. Bragi hefði þá getað verið búinn aö gera út um skákina með 23. Bxb2 en varnar- leysi hvits var svo algjört að litlu máli skipti hvaða vinningsleiö var valin. Hér kemur skákin: Hvitt: Eirikur Karlsson Svart. Bragi Halidórsson. Grunfelds vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Bf4 Bg7 5. e3 0-0 6. Rf3 Bg4 7. Db3 Rh5 8. Rxd5 c6 9. Bc7 Dd7 10. Bxb8 Bxf3 11. gxf3 cxd5 12. Bg3 f5 13. cxd5 f4 14. Bb5 Dd6 15. Bh4 Kh8 16. Da3 Dd5 17. Be2 fxe 18. fxe e5 19. Dc5 De6 20. d5 Dh3 21.1)e7 e4 <32. Dxe4 Rf4 23.B f2 Ha e8 24. Dc2 Rxd5 25. e4 Rf4 26. Be3 Rxe2 27.1)xe2 Hxf3 28. Bf2 Dg4 29. 0-0-0 Hc3 gefiö. Jón G. Briem. VIPPU - BÍLSKÚRSHURÐIN Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm - 210 - x - 270 sm Aðrar stærðir. smíðaðar eftir beiðni. GLUGGAS MIÐJAN Síðumúja 12 - Sími 38220 Grænar baunir Ora heil dós kr. 108 Grænar baunir Ora hólf dós kr. 68 Libby's tómatsósa kr. 1 1 1 Maggy súpur kr. 59 Ritz kex kr. 71 Jakob's tekex kr. 64 Sani Wc pappír 25 rúllur kr. 918 Eldhúsrúllur frd kr. 126 C-1 1 10 kg. kr. 1414 Oxan 3 kg. kr. 498 Vex 3kg. kr. 498 05$$^ \0 Vörumarkaðurinn hl. ÁRMULA 1A, SÍMI 06112. REVKJAVIK 1 x 2 — 1 x 2 26. leikvika — leikir 22. feb. 1975 Úrslitaröð: 121 — 11X — Xl2 — 211 1. VINNINGUE: 11 réttir — kr. 113.000.00 37340 37340 37340 2. vinningur: 10 réttir — kr. 4.200.00 848 8933 13622 + 35883 36591 37019 38422 2753 11147 35101 35883 36595 37073 38593 + 2825 12672 35407 35896 36595 37243 38720 5094 12700 35446 36210 36634 + 37344 38865 6411 13597 35734+ 36258 36641 + 38051 + nafnlaus Kærufrestur er til 17. marz kl . 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur vcrða teknar tii greina. Vinningar fyrir 26. leikviku veröa póstlagöir eftir 18. marz. Handhafar nafnlausra seðla verða að framvisa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilis- fang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga. GETRAUNIR — íþróttamiöstöðin — REYKJAVIK Meðferð drykkjusjúkra af hálfu hins opinbera Ég hefi, ásamt hundruðum annarra, lent i þvi að þurfa á að halda uppihaldi á drykkjumanna- hælum hins opinbera. Litla bót krankleika mins hef ég þó hlotið á stöðum þessum. Mun ég nú reyna að lýsa einu hælinu eins og þaö kom mér fyrir sjónir. Staður sá, sem um er að ræða, nefnist Gæsluvistarhælið að Gunnars- holti. Menn taki eftir: Gæsluvist- arhæli.En hvaða glæp hefur mað- ur framið? Staðarvalið er ákjósanlegt — ef halda á mönnum algerlega sam- bandslausum og einangruðum frá umheiminum. Þetta er uppi við Heklurætur. Alveg eins hyggilegt hefði þó verið aö reisa hælið nær mannabyggðum, en nota þá bara rimla og múra til að halda þess- um stórhættulegu óvinum samfé- lagsins óvirkum og inniluktum. Nú skulum viö, lesandi góður, hugsa okkur að þú sért drykkju- maður og kominn þarna austur i fyrsta sinn. Þú ferðast þangað i fylgd með lækni staðarins, sem reyndar sést þar ekki nema hálfs- mánaðarlega og rétt bregður fyr- ir. Félagsráðgjafi svokallaður er einnig með i ferðinni. Sá gerir lit- ið annað en taka i nefið og reka áróður fyrir A.A.-samtökunum. Þegar austur er komið, er boðið upp á kaffi og sætabrauð. Siðan er farið að snúa sér að þvi sem kall- ast ,,að skrifa undir”. Hér er reyndar um lögleysu að ræða.þvi að samkvæmt plaggi þvi, sem maður iieyðist til að undirrita (En neitun kostar fritt far aftur i bæ- inn á stundinni), skuldbindur maður sig til að dveljast i þrjá, oftar i sex, mánuði þarna eða á „öðrum opinberum stofnunum”; hverjar sem þær svo kunna að vera... Samkvæmt lögum þarf dóm til frelsissviptingar, og þarf þar enga undirskrift til. Þessu plaggi er þó fylgt fast eftir með lögregluvaldi, ef einhver „leggur á sandana”, semsé stingur af. • Þegar nú fylgdarliðið erhaldið heim á leið, kemur að fyrstu kynnum þinum við lið það, sem fyrir er á staðnum. Er þá fyrst að geta þeirra, sem eru i svipaðri aðstöðu og þú sjálfur, en þeir eru reyndar i miklum minnihluta, kannski fimmtán til tuttugu — af fimmtíu manna hópi. Afgangur- inn eru nefnilega örvasa gamal- menni, geösjúklingar og ýmiss konar fávitar, sem sest hafa þarna upp og fara þaðan varla aftur, fyrr en búið er að slá utan um þá. Nærri má nú geta, hversu upplifgandi áhrif mannskapur sem þessi hefur á viðkvæman, taugaóstyrkan og óhamingju- saman mann eins og þig, sem nú hefur verið visað i bás með þcss- um söfnuði- sem kleppurinn ætti að hafa annarsstaðar til húsa. Þunglyndi sverfur fast að næm- geðja mönnum við aðstæður sem bessar, og er engin furða. Á að giska hálfsmánaðarlega kemur blessaður doktorinn i vitj- un. Og nú býst maður við þvi að geta fengið einkaviðtal við lækni sinn, jafnvel lyf, — þó ekki væri nema við svefnleysinu, sem er al- gengur fylgifiskur undangenginn- ar ofdrykkju og getur jafnvel leitt til óbærilegra ofskynjana, en á þvi hef ég sjálfur fengið að kenna. Er að samtalinu við lækninn kemur, er þó ekki þvi að heilsa, að það geti farið fram undir fjög- ur augu — eins og þó mætti ætla að væri alveg bráðnauðsynlegt undir kringumstæðum sem þess- um. Starfsmaður hælisins situr yfir manni á meðan. Það gefur auga leiö, aö viðkvæm mál vera vart rædd, þegar slikur háttur er á hafður. Útkoman verður svo slatti af pillum, en ekkert samtal; varla aö maður sé að þvi spurður hvernig heilsan sé. Á meðan þessu fer fram, drekk- ur „félagsráðgjafinn” kaffi með starfsmönnum hælisins, en þeir eru reyndar furðu margir á ekki stærri stað. Ráðgjafinn virðist þó litið gefa af góðum ráðum, en þeim mun fleiri snússa i nefið; enda miklu handhægara og fyrir- hafnarminna en að reyna t.d. að greiða götu manna i sambandi við húsnæði, eftir að i bæinn er komið að lokinni,, gæslu”vist, svo dæmi sé nefnt. Ætlast er til, að maður vinni þarna, aðallega við að steypa steinheliur og aðra grjðthnull- unga, en slik vinna er vel til þess fallin að drepa hvers manns bak. Timakaupið var um sl. áramót kr. 45. Eftir þriggja mánaða puö stendur maðurinn kannski uppi með 15 þiis. kall, i mesta lagi. Og þegar svo doktorinn og ráðgjafinn aka aftur með hann út i frelsið, skilja þeir hann eftir einhvers staðar niðri i miðbæ Stór-Reykja- vikur. Púnktum og basta. Hælis- billinn þeytist burtu, en eftir stendur „róninn” i nákvæmlega sömu sporum og fyrir afvötnun- ina. Venjulega er Rikið eða eitt- hvert apótek skammt undan. En hvern djöfulinn á þessi endemis þvælingur og ráðleysi að þýða? Hvað er verið að gera? Hvað kosta þessi fiflalæti þjóð- arbúið árlega? Engan alkóhól- ista hef ég enn fyrirhitt, sem ekki þráir innst inni að hætta. En mér er spurn: Er þettaleið- in til að hjálpa mönnumúrklóm Bakkusar? Nei — nei og aftur nei. Þessi mál þarf að taka fyrir algerlega frá grunni; það þarf að verða grundvallar-breyting á viðhorf- um máttarstólpa þjóðfélagsins. Kannski þarf fyrst og fremst að skipta þar um toppstykkin; þá væri kannski veik von um það, að hugsandi menn tækju viö af idiót- um og fávitum. Ungur drykkjumaður Frá skákþingi Suðurlands Skákþing Suðurlands hefur staðiö yfir um nokkurt skeið, en þvi lauk 23. febrúar. Fór það fram á Selfossi. 1 sameiginlegum meistara- flokki og 1. flokki voru 14 kepp- endur. Tefldar voru 9 umferðir eftir Monrad-kerfi. Efstur varð Hannes Ólafsson, Landssveit með 7 vinninga og i öðru og þriðja sæti þeir Guöbjörn Sigurmundsson, Hraungerðishreppi og Helgi Hauksson, Hverageröi með 6 vinninga hvor. Tólf keppendur voru i unglinga- flokki. Sigurvegari varö Almar Sigurðsson, Selfossi. Hlaut hann sex og hálfan vinning af sjö mögulegum. úþ Nýtízku karlmannaföt Glæsilegt skandinaviskt snið kr. 8.990,- Skiðaúlpur, nýtt snið og litir kr. 3.550,- Terylenefrakkar 3.550,-, sokkar kr. 80,- Terylenebuxur kr. 1.775,- kjarakaup Andrés, Skólavörðustig 22

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.