Þjóðviljinn - 02.08.1975, Page 5

Þjóðviljinn - 02.08.1975, Page 5
Laugardagur 2. ágúst 1975 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Ekki litur út fyrir aö aimenn- ingur hafi ýkjamikinn áhuga á öryggisráOstefnu þeirri, sem nú er að ljúka i Helsinki — nema helst þeir menn sem gagnrýna hana harðiega og likja henni við nýjan Munchenarfund. Blaða menn virðast ekki hafa mikið um hana að segja, nema þeir séu skikkaðir til þess, og sagt er að fréttamenn i Helsinki haldi kyrru fyrir i hóteli sinu og fletti þungly ndislega fréttaskeytum — frá Kampala. Þetta er að visu fyrsta ráðstefna æðstu manna Evrópuríkjanna siðan Vinar- fundurinn var haldinn fyrir hundrað og sextiu árum. En sá fundur á reyndar mikinn hluta frægðar sinnar að þakka tómstundaiðju þjóðhöfðingja, sem hann sátu. Eins og Talleyrand komst að orði: „Rússakeisari elskar, Dana- konungur drekkur, konungurinn af Wiirtemberg borðar, Prússa- konungur hugsar, konungurinn af Bæjaralandi talar og Austur- rikiskeisari borgar.” Siðan Kissinger gifti sig hefur vist minnkað tii muna rómantikin umhverfis ráðamenn þessa heimshluta, og má tæplega búast við þvi að ráðstefnan I Helsinki skilji eftir sig slikan orðstir I sögunni. Samt er þvi ekki að neita að það er umhugsunarvert, þegar Leonid Bresnéf með sinar 4000 kjarnaflaugar sest rólegur við fundarborð, þar sem fulltrúi páfastóls er i forsæti og hefur ekki nema tuttugu atgeira að bakhjarli. Eða þegar Ford for- seti með 8000 kjarnaflaugar tek- ur til máls á fundi þar sem full- trúi Liechenstein er forseti, en allur her þess rikis er skógar- vörður með veiðibyssu. „Menn verða að verðskulda öryggið, það er ekki hægt að vinna það á tombólu”, sagði Nic Jobert, fyrrverandi utanrikis ráðherra Frakklands, einhvern tima þegar verið var að ræða undirbúning ráðstefnunnar. Sannleikurinn er sá, að þótt það hafi verið sovétmenn sem báðu stöðugt um að þessi ráðstefna yrði haldin og kröfðust þess að einhver yfirlýsing yrði undirrit- uð — með slikum aðgangi að vondar tungur töluðu um „pappirs-fetisjisma” — og bandarikjamenn hafi alltaf litið á það með mikilli tortryggni og talið slika ráðstefnu annáð hvort bellibrögð af hálfu sovétmanna eða hreinan skripaleik, voru það smáþjóð- irnar, sem komu þvi til leiðar með kröfum sinum að ráðstefn- an fékk það innihald sem hún nú hefur. Kannske verður það ein- mitt þetta atriði sem greinir hana mest frá Vinarfundinum, sem nú er oft vitnað til, þvi að hann staðfesti sigur verstu afturhaldsafla álfunnar og hon- um fylgdi siðan hörmulegt kúgunartimabil fyrir ýmsar þjóðir sem lokaðar voru inni innan landamæra þáverandi stórvelda. Upphaflega voru það sovét- menn, sem óskuðu eftir þvi að þessi ráðstefna yrði haldin, og virtist aðalatriðið það að fá ein- hverja alþjóðlega tryggingu á núverandi landamærum Evrópu, sem sovétmönnum er mjög I nöp við að verði véfengd. Kissinger, sem hafði enga trú á þvi að slik ráðstefna kæmi að nokkru gagni, lét að lokum und- an þrábeiðni sovétmanna, að þvi er virðist vegna þess, að hann taldi að betra væri fyrir bandarikjamenn, að styðjast við bakið á þeim ráðamönnum eystra, sem vildu draga úr viðsjám og skapa raunhæfa samvinnu austurs og vestur. „Það er ekki hægt að láta Brésnéf koma allsberan fyrir flokksþingið 1976 og eiga þá á hættu að besti talsmaður frið- samlegrar sambúðar i Sovét- rikjunum lendi þar i minni- hluta”, var sagt. Upphaflega átti að ræða um tvenntjöryggis mál Evrópu og aukna samvinnu milli austurs og vestur á sviði verslunar og tækni. En þá kom i ljós að smærri þjóðir voru engan veginn Sigur smáþjóðanna Þannig leit þýska vikublaðið „Der Spiegel” á öryggisráöstefnuna i Helsinki, en smárikin reyndust ekki eins leiðitöm og teiknarinn vill vera láta. samþykkar þvi að koma i einni hjörð og undirrita skjal til þess eins að gera Brésnef og Kissinger ánægða. Og þar sem ákveðið hafði verið að ekkert skyldi standa i lokayfirlýsing- unni, sem ekki næðist alger ein- ing hinna 35 rikja um, tókst smáþjóðunum að bæta ýmsum atriðum við á undirbúningsráð- stefnunni i Genf, þótt Kissinger þrautleiddist þófið. Evrópu- þjóðunum tókst að bæta við þau tvö aðalatriði sem fyrst átti að ræða um, þriðja kaflanum um frjáls samskipti manna, frjálsa fréttadreifingu og menningar- leg samskipti. Sovétmenn samþykktu þetta allt, þótt Grómykó nöldraði: „Ég get þó ekki neytt landa mina til að lesa það sem þeir hafa ekki áhuga á! ” En þetta var þó ekki allt og sumt. Dom Mintoff forsætisráð- herra Möltu tókst að koma inn i yfirlýsinguna grein um nauðsyn þess að draga úr vigbúnaði á Miðjarðarhafi, og það sem var vafalaust enn mikilvægara: ýmsar hlutlausar smáþjóðir fengu þvi framgengt að við yfir- lýsinguna var bætt ýmsum atriðum, sem fordæmdu alger- lega það sem stundum hefur verið kallað „Bresnéf-kenning- in”. Samkvæmt þessum ákvæð- um yrði ný árás af sama tagi og árás Varsjárbandalagsrikjanna i Tékkóslóvakiu 1968 og innrás tyrkja i Kýpur 1974 algert brot á þeirri yfirlýsingu sem nú á að undirrita i Helsinki. Eftir tveggja ára umræður i Churchill, Roosevelt og Stalín á ráðstefnunni f Yaita 1945. Þar voru lögö drög aö þelrri skipun Evrópu sem nú á að staöfesta. Genf er þá yfirlýsingin orðin mjög veigamikil. Fyrstu kaflar hennar, sem fjalla um öryggis- mál Evrópu — þau mál sem sovétmönnum var mest i muna að ræða — mæla nú svo fyrir að þeir, sem undir yfirlýsinguna skrifa, muni ekki reyna að breyta landamærum álfunnar með valdi, ekki gera innrás á önnur riki né hernema þau. Þeir muni viðurkenna rétt smáþjóða og þjóðarbrota og sjálfsákvörð unarrétt þjóða, og einnig rétt rikja til að gera samninga og ganga i hernaðarbandalög eða vera hlutlaus. Nú er auðvelt að gera gys að þessum atriðum og benda á hvernig hvert og eitt þessara atriða hefur verið rofið undan- farin ár, eða draga fram i dags- ljósið hræsni risaveldanna. Það má nefna innrás i Tékkóslóvakiu, innrás i Kýpur, miskunnarlausa kúgun smá- þjóða á Spáni, ritskoðun ekki aðeins i Sovétrikjunum heldur lika viðar i Vestur-Evrópu en menn gera sér venjulega i hugarlund. Það er lika hægt að hæðast að þvi að Kissinger skuli vara sovétmenn við nokkurri ihlutun i innanrikismál Portúgals á sama tima og upp kemur i Asoreyjum sjálfstæðis- hreyfing, sem kemur banda- rikjamönnum allt of vel til þess að þeir séu ekki grunaðir um að hafa þar hönd með i bagga. Loks er hægt, eins og frakkar gera, að skopast að stil yfirlýs- ingarinnar, sem er satt að segja ekki beysinn, og segja að stjórn- málamenn séu að leiðrétta með holum orðum þann veruleika sem þeir ráði ekki við i raun. En þrátt fyrir þetta skiptir það ekki svo litlu máli, að þarna gerðist það i fyrsta skipti að bandarikjamenn gengu ófúsir að viðræðum (er það ekki skýring- in á illsku bandariskra fjölmiðla nú?) og sovétmenn urðu að semja um fjölmörg atriði, sem þeir höfðu hreinlega ekki verið til viðræðu um áður, en smærri þjóðum tókst að sýna fram á að máttur þeirra er meiri en flestir höfðu haldið. Yfirlýsingin sem verður undirrituð i Helsinki er ekki samningur i réttu formi, heldur aðeins stefnuyfirlýsing, sem skuldbindur engan. En hún er þó jafnframt skráður siðferðismælikvarði og hér eftir verður auðveldara en áður að sjá hvar og hvernig þessar sið- ferðisreglur eru rofnar og erfiðara að þegja um það órétt- læti sem framið er. Svo verður haldinn nýr fundur árið 1977 og þá má vega og meta hegðun hinna 35 þjóða. e.m.j. Vinarfundurinn 1815: „Rússakeisari elskar, Danakonungur drekkur....”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.