Þjóðviljinn - 02.08.1975, Síða 8

Þjóðviljinn - 02.08.1975, Síða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. ágúst 1975 Heilar sveitir virðast hafa margtæmst Vesturferðir íslendinga munu einn minnisstæðasti þátturinn í sögu okkar þessa öldina og þá næstu á undan. Þeir íslendendingar munu fáir, að minnsta kosti á landinu norðan- og austanverðu, sem ekki eiga nákomna ættingja í Kanada eða Bandaríkj- unum. Vesturf erðirnar voru mikið tilf inningamál, eins og viss verk skálda eins og Guðmundar á Sandi og Matthíasar Jochums- sonar vitna um, en með miklum rétti má halda því fram að þær hafi verið ó- hjákvæmilegar með tilliti til allra aðstæðna. — Und- anfarið hafa íslenskir sagnf ræðingar haft með höndum viðtækar rann- sóknir á þessum örlaga- ríka þætti íslandssögunnar >og er einn þeirra Berg- steinn Jó sson lektor. Þjóð- viljinn hafði fyrir skömmu tal af honum um þessa at- burði. — Hversu stór hluti þjóöar- innar var það, sem flutti vestur, Bergsteinn? — Þeir sem fluttu voru saman- lagt eitthvað á milli fimmtán og tuttugu þúsund, þó nær lægri töl- unni. Og á þessu timabili fjölgar landsmönnum úr um það bil sjötiu þúsundum upp fyrir niutiu þúsund. Þetta hefur verið svo mikið útstreymi að það nálgast það sem var hjá irum og norð- mönnum, sem annars fluttu vestur allra þjóða mest, miðað viö fólksfjölda, en vel að merkja á langtum lengri tima. Fólksstraumurinn vestur stöðvaðist í Reykjavík og sjávarplássunum — Hvert er hið eiginlega vesturferðatimabil islendinga? — 1873—1914. Flutningarnir stöðvuðust að mestu við striðið, og að þvi loknu fóru Bandarikin að amast við innflutningi fólks i skörum eins og áður gerðist. Svo kom kreppan og fór sist betur með þau en okkur. Framfarir i atvinnumálum hér á landi áttu iika sinn þátt i þessu. Þeir sem urðu að bregða búi þurftu ekki lengur að flytjast eins langt og áður, það er að segja ekki úr landi. Togarar og mótorbátar sköpuðu nú atvinnumöguleika fyrir menn, sem áður höfðu ekki haft um neitt að velja nema bú- skap á heiðarbýli eða að flytjast til Ameriku. Reykjavik og út- gerðarplássin tóku við þeim fólksstraumi, sem áður hafði runnið alla leið til Ameriku. — Er langt síðan þú fórst að kanna þessa sögu, Bergsteinn? — Ég fór varla að ráði að athuga þetta fyrr en 1970—71. Ég var þá með plögg Tryggva Gunnarssonar, en þar er mikið fjallað um vesturferðir. Svo hafði ég spurnir af bandarískri stofnun, sem heitir American Council of Learned Societies. Ég held að hún sé fjármögnuð af Ford Founda- tion. Þeir hafa um langt skeið sent út plögg og boðið útlendum húmanistum styrki, en ég er vist sá eini hérlendis sem sótt hefur um þetta, fyrr og siðar. Ég fékk styrkinn og starfaði svo að rann- sóknum i tiu mánuði i Bandarikj- unum 1971—2. Steyptir vegir kallaöir brautir. — t hverju fólust þær rann- sóknir helst? — Þær voru margþættar. Ég þurfti að bgirja á þvi að kynna mér sögu fólksflutninganna inn i landið, Immigration History, og það sem þeir kalla Western History, sem er sagan af land- námi hvitra manna þar, sérstak- ipga þó i Miðvestrinu. Hér heima voru .haldnar útflytjendaskrár, bæði til að koma i veg fyrir að agentar féflettu útflytjendurna að þeir siðarnefndu hlypu frá skuldum. Prestar skráðu lika þá, sem viku á brott úr sókninni. Er þvi um geysimiklar heimildir að ræða, bæði vestan hafs og austan, en mikið verk að komast til botns i þeim. — Nota menn íslensku ennþá scm daglegt mál fyrir vestan? — Já, allavega i einhverjum is- lendingabyggðum i Kanada, er mér sagt, og i Bandrikjunum virðist mér sem vesturislend- ingar niður i fertugt að minnsta kosti séu enn vel mæltir á islensku. En sú islenska, sem þeir tala þar, er kannski ekki að öllu leyti eins og það mál, sem nú er talað hér heima.Orðaforðinnhelst frábrugðinn. Talsvert er þannig um það að vesturislendingar varðveiti enn málvenjur, sem tiðkaðar voru á fslandi á nitjándu öld, en eru nú svo til útdauðar hér. Vesturislendingar kalla til dæmissteypta vegi brautir.Þetta er hliðstætt þvi, sem vitað er um fleiri þjóðir. Athuganir, sem sviar gerðu meðal afkomenda sænskra vesturfara sýndu að þeir töluðu enn mállýskur, sem voru útdauð- ar heima i Sviþjóð. „Fáðu nú ekki flatar tær" — Er málið ekki mikið farið að blandast? — Jú, eitthvað, það segir sig sjálft. Þegar vesturislendingar tala til dæmis um eitthvað sem viðkemur vélum og tækni, eru þeir áður en varir komnir yfir i enskuna, þótt þeir haldi kannski sjálfir að þeir tali enn islensku. Og sum islensk orð hafa þeir öðruvisi en þekkist hér heima. Þeir hafa til dæmis bilinn og simann i hvorugkyni: segja ,,bil- ið” og „simið”, ef þeir hafa á annað borð kynnst þeim orðum. Annars er það carið og fónið. Margir tala lika svokallað „mixað mál”, en fyrirverða sig heldur fyrir það gagnvart „islendingum að heima,” þótt þeir annars hafi það óspart i gamanmálum sin á milli. Þegar maður leggur af stað i bilferð, er þannig kannski sagt við hann: „Fáðu nú ekki flatar tær,” sem er útlegging á „Don’t get flat tyres,” sprengdu ekki hjólbarðana. Sumir nota tvö nöfn — En islenska þjóðarstoltið virðist lifa, fyrst menn fyrirverða sig fyrir mixaða málið. — Jú, það er lifandi. En auðvit- að renna þjóðabrotin smátt og smáttsaman. Islendingarnir hafa þó til þessa haldið sér furðanlega út af fyrir sig, eftir þvi sem ger- ist, og gifst mikið i sinn hóp Mér var sagt að sú kynslóðin, sem nú er á miðjum aldri, hefði verið sú fyrsta, sem að miklu leyti hefði gifst „hérlendu fólki”, það er að segja fólki af öðrum ættum en islenskum. En menn menn halda i þjóöernið. Það kemur til dæmis fram i þvi að sumir nota tvö nöfn, annað þegar þeir tala ensku, en hitt þegar þeir tala islensku. (Dæmi Friðrik-Fred, Haraldur- Harry, Helga-Harriet) — Hvaða þjóðum blandast islendingar helst? — Þvi er ekki auðvelt að svara. Ég talaði við menn af norskum ættum, sem töluðu Islensku betur en norsku, af þvi að þeir höfðu al- ist upp i islendingabyggðum, en svo er aftur til aö islendingar hafi alist upp i byggðum norðmanna og orðið norskumælandi. í Mani- toba hafa islendingar lengi búið innan um innflytjendur frá slavneskum löndum, rússa, pól- verja, tékka. Þá kalla vesturis- lendingar galla. Það stafar af þvi að margir þessara slavnesku inn- flytjenda komu frá Galisiu, sem nú skiptist milli Póllands og Úkrainu, voru „júkreiningar,” eins og vesturislendingar segja. Frumbýlingsárin erfið — islendingarnir, sem fluttust vestur, voru flestir bændur og héldu áfram að verða það i nýja landinu. Eru afkomendur þeirra það margir enn? — Já, þeir hafa margir haldið tryggð við landbúnaðinn. Við verðum að athuga að flestir vesturfaranna yfirgáfu tsland af þvi að þeim stóð ekki til boða að verða bændur þar. En sá búskap- ur, sem tók við fyrir vestan, var auðvitað gerólikur þvi, sem þeir þekktu hérðan að heiman, svo að þeir urðu að læra öll handtök og verk frá byrjun. Frumbýlingsár- in hafa þvi að likindum orðið þeim á margan hátt erfiðari en bændafólki frá öðrum löndum Evrópu, sem vant var svipuðum búskaparháttum og við tóku fyrir vestan. En siðan á frumbýlings- árunum hefur margt breyst. Þró- unin er I þá átt að jarðirnar stækka, og sumar þær rýrari hafa lagst i eyði. Margt unga fólkið leitaði og leitar til borganna, ekki sist vestur á strönd, en tiltölulega margir halda sig samt enn við búskapinn. Góð sambúð við indíana — Lentu islendingar nokkuð i árekstrum við indíana, eins og sviar og norðmenn i Minnesota? — Nei, ekki teljandi. Einhverj- ir islendingar voru með i þvi að berja niður Riel-uppreisnina i Kanada, en ég man ekki eftir að þeim hafi að öðru leyti lent saman við indiána. Til Minnesota og Norður-Dakota komu þeir ekki fyrr en indiánabardagarnir þar voru um garð gengnir. Hins eru aftur á móti mörg dæmi að islendingar ættu vinsamleg skipti við indiána og ég held að óhætt sé að fullyrða að islensku landnem- arnir hafi umgengist frumbyggj- ana á meiri jafnréttisgrundvelli en þá var algengast. Við verðum að hafa i huga að á þessum timum var litið á indiána sem villimenn, sem talið var að þyrfti að siða með öllum tiltækum ráðum, meðal annars með þvi að drepa þá, ef þeir hurfu ekki með góðu að háttum hvitra manna og krist- inna. En þess voru nokkur dæmi að islendingar kvæntust indiána- konum og tækju að sér indiána- börn og ælu upp. Mér var til dæmis sögð saga af indiána, sem vakti athygli islendinga með þvi að tala islensku engu verr en þeir sjálfir. Var hann þá spurður hvort hann væri virkilega islendingur. Nei, svaraði indiáninn, ég er skagfirðingur. Islensku landnemarnir i Nýja- tslandi við Winnipegvatn höfðu mjög góð samskipti við indiánska nágranna. Indiánar kenndu þeim meðal annars að veiða fisk upp um is, sem varð þeim til mikillar Þessi mynd var tekin um borð I vesturfaraskipinu Camoens í Reykjavlkurh Daníelssyni, fannst nú nýverið, og er þetta í fyrsta sinn sem hún birtist opin sammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mm^mmmmmmmm^^mmmmmmmmmm^mmmmmwm^mmmm^mmmm^^^mmmmmmmmm Rætt við Bergstein Jónsson lektor Bergsteinn Jónsson lektor.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.