Þjóðviljinn - 26.10.1975, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 26.10.1975, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Sunnudagur 26. október 1975. Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir Borgar sig að f rysta — og þá hvernig? Að frysta mat er nú oröið svo algengt, að ef til vill er óþarfi aö segja nokkrum hvernig fara skal að því, það er þó svo, að fólk er ótrúlega illa að sér almennt i frystingu matvæla, enda er það meiri vandi en virðast kann i fljótu bragði. Flestir hafa nú aðgang að fristihólfi eða eiga sjálfir frystikistu eða skáp. Það eru þó ekki allir sam hafa hellt sér út I „frystiæðið”, og ef til vill tapa þeir ekki svo miklu eftir allt. Að kaupa i stórum skömmtum og frysta er nefnilega ekki alltaf svo mikill sparnaður, amk ekki fyrir litlar fjölskyldur. Séum við i raun og veru vandlát i vali þess sem við látum ofan i okkur, getur það t.d. tæplega talist sérlega hag- kvæmt að kaupa allt að árs- gamalt kjöt af II. verðflokki, þýða það og frysta siðanafturoggeyma enn i marga mánuði. Þetta gerðu margar litlar fjölskyldur i haust, þegar útsalan var á nauta- kjötinu, en hvað skyldi taka þangan tima fyrir litla fjölskyldu að ljúka við 1/4 úr nautskrokk? Að minnsta kosti einn vetur, nema hún borði nautakjöt oft i viku, og slikt getur tæplega talist sparnaður. Við fyrsta flokks að- stæður er talið hámark að geyma nautakjöt i eitt ár og þá á það helstaldrei að afþiðna á þvi tima- bili. Sá sparnaður sem felst i að kaupa mjög stóra kjötskammta 'fyrir litlar fjölskyldur er þvi dá- litið tvieggjaður, þvi hætt er við að sparsemin i matreiðslunni verði minni og að fjölskyldan borði almennt og oftar dýrari mat, þ.e. hún fær sér oftar dýran mat en ef hún þarf að kaupa hrá- efnið i hvert skipti. Þetta verður ► Sparnaðurinn við frystikistukaup getur verið takmarkaður fyrir fámenna fjölskyldu — Mikill vandi er að frysta mat og framreiða hann síðar — hver og einn að meta. Margir vilja hafa möguleika á að fá sér góða steik, þegar þeim sýnist, eiga alltaf aukabita fyrir gesti o.s.frv. En gleymum ekki að frystikistan kostar peninga og sömuleiðis rafmagnið sem hún eyðir. Það er kannski fyrst og fremst tímasparnaðurinn sem skiptir mál fyrir litlu fjölskylduna. Þar sem báðir foreldrar — eða aðilar — vinna úti, er timinn dýrmætur og það má ótvirætt spara dágóðan tima með þvi að geta fryst mat. Hagræðingin af að þurfa ekki stöðugt að hlaupa út i búð er það sem vegur þyngst á metunum, fyrir litlu fjölskylduna, þegar hún fær sér frystikistu. En við þurfum þá að læra að nota frystikistuna þannig að hún komi okkur að raunverulegu gagni. Þar sem mikil áhersla hefur verið lögð á framleiðslu og sölu á frystum, til- f f . i • f tó. búnum matarréttum, hefur reynslan viða orðið sú að þeir hafa orðið dýrir og ekki verulega góðir og þvi ekki notið nema takmarkaðra vinsælda. Maður þarf að vera verulega illa haldinn af timaskorti eigi slikt að borga sig, en þess frekar getur borgað sig að taka sér góðan tima af og til, þegar gott næði gefst og búa til stóran og mikinn skammt af einhverjum uppáhaldsrétti, láta hann kólna vel og setja siöan I álbakka og frysta. Slikt getur verið mikill sparnaður á hráefni, tima, rafmagni og peningum, Bakkarnir eru svo settir beint i ofninn þegar maður ætlar að neyta réttarins og ekki þarf einu sinni að óhreinka pottinn. Sömu- leiðis getur verið mjög mikill sparnaður fyrir litlar fjölskyldur að frysta brauð, þvi hvað skyld- um við henda miklum peningum i hörðum brauðskorpum, sem gleymast inni i skáp? Viða er brauðneyslan á dag ekki nema 2-4 sneiðar. Þá er best að sneiða brauðið niður og geyma i frysti i álpakka. Siðan má taka eina og eina sneið út og best er að setja hana frysta beint i brauðristina. Þá er brauð- ið eins og nýtt. Brauðafgangar, sem maður sér fram á að ljúka ekki við áður en þeir fara að harðna, eiga iika að fara beint I frystinn, þá máalltaf nota i heitt ostabrauð siðar. Fryst grænmeti einkum ef það er ræktað heima fyrir, er gott að eiga i frysti- skápnum, en sé grænmetið keypt i búð, þarf auðvitað að kaupa það á þeim tima sem mest er fram- boðið af þvi og það er þá jafn- framt ódýrast. Ráð varðandi djúpfrystingu Hér eru svo nokkur ráð varð- andi djúpfrystingu á kjöti: ■ Notið áiumbúðir ef geyma á matinn lengi. Tilraunir með umbúðir i frysti sýna að séu tveir 110 g kjötbitar settir i frysti, annar i áli og hinn i poly- eten (piast) poka og frystir i 10 mánuði má gera ráð fyrir að bitinn i álinu sé enn jafn þungur og I upphafi en sá i plastinu get- ur verið kominn niöur i 70 g. Hafið eins iitið loft með i um- búðumum og unnt er. ■ Þegar fryst kjöt er steikt á að nota litla feiti og hitinn á ofni eða pönnu á einnig að vera minni en ef kjötið væri þitt, eða ca 25 gráðum minni. Hækkið ekki hitann, en hafið kjötið hcldur lengur i ofninum. Sé kjötið steikt á að snúa þvi viðstöðulaust. ■ Þiðið kjöt aldrei i stofuhita. Þá aukast mögulcikarnir á gerlamyndun. Best er að þiða kjöt i isskáp eða i vatni, en þá þarf það að vera i loftþéttum poka. ■ Gott kjöt, fryst eða þítt, veröur aldrei meyrara á að ofn- steikja það. Vandinn er aö velja rétt hitastig, en sé kjötiö seigt að innan, er gagnslaust aö steikja það meira, það verður aðeins enn þurrara og harðara. ■ Best er að fylgjast með steik- ingunni með þvi að skera með beittum hnif i kjötið. Takið kjöt sem á að vera hálfsteikt að inn- an, alltaf út úr ofninum nokkru áður en það er snætt, það heldur nefnilega áfram að meyrna i smástund á diskinum. ■ Setjið aldrei vatn i pott eða pönnu með steiktu kjöti, nema þið ætlið að sjóða kjötiö. Best er að setja vatnið á pönnuna (t.d. ef baka á upp sósu) þegar pann- an er aðeins farin að kólna, þá brennur siður við á henni. ■ Best er að steikja frystan mat i ofni, hitinn er jafnari og siður hætt á að maturinn brenni við, en munið að hafa hitaun ekki of mikinn. ■ Þunnar kjötsneiðar, t.d. nautakjöt eiga að steikjast viö mikinn hita á pönnu i örstutta stund, séu þær of lengi á pönn- unni verða þær seigar. GEYMSLUTÍMINN Við 18 gráðu frost i góðum umbúðum má geyma kjöt eftirfarandi: Nautakjöt, magurt 10—12 mánuði, Feitt nautakjöt, kálfakjöt og lambakjöt 8—10 mánuði. Grisakjöt, magurt 6 mánuði. Svinakjöt og feitt grisakjöt 4 mánuði. Lifur, nýru og innyfli 5—6 mánuði. Kjötrétti 3—4 mánuði. Kjöthakk má geyma i helming þess tima sem uppgef- inn er fyrir hverja kjöttegund. Blettahreinsi- efni, sem skilur eftir blett Kona hringdi og vildi benda fólki á að fara gætilega I sakirn- ar ef það þyrfti að nota bletta- hreinsiefni. Sjálf haföi hún keypt efni i túpu sem hét H.J. n, og þóttist hún lesa leiðarvisinn vel. Þar var brýnt fyrir fólki að nota ekki hreinsiefnið án þess að gera fyrst tilraun á þeim hluta- efnisins, sem ekki sæist. Nú þetta getur reynst erfitt, þegar um flik er að ræða og maður á enga prufu af efninu, en konan sem hér um ræðir var með kápu sem þurfti að ná bletti úr. Hún valdi þvi faldinn og lét örlitið af efninu á hann. En viti menn, hreinsiefnið var svo sterkt að það tók allan lit af faldinum og meira en það, hreinsiefniö fór i gegn og I sjálfa framhlið káp- unnar og þar er nú stór hvitur blettur eftir. Konan hafði einnig reynt efnið al'tur á annarri flik og árangurinn var sá sami, báðar flikurnar eru ónýtar. Vildi hún vara fólk við þessu hreinsiefni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.