Þjóðviljinn - 26.10.1975, Blaðsíða 24
IBUÐA-
VERÐ
30% hækkun
síðan í aprfl
Tveggja herbergja íbúð kostaði
3,3 miljónir í apríl,
en nu kostar hún 4,5 miljónir
4ra herbergja íbúð kostar nú frá
6,5 miljónum upp undir 8 miljónir
eftir því hvar hún er í borginni,
og hvert ástand hennar er.
í Danaveldi er algengasta
útborgunarprósenta við
húsakaup 10, á íslandi er
útborgun allt að 70%.
Það er sífellt að verða
ófýsilegra viðfangsefni
að koma sér upp þaki
yfir höfuðið. Verðlag
fasteigna stígur jafnt og
þétt, kaup stendur í stað
mánuðum saman. Það er
til dæmis alkunn stað-
reynd, að síðan samið var
við verkalýðs-
hreyfinguna í vor um 12-
15% kauphækkun hefur
verðlag frágengis íbúðar-
húsnæðis hækkað um
30%, en húsnæðis í
byggingu enn meir.
Fyrir svo sem tveimur árum
gat fólk, sem þá var að koma
sér undir þak, átt von á svo og
svo mikilli fyrirgreiðslu i
bönkum. Nú heíur verið rikj-
andi tregðustefna i útlánapólitik
bakanna, og erfiðara en nokkru
sinni að verða sér úti um lán i
hvaða mynd sem er. Og alltaf
hækka ibúðirnar i verði, alltaf
fleiri peningar, sem greiða þarf,
en jafnframt minna verðmætí
hverrar krónu, sem talin er upp
úr launaumslögum.
En i hinu villimannslega þjóð-
félagi okkar kemst enginn und-
an þvi að kaupa sér þak yfir höf-
uðið vilji hann vera öruggur um
að vera ekki á sifelldum hrak-
hólum og háður duttlungum
leigusala.
Og hvað kostar það þá i
krónum talið að eignast eigið
húsnæði?
Sýnd veiði en
ekki gefin
Byggingarfélag atvinnu-
bifreiðastjóra, BSAB, reisir
fjölbýlishús við Engjasel i
Breiðholti II. Þar er hægt að fá
4ra herbergja ibúð,
112,77 fermetra, fyrir 5792
þúsund krónur og 5 herb. ibúð,
117,13 fermetra, fyrir 6.004
þúsund krónur. Byrjað var á
byggingu þessara húsa i vor, og
er byggingatimi eitt og hálft til
tvö ár. tbúðirnar eru seldar full-
tilb.
Greiðsluskilmálar eru þeir,
að fyrir 4ra herb. ibúð greiðist
1.130 þúsund við undirskrift
samnings, 800 þúsund krónur
við fokheldi og siðan 90 þúsund á
mánuði hverjum á byggingar-
timanum, eða i 24 mánuði. Fyrir
fimm herbergja ibúð þarf að
greiða 1.300 þúsund við
samnings gerð, 800 þúsund við
fokheldi og 92 þúsund á mánuði i
24 mánuði. Húsnæðismála-
stjórnarlán út á báðar stærðir
ibúða er 1.700 þús. krónur.
Nokkrar af ibúðum þessum
eru óseldar einn og greiðast við
útborgun þær upphæðir, sem að
framan greinir að viðbættum
mánaðagreiðslum frá þvi i júni,
þ.e.a.s. 450 þúsund krónum.
En nú er þetta sýnd veiði en
ekki gefin.
Um er að ræða áætlað verð.
Hækki byggingarvisitala,
hækkar ibúðarverðið en þó mun
það ekki vera beinlinis bundið
visitölunni, heldur kostnaðar-
auka á byggingartimanum, og
verður þvi hækkunin ekki alveg
eins mikil og nemur hækkun
byggingarvisitölu. Akvæði mun
vera i samningi um þessi i-
búðarkaup, að hækki visitala
upp yfir eitthvað tiltekið há-
mark má hækka mánaðar-
greiðslurnar.
Það verð, sem upp var gefið
hér að framan, var áætlað
samkvæmt visitölu 1. mars i ár.
Þá var byggingarvisitalan 1563
stig. 1. júli var þessi sama visi-
tala komin i 1881 stig, og er
áætlað að hún verði komin i 1975
— 2000 stig 1. nóv., þegar hún
verður næst reiknuð út.
Þessi hækkun byggingarvisi-
tölunnar frá þvi áætlað verð var
ákveðið nemur 27,96%. Sé gert
ráð fyrir þvi, að byggingarvisi-
tala hækki ekki meir það sem
eftir er byggingartimans, en
það, sem hún hefur hækkað frá
þvi i mars til nóvember,
hverjum svo sem dettur i hug,
að eitthvað dragi úr verðbólgu,
verður hækkunin orðin tæp 60%
við verkalok. Ef BSAB tekst,
sem hingað til, að halda
kostnaðaraukningunni við
byggingar þessara ibúða aðeins
undir vexti byggingarvisitölu,
og kostnaðurinn hækki ekki
„nema” um 50%, yrði verð 4ra
herb. ibúðar við afhendingu
orðið 8.688 þúsund og
fimmherbergja Ibúð 9 miljónir.
Viðbótarkostnaðurinn er
reiknaður út að verkalokum og
greiðist með jöfnum mánaðar-
greiðslum.
Eins og áður hefur komið
fram hér i blaðinu hefur BSAB
ekki neina aðra byggingarlóð til
umráða en þá, sem greint var
frá I Breiðholti II. Hins vegar er
félagið að leggja siðustu hönd á
fjölbýlishúsið Asparfell 2-12 i
Breiðholti III, og munu siðustu
ibúðareigendur þar væntanlega
geta flutt inn fyrir áramót.
BSAB er að byggja eitt einbýlis-
hús I Mosfellssveit, en þar hefur
það byggt fjögur hús til þessa.
Hálf vísitala
Hjá Breiðholti h/f fengum við
þær upplýsingar, að þar væri
ekki margar ibúðir að fá þessa
stundina.
Fyrirtækið auglýsir þó ný
einbýlishús i Mosfellssveit, en
þar byggir það 10 slik. Stærð
þeirra er 130 fermetrar auk 30
fermetra bilskúrs. Húsin
afhendast tilbúin undir tréverk
og málningu. Raflagnir eru til
staðar, en þó er ekki búið að
draga i dósir. Lóð er grófjöfnuð
undir gróðurmold.
Verð þessara húsa er áætlað
8,5 miljónir króna. Lágmarks-
greiðsla við undirskrift
samnings er 1,5 miljónir og
siðan ein miljón til viðbótar,
sem greiða skal fyrir áramót.
Þær 6 miljónir, sem eftir eru
skulu greiðast fram til
afhendingadags, sem er i
nóvember 1976. Þessar 6
miljónir eru visitölutryggðar að
hálfu leyti, en verðið miðað við
visitölu 1881. Ef gert væri ráð
fyrir 30% hækkun visitölunnar,
svipað þvi, sem ætlað var hér að
framan, verður endanlega
verðið um 9 miljónir króna fyrir
húsið tilbúið undir tréverk og
málningu. Um viðbótar-
greiðslur er samið eftir
afhendingu.
Þá hefur Breiðholt h/f enn til
sölu örfáar ibúðir i sambýlis-
húsi að Krummahólum 8.
Þriggja herbergja ibúðir eru
tvenns konar. önnur gerðin er
106,5 fermetrar, og er verðið á
henni miðað við visitölu 1. mars
1563 stig, 4650 þúsund að við-
bættum 350 þúsundum fyrir bil-
skýli. Verðið hækkar til jafns
við helming visitöluhækkunar
og er þá miðað við ibúðaverðið
án bilskýlis. Ibúðir i Krumma-
hólum eiga að afhendast
tilbúnar undir tréverk og
málningu i júli 1976, og miðað
við verðlagsþróun siðan fyrsta
mars, má ætla, að hækkunin
verði 40% á helming ibúðar-
verðsins og kostar þá ibúðin
tilbúin undir tréverk 5.930
þúsund með bilskýli.
Hin gerð 3ja herb. ibúðar er
90.6 fermetrar. Aætlað verð
þeirra er 4,3 miljónir með bil-
skýli, þ.e.a.s. ibúðin sjálf kostar
þá 3950 þús. krónur. Eftir 40%
hækkun miðað við afhendingar-
dag, en hækkunin reiknast á
helming ibúðarverðs eins
og áður, yrði verðið 5 miljónir
og 90 þúsund.
Þá eru óseldar 6 ibúðir, sem
telja 6 herbergi hver og ein sem
reiknuð er 7-8 herbergja. Sex
herbergja ibúðir, minnsta'gerð,
kosta samkvæmt áætlun 6,325
þús. kr. og eru 136,5 fermetrar
að stærð. Að viðbættri hækkun
visitölu, sem kemur á helming
5.975 þúsunda yrði verð hennar
7,520 þúsund krónur með bil-
skýli, tilbúin undir tréverk og
málningu.
Aætlað verð 6 herb. stærstu
gerðar er 6.660 þúsund auk bil-
skýlisverðs 350 þúsund.
Þegar búið er að reikna hálfa
visitöluhækkun inn i ibúðar-
verðið yrði það 8,340 þúsund
krónur. Þessi ibúð er 152,4
fermetrar að flatarmáli.
7-8 herbergja ibúðir eru 175,3
fermetrar að stærð. Aætlað verð
þeirra er 7.655 þúsund krónur og
viðbætt bilskýlisverði 8 miljónir
og fimm þúsund. Þegar 40%
verðbót á helming ibúðaverðs-
ins bætist við hækkar það i
rúmar 9,5 miljónir. En þá er
Framhald á 22. siðu.
.W nmt 'W f 11 ** «w -r ir
lli^ f HT ^T“ "flf'’
<ÍÍIWl«W« «-■> -