Þjóðviljinn - 26.10.1975, Blaðsíða 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 26. október 1975.
Styrjufiskar hressast
Styrjufiskaveiði i ósum Volgu hafði um skeið
farið hrakandi, ekki sist vegna mikilla raforku-
framkvæmda i þessu stórfljóti. Sovéskir fiski-
fræðingar geta nú tilkynnt, að þeim hafi tekist að
auka stofninn aftur, bæði með fiskirækt og með
þvi að hreinsa Kaspiahafið. Hér á myndinni er
verið að skoða bélúgu, en hún er stærstur styrju-
fiska. Þessi er 200 kg. og er samt langt frá þvi að
vera fullþroska (ljósm. Apn)
Mál og menningu
vantar umboðsmann fyrir höfuðborgar-
svæðið. Til greina gæti komið að skipta
svæðinu milli fleiri aðila. Þarf helst að
hafa bil.
Starfið er fólgið i sölu bóka til félags-
manna. Allar frekari upplýsingar veittar i
sima 15199 milli kl. 9 og 18.
MÁL OG MENNING
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið i Reykjavik
Aðalfundur Alþýöubandalagsins i Reykjavik verður haldinn i Lindarbæ
fimmtudaginn 30. október kl. 20.30., A dagskrá verða vcnjuleg aðal
fundarstörf o.fl., sem nánar verður auglýst siðar.
ABR 2. deild.
Austurbæjar og Sjómannaskólahverfi:
Aðalfundur 2. deildar ABR verður haldinn miðvikudaginn 29. október
kl. 20. 30. að Grettisgötu 3.
Dagskrá: 1. Venjuieg aðalfundarstörf, 2. Starfið framundan.
Vesturbæjardeild.
Aðalfundurdeildarinnar verður haldinn mánudaginn 27. október kl.
20.45 að Grettisgötu 3.
DAGSKRA
1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Umræður um efnahags- og kjaramál.
Haraldur Steinþórsson hefur umræðurnar.
Alþýðubandalagið Vestmannaeyjum.
Félagsfundur 26. október kl. 14 að Bárugötu 9.
DAGSKRA:
1. Kosning fulltrúa á flokksráðsfund. 2. Kosning fulltrúa i kjördæmis-
ráð. 3. önnur mál. — Stjórnin.
i’élagsfundur
Alþýðubandalagið i Neskaupstað heidur félagsfund i Egilsbúð
(fundarsal) miðvikudaginn 29. október kl. 20.30'.
DAGSKRA:
1. Herstöðvamálið — framsögumaður Gerður G. Öskarsdóttir. 2.
Flokksráðsfundur — undirbúningur og kjör fulltrúa. 3. önnur mál. —
Stjórnin.
Kveöja frá ferðafélögum
GunnarÓlafsson
vélaverkfræðingur
Mybning Gunnar Olafsson
véltæknifræðingur, Fæddur 6.
jan. 1922. Dáinn 15. okt. 1975.
Kveðja frá ferðafélögum.
Mánudaginn 27. október verður
ferðafélagi okkar og vinur um
áratugi jarðsettur frá Fossvogs-
kapellu.
Gunnar varð bráðkvaddur 15.
okt. er hann var á rjúpnaveiðum.
Alla sina ævi var hann mikill
áhugamaður um ferðalög og þá
helst i óbyggðum Islands. Þær
eru ófáar ferðirnar, sem við höf-
um farið saman og alltaf var
hann hress og kátur á hverju sem
gekk. Betri feröafélaga og vin er
erfitt að hugsa sér. Nú þegar
Kvikmyndir
Framhald af bls. 9.
stjórnuðu upplýsingunum. Vana-
legt fólk er ekki sem stjórnmála-
menn vant við að nota fjölmiðla,
það er þvert á móti vant þvi að
vera notað.l Tyssedal vorum við
spurðir: Hvers vegna eruð þið að
gera kvikmynd, og af hverju um
okkur?
Tortryggni fólksins var aðeins
hægt að brjóta niður með þvi að
við gátum boðið eitthvað. Við
vildum gera kvikmynd um og
fyrir Tyssedal, fyrir fólkið sem
þarbjó. Það tók á móti okkur. Við
nutum meiri trausts en okkur
hafði órað fyrir. Samvinnan gat
hafist.
Spurning: Hvað með sölu og
dreifingu á myndum ykkar
erlendis?
Oddvar: VERKFALL hefur
vakið töluverða athygli erlendis.
Kvikmyndin hefur
verið sýnd viðs vegar eftir frum
sýninguna i Cannes.Moskvu,
Paris og New York svo eitthvað
sé nefnt. I sambandi við kvik-
myndahátiðir og menningarvikur
hefur hún fengiö góðar viðtökur,
en um skipulagða dreifingu og
sölu er enn ekki að ræða, nema i
Frakklandi, kannski vegna þess
að frakkar hafa löngum staðið
öðrum Evrópuþjóðum framar
hvað snertir pólitiskt og hug-
myndafræðilegt innsæi i kvik-
myndagerð. Einnig mun
VERKFALL fá dreifingu i
Bandarikjunum gegnum Museum
of Modern Art. Þá hafa bretar
gert samning um takmarkaða
dreifingu á kvikmyndinni.
> Sölve:Satt að segja erum við svo
blankir eftir Tyssedalmyndina,
að við höfum ekki haft efni á að
gera kópiur af myndinni-, nema að
litlu leyti. Folkets Bio i Sviþjóð
mun sýna myndina og annast
dreifingu þar i landi. Einnig hefur
okkur verið boðin þátttaka i kvik-
myndahátið i Sviss. Ég get ekki
svarað spurningunni nánar að
sinni.
Spurning: Hafið þið einhverjar
kvikmyndaáætlanir i sjónmáli?
Oddvar: Ég er að vinna að kvik
mynd þessa stundina og mun
hefja upptökur i nóvember, og
býst við að hefja úrvinnslu i
janúar á næsta ári. Um hvað
myndin f jallar vil ég ekki upplýsa
að sinni, ekki einu sinni
islendinga.
Sölve: Malte og ég hlutum 100
þúsund . króna (norskar) styrk til
að gera stutta kvikmynd um
norsku oliuna. Við höfum rétt
byrjað upptökur, en óvist er
hvenær kvikmyndin verður til,
þvi mjög erfitt er að fá leyfi til að
kvikmynda á oliuborpöllunum, og
ýmsir aðrir örðugleikar hafa
skotið upp kollinum, en ég vona
að okkur takist að ná endunum
saman.
Og þar sem Oddvar tekur aö
ókyrrast i sæti sinu, þvi verkefnin
liggja i háum pappirshaugum á
borðinu fyrir framan hann, te) ég
ráðlegast að staldra ekki lengur
við, heldur þakka þeim Oddvar
og Sölve fyrir viðtalið og held út i
regn og laufafok haustnætur-
innar.
Ingólfur Margeirsson.
hann er allur er hætt við að skarð
það, sem hann skilur eftir, verði
seint fyllt og erfitt að sætta sig
við. Þannig er lifið og tilveran
„hittast og gleðjast hér um fáa
daga, heilsast og kveðjast það er
lifsins saga.”
En þá er að ylja sér við endur-
minningarnar um ógleymanlegar
samverustundir, sem fylgja okk-
ur til æviloka. Ekki erum við á
einu máli um hvort við hittumst
hinum megin á þeim himnesku
veiði- og skiðaslóðum, en gaman
væri það.
Að lokum okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur til systranna þriggja
og annara aðstandenda.
Myndlist
Framhald af bls. 15
triiðsins á eigin framleiðslu? Og
listamaðurinn viti nákvæmlega
hvar hann er staddur og ætli að
notfæra sér ástandið? Sjálf-
hæðnin og smáborgaraskapur
islensks samfélags haldast þá
innilega i hendur, þar gengur ekki
hnifurinn á milli. Ef þetta getur
staðist þá skýrast hinir undarlegu
þættir
1. Yfirlýsingar á opinberum vett-
vangi.
2. Glæsilegt boðskort.
3. Hátt verð á verkum og inn-
gangseyri.
4. Grein um myndmálfræði.
5. Ljóð (sem erlistþróunin i hnot-
skurn).
En hverjar svo sem verða
niðurstöður af vangaveltum um
sviðsettan skopleik eða eitthvað
annað, þá er ljóst að myndverk
Tryggva Ólafssonar (séráparti)
standa ekki undir hugtakinu
„framsækin myndlist”, þau eru
tilbúinn veruleiki, fallegur, þægi-
legur heimur sem áreitir engan.
En er það ekki einmitt þess konar
myndlist sem kölluð er „gúmmi-
kúnst”?
íbúðaverð
Framhald af 24. siðu.
eftir að kaupa sér tréverk i
slotið.
Það skal tekið fram, að við
afhendingadag, sem er i júli-
mánuði nk. er ætlunin að hafa
lokið við alla sameign. Ibúðir
þessar erui 7 hæða blokk.
Selja á
kostnaöarverði
Byggingasamvinnufélag
Kópavogs selur ibúððir þær,
sem það byggir á kostnaðar-
verði til félagsmanna iikt og er
með BSAB og er það verð ætið
nokkuð undir þvi, sem yrði ef
visitala ein væri höfð sem verð-
mælir.
BK er með i byggingu um
þessar mundir 90 ibúðir á
ýmsum stigum og ekki gott að
nefna endnaleg verð. Félagið á
lóðaforða til að hefja byggingu á
næstu fimm til sjö árin. Má
nefna, að næsti byggingar-
áfangi, sem er 42 ibúðir,
verður tvær 7 hæða blokkir,
tengdar saman með stiga- og
lyftuhúsi. Verið er að undirbúa
þann byggingarflokk, og verður
áætlað verð ibúða væntanlega
ljóst innan tiðar.
Fast verð
fram í tímann
Borgarsteinn hf. byggir i fjöl-
býlishúsi við Engjasel i
Breiðholti II og selur ibúðir á
föstu verði. Hjá Borgarsteini
kosta 4ra herbergja ibúðir, 105
fermetrar, 7,9 milj. — 8,lmiljón
eftir hvar i húsinu þær eru
staðsettar. Þessar ibúðir eru
fullfrágengnar úti og inni og inni
i verðinu er og aðgangur að bil-
skýli. Ibúðirnar afhendast i
desember 1976.
5 herbergja ibúðir, 137
fermetrar, i sama húsi, kosta 9
til 9,1 miljón eftir staðsetningu.
Greiðslukjör á ibúðum
þessum eru þau, að fyrirtækið
lánar 1 miljón til tveggja og
hhlfs árs. Til frádráttar frá
heildarupphæðinni kemur
húsnæðismálastjórnarlán 1,7
miljónir. Eftirstöðvarnar
greiðist frá undirskrift til
•afhendingardags með jöfnum
mánaðargreiðslum.
30% hækkun
og stígandi enn
Hjá fasteignasölu einni hér i
borg fengum við þær upp-
lýsingar að siðan i april i vor
hafi verð gamalla ibúða stigið
um 30% og séð væri fram á að
verð þeirra stigi áfram.
Tveggja herbergja ibúð, 5-10
ára, sem i vor "kostaði 3,5
miljónir kostar nú til dæmis 4,5
miljónir. I vor var útborgun um
2 miljónir af slikri ibúð en er nú
3 — 3,3 miljónir króna.
Þriggja herbergja ibúð i
austurbænum kostar um 5,5
miljónir en i vesturbænum um
6,5 miljónir króna. Þó fer þetta
eftir aldri og útliti ibúðanna.
Útborgun er 4-4,5 miljónir, og
greiðist á 8 til 10 mánuðum.
Fjögurra herbergja ibúðir
kosta 6,5 -8 miljónir eftir stað-
setningu aldri og útliti. I
Fossvogi kosta slikar ibúðir 7,5
miljónir en 8 miljónir i vestur-
bænum og Háaleiti. Útborgun er
frá 5 miljónum að 5,5 miljónum
króna.
Fimm herbergja ibúðir kosta
8- 8,5 miljónir. Útborgun fra 6 -
6,5 miljónir. Um er að ræða
ibúðir i fjölbýlishúsum.
Ibúðir i þriggja og fjögurra
ibúða húsum eru um það bil 20 -
25% dýrari en að ofan greinir.
Um útborganir
Þetta er sum sé vandinn.
Undirritaður átti þess kost i
sumar leið, að lita i nokkra út-
stillingaglugga fasteignasala
suður i Esbjerg i Danaveldi.Þar
var verð ibúða annað en hér,
enda krónan okkar aumleg
samanborið við þá dönsku.
Hins vegar er prósentan sú
sama hver sem er i veröldinni,
burtséð frá gengi gjaldmiðla. I
Danaveldi virðist sem útborgun
i fasteignum,amk. ibúðum, sé
gegn um gangandi 10% af
heildarverðinu. Einstaka
undantekningar voru þar 'á, og
var þá óskað eftir 12-15% út-
borgun.
Þetta þýðir, að ef kaupa ætti
hér ibúð fyrir 7 miljónir ætti að
greiða út 700 þúsund krónur, af-
ganginn á 15 árum, ef
danskir siðir yrðu .upp teknir.
Hér er hins vegar annað uppi.
Hér er útborgun 60 - 70% og
oftar nær 70%. Afgangurinn
greiðist svo yfirleitt á 8-10
árum.
Væri það ekki ofurlitil hagsbót
fyrir staurblanka alþýðu ef
takast mætti að fá fram lækkun
á útborgunum?
En með hvaða hætti?
Er ekki röðin komin að
alþingismönnum við Austur-
völl? —úþ