Þjóðviljinn - 03.12.1975, Qupperneq 2
.2 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 3. desember 1975.
Aldarafmœli
austuríska skáldsins
Rainer Maria Rilke
verður haldið hátiðlegt fimmtudaginn 4.
des. 1975 i Auditorium á Hótel Loftleiðum
fyrir alla þá sem vald hafa á þýskri tungu
og áhuga á kvæðum. Engin börn.
ÚTBOÐ
Kröflunefnd óskar eftir tilboðum 1 mál-
virki (handrið, stigar, ristar) i stöðvarhús
Kröfluvirkjunar S-Þingeyjarsýslu.
útboðsgögn verða afhent i verkfræðistofu
vorri, Ármúla 4, Reykjavik, gegn3 þúsund
kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðviku-
daginn 14. janúar 1976 kl. 11 f.h.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN sf
ÁRMÚU 4 REYKJAVlK SlMI 84499
Til styrktarmanna
Alþýðubandalagsins
Þeir styrktarmenn Alþýðubandalagsins,
sem enn hafa ekki greitt framlag sitt fyrir
árið 1975, eru minntir á að koma á skrif-
stofu flokksins eða senda greiðslu sem
fyrst.
Alþýðubandalagið.
Stefnuskrá
Alþýðubandalagsins
Fæst á skrifstofum flokksfélaga um allt
land.
Stefnuskráin er greinargerð um fræðileg-
an grundvöll flokksins og afstöðu hans til
vandamála þjóðfélagsins.
Allir þeir sem vilja fræðast um þjóðfé-
lagsmál á íslandi þurfa að lesa Stefnuskrá
Alþýðubandalagsins.
Alþýðubandalagið.
HÚSEIGENDUR,
HÚSBYGGJENDÚR
0 Hverskonar rafverktakaþjónusta.
Nýlagnir
^ Viðgeröir á gömlum iögnum — setjum
upp lekarofavörn 1 eldri hús.
RAFAFL
Vinnufélag
rafiðnaðar-
manna
Barmahlíö 4
Diirn
Dyrasfmauppsetning.
r\(
Kynnið ykkur afsláttarkjör Rafafls svf.-
sérstakur sfmatimi miili kl. 1-3 daglega.
Móðir okkar
Guðlaug Jónsdóttir Hléskógum við Vatnsveituveg
andaðist i Borgarspltalanum 2. desember
Börnin.
Höfuðbólið og
hjáleigan í
útvarpinu
Fimmtudagsleikrit útvarps-
ins er „Höfuöbólið og hjáleig-
an” eftir Sigurð Róbertsson.
Leikstjóri er Gisli Halldórsson.
Höfundur hefur samið sjö leikrit
sem flutt hafa verið eða prent-
uð. Þrjú þeirra hefur útvarpiö
flutt: Dimmurborgir, Storminn
og Mold. „Höfuðbólið og hjá-
leigan" fjallar á gamansaman
háttum baráttuna milli góðs og
ills. Drottinn, Lúsifer, Gabriel
erkiengill, Adam og Eva eru
meðal „persóna” í leikriti Sig-
urðar.
&4S grœðir
Stjórn SAS tilkynnti fyrir
skömmu, að hagnaður félagsins
hefði numið 70 miljón sænskum
krónum á seinasta reikningsári
félagsins, sem lauk 30. septem-
ber s.l. Af þessari fjárhæð skil-
uðu dótturfyrirtækin 7.8 m.s.kr.
hagnaði. Eins og kunnugt er
hefir SAS veriö rekið með nettó-
hagnaði árum saman.
Flugreksturinn hjá SAS
stendur að þessu sinni undir 33.7
miljónum sænskra króna hagn-
aði. Aðrir þættir starfseminnar,
þar á meðal sala flugvéla, gáfu
36.3 miljónir sænskra króna i
aðra hönd.
Alls urðu tekjur SAS á reikn-
ingsárinu 4.171 miljónir
sænskra króna (en voru i fyrra
3.568 milj. s.kr.). Beinn
rekstrarkostnaður varð nú 3.803
miljónir s.kr. (en var i fyrra
3.245 milj. s.kr.). Afskriftir
námu nú 284 milj. s.kr. en voru
árið áður 232 milj. s.kr.
A sunnudagskvöldið tók
Ragnar Björnsson við stjórn
Sinfóniuhljómsveitar tslands i
óperunni CARMEN i Þjóð-
leikhúsinu, þar eð Bohdan
Wodiczko, sem stjórnað hefur
hljómsveitinni, er á förum til Pól-
lands. Ragnar Björnsson hefur
verið hljómsveitarstjóri ýmissa
sýninga Þjóöleikhússins áður,
m.a. Sardasfurstinnunnar og
Leðurblökunnar.
Finnar hafa áhyggjur stórar
af áfengismálum. Meðal annars
hefur neysla áfengs öls
fjórfaldast á örfáum árum og
um 20 sveitarfélög hafa bannað
sölu þess. Nýlega hefur þing-
nefnd lagt tillögur fyrir rikis-
stjórnina um skjótar aögerðir i
þessum efnum. Hún leggur til
að áfengt öl verði einungis selt i
Þjóðníðingur
Sýningum Þjóðleikhússins á
leikriti norska skáldjöfursins
Henrik Ibsen ÞJÓÐNtÐINGI
fer nú að fækka, en leikritið hef-
ur verið sýnt frá þvi i vor við
góðar undirtektir leikhúsgesta.
Sýningin hlaut á sinum tima
hinar ágætustu umsagnir leik-
gagnrýnenda dagblaðanna,
Ólafur Jónsson sagði m.a. i
Vfsi: ...„Alveg efalaust er sýn-
ingin besta verk leikhússins i
vetur og þótt til lengri tima væri
litið.” Þaö er Gunnar Eyjólfs-
Stœrsti drátturinn
Miðvikudaginn 10. desember
verður dregið i 12. flokki Happ-
drættis Háskóla tslands. Að
þessu sinni verða dregnir út
31,500 vinningar að fjárhæð
397,800,000 krónur, eða tæpar
400 miljónir króna. Er þetta
stærsti dráttur, sem fram hefur
farið i happdrætti á tslandi til
Óperan CARMEN hefur notið
gifurlegra vinsælda og aðgöngu-
miðar selst upp á stuttum tima á
allar sýningar til þessa. Sýningin
á sunnudag var sú 15. Mikið hefur
verið um það, að fólk utan af landi
kæmi á sýninguna.
Jón Sigurbjörnsson, sem er
leikstjóri óperunnar, hefur nú
einnig að fullu tekið við hlutverki
nautabanans, Escamillo, af finn-
anum Walton Grönroos. Sigriður
E. Magnúsdóttir syngur Carmen
og Magnús Jónsson Don José.
áfengisverslunum, að hert verði
ákvæðium aldurstakmark til að
kaupa áfengi, að áfengis-
auglýsingar verði bannaöar,
opnunartimi áfengisverslana
styttur og að engin ný vin-
veitingarhús verði opnuð.
Tillögurnar eru i velviljaðri
skoðun hjá stjórninni.
son, sem leikur titilhlutverkið,
Stokkmann lækni, smábæjar-
lækninn, sem berst hetjulegri
baráttu fyrir sannleikanum
gegn skilningsleysi og fordóm-
um fjöldans. Meðal annarra
leikenda eru Rúrik Haraldsson,
Þóra Friðriksdóttir, Valur
Gislason, Ævar R. Kvaran, Jón
Júliusson o.fl. Leikstjóri Þjóð-
niðings er Baldvin Halldórsson.
Næsta sýning leikritsins verður
á fimmtudagskvöld. A mynd-
inni eru Þóra Friðriksdóttir,
Gunnar Eyjólfsson og Steinunn
Jóhannesdóttir i hlutverkum
sinum.
þessa. Til samanburðar má
geta þess, að i fyrra voru dregn-
ar út 176 miljónir króna i
desemberdrættinum. Þessi
geysilega veltuaukning varð
vegna tilkomu „FIMMFALDA
TROMPMIÐANS”, sem byrjað
var að selja i byrjun þessa árs.
Hæsti vinningur á TROMP-
MIÐA i þessum flokki verður tiu
miljónir króna og þar að auki
koma tvær miljónir króna á
hvorn heilmiðanna, E, F, G og
H. Getur þvi sami maðurinn
unnið 18 miljónir króna i þess-
um eina drætti, ef hann á
TROMPMIÐANN og FERNUR
af sama númerinu.
Auk þessa verða 9 vinningar á
500,000 krónur, 9 vinningar á
200,000 krónur og 18 aukavinn-
ingar á 100,000 krónur. 2,430 við-
skiptavinir eiga kost á að
hreppa 50,000 krónur 21,015 geta
öðlast 10,000 krónur og 5,000
króna vinningarnir verða sam-
tals 8,010.
Frimerkja
útgáfur 76
Nú þegar hafa fimm fri-
merkjaútgáfur verið ákveðnar
á næsta ári. Þær eru sem hér
segir:
1. Frimerki með mynd af mál-
verki eftir Asgrim Jónsson, en
4. mars 1976 verður öld liðin frá
fæðingu hans.
2. Evrópufrimerki. Myndefni
þeirra verður að þessu sinni
þjóðlegir munir.
3. Frimerki i tilefni af 200 ára
afmæli póstþjónustunnar á Is-
landi, en 13. mai 1976 verða tvær
aldir liðnar frá þvi gefin var út
konungleg tilskipun um, að
komiðskyldi á póstferðum hér á
landi.
4. Frimerki með mynd af fyrstu
islensku aurafrimerkjunum, en
þau komu út 1. júli 1876 og voru
sex.
5. Olympiufrimerki, en næsta
sumar verða Olympiuleikarnir,
eins og kunnugt er, haldnir i
Montreal.
Nánar verður tilkynnt siðar
um verðgildi, útgáfudaga osfrv.
Nýjar plötur
Ný plata með „Ðe Lónli Blú
Bojs” er komin út á vegum
Hljómaútgáfunnar i Keflavik.
Framhald á bls. 14
Á myndinni er Ragnar Björnsson, hljómsveitar-
stjórinn nýi, á milli Sigriðar E. Magnúsdóttur
(Carmen) og Jóns Sigurbjörnssonar (nautaban-
ans Escamilios).
Ragnar hljómsveitarstjóri i
Carmen
Afengisbölið i Finnlandi