Þjóðviljinn - 03.12.1975, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 3. desember 1975.
Saga Reykjavikiir-
skólans er komin út
CFterkomin Saga Reykjavíkur-
skóla, fyrsta bindi og hefur það
undirtitilinn Nám og nemendur.
Útgefandi er Sögusjóður Mennta-
skólans i Reykjavik ritstjóri
Heimir Þorleifsson. Aðalumboð
fyrir Sögusjóð hefur Bókadtgáfa
Menningarsjóðs. Aðalhöfundar
fyrsta bindis eru Kristinn Ar-
mannsson. Einar Magnússon,
Guðni Guðmundsson og Heimir
Þorleifsson. Hönnun annaðist
Helga B. Sveinbjörnsdóttir og
gerði hún einnig kápu. Setningu
og bókband annaðist Prentsmiðj-
an Hólar hf., filmugerð og offset-
prentun Prentsmiðjan Grafik hf.
I texta á kápu segir:
„SagaReykjavikurskóla fjallar
um skóla þann, sem fyrst var
nefndur Hinn lærði skóli i Reykja-
vlk,siðar Hinn almenni mennta-
skóli i Reykjavik og loks Mennta-
skólinn i Reykjavik. Um tima var
hann „landsins einasti skóli” og
lengi bar hann ægishjálm yfir
aðra skóla i Reykjavik. Var sann-
nefndur Reykjavikurskóli. I
fyrsta bindi þessarar sögu er
fjallað um námið i skólanum og
nemendurna i máli og myndum.
Lýst er námstilhögun og náms-
efni i 130 ár, og I ritinu eru myndir
af um 6100 nemendum skólans á
árabilinu 1869—1975. Aldrei áður
hefur birst svo mikið safn mynda
af þekktu fólki i islensku þjóðlifi.
1 siðari bindum verksins verður
fjallað um skólalif og skólavenj-
ur. Félagslif, skáldskap og leik-
list i skólanum. Þar birtast
myndir úr skólalifi, bekkjar-
myndir og margt fleira.”
Bókin er 293 bls.
Úr skýrslu FAO:
Atvinnuleysi ekki meira
siðan í heimskreppunni
GENF 28/11 —Atvinnuleysi er nú
meira á Vesturlöndum en nokkru
sinni siöan á fjórðá áratug aldar-
innar, þegar heimskreppan mikla
herjaði. Kemur þetta fram í
skvrslu frá Alþjóölegu vinnu-
málastofnuninni (ILO). 1 skýrsl-
unni segir að i septemberlok hafi
yfir 17 miljónir nianna veriö at-
vinnulausar i átján Evrópulönd-
um. Bandarikjunum, Kanada,
Japan, Astraliu og Nýja-Sjálandi.
Atvinnuleysingjum hefur fjölg-
að i þessum löndum um sex mil-
jónir frá þvi i september I fyrra
og þýðir þetta að 5.2% verka-
manna i löndunum eru án at-
vinnu. Er þetta hæsta tala at-
vinnuleysingja i þessum löndum
siðan á kreppuárunum 1932—34,
en þá voru sennilega 25 miljónir
manna atvinnulausar þar.
Siðastliðið ár hefur at-
vinnuleysið aukist mest i Banda-
rikjunum og Kanada, en þar eru
nú 8.1 miljónir manna án atvinnu,
samkvæmt skýrslunni. 1 Vestur-
Evrópu eru 2.9 miljónir at-
vinnulausar, t Suður-Evrópu 2.7
miljónir og i Norður-Evrópu 2.1
miljónir. 1 Japan, Ástraliu og
Nýja-Sjálandi voru atvinnuleys-
ingjar 1.3 miljónir talsins i sept-
emberlok. Atvinnuleysið fer stöð
ugt vaxandi, og er þvi spáð i
skýrslunni að i árslok verði at-
vinnuleysingjarnir 18.5 miljónir i
umræddum löndum.
AF ERLENDUM
j BÓKAMARKADI
Allt á afturfótunum í Ol-þorpinu
Kanadamenn
svartsýnir
Yfirumsjónarmaður
b y g g i n g a *
framkvæmdanna í
Montreal i Kanada, þar
sem fyrirhugað er að
halda Olympiuleikana á
næsta ári, sagði í
blaðaviðtali i gær að
stórátak þyrfti til þess
að hægt yrði að halda
leikana á fyrirhuguðum
tima. Verkföll og stór-
aukinn kostnaður vegna
verðbólgu væri gjör-
samlega að kaffæra þá,
sem ábyrgir eru fyrir
framkvæmdum.
Framkvæmdastjórinn, Jean
Drapeu, bætti þvi við, að
kostnaðaráætlun hefði hljóðað
upp á 310 miljónir dollara, en væri
nú komin upp i rúma 600 miljón
dollara. Fyrir hálfum mánuði tók
rikisstjórnin við
framkvæmdunum af borgar-
stjórn Montreal, sem gafst upp á
öllu umstanginu.
— Við yfirtókum
framkvæmdirnar vegna þess að
við höfum trú á þvi, að enn sé
hægt að bjarga málunum við,
sagði talsmaður rikisstjórnar-
innar. Sagðist hann hafa talað við
forseta alþjóða olympiunefndar-
innar og formann framkvæmda-
nefndar og væru þeir báðir
fullkomlega hlynntir þvi að
halda leikana i Montreal, væri
þess nokkur kostur. —gsp
The Best of Antrobus.
Lawrence Durrell. Faber and
Faber 1975.
Nokkrar sögur hafa verið
valdar úr sögum Durrells um
diplomata, sem hann hefur birt i
Esprit de Corps, Stiff Upper Lip
og Sauve Qui Peut. Durrell starf-
aði við bresk sendiráð fyrrum og
þaðan er söguefnið. Nicholas
Bentley hefur gert teikningarnar
sem fylgja. Skemmtilegar
anektdótur.
The Fat of the Land.
John Seymour. With illustrations
by Sally Seymour. Faber and
Faber 1974.
Hér segir frá hjónum með börn,
sem hurfu út i sveit á Englandi og
tóku þar að lifa af landsins gæð-
um á svipaðan hátt og gert var
áður en rafmagn og vélvædd
apparöt komu til sögunnar. Það
eru upp undir 15 ár siðan þau
fluttu og settu saman bók um
reynslu sina (kom út 1961) nú er
þessi bók endurprentuð aukin og
endurskoðuð að nokkru. 1 loka-
kafla þessarar útgáfu litur höf-
undur yfir liðin ár og þakkar sin-
um sæla fyrir að hafa breytt um
lifnaðarhætti fyrir rúmum ára-
tug. Þegar þau fluttu voru þau
einsdæmi á Englandi, en nú hefur
fjölgað mjög i þeirra hóp, fjöldi
manna hefur tekið sig til og hætt
að lifa eftir auglýsingum, kaupa
kjörbúðafæðu og búa i blokkum
og flutt út á land og tekið að lifa af
gæðum landsins án þess að nota
apparöt og margvisleg þægindi.
Til þess að geta þetta, þarf land,
kunnáttu til að vinna margvisleg
störf og til að geta búið til nauð-
synleg tæki og búsgögn, auk
þekkingar á ræktun, búfjárhirð-
ingu og matvælageymslu og
verkun. Höfundur segir að slikur
lifernismáti krefjist stöðugrar
vinnu, jafnvel strangrar vinnu, en
hann vill alls ekki skipta. Bókin er
skemmtilega skrifuð og myndirn-
ar góðar.
Early Christian and
Byzantine Architecture.
Richard Krautheimer. Pcnguin
Books 1975.
The Pelican History of Art er nú
langt komin, i upphafi var ætlað
að bindin yrðu um fimmtiu, en
hætt er við að sú tala raskist
nokkuð. Forlagið hóf fyrir nokkr-
um árum endurprentun útgefinna
bóka i kiljuformi, og er þetta
bindi endurskoðuð útgáfa fyrstu
útgáfu frá 1965. Höfundurinn hef-
ur ritað merk rit um miðalda
byggingarlist og höggmyndalist á
endurreisnartimunum.
t þessu riti er lýst upphafi krist-
ins byggingarstils og býzanskri
byggingarlist. Ritið spannar tim-
ana frá kapellum katakombanna
til Ægissifar og flest sem máli
skiptir þar i milli. Myndir eru i
texta svart/hvitar. Höfundur er
skýr I framsetningu og er þetta rit
talið með þvi vandaðasta sem
birst hefur um þessi efni.
The Concise Cambridge
Italian Dictionary
Complied by Barbara Reynolds.
Penguin Books 1975.
Höfundurinn hefur unnið þessa
bók auk þess sem hún hefur þýtt
Dante, lokið við Penguin útgáf-
una af Divina Comedia og þýtt
Vita Nuova auk Orlando Furioso.
Þessi orðabók er einkum ágætt
fyrir val dæma til merkingar-
skilnings á itölskum orðum og hér
fylgir með itölsk málfræði. Ensk-
itölsk orðabók fylgir með.
Borðtennis:
Aðalfundur Golfklúbbsins
Keilis verður haldinn að Skiphóli i
Ilafnarfirði mánudaginn 8. des.
nk. og hefst kl. 20.00. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Gunnar Finnbjörnsson, —
sivaxandi borðtennisleikari.
Myndin er tekin á punktamóti KR
af G. Jóh.
Aðal-
fundur
Keilis
Gunnar sigraði á
á punktamóti KR
og hann er langefstur
í punktakeppni BTÍ
Hinn ungi og stórefnilegi
borðtennismaður úr Erninum,
Gunnar Finnbjörnsson, bar sigur
úr býtum á punktamóti KR sem
haldið varfyrirstuttu. Og hann er
orðinn langefstur i punktakeppni
þeirri sem BTI kom á i fyrra.
Enginn borðtennismaður er enn
kominnuppil.fi. samkvæmtþvi
kerfi, en Gunnar eri 2. fl. og hefur
hlotið 6 stig.
í 2. sæti á punktamóti KR varð
Stefán Konráðssonúr Gerplu, og i
3. sæti varð Ragnar Ragnarsson,
Erninum.
1 3. fl. sigraði Hjálmtýr
Hafsteinsson en i 2. sæti varð
Tómas Guðjónsson.
f... \
^mmmmmmm^
1 stiga'keppninni er Gunnar
Finnbjörnsson efstur eins og áður
segir, með 6. st. I 2. flokki. Þeir
Björgvin Jóhannsson Gerplu, Jón
Sigurðsson UMFN og Ragnar
Ragnarsson Erninum eru allir
komnir upp i 2.flokk, en hafa enn
ekki hlotið punkt. Til þess að
flytjast úr 3. fl. upp i 2. fl. þarf að
ná 20 punktum, en þegar uppi 2.
flokk er komið er byrjað uppá
nýtt. G.Jóh.
Síðari
leikurinn
við norð-
menn er
í kvöld
Siöari landsleikur
islendinga og norðmanna i
handknattleik fer fram i
LaugardalshöII I kvöld og
hefst kl. 20.30. Frásögn af
leiknum sem fram fór i
gærkveldi er á siðunni hér til
hliðar.
Að loknum þessum leikjum
við norðmcnn heldur Islenska
landsliðið til Danmerkur, þar
sem það mun dveljast i rúma
viku 1 æfingabúðum auk þess
að lcika einn landsleik við
dani. Heim kemur liðið 15.
des. nk. og þann 18. des.
rennur stóra stundin upp.,
þegar liðið mætir þvi
júgóslavneska i undankeppni