Þjóðviljinn - 07.12.1975, Side 4

Þjóðviljinn - 07.12.1975, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINNSunnudagur 7. desember 1975. DJOÐVIUINN MÁLGAGN SÖSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS ’Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan öiafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón meö sunnudagsblaöi: Arni Bergmann Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólavörðust. 19. Sfmi 17500 (5 linur) Pren(un: Blaöaprent h.f. SEMJUM EKKI VIÐ BRETA, SIGRUM ÞA Til harðra átaka kom á miðunum fyrir austan land i fyrrinótt. Gerðu svokölluð hjálparskip og breskt NATO-herskip harða hrið að varðskipinu Þór sem var við löggæslu i landhelginni. Þrátt fyrir . öll þessi verndarskip veiðiþjófanna tókst ekki að verja þá fyrir islensku landhelgisgæsl- unni og komu varðskipsmenn klippum á annan togvir bresks togara. Þannig lauk skiptum varðskipsins og bretanna, og bresku togaraskipstjórarnir kölluðu háðs- yrði að skipstjóra NATO-herskipsins i tal- stöðvar sinar. En þó að svo hafi farið í þetta skiptið að varðskipsmönnum hafi i senn tekist að vikja sér undan ásiglingartilraununum og jafnframt að veita veiðiþjófunum verðuga ráðningu er gerð bretans söm og jöfn: Á- siglingartilraun er tilraun til þess að fremja glæpsamlegan verknað sem striðir gegn öllum lögum og reglum og öllum al- mennum siðgæðisviðhorfum. Ásiglingar- tilraunin er svivirðilegur ofbeldisverkn- aður og honum ber að svara tafarlaust af hálfu islenskra stjórnarvalda. Það er ljóst af þeirri reynslu sem fengist hefur i þorskastriðunum svonefndu að is- lendingar eiga ráð sem geta dugað til þess að knýja bretana til undanhalds. 1973 gáf- ust bresku togarasjómennirnir upp við að reyna að fiska undir herskipavernd, enda óhægt um vik og dýrt úthald að setja fall- byssu við hvert troll til þess að bægja is- lensku varðskipunum frá. Nú fer i hönd harðasti hluti vetrarins og samhliða þeim erfiðleikum sem islenskur vetur veldur breskum veiðiþjófum á að vera unnt með eflingu landhelgisgæslunnar og auknum umsvifum hennar að gera bretum lifið svo leitt á miðunum að þeir gefist upp og flýji út fyrir landhelgismörkin. En jafnframt eflingu landhelgisgæslunnar verður að koma til einörð afstaða islensku rikis- stjórnarinnar á alþjóðavettvangi, afstaða sem er i samræmi við vilja þjóðarinnar allrar. Þjóðviljinn telur að nú þegar verði rikis- stjórnin að svara ofbeldistilraunum breta með viðeigandi aðgerðum sem gætu verið fólgnar i eftirfarandi: 1. Stjórnmálasambandi verði slitið við breta þegar i stað, — að minnsta kosti verði breski sendiherrann rekinn til sins heima með allt sitt starfslið og sendiráðsskrifstofum íslands i London lokað þegar i stað. 2. Sendiráðsskrifstofum tslands hjá At- lantshafsbandalaginu verði einnig lok- að þvi það eru herskip úr flota NATO sem hér aðstoða veiðiþjófana innan is- lensku landhelginnar og það er þvi i skjóli NATO sem tilraunir eru gerðar til þess að sigla á islensku varðskipin. 3. Landhelgisgæslan verði efld með aukn- um mannafla og fleiri skipum. Klipp- unum verði beitt miskunnarlaust og öll tækifæri notuð sem gefast kunna til þess að halaklippa veiðiþjófana. Land- helgisgæslan fái svigrúm til þess að taka landhelgisbrjóta og færa þá til hafnar hvenær sem skapast aðstaða til sliks. Þessar ráðstafanir, ef gerðar yrðu, eru áreiðanlega i fyllsta samræmi við vilja og viðhorf islensku þjóðarinnar i dag. íslendingar hafa bira reynslu af bresku ofbeldisöflunum, sem i skjóli Atlantshafs- bandalagsins og með aðstoð bandariska hersins hafa iðulega stefnt lifi og verð- mætum i stórfelldan háska. En þessi bitra reynsla kennir islendingum hvaða vopn það eru sem eru áhrifarikust. Þau ráð sem hér voru nefnd á undan eru þekkt úr fyrri átökum um landhelgina og þau geta hrifið. Breska ljónið er ekki beisnara en svo að smáþjóð sem hefur einurð, þrek og sam- stöðu getur snúið það niður til uppgjafar. í þessu máli veltur mikið á þjóðarein- ingunni, en mikið veltur einnig á stjórnar- völdum að þau hafi manndóm og þrek. Fyllsta ástæða er þvi miður til þess að draga það i efa að núverandi rikisstjórn hafi það þrek sem getur dugað er til úrslit- anna dregur. En fullvist er að sá er vilji þjóðarinnar að stjórnin semji ekki við breta heldur sigri þá. —s. Lögmál frumskógarins í heiðri höfð VÍSINDI OG SAMFÉLAG Frumskógarnir á Kyrrahafs- strönd Sovétrikjanna eru nýttir nálega allan ársins hring. At- vinnu- og áhugaveiðimenn leggja inn þúsundir ikornaskinna, minkaskinna, safalaskinna, marðarskinna og annarra dýr- mætra skinna hjá loðskinnamót- tökustöðvum rikisins. Þegar er vetrarveiðitimanum lýkur framkvæma veiðimennirnir ásamt veiðisérfræðingum og vis- indamönnum allsherjar talningu á stofnum allra veiðidýra á frum- skógasvæðinu. Sumar og haust safna þeir, sem i skógunum búa, sveppum, berjum og hnetum, lækningajurtum og grösum, og veiða fisk. Sá, sem þekkir skóginn vel, ein- kenni hans og staðhætti og hátt- erni dýra og fugla er hann byggja, nær góðum árangri við veiðarnar. Sl. ár fékk Ivan Burdonov, sem er kunnur veiði- maður á austurströndinni, 800 rúblna virði af loðskinnum og vann sér einnig inn álitlega fjár- hæð fyrir að tina ber og safna sveppum. „Starfsbróðir” hans Vladimir Kantsjuga, vann sér einnig inn 840 rúblur. Og hann hafði ekki aðeins heppnina meö sér viö veiöarnar þaö sumarið, heldur og leit sinni að ginsengrót, sem sagt er frá i munnmælum. Hinna sjaldgæfu auðæfa frum- skóga Kyrrahafsstrandarinnar er vandlega gætt. Ekki alls fyrir löngu urðu ibúarnir þar varir við tigrisdýrafjölskyldu i útjaðri þorpsins Sjtjkovo, sem er um 50 km frá Vladivostock. Dýrin voru mjög róleg. Sjást þau oft núorðið i grennd þorpa og stærri bæja. En það hefur ekki alltaf verið svo. Leonid Suljandziga, sem er Udegjeveiðimaður, segir að hér áður fyrr hafi menn helst rekist á slóðir „frumskógakonungsins” langt inni i frumskóginum. Svipaða sögu er að segja um safalana. Fyrir um 40 árum var stofninn alveg að þvi kominn að deyja út. Það var ekki fyrr en veiðar á þessu dýrmæta loðdýri voru bannaðar, að safalastofninn tók að aukast aftur. Auk þess var hópur bargúzinsafala fluttur i frumskógana á austurströndinni. Dýrin aðlöguðu sig fljótt að þess- um nýju heimkynnum og kyn- blöndun þeirra við frændur þeirra á austurströndinni hafði góð áhrif á stofninn. Feldur innfæddu dýranna varð mýkri og sterk- ari. Nú er ekki lengur nein hætta á, að safalastofninum verði út- rýmt. Strangt eftirlit er haft með safalaveiðunum. Likt og á fjórða áratugnum lifir ameriski minkurinn i frumskóg- um austurstrandarinnar. Fyrir áhrif strangra verndarráðstafana hefur otrastofninn einnig náð sér. Um það bil 40 þúsund siberiu- merðir og yfir 100 þúsund Ikornar eru veiddir árlega án þess að endurnýjun stofnsins sé stefnt i neina hættu. Spurningin er, hvort unnt sé að varðveita vistfræðilegt jafnvægi á frumskógasvæðinu á austur- ströndinni á okkar dögum sam- fara mikilli veiði og ört vaxandi verðmætra lækningajurta og grasa. Visindamenn svara þess- ari spurningu jákvætt. ógerningur er að halda viö stofni einstakra dýrategunda i frumskóginum án þess að afla traustra upplýsinga um hann Þess vegna er það að auk alls- herjar stofntalningar, sem framkvæmd er að loknu hverju vetrarveiðitimabili, þá er framkvæmd talning einstakra tegunda annað til þriðja hvert ár. Upplýsingar sem safnað er með rannsóknum i frumskóginum gera visindamönnunum það kleift að hafa stjór'n á viðhaldi ein- stakra dýrategunda og skapa ákjósanlegastar aðstæður fyrir tilveru þeirra. Þannig hefur t.d. verið ákveðið að friða sérstakt skógarsvæði, þar sem hjarta- tegundir, fjaílaantilópur og hérar munu njóta sérstakrar verndar. Af hverju er þetta gert? Visindamennirnir hafa komist að þeirri niðurstööu, að fjöldi pardusdýra á Kyrrahafsströnd- inni (veiði þeirra hefur verið bönnuð lengi) er að aukast sökum þess, að þeim dýrastofnum, sem þessi sjaldgæfa dýrategund lifir á, er að fjölga i fjalla- og frum- skógahéruðunum. Það er af þess- um sökum sem allt dýrarikið á þessum slóðum hefur verið sett undir sérstaka vernd. Nú þegar eru 12 friðaðir skógar og fjögur verndarsvæði á Kyrra- hafsströndinni. Tvö ný svæði verða einnig friðuð, við Kjanka- vatn og á eyjum i Péturs mikla flóa. En ráðstafanir til verndar dýrum og fuglum þessa svæðis takmarkast ekki viö þetta eitt. Á hverju veiðisvæði eru svokölluð friðarbelti, þar sem allar veiðar eru bannaðar. Aðeins visinda- menn, skógarverðir og eftirlits- menn með veiðum fá leyfi til að fara inn á þessi svæði. Dýrum á þessum stöðum er tryggt algert öryggi, svo fremi auðvitað að þau falli ekki fyrir kúlum veiðiþjófa. Þvi miður kemur það enn fyrir. Dýraverndunar- og eftirlitsdeild framkvæmdanefndar veiðimála- stjórnar Kyrrahafsstrandarinnar sem hefur þúsundir rikiseftirlits- manna og tugi þúsunda sjálfboða- liða á sinum vegum, gerir allt sem hún getur til að útrýma veiðiþjófnaði. Deildin stöðvar ekki aðeins allar óleyfilegar veiðar, heldur vinnur hún og viðtækt verndarstarf, berst fyrir náttúruvernd i blöðunum, útvarpi og sjónvarpi, efnir til fyrirlestra fyrir skógarhöggsmenn , samyrkjubændur og starfsmenn rikisbúa svo og skólabörn. Veiöi- eftirlit rikisins hefur rétt til að leita uppi lögbrjóta og láta þá sæta refsingu. A þennan hátt er hið fágæta og um margt einstæða dýra- og jurtalif i frumskógum Kyrrahafs- strandarinnar verndað og varðveitt. (APN)

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.