Þjóðviljinn - 07.12.1975, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 07.12.1975, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 7. desember 1975. ARNI BERGMANN SKRIFAR DÖDDQ Til hvers er ætlast í þessum djöfuls heimi? Vésteinn Lúðviksson. Eftirþankar Jóhönnu. Iðunn R. 1975. 206 bls. Það er skemmtileg tilviljun að ný skáldsaga Vésteins Lúðviks- sonar er opnuð einmitt á sama degi og Skirnir berst inn um dyrn- ar með ádrepu Helgu Kress um „kvenlýsingar og raunsæi”. Helga tekur Vésteini þar tak fyrir meðferð — eða meðferðarleysi — á konum i hinni stóru skáldsögu hans Gunnar og Kjartan. Þetta er, segir Helga Kress, karlabók þar sem raunsæisleg heildar- mynd af samfélaginu brenglast öll vegna þess að i henni eru kon- ur rignegldar i hefðbundin kvennahlutverk og vegna þess að höfundur beygir sig i reynd undir þá hlutverkaskipan, kann ekki að afhjúpa hana með gagnrýni. Nú er engu likara en Vésteinn hafi séð þessa hryðju fyrir. Eftir- þankar Jóhönnu er sjálfslýsing konu sem á i mörgum vanda — og einmitt ekki hvað sist vegna þess að ættingjar og annað fólk hafa allar götur verið að troða henni inn i hlutverk, hegðunarmynstur, sem eru henni litt að skapi. Efni í eldhúsróman? Jóhanna er kona um fertugt, tviskilin og fimm barna móöir. Þar hefur söguna að hún kemur heim frá jarðarför Harðar, sem hún hefur þekkt i hálft annað ár. Hún rifjar upp fyrir sér alein um nótt sögu ástarævintýris þeirra, og ýmislegt annað úr eigin ævi og hans sem bregður ljósi á það sem gerðist. Á flókin fjölskyldumál, á togstreitu um hann við aðra konu. Hún veit að hún er grunuð um að hafa „hjálpað honum yfir mörk- in” — sagan er m.a. svar hennar við þeim grun og ásökunum sem honum fylgja. Upplýsingar um efni þessarar sögu gætu bent til eldhúsrómans: Kona með tvö misheppnuð hjóna- bönd að baki gerir úrslitatilraun til að sigla einkamálum sinum i heila höfn, vanka aftur til lifsins eftir basl og barneignir — og biður ósigur fyrir ýmsum fyrir- bærum af þvi tagi sem gjarna eru kölluð „skuggar fortiðarinnar”. Hvað getur verið meira rómó? Vésteinn Lúðviksson hefur reyndar gert skylda hluti i Gunnar og Kjartan, þótt þessar bækur tvær séu mjög ólikar. .Hann heldur sig i námunda við sögur, sem menn eiga að vanda til að afgreiða snarlega með af- þreyingarstimplinum, eins og hann vilji nota nokkur ytri ein- kenni þeirra til að segja annað og meira eni þeim er gert. t þessari sögu koma fyrir manndráp og nauðgun og örlagarik skyndi- hrifning og forspár og iskyggileg- ir draumar og ýmislegt fleira sem þykir gott að brúka i skemmtisögum. En menn muna ekki alltaf eftir þvi, að meistarar raunsæisskáldsögunnar hafa um langan aldur notað allt þetta in- ventar óspart til sinna þarfa i anda þeirrar álitsgerðar Dosoév- skis, að skáldsagnahöfundur hafi engan rétt á þvi að vera leiðinleg- ur. Málfar kynslóöanna Eitt af þvi sem lesandinn gefur fljótlega gaum er það, hve lagleg- um tökum Vésteinn Lúðviksson hefur náð á sögutækni. Upprifj- unaraðferðin nýtist honum ágæt- lega i þvi tvöfalda hlutverki að fóðra lesandann á hæfilega stór- um skömmtum af upplýsingum um Jóhönnu sjálfa, sögukonuna, um leið og hún sjálf rekur það Vésteinn Lúðviksson, teikning hvernig hún þurfi að spionera og hlera sig áfram til þess að fá vitneskju um Hörð Agnarsson og annað fólk. Það spillir heldur ekki áhuganum, hve kunnáttusamlega höfundur fer að þvi að tengja saman, brúa þátið og þáliðna tið, flétta með þeim sennileika sem hæfir svo raunsæislegri sögu. í Gunnari og Kjartan notaði Vé- steinn reyfaralegri brögð sem annariegur keimur gat verið af — það var sem saumað væri með hvitum þræði. Þessi bók er miklu þéttari i sér. Málfar sögunnar er eitt af þvi semkallar ‘á viðurkenningu á kunnáttu höfundar. Raunsæi verksins er mjög drjúgur styrkur i þvi, hve eðlilega Jóhanna kemur orði að hlutum. Frásögnin er sannarlega á máli hennar aldurs, hennar umhverfis, hennar kyn- slóðar, hvergi vandræðalega bók- leg og ekki heldur ofhlaðin duttl- ungum talmáls. Hvorki forskrúf- un né flatneskja. Stundum finnst manni að Vésteinn Lúðviksson hafi lært hæfilega mikið af (eöa sé hæfilega skyldur) manni eins og Salinger („Catcher in the Rye”). Vegna þess hvernig orðfærið sjálft lætur uppi hina frægu sam- gönguöröugleika manna i miili, fjarlægðirnar, óttann við að ganga of langt, segja of mikið — frekar en að einhverskonar beinar vangaveltur séu fram bornar um þau efni. Með þessu móti gætir höfundur öryggis i meðferð stórtiðinda — hvort sem þau eru ömurleg (Jóhönnu nauðgað á Sigló, fyrsta ást Harð- ar auðmýkir hann herfilega með þrem smábófum), eða þau teljast til sjaldgæfra gleðistunda. „En svo færði hann sig nær og lagði þetta stóra höfuð sitt undir hök- eftir Tryggva ólafsson. una á mér, ég þarf ekki að taka það fram.” Margföld nauögun í bókarkynningu segir á þessa leið um Jóhönnu: „Og hana grunar að ástarævintýrið og endir þess hafi aðeins verið hlutar af öðru og meiru”. Það er ekki úr vegi að skoða hvað átt er við með þessari staðhæfingu. Sem fyrr segir eru Eftirþankar Jóhönnu fljótt á litið einkamála- saga: ástir, afbrýði, fjölskyldu- mál. Það er lítið sem ekki talað um stéttaskiptingu, alls ekki um pólitiska flokkadrætti. En varla myndum við sýna sérstakt kapp i að kenna hana við raunsæi ef ekki væri ljóst af skáldsögunni, að per- sónur hennar lifa i samfélagi; ef einkamálavandi þeirra væri ekki með einum eða öðrum hætti sett- ur i stærra samhengi. Jóhanna hefur að eigin sögn fremur snemma komist að þvi að „það er ekki ætlast til að maður sé manneskja i þessum djöfuls heimi”. Þetta er kannski kjarni málsins. Þótt það sé kannski ekki alltof ljóst hvað Jóhanna á við með þvi að „vera manneskja” þá er ljóst að það er sýknt og heilagt verið að ætlast til einhvers annars af henni. Verið að þröngva henni inn i hlutverk, sem hún vill ekki taka að sér. Dæmigerður vandi manneskju i samfélagi, og þá einkum og sér i lagi konu. Strax i bernsku er lifi hennar spillt með tilætlunarsemi móður hennar, sem með yfirþyrmandi umhyggju stefnir að þvi að gera úr henni fina dömu sem giftist rikum manni og menntuðum og reynir að spilla vinfengi hennar við föðurinn sem var ekki nógu hátt skrifaður i samfélaginu. Þá þegar er lagður grundvöllur að vitahring: upp frá þessu er hún að hefna sin á móður sinni, m.a. með hjásofelsi sinu og eiginmönnum. Þegar Jóhanna gerist sem ung- lingur einum of góð við stráka af þvi hún er greiðvikin og vorkenn- ir þeim, þá hafa þeir strax úr- skurðað að hún sé mella sem sjálfsagt sé að ganga i skrokk á. Fyrri maður hennar, Gummi, gat ekki þolað að Jóhanna væri skóla- gengnari en hann og gæti haft með sér heim meira kaup — hann vildi jafna metin með þvi að hlaða á hana krökkum. Sambúðin við seinni eiginmanninn, Stjána, lýsir vonlausri tilraun til að bjarga pabbadreng og alkóhólista með fórnfýsi sem á sér varla takmörk — vel má lita á þann kafla sem af- hjúpun hlutverks hins miskunn- sama samverja, sem er einmitt svo mjög haldið að konum. Jó- hanna er til fyrst og fremst i við- brögðum við þessari tilætlunar- semi umhverfisins. 1 vinnunni er hún að „gefast upp á þvi að vera eitthvað annað framani kunnána 'en ég er i raun og veru”. Henni var meira að segja illa við jólin af þvi að þá „áttu allir að vera svo góðir. En svo var enginn góður...” Meinleysi Hörður er að ýmsu leyti i svip- aðri stöðu. Hann hefur fullan hug á að vera öðrum hjálplegur, gera öllum til hæfis, „standa sig” eins og það heitir. Hann vill taka ábyrgð á velfarnaði barna bróður sins, sem er drepinn fyrir augun- um á honum, og unnustu bróður- ins, Hrafnhildi, sem hann stendur i undarlegu sambandi við. Hann vill vera duglegur eiginmaður, púlsklár og húsbyggjandi og fylgjast með i speglasjónum hins slóttuga mágs sins. En honum er þetta ofviða. Hann erof meinlaus. Hann kann ekki að bita frá sér, eins og hvað eftir annað er ætlast til, allt frá þvi að fyrsta ástin er lamin úr honum. Athafnir hans verða æ ráðleysislegri og óskilj- anlegri sjálfum honum ogöðrum. úrræði hans er sjálfsmorð, sem verður, eins og stundum áður i bókmenntum, einskonar frelsis- yfirlýsing af hans hálfu. Afhjúpun einkalífs Vel má segja að þetta sé saga af tveim persónum sem eru sam- einaðar i vanmætti: þau risa hvorugt undan kröfugerð samfé- lagsins. Er þá sögunni kannski ætlað að vera fyrst og fremst ákæra á hendur þjóðfélagi sem gerir ómennskar kröfur? Ekki eru áherslur beinlinis þannig lagðar. Mörgum gæti fundist að samfélagsþátturinn i persónum þessum væri i mjórra lagi og þá má vel spyrja: eru þau Jóhanna ekki fyrst og fremst fórnarlömb ógæfulegrar samhnýtingar ætt- ernis, kynna og atvika, sem eng- inn er tryggður fyrir? En liklegra er vænlegra til árangurs að spyrja eftir þvi sem kynni að leynast að baki samfléttan einka- mála og samfélagslegra verkana i þessari sögu. Má vera að höfuðhneigð bókar- innar sé einmitt að afhjúpa einka- lifið? Sýna fram á veika eða von- lausa stöðu þeirra, sem engin úr- ræði eiga utan þess, engan annan grundvöll til að standa á? Það getur meira en verið. Jóhanna vaknar af grámósku hversdags- legrar lifsbaráttu, af tilfinninga- svefni til góðra stunda með Herði Agnarssyni. Til þeirrar ástar, sem köluð er egoisme a deux, sjálfshygð tveggja. „Draumurinn var að fá að vera ein i friði, helst tvö alein einhversstaðar langt langt frá öllu öðru fólki” segir Jó- hanna. Þennan frið fyrir þau tvö gat hún ekki eignast. Einar ráðið til að halda ástmanninum fyrir sig, sigrast á tilkalli annarra til hans, var fólgið i þeim ósigri að hjálpa honum til að deyja. a.B. Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsóknar starf bókhalds og skrifstofufulltrúa að svæðisskrifstofu Rafmagnsveitnanna á Egilsstöðum. Umsóknir með upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf sendist starfsmanna- stjóra. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 116 Reykjavik. ^MELTAWAY ■—AKATHERN —* snjóbræðslukerfi frárennsliskerfi úr PEX plaströrum úr PEH plaströrum. Nýlagnir Viðgerðir Hitaveitutengingar Stilling hitakerfa Pípulagnir sf. Auðbrekku 59 — Kópavogi S. 43840 & 40506.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.