Þjóðviljinn - 07.12.1975, Síða 21

Þjóðviljinn - 07.12.1975, Síða 21
Sunnudagur 7. desember 1975. ÞJÓDVILJINN — StÐA 21 Sköpun 4* stjarnanna — Þegar hann vill eitthvaö, setur hann himin og jörö á annan enda. Aö snúast eftir braut sinni ,,Þaö er fegursti ástarvalsinn”. Noröurlandadeild Leníngradháskóla Siðasta laugardag i október komu um 150 manns saman i fyr- irlestrasal i Leningradháskóla i tilefni þess, aö 40 ár voru liðin frá þvi tekin var upp kennsla i nor- rænum fræðum við háskólann. Forseti deildarinnar, prófessor Mikaii Steblin-Kamenski, hefur verið kjörinn heiðursdoktor við háskólana i Stokkhólmi og Reykjavik. Til þess hafa 244 kandidatar brautskráðst frá deildinni og 15 manns hafa lokið licentiatsprófi á sérsviðum deild- arinnar. Sérfræðingum i norrænum fræðum bjóðast margir mögu- leikar á hinum ýmsu sviðum sovésks þjóðfélags. Nokkrir halda áfram visindalegum rann- sóknarstörfum eða kenna við há- skóla eða aðrar kennslustofnanir. Margir vinna að þýðingum á nor- rænum bókmenntum, aðrir starfa við stór bókasöfn sem sérhæfa sig i bókmennt um Noröurlandaþjóð- irnar, eða við fjölmiðla, frétta- stofurnar TASS og APN, útvarp og sjónvarp. Utanrikisráðuneytið ræður einnig til sin nokkra menn, sem þekkingu hafa á Norður- landamálum, og aukinn ferða- mannastraumur skapar að sjálf- sögðu þörf fyrir leiðsögumenn með þekkingu á málum Norður- landaþjóðanna. Einn af leiðsögumönnum Intourist, sem margir ferðamenn frá Norðurlöndum hafa áreiðan- lega hitt, er Beatrisa Viner, sem lauk prófi frá Leningradháskóla, Norðurlandadeildinni, árið 1948. Hún segir svo um námsár sin: ,,Ég hóf nám i Norðurlanda- deild háskólans árið 1940. Við vor- um aðeins átta i stúdentahópnum, öll um 17 ára, en við vorum mjög stolt af þeirri námsgrein, sem við höfðum valið okkur. Ég held lika, að við höfum öll alið stóra drauma um að „verða eitthvað”. Sjálfa dreymdi mig um að feta i fótspor Aleksöndru Kollontaj. En- það fór fyrir okkur eins og miljón- um annarra. Striðið gerði vonir okkar að engu. Við höfðum aðeins lokið bókmenntanámskeiði hjá prófessor Smirnov, er striðið braust út. Svo kom 900 daga um- sátin um Leningrad með hungri og kulda. Við störfuðum öll sem hjúkrunarkonur eða húsverðir meðan stóð á næturloftárásunum. Loks lauk striðinu og við feng- um tilkynningu frá háskólanum um það, að námið væri hafið að nýju. Af þeim átta. sem hófu nám 1940, voru aðeins 6 sem nú gátu komiö. Aðstæðurnar árið 1945 voru erfiðar. Það var svo kalt i kennslustofunum, að blekið fraus i blekbyttunum, og við sátum i frökkum og með trefla og skulf- um. Við gáfumst þó ekki upp og lukum prófi. Sum okkar sáu jafn- vel langþráða drauma rætast.” Þannig hljóðar frásögn Beatrisu Viner. Hún hefði einnig getað sagt frá þeim frumstæðu aðstæðum, sem Norðurlanda- deildin átti við að búa er hún hóf starfsemi sina fyrir 40árum. T.d. var aðeins til eitt eintak af orða- bók, og uröu allir stúdentarnir að skiptast á um aðnotaþað. Nú hef- ur deildin til umráða allar bækur og tæknileg hjálpargögn, sem notuð eru viö nútima tungumála- kennslu. Hún fær reglulega heim- sóknir gestafyrirlesara frá há- skólum Norðurlandanna. Það er engum vafa undirorpið, að Norð- urlandadeildin við Leningradhá- skóla hefur á tiltölulega stuttum starfstima sinum lagt fram mik- ilverðan skerf til skilnings og samvinnu á milli Sovétrikjanna og Norðurlanda. Stóraukið rafljósaúrval AMERÍSK DÖNSK ENSK ÍSLENZK ÍTÖLSK JAPÖNSK NORSK PORTÚGÖLSK ÞÝSK Verö kr. 6.190 veggljós Verð kr. 15.080 loftljós Verö kr. 19.130 (3 stk.) Verð kr. 14.710 (3 stk.) Verö kr. 4.540. rafljós í miklu úrvali VIKULEGA NÝJAR SENDINGAR w I 1 ■ Raftækjadeild HRINGBRAUT 121 • SÍMI 28-602 !

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.