Þjóðviljinn - 07.12.1975, Síða 9

Þjóðviljinn - 07.12.1975, Síða 9
Sunnudagur 7. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Flagöiö fríöa á Tanganum Guömundur G. Hagalln. Seg- ir nú amen.séra Pétur. Al- menna bókafélagið 1975. 203 bls. Guðmundur G. Hagalln er i þessari skáldsögu enn kominn vestur á firði, en þar hefur honum lengst af orðið drýgst til fanga eins og menn vita. Sögusviðið er Isafjörður. Timinn er uppvaxtar- ár Guðmundar sjálfs. Byggingin erreyndar óvenjuleg: skrásetjari textans kemur á æskuslóðir eftir alllanga fjarveru og hittir gamla konu sem komið er rutl á, en var áður mesta valkyrja. Hann tekur móður sina tali um konu þessa, sem Herborg heitir, og þykist skrifa upp eftir henni upplýsingar — sem að hálfu leyti eða meir eru komnar frá ömmu skrásetjarans, Guðnýju. Lokakaflinn gerist svo eftir að gagnasöfnun þessari er lokið. Þessi frásagnarmáti býður upp á vissa erfiðleika. Að visu eru mæðgur þær, sem helst eru bom- ar fyrir sögunni, i nánum kunningskap og nábýli við Her- borgu þá sem er eiginlegt við- fangsefni verksins, en þær geta samt ekki alltaf verið mættar þar sem tiðindi gerast. Þvi þarf höfundur oft að standa I brösum við að útvega vitni að samræðum og atvikum og neyðist til að nauðga einum um of þvi gamal- kunna bragði að láta vinnukonur ogannaðaukafólkstanda áhleri. Hitt er svo annað mál, að þessi aðferð er ekki valin út i bláinn. Hún heldur uppi vissri óvissu og getsakaspennu sem gerir það m.a. auðveldara að gera aðal- persónuna og karl hennar, Simon beyki, dularfyllri og stærri i snið- um, — höfundur er bersýnilega mjög áfram um að það fari ekki á milli mála, að hér sé ekki um neinar hversdagspersónur að ræða. Herborg þessi er herská einstaklingshyggja eins og hún er löng og breið til; frá upphafi vega hefur hún einsett sér að snúa á veröldina með ýmislegri bragð- visi (fyrsta afrek hennar er að kúga sóknarprestinn til að ferma sig). Og þegar leikurinn harðnar biður hún hvorki drottinn né aðra aðila um miskunn — né heldur kemur henni til hugar að sýna öðrum linkind. Með stuttum og útspekúleruðum hjúskap við danskan faktor kemur hún undir sig fótum og gengur siðan að eiga ágætan ungan skipstjóra, Jóna- tan, sem hún hafði reyndar ætlað sér fyrr. Þegar hún missir hann frá barnahópi gerir hún sina uppreisn gegn forsjóninni og sættist ekki við hana siðan. Hún heyr: sitt ekkjustrið með vafa- sömum vertshúsrekstri, enn hæpnari viðskiptum við útlenda skipstjóra og öðru bralli. Fjármál þessi ganga henni vel, hvað sem öðru liður, en verulegur skriður kemstþá fyrst á þau þegar Her- borg bindur trúss sitt við Simon nokkurn, heldur ósjálegan beyki og nurlara. Þau sameinast með miklum tilþrifum bæði i firnaleg- um umsvifum i uppáferðum og á- girnd til fjár. Þau skötuhjúin ná miklum árangri bæði I rúminu og með okri og braski — en smám saman færist lýsingin á þessum tveim miklu ástriðum þeirra af sviði skrýtlunnar yfir á iskyggi- legra plan einhverskonar for- dæðuskapar. Það er einkum amman Guðný, æskuvinkona Herborgar, sem heldur uppi viðvörun við svoddan ofstopa — hefur þetta fólk ekki selt and- skotanum sál sina? Sem fyrr segir er lýsing Her- borgar burðarás sögunnar. Simon, karl hennar, er að visu fyrirferðarmikill, en hann verður að mestu að sætta sig við að koma fram i söguburði, varla að hann fær að taka til máls sjálfur. Her- borg er ekki raunsæisleg persóna I neinum skilningi. Það er auðséð, að Guðmundur vill magna hana og stækka svo að hún geti orðið að einskonar samnefn- ara þeirra kvenna sem eru partur af goðsögn þjóðarinnar um sjálfa sig. A einum stað er talað um hana sem „náttúrufyrirbæri”, á öðrum er hún sönnun þess að „stálið frá vikingaöldinni” hafi ekki dignað." Þegar Simon er dauður visar Herborg með fyrir- litningu á brott þvi huggunartil- boði að hún eigi eftir að hitta hann hinumegin — búklaus anda- sambúð er henni enginn vonar- peningur. En þegar hún veltir fyrir sér valkostum sinum þá fer hún þessum orðum um minninguna um ögurstundir með Simoni: „Heldur skugginn af þvi besta heldur en það næstbesta, sem kannski er fyrir mér engu skárra en það versta”. Svona tilsvör eru bersýnilega smiðuð með hliðsjón af fornkonum og svo Snæfriði íslandssól. Þessi stækkunarviðleitni og goðsagnarsmið er ekki gallalaus. Það kemur öðru hvoru fyrir að lesandanum finnst skotið yfir mark að rembingur hlaupi i lýsinguna og forskrúfun — til The Debt Trap The IMF and the Third World. Cheryl Payer. Penguin Books 1974. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn er einhver valdamesta stofnun ver- aldar. Fjármagn sjóðsins er not- að til lána, einkum til vanþróuðu rikjanna og jafnframt er þess gætt að ná tangarhaldi á lántök- um og komið i veg fyrir með nokkurskonar fárkúgun að þessi riki geti aflað sér fjárhagslegs sjálfstæðis. Höfundurinn rekur sögu þessarar stofnunar og við- skipta hennar við ýms riki Suður Ameriku, Asiu og Afriku. Tengsl stofnunarinnar við ýmsa fjöl- þjóðahringi eru rakin og lýst er hlutverkaskiptingu Alþjóðagjald- eyrissjóðsins og Alþjóðabankans. Þetta er þörf bók, staðreyndir þær sem höfundur rekur votta hvers eðlis þessar stofnanir eru og hverjum þær þjóna. Ancient History Atlas Michael Grant. Cartography by Arthur Banks. Revised Edtition. Weidenfcld and Nicolson 1974. Höfundurinn leggur minni á- herslu á pólitiska sögu en tiðkast venjulega i söguatlösum. Hann rekur söguna frá öðru árþúsundi f.Kr. fram á sjöttu öld e.Kr. Svæðið sem atlasinn spannar er Evrópa, Asia og Afrika og fjallað er um hagsögu, menningar og trúarbragða sögu og pólitiska sögu. Hér má finna helstu fram- leiðslusvæði þýðingarmestu land- búnaðarafurða, námusvæði, kornflutningaleiðirnar og þá landshluta, þaðan sem merkustu höfundar grikja og rómverja voru ættaðir frá. Höfundurinn er vel þekktur sagnfræðingur, hefur sett saman rit um sögu rómverja og ritað ævisögur Cæsars, Kleo- pötru og Nerós. dæmis má nefna lýsingu Her- borgar á fyrstu viðureign þeirra Simonar. En hitt er meira um vert, að af Herborgu og þvi fólki er raunverulegur þefur og keimur af salti og svita og blóði, að lýsingin krækir sér i staðfestu bæði i sérkennilegu og um leið hóflega nptuðu málfari tima og staðar og svo i skrýtlusafni sem tengist ágætlega við persónurnar og það sem gerst hefur i plássum kringum landið. 1 annan stað er ýmsilegt laglega gert i þvi að tefla saman málsvörn Herborgar sjálfrar og árásum á hana (ein- vigi þeirrar Guðnýjar i miðri sögu). 1 þvi að setja fram tvi- benta afstöðu vina og vanda- lausra til aðalpersónunnar — annarsvegar fer virðing fyrir áræðni hennar, hinsvegar andúð á ágrind hennar og öðrum skepnuskap. Undir lokin langar höfund bersýnilega að beygja kné Her- borgar gömlu fyrir lambsins stóli, láta hana iðrast á elleftu stund. Sem betur fer vikur Guð- mundur Hagalin ekki ýkja langt undan þeirri freistni, enda hefði hann þá spillt illa mynd sinni af þessari fornkonu vestan af fjörð- um. A.B. Guðmundur G Hagalin. Bókin sem ailir biða eftir Oldin okkar Mimiisvei*ð tíðindi 1951 1960 Öldin okkar nýtt bindi Mú birtist þriðji hluti hins vinsæla ritverks ÖLDIN OKKAR og tekur yfir árin 1951—1960. Eru ,,Aldirnar“ þá orðnar átta talsins og gera skil sögu þjóðarinnar í samfleytt 360 ár í hinu lífræna formi nútíma fréttablaðs. Myndir í bók- unum eru á þriðja þúsund talsins og er í engu öðru ritverki að finna slíkan fjölda íslenzkra mynda. — „Aldirnar“ eru þannig lifandi saga liðinna atburða í máii og myndum, sem geyma mikinn fróðleik og eru jafnframt svo skemmtilegar til lestrar, að naumast hafa komið út á íslenzku jafnvin- sælar bækur. Látið ekki undir höfuð leggjast að bæta þessu nýja bindi við þau, sem fyrir eru. Öldin er skemmtileg, fróðlegog frábær Tryggið ykkur eintak meðan til er Iðunn

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.