Þjóðviljinn - 07.12.1975, Side 7

Þjóðviljinn - 07.12.1975, Side 7
Sunnudagur 7. descmber 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 farin að bera nokkurn árangur. Nokkur sveitarfélög utan höfuð- borgarsvæðisins hafa þegar hafiö framkvæmdir samkvæmt þess- um lögum og ýmis önnur hafið undirbúning. Ég óttast mjög að breyting á verkaskiptingu eins og sú sem boðuð er muni verulega draga úr áhuga sveitarfélaga að leysa þessi mál sómasamlega. Ég bendi einnig á að þótt þessi breyting á verkaskiptingu virðist, eins og nú standa sakir, hvorki hafa i för meö sér fjárhagslegan ávinning eða tap — þá muni sveitarfélögin hafa af henni fjár- hagslegan skaöa er fram liða stundir. Kostnaöur af dagvistunarstofn- unum, elliheimilum og viöhaldi skólamannvirkja mun án alls efa stórhækka á næstu árum, ef gera á tilraun til að mæta þeirri brýnu þörf, sem blasir við á þessum sviðum. 1 fyrirliggjandi fjárhagsáætlun er ekki gert ráð fyrir þessum breytingum á verkaskiptingu, sem þó mun hafa i för með sér yfir 20 miljón króna tilfærslu hvað varðar Reykjavikurborg. Verðbólga Auk þessara fyrirsjáanlegu utanaðkomandi atriða, sem gera fjárhagsáætlunina að markleysu innan fárra vikna, koma einnig til önnur atriði, sem fremur viröast miðast við óskhyggju en raunsæi. Áætlunin er semsagt viö það miöuö að verðbölgan stöðvist og hér veröi allir hlutir og þjónusta á sama verði árið um kring. Vissu- lega hefur það löngum verið bar- áttumál nær allra stjórnmálaafla i landinu að draga úr veröbólgu. En það verður að segjast að engri rikisstjórn hefur gengið ver i þeirri baráttu en núverandi stjórn. Aldrei hefur verðbólgan orðið jafnmikil á jafnskömmum tima og i tið hennar. Og aldrei hefur setið i landinu rikisstjórn, sem er óliklegri tiV að stöðva verðlagshækkanir, en einmitt sú, er nú situr. bað verður þvi að teljast litið raunsæi að gera ráð fyrir að verð- bólgan stöðvist einmitt nú. Allar kostnaöarhækkanir veröa til að auka á reksturskostnað borgarinnar og draga úr þvi fé, sem hægt er að verja til framkvæmda. Þannig verða bæði rekstrar-og framkvæmdaáætlan- ir að marklausum pappirum. Og þegar ekki veröur hægt að framkvæma allt það, sem gert er ráð fyrir i frumvarpinu og sem vafalaust verður samþykkt, þá verður það að vanda látið i ákvörðunarvald embættismann- anna að tina út þær framkvæmd- ir, sem þeir vilja hrinda i verk, en láta hinar, sem ekki falla þeim eins vel i geð, sæta afgangi vegna fjárskorts. Viljinn leynir sér ekki Þótt augljóst sé að það frum- varp, sem lagt hefur veriö fram, veröi aldrei notað sem stjórntæki, þá.sýnir það samt — eins og það er nú — á ákveðinn hátt pólitlskan vilja meirihlutaflokksins. Tekjuáætlun frumvarpsins sýn- ir glöggt, hvernig reynt er að halda hlifiskildi yfir atvinnurek- endum á kostnað launþega. Að vanda er ekki gert ráð fyrir að innheimta aðstöðugjöld eins og lög heimila. Þar er áætlað að gefa atvinnurekendum og peninga- mönnum eftir um 125 milj. kr. á næsta ári, eins og gert hefur veriö á undanförnum árum og eins og gert mun veröa meðan Sjálf- stæðisflokkurinn fer með meirihlutavald i borgarstjórn Reykjavikur. Þá er áformað að innheimta fasteignaskatta með 30% álagi þótt heimilt sé að innheimta þá með 50% álagi. Einnig er gert ráð fyrir aö útsv. verði innh. með álagi til þess að endar nái saman i fjárhags- áætluninni eftir svo rausnarlegar gjafir til peningamannanna. Það er min skoöun að þaö eigi skil- yrðislaust að nota til fulls aö- stöðugjaldsstofninn og álags- heimildir á fasteignaskatta áöur en gripið er til álags á útsvörin. Atvinnureksturinn og stóreign- irnar greiða alltof litið af sam- eiginlegum kostnaði borgaranna og minnkandi hlutfall frá ári til árs. Þegar núgildandi tekjustofna- lög voru sett árið 1972 var i áætlun þess árs gert ráð fyrir að 51,5% af tekjum borgarsjóðs kæmi af út- svörum. 1 þessari fjárhagsáætlun er reiknað með að útsvörin séu 54,3% af tekjum borgarsjóðs. Fasteignagjöldin voru árið 1972 áætluð 19,6% af tekjum borgar- sjóðs, en eru nú áætluð 14,2% af tekjum hans. Það er eindregin skoöun mín að leggja beri há- marksálag á fasteignaskatta annars húsnæðis en ibúðarhús- næðis til eigin nota, en að hins vegar eigi ekki að gripa til ellefta prósentsins i útsvarinu nema aðr- ir tekjustofnar hafi veriö nýttir aö fullu. Þeir sem njóta samúðar Einn er sá tekjustofn sem borgarstjórnarmeirihlutinn er ákaflega tregur til að hækka enda hefur hann staðiö óbreyttur i krónutölu um árabil. Þrátt fyrir veröbólgu og vaxandi fjölda af „sjoppum” þá er gert ráð fyrir óbreyttum tekjum af kvöldsölu- leyfum, einni milj. kr. Þegar ég nefndi þetta við einn kunningja minn þá taldi hann þetta gjald nokkuð hátt i miljón á hverja sjoppu á ári. En hann hafði misskilið mig herfilega, sjoppurnar greiða nefnilega allar samtals eina miljón króna. Nánar tiltekfð greiöir hver sjoppa i leyfisgjald kr. 10.000 á ári eöa innan við þúsund krónur á mán- uði. Þeir sem eiga óskipta samúð ihaldsins i borgarstjórn þurfa ekki að óttast ómannúðlega skatt- piningu. Stöðug endurskoðun Eins og áður getur er það plagg sem hér er um að ræða, fjárhags- áætlun borgarinnar, ekki nema til nokkurra vikna i raun. Mér er ljóst að mjög veigamiklar for- sendur skortir til aö hægt sé á þessari stundu að leggja fram fjárhagsáætlun, sem leiða mætti likur að stæðist lengur en nokkrar vikur. Þar á ég við þá stóru óvissuþætti sem fljötlega munu orka á fjárhagsáætlunina þe'. kjarasamningana og verkaskipt- ingu rikis og sveitarfélaga. Það er einnig ljóst að á meðan verð- bólgan er jafn geigvænleg og hún hefur verið sl. tvö ár þá er með öllu útilokað að gera fjárhags- og framkvæmdaáætlun sem getur staðið óbreytt i 12 mánuði. Það er þvi nauðsynlegt að borgarstjórn taki upp nýja starfs- hætti við gerð fjárhagsáætlana og miði þá við að hafa þær stöðugt i endurskoöun þannig að það séu kjörnir fulltrúar fólksins i borg- inni sem ákveði viöbrögðin ef sýnt er að áætlun stenst ekki en að valdið sé ekki lagt i hendur embættismanna sem hafa enga pólitiska ábyrgð, Fjárhagsáætlun yfirstandandi árs var tekin einu sinni til endur- skoðunar og þrátt fyrir það var vikið jafnmikið frá seinni gerö hennar — hvað varðar framkvæmdir — og ég minnist á hér á undan. Ég tel, aö fjárhagsáætlun eigi ekki aðeins að taka til endurskoð- unar einu sinni á árinu heldur svo oft sem þarf til að hún geti verið ákvarðandi fyrir starfs- menn borgarinnar og þar meö stjórntæki i höndum borgarfull- trúa. Ég mun ekki nú fjalla urh ein- stök rekstrarútgjöld eöa einstaka framkvæmdaliði. Slikt tel ég engan veginn timabært meðan jafnmikil óvissa rikir um framtiö þessa frumvarps og ég hef þegar rakið. Hins vegar er oröiö meira en timabært að borgarfulltrúar, sem og aðrir stjórnmálamenn, sanni almenningi aö þeir séu til þess hæfir að stjórna. Okkur hefur verið falinn mikill trúnaður og mikil ábyrgð. Samtals er fjár- hagsáætlun borgarsjóös og fyrir- tækja borgarinnar upp á tæpa 15 miljarða króna eða sem nemur um 700 þúsund krónum á hverja fjögurra manna fjölskyldu i Reykjavik. Almenningur hefur kosið okkur til aö fara með umboð sitt gagnvart þessum fjármunum og við höfum enga heimild til að vikjast unda-n þeim skyldum. GUNNAR GUNNARSSON SKRIFAR VERÐUR BRÁÐUM BYLTING? Hann jós yfir mig forinni, þar sem ég stóð i þungum þönkum, beið eftir strætó i slagveðrinu, reyndi að hafa skjól af sjálfum mér þar sem ég himdi á viða- vangi i svarta myrkri og bilarn- ir þutu framhjá: Skammdegis- siödegi i Reykjavik, snjórinn sem féll á jörðina i fyrradag næstum horfinn, i staðinn komin svört leöja, drullupollar hvar- vetna þar sem lægðir myndast og allir litir, hvort sem er á hús- um eöa bilum, renna saman i grámósku og svo kemur forar- gusan i kaupbæti. nútimakúarektorar, þið hjól- þenkjandi fjaðrasófa-lúxusbles- ar sem stöðugt gerið af ykkur óskunda, takið nótis af veðri, vegum og öðru fólki? Missið þiö alla stjórn á ykkur þegar þið finnið fyrir ofurafli bensinvél- arinnar undir rassi ykkar? Ég læt loka ykkur inni! Kunningi minn glotti bara, ók hratt við vegarbrún og ég sá i huga mér tugi manna veröa fyrir forarslettum hjóldrekans. Veistu, sagði bilstjórinn svo, það skiptir engu þótt maöur sletti á landa sina þar sem þeir borg er það reginskyssa að dreifa byggðinni um sjö hæðir og mýraflóa. í miðbænum á vitanlega aö vera fjörugt kaffi- húsalif, helst allan sólar- hringinn, þar eiga að vera verslanir, leikhús og sýningar- salir. Nú ætla þeir að færa Iðnó suður i Kringlumýri! Ég hafði ekki döngun i mér til aö taka i þennan umræöuspotta meö honum, fannst lika hálf- gagnslaust að þrasa um skipu- lagsmál eina feröina enn. Umhverfisþankinn hefur búiö fyrir brjóstinu i manni árum saman. Margir ágætismenn hafa reynt að bregða ljósi fyrir sjónir yfirvalda, bent á hver glappaskot hafa veriö framin, hvernig hagsmunaklikur ráða ferðinni, en allt kemur fyrir ekki. Það er nefnilega ekki hægt aö breyta hugsanagangi og skoðunum gróðaafla. Þaö verð- ur ekki byggt eða skipulagt af viti á íslandi fyrr en menn hafa losnað við ihaldið onaf sér. Og kannski stendur þaö til bóta. Kunningi minn i bilnum hélt þvi a.m.k. fram aö angi byltingarinnar væri kominn i ljós. Nú hafa þeir nefnilega gengið of langt, eigendur þessa lands, sagði hann. Þeir hafa gengið alltof langt. Þeir hafa hækkað brennivinið svo skart, að fólki ofbýður. Og þegar svo er komið, að ráða- menn hafa komið of ruddalega fram við buddur múgamann- anna, þá fara þeir aö brugga. Þegar menn hafa veriö lengi klæölitlir og vannæröir vegna þess hve áfengið er dýrt, þá finna menn smugu á veggnum. skriða undir girðinguna — þeir fara að brugga. Félagslif i miöbæ Reykjavlkur Þaö var engin smágusa. Ég varð holdvotur. Og ég missti þráðinn i hugsanakeðjunni, það fauk i mig eitt andartak, það rann á mig hálfgert æði, ég var að hugsa um að stökkva að bfln- um, gera eitthvað, skrifa númer, kalla á pólitiið — en á yfirborðinu hélt ég stillingunni, sendi bilstjóranum aðeins napurt augnaráð þegar hann stöövaði tæki sitt, kom út og sagði undrandi: Nei, ert það þú! Og honum létti, eins óg nú væri allt i lagi. Hann bauð mér far með sér, masaði á leiðinni glaöhlakka- lega, baðst afsökunar en var greinilega búinn aö gleyma slysinu þegar i staö. Og ég sem var svo vel til fara! — nýkominn úr kennslustund og stefndi nú i viötal við góðskáld nokkurt og hamaöist við að undirbúa mig i huganum, einbeitti mér að væntanlegum viömælanda, formaði spurningarnar, rifjaöi upp bækurnar hans — og þá kom þessi leppalúði i bilskrjóði sin- um og baðaði mig, baöaöi mig upp úr reykviskum skit! Ég hlustaði á masiö i honum stundarkorn, velti þvi fyrir mér hvernig ég gæti best hrist af mér fýluna, komist i samt lag aftur, og ákvaö loks að hella méryfir hann. Ég útskýrði fyrir honum, að þótt hann hefði boðið mér far og beöiö mig afsökunar, þá sæti ég hér, hundblautur, for- ugur upp fyrir haus og i ónýtum fötum, eöa er útilokað að þiö blikkbeljumeistarar, þið biða á vegkanti eftir strætó sem aldrei kemur. Ég hef veriö að hugsa um þetta. Þaö er aö visu dónalegt aö ata annaö fólk for, en ég held að löndum minum sé alveg sama. Þeir hrista sig bara og kaupa ný föt. Ég sé ekki betur en mönnum sé herumbil sama hvernig að þeim er ráðist. Sennilega hrin ekkert á tómlæt- inu. Menn láta það viögangast að auðjarlar leiki sér með fjár- muni þeirra. Skattsvikarar byggja ljótar glamorhallir yfir sjálfa sig, reisa sér hvern kastalann á fætur öðrum og á nokkrum veltuárum er komin hér á nesjunum borg gerð úr viggirtum einingum, mynduð úr ljótum steinsteypuhverfum i stað þess samastaðar, þeirrar félags- og menningarmiöstöðv- ar sem gráupplagt heföi veriö að byggja hér. Hér á landi eru veður stundum köld og hvöss og ég held aö góðir byggingameist- arar hefðu tekiö tillit til þess. Þar sem er kalt og hvasst, þar á að byggja skjólgaröa úr húsum. Og slikir veðurbrjótar myndast ekki nema fólk búi tiltölulega þétt. Og ef fólk á aö búa þétt, veröur að skapa þvi opna leið til hvers konar félagslegrar iökun- ar. 1 öllum miðbænum i Reykjavik, þar sem upplagt hefði veriö að skipuleggja þannig, að þar þrifist félags- og menningarstarfsemi, er nú ekkert sem laöar fólk að annað en búöir sem eru lokaðar þegar fólk á fri og tvö bió. t fámennri Og byltingin viröir engin lög. 1 kjöllurum og á háaloftum. inni i sparistofum ef ekki vill betur, sitja menn við seyðinn, hræra i pottum, hella á milli iláta, raða saman ölflöskum. smelia á töppum, bragða á lagernum — aldrei fór þaö svo, að.vinmenn- ingin sniðgengi tsland alveg, sagöi bilstjórinn, kannski er þessi áfengi seyður sem menn brugga gegn ihaldinu einmitt það meðal sem hrifur! Menn þurfa nefnilega aö drekka i sig kjark til að fara á milli húsa i svona dreiföri byggð þegar veð- ur gerast vond. Strætó kemur aldrei hér fremur en Godot, enda reikna ég með að Godot sé lika farinn að brugga, brugga byltingarmóðinn! _Og svo hló þessi nöturfyndni bilstjóri hátt og lengi einsog hann hefði ratað á einhvern reginsannleik handa mér að melta. en ég foröaði mér út i kaldan vestanstorminn, reyndi aö finna skjól fyrir siettum urr- andi bensinuxanna. Þaö er svo enn eitt rannsókn- arefniö, hvernig á þvi stendur, að auðgreifar á tslandi og þau öfl sem ráða hér borg og bæjum skuli meö öllu vera frábitin fé- lagslifi. listum og menntum. Hvenær hefur islenskur auð- lubbi haft annan áhuga á list en fjárfestingaráhuga? Hvenær hefur aurabarón opnaö hér list- sýningasal eða staðið fyri kaffihúsi þar sem halda má samkomur?

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.