Þjóðviljinn - 07.12.1975, Side 13
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 7. desember 1975.
Elsa Þóröardóttir viö burstagerö.
Einar Guönason fér létt meö aö vinna viö burstageröarvélina þótt blindur sé.
bóndi
á Jökuldal
Helgi Gunnarsson, ættaöur aö austan,en hefur i 13 ár unnið að bursta-
gerö hjá Blindraféiaginu.
— Heyrðu, ertu frá
Þjóðviljanum, veistu það
að ég þekki Lúðvik Jóseps-
sondálítið, ég ernefnilega
að austan, frá Jökuldal.
Þannig byrjaði Helgi
Gunnarsson samtalið við
undirritaðan, þegar við
hittumst í burstagerð
Blindrafélagsins, en. þar
vinnur Helgi að burstagerð
og eins sér hann um að
þrifa vinnustofuna að
loknum venjulegum vinnu-
degi.
— Þú segist vera að austan?
— Já, já, úr Jökuldal, ég bjó á
Grund, hokraði þar um árabil, en
svo kom ég hingað suður fyrir 13
árum og hef unnið hjá Blindra-
félaginu siðan við burstagerðina
Og auk þess að búa til bursta,
stimpla ég þá og þrif vinnu-
stofuna eins og ég sagði áðan.
— Og likar þér vel að vinna
hérna?
— Lfkar mér vel? Það gæti ekki
ve.rið betra. Hér höfum við allt til
alls og það er allt gert fyrir okkur
sem hægt er. Hér höfum við
ibúðirnar okkar, hér er sam-
komusalur og bókasafn, já allt,
sem hægt er að hugsa sér.
— Notið þið samkomusalinn
mikið?
— Mjög mikið. Hingað kem-
ur stundum listafólk að skemmta
okkur, nú, og svo höldum við
stundum dansleiki og fleira okkur
til skemmtunar. Ég get sagt þér
það vinur minn að hér er mjög
gott að vera, allt er svo frjálslegt
og vinnuaðstaðan eins og best
verður á kosið.
— Og nóg að gera?
— Alltaf meira en nóg að gera,
enda er um að gera að vinna —
þegar menn geta ekki lengur
unnið, þá er illa komið fyrir
þeim. —S.dór.
Hér
er
alltaf
nóg
aö
gera
sagði Helgi
Gunnarsson
fyrrverandi
Ef við, sem alsjáandi
erum, lokum augunum
ellegar göngum um í
myrkvuðu herbergi erum
við ósköp hjálparvana,
getum nánast ekkert gert
nema þreifa eftir ein-
hverri handfestu. En til er
fólk sem þarf að lifa og
starfa í myrkrlog f lest það
fólk verður svo harðgert
gagnvart sjálf u sér, að það
stundar vinnu ekki síður en
þeir sem sjáandi eru. Og
ekki bara það, heldur hef-
ur blint fólk komið sér upp
vinnustað, eða öllu heldur
fyrirtæki, sem velti hvorki
meira né minna en 15
miljónum kr. á síðasta ári.
Þetta er vinnustofa blindra
i húsi Blindrafélagsins að
Hamrahlið 17. Þar eru
framleiddir burstar og má
seg ja að blint fólk á islandi
sjái þjóðinni fyrir megninu
af þeim burstum, sem hún
þarfnast. Vinnustofan að
Hamrahlíð 17 er stærsti
framleiðandi bursta á
landinu í dag, en auk þess
framleiða blindir menn á
Akranesi, Blönduósi og á
Akureyri bursta. Þessi
burstaf ramleiðsla virðist
öðru fremur henta blindu
fólki að vinna við.
Við brugðum okkur að Hamra-
hlið 17 til þess að skoða þennan
sérstæða og myndarlega
vinnustað og ræða við fólkið, eða
hluta þess hóps sem þar vinnur.
Við byrjuðum á þvi að biðja Egg-
ert Kristinsson, framkvæmda-
stjóra Blindrafélagsins, að segja
okkur dálitið frá framleiðslunni.
— Við framleiðum hér hvers-
konar bursta má segja og nú hin
siðari ár höfum við tekið vélar æ
meira i okkar þjónustu við
burstagerðina og við þær vinnur
blint fólk og virðist ekki siður en
sjáandi fólk leysa þau störf. Sem
dæmi get ég nefnt þér að i þau 3 ár
sem við höfum verið hér með
vélar við burstagerðina, hefur
ekkert vinnuslys átt sér stað,
utan kannski hrufl á fingri eða
svo, eins og gengur og gerist á
hvaða vinnustað sem er. Ég hygg
að uppundir 90% af okkar fram-
leiðslu sé nú vélunnið. Hitt er
Þar
vinna
menn
ekki
síður
en
þeir
sem
al-
sjáandi
eru
Sunnudagur 7. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SHjA 13
Þórhallur Stefánsson verkstjóri hugar aö einni bursta
geröarvélinni.
Eggert Kristinsson, framkvæmdastjóri Blindrafélagsins.
unnið í höndum, og það er alltaf
eitthvað sem vinna þarf i höndun-
um, auk þess sem elsta fólkið er
tregara til að fara að vinna á vél-
um, en það sem yngra er.
— Þar sem burstar eru leyfis-
vara, höfum við ekki lent i
teljandi samkeppni við innflutta
vöru, enda hafa stjórnvöld alltaf
verið svo vinsamleg við okkur að
vernda þennan iðnað okkar með
þvi að leyfa ekki innflutning á
þeim gerðum bursta sem við
framleiðum.
— Við höfum verið að smá-auka
framleiðsluna hjá okkur og má
segja að starfsemin hafi gengið
vel siðustu 3 árin og hvað best i
fyrra en þá framleiddum við
87.504 stykki og var veltan hjá
okkur þá um 15 milj. kr. Við
framleiðum nú milli 18 og 20 teg-
undir af burstum og við fram-
leiðsluna vinna nú 11 blindir
menn, auk sjáandi verkstjóra og
aðstoðarmanns. Þetta er sú
framleiðsla sem við erum með
hér á vinnustofunni, en i húsi
Blindrafélagsins hér að Hamra-
hlið 17 eru nokkur fyrirtæki sem
blindir menn reka, nudd- og
gufubaðstofa, húsgagnabólstrun,
körfugerð og pianóstillingar.
Félagið hefur reynt að aðstoða
það blinda fólk sem vill reyna að
vinna sjálfstætt, og i þeim tilfell
um sem hér að framan greinir
hefur það gengið mjög vel. Einnig
reynir félagið að útvega blindum
vinnu við sitt hæfi úti á hinum al-
menna vinnumarkaði og það hef-
ur tekist i þó nokkrum tilfellum.
Til að mynda vinna nokkrir á
skiptiborðum ýmissa fyrirtækja
og hafa reynst þess fullkomlega
megnugir að leysa þau störf.
Flestir þe.r sem vinna við
burstagerðina hjáokkur búa hér i
húsinu.Unnið erfrá kl. 8 til 17, en
sumir vinna þó aðeins hálfan
daginn. Hér i húsi Blindra-
félagsins hefur fólkið eigin ibúðir
og sér að öllu leyti um sig sjálft,
ef það vill, en auk þess er hér
félagsaðstaða, samkomusalur
bókasafn, o. fl. Segja má að til-
koma þessa húss sem tekið var i
notkun fyrir 2 árum hafi ger-
breytt allri aðstöðu blindra, bæði
hvað viðkemur vinnuaðstöðu og
ibúðarhúsnæði.
1 sambandi við burstafram-
leiðsluna má segja að við höfum
undan að framleiða, en við höfum
ekki getað safnað okkur neinum
lager. Við höfum verið að
gera framleiðsluna aðeins
fjölbreyttari, og eftir að vélarnar
komu höfum við farið úti fram-
leiðslu á fleiri tegundum bursta
og m.a. plastburstum, en hér
áður fyrr var eingöngu um tré-
bursta að ræða.
i
Þetta er
allt annað
líf síðan
við fluttum
hingað
Guömundur Jóhannsson hcfur unniö biö bursta- og körfugerö i yfir 40 ár.
— Fyrst vann ég hjá Blindra-
vinafélaginu, en eftir aö viö
stofnuðum okkar eigiö félag,
Blindrafélagiö hef ég unniö hjá
þvi, sagöi Guömundur Jóhanns-
son, er hefur nú um 40 ára skeiö
unniö viö bursta- eöa körfugerö og
starfar enn aö burstagerö hjá
Blindrafélaginu aö Hamrahlíö 17.
— Þvi er ekki saman að líkja hve
öll aðstaða okkar hefur batnað
mikið eftir að við fluttum hingað i
Hamrahliðina. Hér höf-
um við ibúðirokkar og vinnustað i
einu og sama húsinu og það getur
hreint ekki veriö betra en það er.
— Vinnur þú ekkert á vélunum,
Guðmundur?
— Nei,ég kem ekki nálægt þeim,
þvi hef ég alla tið gert bursta i
höndunum og geri það enn og
breyti sjálfsagt ekki til héðan af.
Annars vinn ég bara við og við,
svona þegar ég nenni, þetta er
akkorðsvinna, og maður getur
gripið i þetta hvenær sem manni
dettur i hug, og það er mjög hand-
hægt, þar sem maður býr hér
i húsinu, sagði Guðmundur að
lokum. —S.dór.
Rætt viö Guðmund Jóhannesson
Marta Gisladóttir hnýtir bursta.
— 1 ár verður framleiðslan
svipuð og i fyrra, en auðvitað
verður veltan meiri i krónutölu,
en þó er þvi ekki að neita að nú
siðustu mánuðina höfum við orðið
varir við dálitinn samdrátt, sem
við vonum að sé aðeins tima-
bundinn, þessi framleiðsla og sú
atvinna, sem hún skapar blindum
má ekki stöðvarst.
—S.dór.
MYNDIR OG
TEXTI S. DÓR