Þjóðviljinn - 07.12.1975, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 07.12.1975, Qupperneq 15
Sunnudagur 30. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Umsjón: Halldór Andrésson JÚDAS: „JÚDAS NQl” (Júdas/JUD. 001) 1975 Júdas No:l er fyrsta breiðskifa hliómsveitarinnar. Júdas gáfu reyndar út aðra plötu undir nafni Magnúsar Kjartanssonar „Clockworking Cosmic Spirits”. Þessi plata Júdasar er all frá- brugðin allri annarri tónlist sem kemur frá islenskum aðilum þessa dagana. Tónlistin er mjög á linu þeirri sem hefur verið vinsælust f Bandarikjunum und- Vignir Pálsson anfarna mánuði, þ.e. „Black Music” og er hulstrið nokkuð dæmigert. Þetta er sú tónlist sem hefur gert Júdas hvað vinsælasta hér i ár. En þvi miður finnst mér þeir hefðu get- að notið sinbetur. Raddir þéirra Magnúsar, Finnboga og Vignis. Rödd Magnúsar er fremur hrá á plötunni og sýnir hann alls ekki slnar bestu hliðar hvað það snertir. Mér finnst rólegu lögin bera af, en hljóðfæraleikur allur er góður. „New York Overture ” er eftir Magnús i „Shaft”-stil. Nokkuð skemmtilegt. Danslag. „What’s On Your Mind” er eftir John Miles. John Miles tók lag Magnúsar upp á plötu hjá sér (To Be Grateful) og skil ég ekki hvað Júdas er að gera með þetta þrælstolna og lélega lag, lélega skipti lögum þetta. „First Class Rock’n Roll Song” á að vera rokkari en þvi miöur eru allt of margir dauðir letipunktar, svo það stendur ekki undir nafninu. „It’s Raining Again” er lik- lega sungið af Vigni Söngurinn er góður og lagið einmanalegt og fallegt. Skemmtilegur gitar- kafli lika, og strengjasveit setur lika skemmtilegan svip á lagið, Vignir minnir stundum á Mc-Cartney meira að segja. „Poseidon” er nokkurs konar „jam” lag eftir Júdas og Karl nokkurn Sighvatsson. Byggist upp á bassaleik Finnboga. „Breakdown” er eftir þá Magnús og Vigni. Soul lag, vel Nú er allt á kafi i nýjum islenskum hljomplötum og ekki nema sjálfsagt að gera þeim skil jafn fljótt og þær gerast. En ein af afleiðingunum er þá sú að mest öll önnur skrif um poppið okkar verða að sitja á hakan- um. En hér eru samt þrjár frétt- ir, ef fréttir kallast. Hljómleikarnir, sem Steinar hf ætlar að halda verða þann 10. desember næstkomandi i Há- skólabiói og þeir sem fram koma verða Spilverk þjóðanna. Þokkabót og Einar Vilberg. Ýmsar sögusagnir hafa geng- ið um hljómsveitina Júdas, að Hrólfur sé að hætta, að Maggi sé að hætta og fleira og fleira. Staðreyndin er nú samt vist sú að hljómsveitin mun öll halda til New York i janúar og hefja spilamennsku þar. Annars ætla þeir að halda áfram með plötu- útgáfu á Júdasarmerkinu og næsta plata verður liklega ekki gefin út fyrr en i vor, en það er breiðskifa með Sigrúnu Harðar- dóttur. Undirleik á plötu hennar annast Júdasarlimir. Fyrir siðustu helgi var Magnús Sigmundsson úr Change staddur hérlendis i verslunarferð. Var hann að koma annarri breiðskifu Change útgáfunnar á markað- inn, „ALLRA MEINA BÓT”. Hann seldi Fálkanum hf. upplagið (fyrsta) 2500 eintök, og eru Change þar með hættir hjá Demant hf. Er þetta þvi næst siðasti bitinn sem Demant miss- ir úr höndum sér. Sá sem eftir er er Megas. Annars hélt Magnús blaða- mannafund og var tilbúinn með léttvin og plötur, en þetta var skrifurum ekki sagt og mætti ég bara einn. Sagði Magnús að búið væri að gera fjárhagsáætlun fyrirChange af hinum háu herr- um þeirra, sagði hann að sér lit- ist bara vel á þá áætlun. Um dúettplötu þeirra Jóhanns sagði hann að upptöku á henni mundi verða seinkað til betri tima. Næsta breiðskifa þeirra Change mun að öllum likindum koma út i vetrarlok og um litlar plötur úti sagði hann að allt gæti gerst. Þeir eru nú i stúdiómennsku bæði- fyrir höfundaréttinda fyrirtækið Chappels svo og aðra. Á næstunni munu þeir svo taka spilarúnt á nokkrum klúbbum. spilað en fer einhvern veginn ofan garðs og neðan, samt eru kaflar góðir: Bakraddir annast Stellina og Lorenza (svartálf- arnir) og Engilbert Jensen og Sigrún Harðardóttir. „Depression” er þrælgott danslag.Þetta rokklag er eftir Émmk NYJAR HLJÓM- PLÖTUR ¥ Magnús og syngur hann lagið sjálfur, ansi hrátt að þvi er virð- ist. Hljóðfærið sem nefnt er ARP (nokkurs konar moog) er notað mikið. „I Am On My Way” er rólegt spilað á fender rhodes pianó og APR nokkuð. Vel sungið af Magnúsi (Held ég, það vantar upplýsingar um aðalsöngvara i hverju lagi) Annars stendur lagið ekki eitt sér, það vantar einhverja millikafla, lag i stil Robertu Flack og þess háttar. „U.S.: Naval Base” fjallar um það hvernig er að búa i ná- grenni við Miðnesheiðina. Lagið er gott rokklag. „Bye-Bye” er að minu mati lang besta lagið og i topp klassa. útsetningin er lika I alla staði góð Hver syngur er ég ekki viss um. Eitt af þeim góðu sem Maggi hefur samið (þau eru nokkur). Hulstrið er eitt af þeim betri hér, á framhlið er mynd af mál- verki af Júdasi og þeim öndum sem i kringum þá eru. Gleymst hefur fullkomlega að nefna listamanninn á bakhliðinni, sem annars er uppfull af upplýsing- um (vel þegið) en nafn hennar er allavega Rikey. „Allra meina bót 7 7 SITT LÍTIÐ... (Change/ch. 002) 1975 Allra Meina Bót er ein sú furðulegasta plata sem út hefur komið i ár. Lögin eru öll mjög gripandi létt og skemmtileg, textarnir eru vægast sagt ab- súrd á stundum og flutningur er léttur og lifandi. Þó flytjendur séu ekki beint nefndir á nafn þá eru þetta Change án Björgvins Halldórssonar. Platan er i senn barnaplata, jólaplata og „flipp” piata. Þó að hulstrið gefi i raun allt annað i skyn en barnaplötu, þvi framan á þvi er mynd af útflúr- uðu felumyndaverki hannað ai Steve Ackworth, gitarsmið, er það fingert en bakhlið er kum- balds.leg með vélrituðum text- um útklipptum og raðað i rugl- ing og upplýsingarnar eru að vissu leyti útúrsnúningar og fólk tekur tæplega á móti fleir huldugrúppum. Brandarar eins flytjenda — nöfnin: Grámann, Hrámann, Skámann og Blá- mann, Támann, hjámann al- menn-bót, b-bót, rassbót, heilsubót og svo frv. Hvað með það, efni plötunnar sjálfrar er það sem i raun og veru skiptir máli. „Mamma gefðu mér grá- sleppu” þrátt fyrir þennan ó- hugnanlega titil er hér á ferð- inni eitt skemmtilegt litið lag. Textarnir flestir minna mann á aðra gamla islenska texta, þetta lag byrjar á „það var einu sinni....” sem minnir á textann um hana Pálinu kellingu. „Hans og Gréta” er reyndar litið skylt ævintýrinu. Þessi texti byrjar lika „það voru einu sinni...” frábærar kellinga- raddir sem strákarnir fram- reiða hér. Þetta lag verður vin- sælt ef ég fæ að ráða. Textinn er lúmsk ádeila á flóttann tii stór- borganna. „Syngjum dátt og dönsum:” „óli villtu dansa við mig óla skans”. Skemmtilegt lag, gömludansatriðin komast i feitt á þessari plötu, þvi flest lögin koma til með að hæfa þeim vel. „Kisu-þula” er stórskemmti- leg, textinn er eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur. Þulan er alveg frábær og verður alveg örugg- lega vinsælt barnalag. Magnús Sigmundsson syngur textann mjög skýrt og vel eins og hin lögin eru lika. En ég sætti mig ekki við „bestasta barnið”. „Anamaður kakkalakki kónguló og kleina” er algjört „flipp”. Ef þið munið eftir Abót- arplötunní vitið þið nokkuð um efni þessarar plötu. Það er hægt að syngja með öllum lögunum (það eru meðmæli með barna- plötu). „Jesú nafn um aldir alda” er hér i tilefni jólanna. Nokkurs konar poppsálmur. Vei flutt, þó ekki hafi verið iagður mikill timi i upptökur. „Jói Járnsmiður” er karla- ióralag, þrælstolið. Og þvi er ekkert leynt i flutningi, annars á Tómas þó nokkuð mikinn þátt i iaginu, sem getur skýrt eitt- hvað. „Prjónaðu á mig sokk” er sungið af Birgi Hrafnssyni. Poppaðasta lagið og textinn höfðar kannski ekki beint til barna. Biggi syngur bara nokk- uð skemmtilega. „Syngdu söng” minnir nokk- uð á lögin sem Raggi Bjarna og Ellý Vilhjálms sungu i gamla daga, lög sem hlýja manni um hjartarætur og mætti taka upp aftur nú við betri skilyrði, lögin verða ekki verri þó þau eldist. Annars syngur Jóhann Helga- son þetta stórvel. „Nag” er grinlag, með ádeil- um og bröndurum „við kom- umst ekki á spán þvi franco kyrkir fólk og hengir þar”. Svo vélbyssugnýr i bakgrunn. „Sameinum munna” er hið gamla góða ,,ó Rasmus, ó Rasmus” sem var vinsælt hér i útvarpinu allavega frá um 1960. Textinn er alveg bráðfyndinn. „Barnabæn” var á fjögurra laga Abótarplötunni en er hér i nýrri útsetningu. Gott lag. Þetta er plata sem getur kom- ið manni i gott skap. Yoshiyuki TAO: „Yoshiyuki Tao leikur á Yamaha rafmagnsorgel” (Steinar hf./ Hljómplötuútgáfa 002) 1975 Úter komin plata hjá Steinum hf. með Yamaha orgel kennar- anum Yoshiyuki Tao. Er plata þessimeð mjúkri orgeltónlist og lögum eins og Sakura Sakura, Ég veit þú kemur, Vor við sæ- inn, Besame Mucho, Vegir liggja til allra átta, Litla flugan og Mamy Blu. Plata þessi er að minu mati ágætlega til þess fallin að vinna með og vaskaupp o.sfrv. það er að segja bak- grunnstónlist, sem mörgum fellur vel i geð ef miða á við plötusölu. Upptakan var gerð i Hljóðrita hf. Hafnarfirði og tæknimaður var Jónas R. Jóns- son og upptökustjóri einn af að- standendum Steina hf, Ólafur Þórðarson. En það skemmti- «yO! IIVUKI TAO legasta við plötuna er hulstrið sem er eitt það skemmtilegasta sem Form hefur hannað. Það er litmynd af spældu eggi á diski og bakgrunnur einhvers konar froða. Eggið er skorið niður i ferhyrning (rauðaner vel rauð) og diskurinn er með islenska fánanum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.