Þjóðviljinn - 07.12.1975, Side 20

Þjóðviljinn - 07.12.1975, Side 20
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 7. desember 1975. Fyrir meirá en fjórum öldum fann spænski sæfarinn Alvaro de Mendana de Neyra eyjaklása fyrir austan Nýju Guineu og nefndi þær Salómonseyjar. Hann hélti raun og veru að auðæfi Saló- mons konungs væru falin á eyjum þessum. Undir lok siðustu aldar urðu eyjar þessar bresk nýlenda. Þær kallast nú verndarsvæði. Þær eru um 30 þúsund ferkilómetrar og ibúafjöldinn er um 180 þúsund. Höfuðborgin heitir Honiara, og eru þar 17.000 ibúar, þar af 800 evrópumenn og 500 kinverjar. Aðalatvinnuvegur er koprarækt- SITT 0R HVERRI ÁTTINNI Smurolía meö- höndluð meö hljóðbylgjum Moskvu (APN) Við tækniskól- ann i Kharkov i Ukrainu hafa menn komist að þvi, að smurolia sem meðhöndluð er með hljóð- bylgjum af ákveðinni tiðni, er nothæf i lengri tima en ella. Tilraunir sýndu, að olian hélt smurningshæfileikum sinum mörgum sinnum lengur. Sérstak- lega gerðri flautu var i reynslu- skyni komið fyrir i smurkerfi til- raunavélarinnar. Þessi flauta, sem ekki er miklu stærri en sjálf- blekungur, hefur stöðugt áhrif á oliuna á leið hennar gegnum hina ýmsu hluta vélarinnar. Með þessu móti eyðast skaðlegir hlutir, sem koma i smuroliuna. Tilraun með að láta oliu, sem svona flauta hefur áhrif á, smyrja járnbrautarlest, sýndi að olian hefur ágæta smurningseiginleika eftir 100.000 kilómetra akstur. Gunnar M. Magnúss veit leyndarmál 30 kvenna Leyndarmál 30 kvenna heitir bók sem Gunnar M. Magnúss hef- ur saman skrifað. Hann hefur beðið 30 konur um að „segja minningu sina um atburði, sem þær hafa ekki flikað á opinberum vettvangi, ef til vill minningusem hefur legið þeim á hjarta... Ég ákvað að dylja höfunda þessara Gunnar M. Magnúss. frásagna á þann hátt, að rugia greinunum saman og birta þær nafnlausar. 1 bókinni eru þær birtar eftir heiti sagnanna i staf- rófsröð i kynningu e'ru nöfn kvenna einnig i stafrófsröð. En ég er trúnaðarmaður þeirra og lengra nær það ekki”. Söguefnin eru hin margvis- legustu — en ekki er þar margt talað um ástamál að þvi er i for- mála segir. Meðal þeirra kvenna sem Gunnar hefur rætt við eru Briet Héðinsdóttir, Guðrún Á Simonar, Inga Birna Jónsdóttir, Jóhanna Kristjónsdóttir, Margrét Guðnadóttir, Rannveig Ágústs- dóttir og Þuriður Pálsdóttir. Út- gefandi er Setberg. — Viö ætlum sko ekki að láta s j úkrasa m lagiö borga tannviögeröirnar í þér lagsi.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.