Þjóðviljinn - 07.12.1975, Page 23

Þjóðviljinn - 07.12.1975, Page 23
Sunnudagur 7. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23 Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir ROSALIND Einu sinni þegar ég var níu ára fór mamma með Elínu systur mína til tannlæknis. Ég fór út rétt á eftir þeim, en þegar ég opnaði hljóp kisa min, hún Rósalind, út um dyrnar og út á gangstétt. Ég gekk niður tröpp- urnar og þegar ég var kominn ofan á gangstétt- ina sé ég, hvar Rósalind hljóp út á götuna og beint á stuðara á bíl. Hún vældi en ekki ýkja hátt og stökk upp á gangstéttina, en bílstjórinn tók ekki eftir neinu óvenjulegu og ók á- f ram. Ég tók Rósalind upp og sá að eitthvað Ijósrautt lafði út úr henni. Ég hljóp með hana heim og lagði hana niður þegar ég kom inn. Svo tók ég á sprett og náði mömmu þar sem hún var að ganga inn úr dyrunum hjá tannlæknin- um. Ég sagði henni að Rósalind hefði farið fyrir bíl. AAamma sagðist ætla að bíða eftir Elínu og koma siðan heim. Ég fór heim og var hjá kisu. Eftir hálftíma kom mamma heim. Hún fór í simann og hringdi í dýralækni. MYNDA- SAGA Þessa bráðskemmtilegu myndasögu teiknað Frið- rik Erlingsson 13 ára. Frið- rik er nú í i. bekk F i Haga- skóla. Hann var áður í Melaskóla og einu sinni hálfan vetur í Handíða- og myndlistarskólanum. Það er sannarlega á- nægjulegt til þess að vita hve margir unglingar teikna af öryggi og hafa náð valdi á persónulegum stíl. Læknirinn sagði að Rósa- lind ætti að koma til sin eftir tvo og hálfan tíma. Rósalind var mjög ró- leg þessa stund, en loks- ins var farið með hana. Dýralæknirinn sagði að hún væri kjálkabrotin. Hann tók Rósalind og sagði okkur að koma aft- ur eftir tvo tima að sækja hana. Eftir tvo tíma fórum við og sóttum Rósalind. Læknirinn sagðist hafa svæft Rósalind og sett spöng upp í hana til að kjálkinn greri rétt sam- an. Morguninn eftir var Rósalind hleypt út, en þegar hún kom aftur lit- um við upp í hana, við sá- um enga spöng, en vorum ekki viss í okkar sök. Nokkrum dögum seinna var farið með hana aftur til dýralæknis ins. Læknirinn gáði upp í hana og sagði að það væri engin spöng uppi í henni. Við sögðum lækninum að við hefðum ekki séð neina spöng uppi í henni daginn eftir að hún var sett ír þá sagði læknirinn að það gengi kraftaverki næst, ef kjálkinn greri rétt saman. Kjálkinn greri rétt saman og það var allt í lagi með Rósalind, og ég get bætt þvi við, að ég á hana Rósalind enn þann dag í dag. Magnús ólason, 12ára Lindargötu 58 Reykjavik tTttt • • • • • VERÐ LAUNA- GET RAUNINNI er lokiö í næsta blaði veröur tilkynn hverjir fá bækur

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.