Þjóðviljinn - 20.01.1976, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 20.01.1976, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 20. janúar 1976 —41. árg. —15. tbi. Formleg tilkynning ríkisstjórnarinnar í gœrmorgun MORGUN- STUND MEÐ BLAÐ- BERA OPNA STJORNMALASLIT á miðnœtti aðfaranótt sunnu- dagsins Að loknum ríkisstjórnar- fundi i gær var breska sendiherranum i Reykja- vík afhent eftirfarandi orðsending: Nr. 1. Samkvæmt samþykkt, sem gerð var á f undi rikis- stjórnar islands í dag lítur rikisstjórnin svo á, að ef bresk herskip og Nimrod þoturnar eru ennþá innan 200 mílna fiskveiðilögsögu islands kl. 12 á miðnætti samkvæmt Greenwich meðaltíma hinn 24. janúar 1976, sé stjórnmálasam- bandi milli islands og Bretlands slitið og að loka verði sendiráði breta í Reykjavík og dipiómatísk- irstarfsmenn þess kvaddir heim. Allar fiskitegund■ ir eru ofveiddar. — Sjá viðtal við Jakob Jakobsson á baksíðu Bandaríski sendiherrann um kjarnorkuvopnin Vill ekkert segja Minnt á kjarnorkuslys og reynslu dana af bandarískum loforðum „Það hefur verið viðtekin regla allra þjóða, sem hafa kjarnorkuvopn undir höndum, að staðfcsta hvorki nc afneita tilvist þeirra, óg við fylgjum einnig þeirri reglu.” Skýrari svör fær Dagblaðið ekki á laugardaginn er það spyr Frederik Irving, sendiherra Bandarikjanna á íslandi, að þvi hvort hér séu kjarnorkuvopn. Svar hans er hvorki játandi né neitandi likt og, svör Rich, að- miráls i Keflavik, við sömu spurningu. bessi svör eru að sjálfsögðu algjörlega ófullnægj- andi og islensk stjórnvöld hljóta að krefjast þess að fullnægjandi tryggingar séu lagðar fram af hálfu Bandarikjastjórnar um að vopn af þessu tagi séu ekki geymd hér, eða höfð i flugvél- um, sem hafa viðkomu á Kefla- vikurflugvelli. Þjóðviljinn minnir i þessu sambandi á að Bandarikjaher fór um margra ára skeið á bak við dönsku stjórnina þegar um var að ræða flug með kjarn- mrkuvopn i danskri lofthelgi. I samningi milli dana og banda- rikjamanna um herstöð i Thule á Grænlandi, sem gerður var árið 1951, er slikt flug afdráttar- laust bannað. Þrátt fyrir þetta kom i ljós, er B-52 þota fórst ná- lægt Thule 22. janúar 1968, að hún bar kjarnorkuvopn. Enn mælist geislavirkni frá þeim stað, þar sem vélin fórst. Danska stjórnin fór þess þá á leit að bandarikjamenn legðu fram tryggingar fyrir þvi, að þetta endurtæki sig ekki. Þjóðviljinn minnir einnig á hættuna af kjarnorkuslysum. A hana voru spánverjar minntir þegar B-52 þota, hlaðin kjarn- orkuvopnum, hrapaði eftir á- Irving, sendiherra, ...hvorki já né nei... rekstur skammt frá Palomares. Fjórar sprengjur voru i vélinni, ein þeirra lenti i þurrum árfar- vegi, tvær lentu i þéttri byggð og stafaði stórkostleg hætta af geislavirkni þeirra, og sú fjórða fannst eftir margra vikna leit á hafi úti, og var um tima óttast að hún kynni að valda stjórtjóni á sjávarlifi. Enn varð allt ófœrt í Rvík Ástandið á götum í út- hverfum Reykjavíkur og á aðal-leiðunum upp i Ár- bæjar- og Breiðholtshverfi er nú orðið þannig að ef hreyfir vind verða þessar götur ófærar með það sama. Mjög háir skaflar eru beggja vegna gatnanna og aka bifreiðar eftir snjó- göngumviða. i gærmorgun gerði allnokkurt hret og lokuðust götur með það sama. Ástandið var mjög slæmt, bæði i Árbæjar- og Breiðholtshverfum að sögn lögreglunnar. Þrátt fyrir ástand gatna og hvert hretið á fætur öðru að undanförnu eru fjölmargar bifreiðar svó illa bún- ar til vetraraksturs að þær stoppa með það sama og snjó hreyfir. Siðan sitja þær fastar og allt lend- ir i einni bendu. Þannig var það á Bæjarhálsin- um i gær og á leiðinni upp i Breið- holt að sögn lögreglunnar. Veðrið gekk svo niður upp úr hádeginu og var þá strax hafist handa með að ryðja snjó af götum og hjálpa þeim sem sátu fastir i bifreiðum sinum og um miðjan dag var færð orðin sæmileg aftur. Þótt ástandið sé skárra i mið- bænum er þó viða afar þungfært og umferð gengur seint og stirð- lega. Við þessu er aö sjálfsögðu ekkert að gera fyrst götur eru ekki hreinsaðar, en i það hefur ekki verið lagt, enda hafa hretin komið hvert á fætur öðru dag eftir dag i nærri hálfan mánuð og munu ár og dagar siðan svo lang- ur ófærðarkafli hefur komið i Reykjavik og nágrenni. —S.dór Ræða samnings- réttarmálin Undirnefndir BSRB og rikisins fjölluðu i gær um samningsrétt- armál opinberra starfsmanna. Ilafa fundir veriö i gangi um þau mál siðustu dagana. en ekkert fréttnæmt af niðurstöðum. Er gert ráð fyrir frekari fundarhöld- um áfrain á næstunni. BAKKAÐ A ÆGI Varöskipiö Ægir skemmdist litillega í gær- morgun, er breska togar- anum Lord Jellicoe tókst að bakka á það. Skemmd- irnar voru smávægilegar beyglur á tiumetra kafla á bátadekki. Auk þess lyftist dekkið litillega í miðjunni. Gat kom á skut Lord Jellicoe og sótti skipstjórinn um það til út- gerðarinnar eftir ásiglinguna að mega halda heim af miðunum þvi næðingssamt væri orðið á salern- um skipsins, sem eru i skutnum. Ægir kom 17 breskum togurum að óvörum um 50 sjómilur út af Glettinganesi i gærmorgun, nálg- aðist varðskipið togarana úr austurátt. Togurunum hafði ekki tekist að hifa er Ægir var kominn inn i miðjan hópinn. Þegar varð- skipið reyndi að klippa á togvira Lord Jellicoe tókst skipstjóra tog- arans að bakka á varðskipið. Þótt þeir á Lord Jellicoe verði nú að nota gamlar aðferðir við hrein- lætið, sluppu þeir með heila tog- vira. Skipherra á Ægi er Þröstur Sig tryggsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.