Þjóðviljinn - 20.01.1976, Qupperneq 8
I
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 20. janúar 1976.
0
Þaö er um aö gera aö vera fljótur aö gleypa 1 sig.
Klukkan er aö verða átta og Ásgeir fær sér morgunbita áöur en hann
leggur af staö.
„Maöur er
stundum
soldið
sybbinn
fyrst á
morgna na ’ ’
— segir Ásgeir Jóhannsson
sem er blaðberi
Þjóðviljans í Breiðholti
Neysluþjóðfélag nútím- skrúfa frá krana, þvo
ans býður ibúum sínum þvott i laugunum eða pota
upp á margs konar þæg- honum inn í eitthvað sjálf-
indi, sem spara mönnum virkt, hringja norður í stað
sporin og létta þeim vinn- þess að labba þangað
una. Menn eru hættir að o.s.frv. í öllum þessum til-
hugleiða muninn á því að vikum hefur tæknin komið
sækja vatn i brunninn eða okkur „til bjargar".
Hér er Þjóöviljinn kominn á réttan staö.
Þótt enn sé dimmt og drungalegt er Asgeir hress I bragöi og viö leik-
tækin á leikvellinum f Vesturbergi bregöur hann upp forsiðunni af
Þjóöviljanum og viröist bara ánægöur meö blaðiö.
Og svo aftur af stað, þvf aö viöa þarf aö fara. tJtburðarsvæöi Asgeirs er
stórt, og hann er á annan klukkutima aö koma blööunum fimmtiu til
kaupenda.
Enginn uppfinningamaður hefur
þó énnþá fundið upp sjálfvirkt
dreifingarkerfi fyrir þær vörur,
sem hvert heimili þarf að draga
til sin. Fólk þarf að fara sjálft i
búðir og bera sig eftir björginni
og er þvi raunar alls engin vor-
kunn. En einn er þó sá hlutur,
sem dettur inn á heimili manns á
hverjum morgni, áður en flestir
borgarbúa eru farnir að nudda
stirur úr augum. Það eru dag-
blöðin.
Trúlega er mörgum þannig far-
ið, að þeir þiggja þessa einstæðu
þjónustu, án þess að leiða hugann
að vinnunni sem á bak við liggur.
Þetta er eitt af þvi, sem fólk hefur
verið vanið á, i eina tið þótti þetta
lúxus en nú heitir það bara þjón-
usta.
Blaðberarnir, sem vakna eld-
snemma á morgnana og fá sér
allt að þvi tveggja klukkustunda
göngutúr án tillits til veðurs, eiga
sér ekkert stéttarfélag. Þeir hafa
aldrei farið fram á styttri vinnu-
tima eða hærri laun, né heldur
kvartað opinberlega yfir verð-
bólgu og allri þeirri óáran, sem
menn tönnlast á um þessar
mundir.
Við fylgdumst með einum blað-
bera okkar, Ásgeiri Jóhannssyni,
sl. föstudagsmorgun, er hann
þrammaði sina venjulegu leið um
hverfið sitt.
Þegar knúið var dyra á heimili
hans að Vesturbergi 106 eld-
snemma morguns, var Asgeir að
ljúka úr kókómaltglasinu og að
þvi loknu var haldið af stað.
— Ég ber út i nokkrar götur hér
i kring, sagði Asgeir. — Þær eru
Vesturberg, Asparfell, Gyðufell,
Iðufell og Austurberg. Þetta eru
nú ekki mörg blöð, sem ég hef,
þau eru 52 núna.
— Og hvað ertu lengi að bera
út?
— Ég er i svona tvo klukkutima,
ef ég er ekki að flýta mér. Ég hef
yfirleitt nógan tima og fer bara
rólega um hverfið; það er ekkert
gott að vera alltaf að flýta sér of
mikið.
— Færðu gott kaup?
— Ég fæ tæplega fjögur þúsund
og fimmhundruð krónur á mánuði
fyrir að bera út og rukka lika. Það
er nú ekki mikið kannski en mér
likar þetta ágætlega samt. Það er
verst þegar maður þarf að fara
ofta.ðrukka á sama staðinn, sum-
ir láta mann koma aftur og aftur
og þá er maður seinn að skila af
sér.
— Ertu að safna fyrir ein-
hverju?
— Nei, ekki neinu sérstöku en
ég set alltaf einhvern pening i
baukinn eftir hvern mánuð. En
mig vantar ekkért sérstakt,
kannski kaupi ég eitthvað seinna.
— Ertu nokkuð leiður á vinn-
unni?
— Nei, nei,en stundum er mað-
ur soldið sybbinn á morgnana
þegar verið er að vekja mann. En
það er bara smástund og þegar
maður er kominn út er ágætt að
labba þetta. Á laugardögum og
sunnudögum hjálpa vinir minir
mér stundum en annars fer ég
þetta alltaf einn á morgnana.
— Og hvað svo þegar þú ert bú-
inn?
— Þá læri ég heima þangað til
skólinn byrjar. Ég er i tólf ára
bekk i Fellaskólanum og byrja
yfirleitt um hádegið. Það er ágætt
að læra þangað til og eiga svo fri
þegar skólinn er búinn.
— Ætlarðu að bera út lengi?
— A.m.k. til vorsins. Það getur
vel verið að ég fari út á land i
sumau en annars reikna ég með
þvi að ég haldi áfram að bera út.
Það er nú lika skemmtilegra á
sumrin, þá er bjart á morgnana
og betra veður.
Þegar hér var komið sögu
höfðum við þrammað yfir tölu-
vert svæði. Blm. Þjv. var farinn
að lýjast i fótunum og sá sér ekki
annað fært en að kveðja i snar-
hasti þennan unga starfsfélaga
sinn, sem trúlega vinnur sitt verk
af meiri samviskusemi en flestir
aðrir. Hann átti eftir áð fara viða,
áður en öll blöðin hans kæmust i
höfn.
— gsp
Myndir og texti:
Gunnar Steinn
Þriöjudagur 20. janúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Enda þótt Ásgeir sé stæöiiegur strákur, sigur blaöataskan i. Hér er hann aö fara um göngin undir Vest-
urbergiö. Hinum megin eru tvær blokkir, þar sem bíöa Þjóðviljalesendur.
Viö skiljum viö Asgeir þarna I göngunum. Viö höfum sannfærst um þaö, að blaöberastarfið er erfitt og
vanmetið starf. Þau börn sem þaö stunda af kostgæfni eiga mikiö hrós skiliö.