Þjóðviljinn - 20.01.1976, Síða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 20. janúar 1976.
Hagnýtingarnefnd um landhelgina leggur til:
■■.■■ ■ . ' 1 ........———
280 þúsund tonna afli
— Ég hef nefnt 280 þús-
und tonn sem hámarks-
þorskafla okkar í ár og
næsta ár, en það er ein
þeirra leiða, sem fiski-
fræðingar hafa bent á til
þess að vernda þorskstofn-
inn og ná honum siðan upp,
sagði Matthías Bjarnason,
sjávarútvegsráðherra.
Það er svo á þriðja ári héðan i
frá, sem aflinn gæti farið upp
fyrir þessi mörk, en samkvæmt
annarri leið til verndar þorsk-
stofninum er bent á 230 þúsund
tonn sem hámarskafla i ár og þá
320 þúsund tonn næsta ár.
Ráðherra sagði, að nefnd um
stjórnun fiskveiða hefði sam-
þykkt 280 þúsund tonna ársafla
sem hámark nú nýverið, sem
þann kostinn, sem velja skyldi, og
þá 280 þúsund tonn næsta ár.
Þessi samþykkt er gerð með
fyrirvara um frávik, aukning eða
minnkun á afla.
Ráðherra sagðist hafa verið að
undirrita friðunarreglugerð,
þ.e.a.s. veiðifriðanir á ákveðnum
svæðum. Þar i er ekki friðun á
Selvogsbanka og ekki á Kögur-
grunni, en á Kögurgrunni hefur
einmitt verið mokað upp smáfiski
undanfarna daga, þorski af ár-
gangnum 1973, sem bera á uppi
veiðarnar næstu árin.
Hvað friðun einstakra veiði-
svæða liður að öðru leyti, sagðist
ráðherra biða eftir áliti fiskveiði-
laganefndár, þar sem fiskimála-
stjóri, Már Elisson, er formaður.
Sagðist ráðherra sifellt vera að
reka á eftir áliti nefndarinnar.
Þá spurði blaðamaður ráðherr-
ann eftir þvi hvort hann gæti
fyrirvaralaust stöðvað smáfiska-
dráp, eins og það sem sagt er eiga
sér stað út af Vestfjörðum þessa
dagana.
Sagðist ráðherra geta það, en
áður þyrfti hann að hafa i hönd-
unum álit fiskifræðinga, þar sem
rökstutt væri, að um væri að ræða
veiðiskap þar sem smáfiskur
væri drepinn unnvörpum.
Ekkert slikt álit liggur fyrir frá
Hafrannsóknastofnun. Sérfræð-
ingur stofnunarinnar i þorski er
Jón Jónsson, forstöðumaður
stofnunarinnar. Ekkert hefur frá
honum heyrst um þetta atriði.og
reyndar ekki múkk siðan hann
dæmdi afla þann, sem rikis-
stjórnin vildi skenkja og skenkti
v-þjóðverjum af karfa hér við
land, rétt hæfilegan sem þeirra
aflahlut. —úþ
Tillögur um sjóðakerfið i vikunni:
Olíusjóður afnuminn, vá-
tryggingasjóður helmingaður
Við Ijúkum okkar fund-
um í dag og á morgun,
sagði Jón Sigurðsson, for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, í
viðtali við Þjóðviljann í
gær, er hann var spurður
Snarpur
kippur
við Kröflu
í gœr
i gærmorgun kom mjög
snarpur jarðskjálftakippur
við Kröflu og var hann með
snarpari kippum sem komið
hafa þar i þessari hrinu eða 4,9
stig. Engar skemmdir urðu
við þennan skjálfta, aðrar en
þær að iausir munir féllu úr
hilium. Er við svo höfðum
samband uppi Kröflu siðdegis
i gær, hafði ailt verið mjög ró-
legt þar efra eftir hádegið.
Pregið hefur úr titringi þar
efra og bæði gosstöðvarnar og
borholurnar höfðu ekkert
breytt sér við þennan snarpa
kipp.
—S.dór
hvenær mætti vænta álits
þeirrar nefndar, sem f jall-
að hefur um sjóðakerfið
svonefnda. Hann sagði
ennfremur að þegar
nefndin hefði lokið störf-
um sínum væri nokkur
vinna eftir við að ganga
frá nefndarálitinu, en vart
liði þessi vika þó án þess að
álitið kæmist fullgert í
hendur réttra aðila.
í nefndinni sem endurskoðar
sjóðakerfið hafa starfað 10 menn.
Þeir eru Óskar Vigfússon og
Hilmar Jónsson frá Sjómanna-
sambandinu, Pétur Sigurðsson
frá Álþýðusambandi Vestfjarða,
Sigfinnur Karlsson, frá Alþýðu-
sambandi Austfjarða, Ingólfur
Stefánsson og Ingólfur Falsson
frá Farmanna- og fiskimanna-
sambandi Islands, Kristján
Ragnarsson og Agúst Flygenring
frá Landssambandi isl. útvegs-
manna, Ingimar Einarsson frá
togaraeigendum og Jón Sigurðs-
son frá Þjóðhagsstofnun.
Jón vildi ekki gera grein fyrir
tillögum nefndarinnar nema
mjög almennt i gær. Þær gerðu
ráð fyrir mjög mikilli lækkun út-
flutningsgjaldanna og að starf-
semi vátryggingasjóðs og oliu-
sjóðs yrði breytt, þannig að oliu-
sjóðurinn yrði felldur niður en sá
fyrrnefndi helmingaður eða svo.
Siðan f jallar álit nefndarinnar um
það hvaða afleiðingar samþykkt
þess hefði fyrir ýmis atriði eins og
fiskverð, hlutaskipti o.þ.h.
Það er ekki vist að allir séu
sammála um þetta álit, sagði
Jón, þegar hann var spurður um
afstöðu nefndarinnar i heild til
niðurstöðunnar. En, hann bætti
við, og sagði að álitið væri allgóð-
ur og stór samnefnari fyrir þau
viðhorf sem um væri að ræða i
þessum efnum.
Leiðrétting við sunnudagsgrein
Einu sinni i Boulogneskógi
í sunnudagsgrein Svavars
Gestssonar i Þjóðviljanum sl.
sunnudag urðu þau mistök i
prentsmiðju að niður féilu nokkr-
ar linur i upphafi þess kafia, sem
ber yfirskriftina „Fruntaskapur”
og „siðleysi”, en þar er fjailað
um hugarfar „viðreisnarfiokk-
anna”, um það leyti, sem út-
færsla landhelgi I S0 sjómflur stóð
fyrir dyrum. Birtist þessi kafli
greinarinnar þvi hér að nýju:
Staða skóla-
yfirtannlæknis
við skólatannlækningar Reykjavikurborg-
ar er laus til umsóknar.
Launakjör fara eftir samningum við
Starfsmannafélag Reykjavikurborgar.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf, sendist
Heilbrigðismálaráði Reykjavikurborgar
fyrir 15. febrúar n.k.
Heilsuverndarstöð Reykjavikur
Bróðir okkar
Matthias Matthíasson
frá Grímsey
fyrrverandi deildarstjóri I KRON
andaðist i Landspitalanum 15. jan. Jarðarförin fer fram
frá Fossvogskirkju laugardaginn 23. jan kl. 10.30.
Anna Matthiasdóttir
Rannveig Matthiasdóttir
Guðmundur Matthiasson
Agnes Matthiasdóttir.
Fruntaskapur"
og „siöleysi"
10 árum eftir að þessir atburðir
gerðust var mynduð vinstristjórn
á íslandi enn á ný og landhelgin
skyldi færð út i 50 sjómilur um
leið og nauðungarsamningunum
við breta var sagt upp.
Viðreisnarflokkarnir höfðu fellt
á alþingi að færa landhelgina út.
Sjálfstæðisflokkurinn neitaði að
aðhafast nokkuð og vildi einungis
biða eftir úrslitum hafréttarráð-
stefnunnar. Landhelgin væri
semsé ekki einu sinni 50 milur i
dag ef sú stefna hefði ráðið þvi
ekki sér enn fyrir endann á haf-
réttarráðstefnunni. Alþýðuflokk-
urinn tók kröftuglega undir og
kallaði tillöguna um 50 milna
landhelgi „fruntaskap”, „dóna-
skap” og ævintýramennsku”
og ,,siðleysi”svofátteittsé nefnt.
Vinstristjórnin færði landhelgina
út og losaði þjóðina af klafa Haag-
dómstólsins. En i baráttunni um
50 milna landhelgina heyrðist enn
i Nató-dindlunum hér á landi:
Það verður að semja! Það má
ekki spilla samkomulaginu við
vestrænar vinaþjóðir! Kommún-
istar vilja spilla samstarfinu i
Nató! Jafnframt gaf Morgun-
blaðið i sifellu i skyn að þjóðin
væri upp á kant við vinstristjórn-
ina i landhelgismálinu. Hún hefði
ekkert umboð hennar, þvi þar
réðu kommúnistar öllu. Morgun-
blaðið kallaði þannig yfir þjóðina
breska herskipaofbeldið með á-
róðri sinum. Enn tókst að vinna
sigur i landhelgismálinu samt
sem áður og enn voru bretar á
undanhaldi. En þá hófust utan-
stefnur á nýjan leik.
ÖOOO tonn
t gær höfðu sjö bátar tilkynnt
loðnunefnd um tæplega tvö þús-
und tonna afla og hefur þá aflast á
sjöunda þúsund tonn af loðnu þá
þrjá daga, sem hún hefur veiðst á
þessu ári.
Fyrsta loðnan barst að landi á
laugardaginn var, þann 17.
janúar. Var það Eldbogin, sem
landaði henni á Raufarhöfn. t
fyrra lönduðu 2 bátar fyrstu loðn-
unni þann 18. janúar á Seyðisfirði
og Reyðarfirði. í fyrra hafði
loðnan þó fundist mun fyrr en nú,
og þá var hún einnig komin
austur undan landinu en nú er hún
norður undan þvi og norðaustur
undan.
Þessir sjö bátar tilkynntu
loðnuafla i gær: Þorsteinn 240
lestir, Eldborg 500 lestir, Huginn
II 220 lestir,. Jón Finnsson 300
lestir, Ásgeir 240 lestir, Albert 180
lestir og Náttfari 270 lestir.
Þrir þessara báta ætluðu til
Raufarhafnar með aflann, og
fjórir til Seyðisfjarðar ef veður
héldistgott. Veður var sæmilegt á
miðunum i gær en spáin var m jög
slæm.
35 bátar hafa tilkynnt Til-
kynningaskyldunni að þeir séu
farnir til loðnuveiða.
Fyrsta daginn, sem loðnu var
landað var um að ræða 1350 tonn,
annan daginn 2.740 tonn og um
miðjan dag i gær hafði flotinn til-
kynnt um 1950 lestir.
Loðnan nú hefur mælst 11,2%
feit, en fyrsta loðnan i fyrra
mældist 12,5% feit og virðist það
benda til þess, að rétt hafi verið
hjá Hjálmari Vilhjálmssyni það
sem hann sagði Þjóðviljanum á
dögunum sem skýringu á þvi hve
norðarlega og þá vestarlega
loðnan væri nú miðað við fyrri
ár, að hún hefði ekki haft svo gott
viðurværi i sumar leið, sem und-
anfarin sumur. —úþ
ÞJODLEIKHUSID
GÓÐA SALIN t SESÚAN
miðvikudag kl. 20
laugardag kl. 20
SPORVAGNINN GIRND
fimmtudag kl. 20
CARMEN
föstudag kl. 20
KARLINN A ÞAKINU
barnaleikrit eftir Astrid Lind-
gren
Þýðandi: Sigrún Björnsdóttir
Leikmynd: Birgir Engilberts
Leikstjóri: Sigmundur Orn
Arngrimsson
Frumsýning laugardag kl. 15.
Litla sviðið:
INUK
i kvöld kl. 20.30 Uppselt
fimmtudag kl. 20.30
Miðasala 13.15-20. Simi 1-1200.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
EIKFEIAG!
YKJAYÍKUR^
SKJALDHAMRAR
i kvöld kl. 20,30.
EQUUS
miðvikudag kl. 20,30.
SAUMASTOFAN
fimmtudag kl. 20,30.
SKJALDHAMRAR
föstudag kl. 20,30.
EQUUS
laugardag kl. 20,30.
SAUMASTOFAN
sunnudag kl. 20,30.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14. Simi 1-66-20.
M/s Hekla
fer frá Reykjavik miðviku-
daginn 28. þ.m. austur um
land I hringferð.
Vörumóttaka:
föstudag og mánudag til Aust-
fjarðahafna, Þórshafnar,
Raufarhafnar, Húsavikur og
Akureyrar.
IGNIS
eldavélar
RAHflJAN
sírni: 19294
BAffTOBG
SÍmh 266B0
Alþýðubandalagið:
Alþýðubandalagið i Reykjavík.
Almennur félagsfundur verður haldinn i Lindarbæ fimmtudag-
inn 22. janúar kl. 20.30.
Fundarefni: Landhelgismálið. Lúðvik Jósepsson hefur fram-
sögu og svarar fyrirspurnum.