Þjóðviljinn - 21.01.1976, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. janúar 1976.
Iþróttir
Framhald af 12 siðu
laun á vetrarolympiuleikun-
um i Sapporo 1972.
Irina er 26 ára fædd 12.
september 1949. Faðir hennar
erforingi i sovéska hernum og
móðir hennar hjúkrunarliði.
Var hún sett til náms i skóla
sovéska hersins IMoskvu i list-
hlaupi á skautum. Flest
sovésk fþróttaféiög starfrækja
slika skóla i borgum þar sem
skautabrautir eru. 42.290
manns leggja stund á iisthlaup
á skautum í Sovétrikjunum.
Það var þekktur þjálfari,
Stanislav Zjuk, sem gerði
Irinu að frábærri skautakonu.
Irna Rodnina og Alexei
Ulanov mynduðu glæsilegt
par, sem tók sæti hins fræga
Leningradpars Ljudmilu
Beiousovu og Oleg Protopopov
á alþjóðavettvangi. 1972
kvæntist Ulanov hins vegar og
flutti frá Moskvu til Lenin-
grad. Zjuk iagði til, að Irna
skyldi þjálfa með Alexande
Zaitsev, sem keppt hafði i ein-
menningskeppni karla án þess
að vinna mikla sigra. Það tók
Zjuk, Rodinu og Zaitsev tíu
mánuði að mynda fullkomið
par. 1973 unnu Irina og Alex-
ander öll stórmót og hafa ver-
ið ósigruð siðan.
Parið Rodnina-Zaitsev sam-
eina karlmannlegan styrk og
kvenlegan yndisþokka. Alex-
ander, sem er 23. ára gamall,
er hár og grannur en Irina
fremur lágvaxin, en í hreyf-
ingum þeirra er fullkomið
samræmi, mikil listræn tján-
ing og glæsiieiki.
Rodnina og Zaitsev giftust
ekki alls fyrir löngu. Núver-
andi þjálfari þeirra, Tatjana
Tarasova, telur að þau hafi
góðan möguieika á að vinna
olympíutitilinn i Innsbruck.
Skattamat
Framhald af 13. siðu.
hafið i að hausti og skiptir þvi
eigi máli hvort um er að ræða
upphaf eða framhald náms
við hlutaðeigandi skóla.
Prentarar
— Prentarar
Fundur í Hinu islenzka prentarafélagi
verður i Lindarbæ á morgun fimmtudag
og hefst kl. 5:15.
Dagskrá:
Samningamál.
Hið íslenzka prentarafélag
Útsala
Hjá H. Toft
byrjar á morgun, 22. jan., og verður
margt selt á lágu verði.
ATH.
Útsalan verður i gömlu búðinni á Baldurs-
götu 39. (Lokað i hádeginu frá kl.
11.30—13).
Staða skóla-
yfirtannlæknis
við skólatannlækningar Reykjavikurborg-
ar er laus til umsóknar.
Launakjör fara eftir samningum við
Starfsmannafélag Reykjavikurborgar.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf, sendist
Heilbrigðismálaráði Reykjavikurborgar
fyrir 15. febrúar n.k.
Heilsuverndarstöð Reykjavikur
Söngfólk
Kór Háteigskirkju óskar eftir áhugasömu
söngfólki (söngkennsla). Upplýsingar hjá
organleikara kirkjunnar, Martin Hunger,
(eftir messu) eða i sima 25621 og 32112.
Sveinn Halldórsson,
fyrrverandi skóiastjóri,
lést i Landspitalanum 19. janúar.
Börn og tengdabörn.
begar um er að ræða nám
sem stundað er samfellt i 2 vet-
ur eða lengur við þá skóla, sem
taldir eru undir töluliðum 1, 2, 3,
4 og 7, er auk þess heimilt að
draga frá allt að helmingi frá-
dráttar fyrir viðkomandi skóla
það ár sem námi lauk enda hafi
námstimi á þvi ári verið lengri
en 3 mánuðir. Ef námstimi var
skemmri má draga frá 1/8 af
heilsársfrádrætti fyrir hvern
mánuð eða brot úr mánuði sem
nám stóð yfir á þvi ári sem námi
lauk.
Ef um er að ræða námskeið,
sem standa yfir 6 mánuði eða
lengur, er heimilt að skipta frá-
drættiþeirra vegna til helminga
á þau ár sem nám stóð yfir enda
sé námstimi slðara árið a.m.k. 3
mánuðir.
b. Skólagjald: Við námsfrádrátt
skv. töluliðum 1—5 bætist
skólagjald eftir þvi sem við á.
c. Álag á námsfrádrátt: Búi
námsmaður utan heimilis-
sveitar sinnar meðan á námi
stendur má hækka námsfrá-
drátt skv. töluliðum 1—5 og 6
a. og b. (þó ekki skólagjald
eða námskeiðsgjald) um:
1. 20% hjá þeim nemendum
sem veittur er dvalarstyrkur
skv. lögum nr. 69/1972 um
ráðstafanir til jöfnunar á
námskostnaði eða hliðstæðar
greiðslur á vegum sveitarfé-
laga. Dvalar- og ferðastyrkir,
veittir skv. þessum ákvæðum,
teljast ekki til tekna né til
skerðingar á námsfrádrætti.
2. 50% hjá þeim nemendum
sem ekki áttu rétt á og ekki
nutu styrkja eða greiðslna
þeirra sem um ræðir i 1. tl.
þessa stafliðar.
d. Skerðing námsfrádráttar:
Hafi nemandi fengið náms-
styrk úr rikissjóði eða öðrum
innlendum ellegar erlendum
opinberum sjóðum skal
námsfrádráttur, þ.m.t. skóla-
gjald, lækkaður sem styrkn-
um nemur. Dvalar- og ferða-
styrkir, svo og hliðstæðar
greiðslur sveitarfélaga, skv.
1. tl. stafliðar c. teljast ekki
námsstyrkir I þessu sam-
bandi.
Enn um stærð
Framhald af bls. 6.
fiskvinnslufólk”, „grundvallar-
skilyrði ..er að rannsaka gerð
og ástand hans (flotans) við nú-
orðnar rekstraraðstæður”.
„fiskiskipaflotinn er enn gamall
og lítt hæfur til rekstrar við nú-
verandi aðstæður”. Svona má
lengi telja.
Þessar glefsur eru teknar út úr
mjög svipuðu samhengi yfirleitt
og köflum, sem hafa það að
markmiði að sýna fram á, að flot-
inn sé ekki of stór og halda verði
áfraim „endurnýjun”. Vitanlega
er þetta allt meira eða minna rétt
nema niðurstaðan, og Lúðvik
telur sig væntanlega ná til eyrna
sjómanna með svona sönnum
orðum. Þar sem hann er fyrst og
fremst að gagnrýna skýrslu
starfshópsins, má lesa út úr
greinum hans, að starfshópurinn
sé á öðru máli um allan sannleik-
ann, sem öllum við sjávarsiðuna
er ljós. — Hér snýr Lúðvik stað-
reyndum alveg við. Megnið af
upptöidum vandkvæðum á rætur
sinar að rekja beint til lélegs
ástands fiskstofna.
Til þess að mæta rekstrarerfið-
leikum vegna minnkandi afla
fyrst og fremst á að kaupa meiri
ogöflugri skip! — Staðreyndin er
þvert á móti sú, að minnkuð sókn
og aukin stjórnun veiði nú mun-,
þegar til lengdar lætur (nokkur
ár) auka afla en ekki minnka
hann. Ef sóknargeta er aukin um
of og skipin látin veiða að vild,
minnkar það heildarafla en eykur
hann ekki. Lúðvik þarf að breyta
um formerki á erindum sfnum og
innihaldi. Hvernig stendur ann-
ars á þvi, að heildarbotnfiskafli á
íslandsmiðum var töluvert meiri
á árunum 1953—1958 en hann er
nú þrátt fyrir stórkostlega aukna
sókn á seinni árum og fullkomn-
ari skip?
Vitanlega eru allir sammála
um það, að losna verði við útlend-
inga af Islandsmiðum og rekstr-
arerfiðleikar islenskrar útgerðar
minnki þá. Hinsvegar er fiski-
skipaflotinn nú það stór, að hann
er nægilegur til að veiða há-
marksafla eftir að fiskstofnarnir
komast (vonandi) i besta afrakst-
ursástand að nýju, en það tekur
mörg ár. Ef flotinn fær aftur á
móti nú að veiða óhindraður,
komast stofnarnir ekki I það
ástand jafnvel þótt útlendingar
hverfi af miðunum inn-
an skamms. Lúðvik reynir að
telja mönnum trú um, að óþarfi
sé að tala um niðurskurð þorsk-
afla Islendinga nú miðað við árin
1972—1974 (230—240 þ. tonn) og
ráðleggingar Hafrannsóknastofn-
unar, og þessvegna sé ekki nauð-
synlegt að minnka sókn islend-
inga, ef útlendingar fara af mið-
unum. Benda má á, að vitanlega
verður afli Islendinga miklu meiri
en umrædd ár, ef útlendingar
hætta veiði við tsland og islend-
ingar halda uppi sömu sókn og
áður. Það er ekki bara á einum
stað I greinunum, sem Lúðvik
ruglar saman afla og sókn. Auk
þess var þorskafli þessi ár orðinn
mjög lélegur á úthaldsdag skipa
miðað við það sem áður var.
Þessi ár eru þvi óhæf til viðmið-
unar. Allt ber að sama brunni.
Fiskiskipaflotinn er of stór. bað
felst stórkostleg ábyrgð I þvi að
reyna að hindra, að fiskstofnar
fái aðrétta við og islendingar fái i
náinni framtið hámarksarð af
fiskimiðum sinum, bæði með há-
marksafla og hóflegum útgerðar-
kostnaði. Við skulum biða'i nokk-
ur ár og sjá hvernig til tekst. Sú
staðreynd blasir við, að botnfisk-
afli hefur farið þverrandi á ís-
landsmiðum þrátt fyrir stórauk-
inn flota. Vissulega er það ákveð-
in stefna að stunda fiskveiðar að
mestu á skuttogurum, sem hafa
tæknilega yfirburði einkum i
tregfiski, en þá verða að fylgja
tillögur um það, hvaða öðrum
skipum verður að legggja.
Stjórnvöld hafa ekki markað
neina heildarstefnu varðandi
stærð flotans og samsetningu með
hliðsjón af heildarmarkmiðum.
Aðgerðir þeirra hafa byggst á
skyndilausnum, sem færa má rök
fyrir að gangi á snið við raun-
verulega hagsmuni útvegsins og
þjóðarheildarinnar.
Reykjavik 16.1. 1976.
Gylfi Þórðarson
Jón Ingvarsson
Jakob Jakobsson
Jónas Bjarnason
Jónas Blöndal
ÞJÓDLEIKHÚSID
GÓÐA SALIN í SESÚAN
i kvöld kl. 20.
laugardag kl. 20.
SPORVAGNINN GIRND
fimmtudag kl. 20.
CARMEN
föstudag kl. 20.
sunnudag kl. 20.
KARLINN A ÞAKINU
Barnaleikrit.
Frumsýning laugardag kl.
15.
Litla sviðið:
INUK
fimmtudag kl. 20.30.
Miðasala 13.15-20.
Simi 1-1200.
EQUUS
i kvöld kl. 20.30.
SAUMASTOFAN
fimmtudag kl. 20.30.
SKJALDHAMRAR
föstudag kl. 20.30.
EQUUS
laugardag kl. 20.30.
SAUMASTOFAN
sunnudag kl. 20.30.
SKJALPHAMRAR
Þriðjudag kl. 20.30.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14. Simi 1-66-20.
____s*___
SKIPAUTGCRÖ RIKI5INS
M/s Hekla
fer frá Reykjavik miðviku-
daginn 28. þ.m. austur um
land I hringferð.
Vörumóttaka:
föstudag og mánudag til Aust-
fjarðahafna, Þórshafnar,
Raufarhafnar, Húsavikur og
Akureyrar.
leikféug:
ykjavíkdrt
Alþýðubandalagið:
Alþýðubandalagið i Reykjavik.
Almennur félagsfundur verður haldinn i Lindarbæ fimmtudag-
inn 22. janúar kl. 20.30.
Fundarefni: Landhelgismálið. Lúðvik Jósepsson hefur fram-
sögu og svarar fyrirspurnum.
Sósialistar Hafnarfirði.
Hver er leið íslands til sósialismans? Hvernig náum
við markmiðinu? Hvað ber að varast?
Framhaldsfundur miðvikudag 20. jan. kl. 20.30 i
Gúttó uppi. Einar Olgeirsson fjallar um leið íslands
til sósialisma. Mætið stundvislega.
Alþýðubandalagið i Ilaf narfirði.
Viðtalstimi borgarfulltrúa
Þorbjörn Broddason borgarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins verður til viðtals á skrif-
stofu Alþýðubandalagsins Grettisgötu 3, i
dag kl. 17—18. Siminn er 28655.
Skattaframtöl
Námskeið i skattframtali fyrir almenning
hefst fimmtud. 22. jan. kl. 19.30 i Lauga-
lækjarskóla. Kennt verður 6 kvöld til 29.
jan. Námskeiðsgjald kr. 1800, greiðist við
innritun, sem verður sama dag kl.
19—19.30 i Laugalækjarskóla.
Námsflokkar Reykjavíkur