Þjóðviljinn - 28.03.1976, Síða 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 28. mars 1976
©
©
©
©
©
©
O
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
Aðalfundur
Samvinnubanka
íslands hf.
verður haldinn að Hótel Sögu, hliðarsal,
laugardaginn 3. april 1976 og hefst kl.
14.00.
Dagskrá skv. 18. gr. samþykktar fyrir
bankann.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fund-
arins verða afhentir i aðalbankanum,
Bankastræti 7, dagana 31. mars-2. april,
svo og á fundarstað.
Bankaráð
Samvinnubanka
íslands hf.
Byggingafélag
alþýðu Reykjavík
Aðalfundur félagsins verður haldinn á
Hótel Sögu (Átthagasal) miðvikudaginn
31. mars 1976 kl. 20.30.
Fundarefni:
1. venjuleg aðalfundarstörf. 2. önnur mál.
Stjórnin.
Fcer bfllinn
fulla skoöun?
Það kostar vonbrigði og óþarfa fyrirhöfn
að fá ekki strax fulla skoðun á bílinn.
Hjá því er hægt að komast.
Komið með bílinn í hina fullkomnu
GM þjónustumiðstöð okkar. Við bendum á,
yður að kostnaðarlausu, hvað vissara væri að
lagfæra fyrir skoðun, — og vinnum að sjálf-
sögðu verkið ef óskað er.
Höfum alla nauðsynlega GM varahluti
fyrirliggjandi.
SAMBANDIÐ VÉLADEILD
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
HÖFÐABAKKA 9 Simar: Verkst. 85539 Verzl 84245-84710
Húsbyggjendur —
EINANGRUNARPLAST
Getum afgreitt einangrunarplast á Stór-
Reykjavlkursvæðið mcð stuttum fyrir-
vara. Afhending á byggingarstað.
Borgarplast hf.
Borgarnesi
Sími 93-7370
Helgar- og kvöldslmi 93-7355.
Jóhann Elíasson
húsgagnabólstrari
F. 27.7. 1916 — D. 21.3. 1976
Mánudaginn 29. þ.m. fer fram
útför Jóhanns Elfassonar, hús-
gagnabólstrara, sem lést i Vifils-
staðahæli þann 21. þ.m. eftir
stranga sjúkdómslegu.
Jóhann var fæddur 27. júlí 1916
og voru foreldrar hans hjónin Jó-
hanna Bjarnadóttir og Elias Jó-
hannsson, verkamaður hér í borg,
sem bæði eru látin.
Framan af ævinni vann Jóhann
almenna verkamannavinnu, m.a.
vann hann i mörg ár við Kola-
verslun Sig. ólafssonar, við út-
keyrslu á kolum, áður en borgin
var öll hituð upp með heitu vatni.
Á þeim árum kynntist Jóhann
mörgu fólki og man hann margur
frá þeim árum, enda átti hann
sérlega gott með að umgangast
aðra og voru margir frá þeim
tima vinir hans og kunningjar
upp frá þvi.
Seinna fór Jóhann i nám I hús-
gagnabólstrun til Helga bróður
sins, sem þá rak húsgagna-
verslun hér i borg og vann hann
við þá iðn til dauðadags, nú slð-
ustu árin hjá Gamla kompaníinu.
Jóhann var frábærlega vel
gerður maður og félagslega sinn-
aður. Hann tók alla tíð mikinn
þátt i starfi innan verkalýðs-
hreyfingarinnar. Hann gerðist
snemma félagsmaður I Verka-
mannafélaginu Dagsbrún og var
þaralla tlð virkur félagi, var m.a.
lengi i trúnaðarmannaráði Dags-
brúnar.
Eftir að Jóhann hafði lokið
námi i húsgagnabólstrun gerðist
hann félagsmaður I Sveinafélagi
húsgagnabólstrara og stóð þá
ekki á þvi, frekar en áður, að
hann lagði fram krafta sína til
framdráttar málstað sins stéttar-
félags. Hann tók fljótlega sæti i
stjóm félagsins og var formaður
þess hin si"ðustu ár, eða eins lengi
og heilsa hans leyfði, en þá óskaði
hann að láta af störfum.
Nú þegar Jóhann er allur hefur
verkalýðshreyfingin misst einn af
sinum heilsteyptustu og traust-
ustu forustumönnum, sem vann
hreyfingunni af heilum hug allt
sem hann mátti til siðustu stund-
ar.
Ég tel það mikla gæfu að hafa
kynnst og átt að vini annan eins
mann og Jóhann var, mann sem
aldrei lét bugast, hvað sem fyrir
kom á lifsleiðinni, var alltaf veit-
andi frekar en þiggjandi eins og
best kom fram i hans hetjulegu
baráttu í hans miklu veikindum.
Jóhann var giftur Huldu Guð-
mundsdótturogáttu þau einn son,
Elias Bjarna, skipstjóra, sem
kvæntur er Sigriði Kolbrúnu Þrá-
insdóttur og eiga þau tvö börn,
Huldu og Jóhann, og voru þau
augasteinar afa sins, einnig átti
hann tvær fósturdætur, dætur
Huldu.
Jóhann var mikill heimilisfaðir
og eru það ógleymanlegar stund-
ir, sem ég og kona min eigum
minningarum, þegar við komum,
sem ekki var sjaldan, á heimili
hans og Huldu.
Um leið og ég þakka Jóhanni
margra áratuga vináttu votta ég
Huldu, börnum og barnabörnum
hennar, svo og systkinum Jó-
hanns og öðrum hans nánustu
mina dýpstu samúð.
Guðm. Jónsson.
Aðfaranótt sunnudagsins 21.
mars sl. lést að Vifilsstöðum vin-
ur minn Jóhann Eliasson bólstr-
ari, eftir óvenju erfiða en hetju-
lega baráttu við ólæknandi sjúk-
dóm. Jóhann var lifsins maður og
fátt var honum fjær skapi, en að
leggja hendur i skaut og gefast
upp þótt á móti blési, enda komu
þessir eiginleikar sér oft vel á
erfiðleika timum.
Jóhann hóf snemma afskipti af
verkalýðsmáíum oghafði alla tið
brennandi áhuga á þvi að bæta
kjör þeirra, sem minnst báru úr
býtum, enda mun hann hafa
kynnst kjörum alþýðu manna ná-
ið á kreppuárunum ogákveðið þá,
að gerast virkur þátttakandi i
baráttunni fyrir fegurra og betra
mannlifi hér á landi.
Leiðir okkar Jóhanns lágu fyrst
saman árið 1960, þegar ég sem
gjaldkeri félags mins kom á
bólsturverkstæðið að Lækjargötu
6, til aö innheimta félagsgjöld, en
hann var þá við nám i bólstrun
hjá Helga bróður sinum. Mér er
hann minnistæður er hann stóð
þar við búkkana að vinnu sinni.^
Jóhann lauk námi i iðn sinnf
vorið 1964 og gerðist fljótt virkur
félagi i Sveinafélagi bólstrara og
var einn ötulasti baráttumaður
þess félags meðan honum entis't
heilsa. Hann var um skeið for-
njaður félagsins og gegndi auk
þess ótal öðrum trúnaðarstörfum
fyrir það og leysti þau jafnan af
hendi af einstakri trúmennsku og
fórnfýsi, ekki urðu þær vinnu-
stundirnar til að þyngja pvngju
þeirra hjóna.
En Jóhann stóð ekki einn, hann
átti sér við hlið einstaka konu,
sem studdi hann meö ráðum og
dáð, margir voru fundirnir sem
við sátum félagamir á heimili
þeirra hjóna og nutum þá ó-
gleymanlegrar gestrisni Huldu.
Mér er það ef til vill ljósara en
mörgum öðrum, vegna náins
samstarfs og kunningsskapar við
Jóhann hversu mikið við höfum
misst við fráfall hans, slikir fé-
lagsmálamenn sem hann var em
harla sjaldgæfir, menn sem eru
þannig af guði gerðir að þeir sjá
alltaf það besta i öllum mönnum,
draga ekki I dilka og dæma, held-
ur laða fram það jákvæða i mönn-
um tengja saman og byggja upp,
slikir menn skilja alltaf eftir sig
óafmáanleg spor.
Daði Ölafsson.
Nú er fcom/ð oð
sinu
Furulundi
______v
aö söluverömceti
um 20 millj. kr.
@
\4
moŒ
mogumlQi
Nú má enginn
gleyma að endurnýja.
Söluverð á lausum miðum kr. 4.200
Utboð
Bygginganefnd félagsheimilisins Hlaðir á
Hvalfjarðarströnd óskar eftir tilboðum i
að byggja og gera fokhelt félagsheimilið
Hlaðir á Hvalfjarðarströnd. Útboðsgagna
má vitja á verkfræðistofu okkar, Ármúla
4, Reykjavik, gegn 10.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað mið-
vikudaginn 21. april kl. 11 fyrir hádegi.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN sf
ÁRMÚLI 4 REYKJAVlK SlMI 84499