Þjóðviljinn - 25.04.1976, Síða 11

Þjóðviljinn - 25.04.1976, Síða 11
Sunnudagur 25. aprfl 1976 ÞJóÐVILJiNN — SIÐA 11 \ Jón Sigurjónsson vió kjarnaprufutœki. og skipt sköpum um kostnað bygginga hvernig bæjaskipulag er úr garöi gert. Þá er vert að geta aukinna rannsókna á vegtæknisviðinu, en nú er verið aö ganga frá samningi við Vegagerð rikisins um aukna starfsemi á þessu sviði. Fyrir vinnu að þvi hefur Rb allgóðan tækjakost, og nýverið hefur verið ráðinn sérfræðingur að stofnun- inni til þess að vinna aö þessum málum eingöngu. Ætlunin er að efla útgáfustarf- semi stofnunarinnar að þvi marki, sem frekast er kostur, en stofnunin hefur sent frá sér tals- vert af upplysingaritum, sem snerta byggingariönaðinn. Má þar nefna Rb-blöðin, þar sem er að finna tæknilegar lausnir i sam- bandi við einstaka þætti húsbygg- inga, skýrslur og leiðbeiningar um nokkra tæknilega þætti svo sem um oliumöl, frostþolni jarð- vegs, hljóðtæknivandamál, ein- angrun, o.fl. 1 undirbúningi er ný og endurbætt útgáfa á bæklingi um einangrun ibúöarhúsa svo eitthvað sé nefnt af þvi, sem á þessu sviði stendur til að gera. —■ Getur það verið rétt, að byggingarkostnaöur sé sagður meiri en hann i raun og veru er hér á höfuðborgarsvæðinu, en það hvarflar stundum að manni þegar fréttir berast af verði ibúðarhús- næðis annars staðar á landinu, eða selur fólk úti á landi ef til vill sitt húsnæði undir kostnaðar- verði? — Til að hægt sé að svara þessu á óyggjandi hátt, þyrftu ýtarlegri rannsóknir að liggja fyrir en raun ber vitni. Sýnir þetta m.a., hve rannsóknarstarfsemin er mikil- væg almenningi til glöggvunar á þessu lifshagsmunamáli. Ég get aðeins bent á nokkur at- riði til athugunar í sambandi við spurninguna. Rétt er að leggja á- herslu á, að ekki má blanda sam- an byggingarkostnaði og mark- aösverði ibúðarhúsnæðis. Mark- aðsveröið er háð eftirspurn, og þegar hún minnkar, hefur alltaf orðið einhver lækkun á ibúða- veröi. Margt er athyglivert um bygg- ingarkostnað úti á landi, en ýtar- legri samanburð á honum og samsvarandi kostnaði hér á Reykjavikursvæöinu þarf að gera, en gert hefur verið. Benda má á, aö misjafnt getur verið, hvað reiknað er inn i bygg- ingarkostnað. Bæöi eigin vinna og fleira getur komið misjafnlega út, sé verið aö gera yfirborðskennd- an samanburð á byggingarkostn- aði. Þessu til viðbótar má ekki gleyma hinni hrööu verðbólgu, sem við eigum við að striöa hér á landi og þar með hinum sibreyti- legu upphæöum húsnæðisverðs. Kostnaður við byggingu húsnæð- is, sem reist var fyrir tveimur til þremur árum er i krónum talið orðinn verulega annar en þess húsnæðis, sem byggt er i dag. Þetta kemur stundum fram i sölu á nýjum ibúðum þegar talað er um aö verö þeirra sé undir bygg- ingarvisitölu, en þá er miöaö við nýjustu byggingarvisitölu, i mesta lagi tveggja til þirggja mánaða gamla, og i raun allt aðra visitölu en þá, sem i gildi var meðan byggingarframkvæmdir stóðu yfir, en ekki er óalgengt að ibúðarhúsnæði sé i smiðum i a.m.k. tvö ár. Til þess að hægt sé að gera raunhæfan samanburð á bygg- ingarkostnaði miðað við visitölu er staðlað kostnaðarkerfi og staðlaður samanburður mjög þýðingarmikill. Hjá Rb hefur ný- lega veriö komið upp sliku stöðl- uðu kerfi og gefinn út um það sér- stakur fræðslubæklingur, og er þetta kerfi notað m.a. til útreikn- ings á nýju byggingarvisitölunni, en frá sl. áramótum hefur bygg- ingarvisitala verið á nýjum grunni. Verður hún reiknuð út i mörgum þáttum framvegis, svo- nefndum visitölum byggingar- hluta, og þvi hægt að sundur- greina mun meir en áður einstaka þætti byggingarkostnaðarins. Þessi útreikningur er gerður i sameiningu af Rb og Hagstofu fs- lands. — Hefur almenningur einhvern aðgang að þeim skýrslum og þeim upplýsingabæklingum, sem stofnunin sendir frá sér? — Það er reynt að kynna þessa útgáfu, en sú kynning mætti vera mun meiri og betri en hingað til. I hópi byggingarmanna, bæði með- al verkfræöinga, tæknifræðinga, arkitekta og iðnaðarmanna er verulegur áhugi fyrir þessum upplýsingum. Þessi rit hafa verið til sölu hjá Rb og einnig hjá Bygg- ingarþjónustu arkitekta. Einstök rit hafa verið notuð við kennslu og eru þannig útbreidd i vissum skólum. Þá er og hægt að gerast áskrifandi aö Rb-blöðunum. — Þú talar um að Rb annist rannsóknir varöandi vegagerð. Eru slikar rannsóknir ekki of fjarskyldar öörum byggingar- rannsóknum til þess að hag- kvæmt sé að láta þær fara fram hjá sama aðila og framkvæmir rannsóknir viö húsbyggingar? — Það held ég ekki. Sömu fræðilegu vandamálin og sömu rannsóknaraðferðirnar eru að nokkru leyti við hvort tveggja, t.d. grundun bygginga og vega, þó að viö hvort fyrir sig komi að sjálfsögðu upp sérstök vandamál. Það er áreiðanlega hagkvæmt fyrir svo litla þjóð sem okkur aö hafa rannsóknaraðstöðu sem mest á einum og sama stað þann- ig að nýting tækja og starfskrafta geti oröið sem hagkvæmust. — Þú hefur skýrt frá þvi, hvað verði á döfinni hjá Rb á næstunni. Hefur þú gert þér i hugarlund, hvernig starfsáætlanir stofnunar- innar litu út, ef ekki þyrfti að skera neitt við nögl, og starfsem- in væri á þann hátt, sem þú teldir æskilegasta? — Talsvert hef ég hugleitt það, og i st jórn Rb hefur margt borið á góma, þó aö þær hugmyndir, sem ræddar eru, takmarkist oft af möguleikunum. Byggingarrannsóknir þyrftu að margfaldast hér á landi frá þvi sem nú er. Byggingarstarfsemin er afar mikilvægur og margþætt- ur hluti okkar þjóölifs. Fáar þjóð- ir leggja jafn mikið upp úr góðu ibúðarhúsnæði og við islendingar, og er það sist að undra, sé tekið tillit til loftslags og hnattstöðu. Þó verjum við mun minna hlutfalls- lega til byggingarrannsókna en flestar þjóðir Evrópu og Norður- Ameriku. Þaö hefur afar mikla hagræna og félagslega þýðingu fyrir þjóðina, hvernig að bygg- ingu ibúðarhúsnæðis er staðið hér á landi. Forsenda til úrbóta á þvi sviði eru auknar rannsóknir. Hafa ber i huga, að byggingar- starfsemin er samsett úr mörg- um þáttum. Auk hins tæknilega eru skipulagslegir, fjárhagslegir og félagslegir þættir hennar mjög mikilvægir. Þessir siðarnefndu þættir hafa einkum orðið útundan i okkar rannsóknarstarfsemi. Við megum ekki gleyma, að með hinu byggða umhverfi sköp- um við ramma um lif fólks, sem mikil áhrif hefur á lifshamingju þess. Við þyrftum að taka mun meira til athugunar þær húsagerðir, sem hér væru hentugastar. Við þyrftum að staðfæra ýmis konar þekkingu bæði á tæknilegu og fé- lagslegu sviði, sem erlendar rannsóknir hafa aflað og efla okk- ar eigin rannsóknir á þessum sviðum. Stofnunin þarf, að minu viti, að komast langt út fyrir þann ramma, sem henni er settur nú. Þar þyrftu sjálfstæðar rannsókn- ir að verða mun meiri þáttur i starfseminni en hingað til. Til þess að svo geti orðið þarf stofn- unin að hafa hjá sér margs konar sérfræöinga, ekki bara á hinu tæknilega sviði byggingarmála, heldur einnig á félagslegu og hag- fræöilegu sviði, en hliöstæðar stofnanir i nágrannalöndunum hafa einmitt mikið af slikum starfskröftum. Við þurfum að gera okkur fulla grein fyrir þvi hver afkastageta byggingariðnaöarins er i dag og hvernig hægt er að beita þeim fjármunum, sem til byggingar- starfsemi fara, á skynsamari hátt en hingað til. Til að ná þessu marki þarf að efla mjög það starfslið, sem fæst við byggingarrannsóknir. Að minu viti þarf þar ekki endi- lega að vera um að ræða fasta starfsmenn að öllu leyti. Margt á- gætismanna i hópi arkitekta, verkfræðinga, iðnaðarmanna og annarra byggingarmanna, svo og sérfræðinga og áhugamanna á fé- lagslega sviðinu, hafa áhuga á að leggja hönd á plóginn við að afla upplýsinga og bæta tækni, skipu- lag og ýmiss konar árangur i byggingarstarfseminni. Framhald af 18. siðu. önaðarins og fl. Oddur Þórðarson rannsóknarmaður, kemur steypuklumpum fyrir f frystiskáp. Séð yfir skrifstofu Rannsóknarstofnunarinnar. Kári Eysteinsson rannsóknarmaður við lektarmælingar á stifluefnum

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.