Þjóðviljinn - 22.05.1976, Blaðsíða 1
UOÐVIUINN
Laugardagur 22. mai — 41. árg. ÍÍO. tbl.
NATO AÐ YERKI
Geir og
Einar
leiddir sem
lömb til
slátrunar
í Osló
Reynt að kúga íslendinga
til samninga við bretana
Geir Hallgrimsson forsætisráðherra flaug
skyndilega tii Osló í gær frá Finnlándi og að loknum
utanrikisráðherrafundi NATO hófust viðræður
islensku ráðherranna Geirs Hallgrimssonar og
Einars Agústssonar við Anthony Crosland, utan-
rikisráðherra breta um landhelgismálið. Luns
framkvæmdastjóri NATO og Frydenlund, utan-
rikisráðherra Norðmanna tóku einnig þátt i við-
ræðunum. Fundurinn stóð i 3V2 klukkustund, og
hvildi yfir honum mikil leynd.
Af fréttastofufregnum er ljóst, að samningar við
breta eru á næsta leyti, ef þeir Geir Hallgrimsson og
Einar Ágústsson fá að ráða ferðinni.
180
skóla-
nemar
á
atvinnu-
leysisskrá
Allir fimmtán borgar-
fulltrúar í Reykjavik sam-
þykktu i fyrrakvöid aö visa
tillögu Sigurjóns Péturs-
sonar, bor ga r f u 111 r ú a
Alþýöubandalagsins, um
atvinnumál skólafólks til
borgarráös tii frekari
umfjöllunar, en frá þessari
tillögu var Htillega sagt hér i
blaöinu i fyrrradag.
Allnokkrar umræður uröu
um atvinnuhorfur skólafólks
i sumar. Kom fram, aö nú
munu 180 skólanemar á
aldrinum 16 ára til 22 ára
vera skráðir atvinnulausir.
Talið er að þessi tala verði
komin upp i 800 innan tiðar.
I tillögu Sigurjóns er gert
ráð fyrir átaki á vegum
borgarinnar til þes að bæta
hér úr.
Frá umræðum um
tillöguna verður skýrt i
blaðinu eftir helgi.
—úþ
Ekki fer milli
mála, að þeir Geir Hallgrimsson
og Einar Agústsson eru komnir á
bólakaf I samsinga, og hafa ekki
einu sinni haft manndóm til að
standa við hátiðlegar yfirlýsingar
um að aldrei skuli þó sest að
samningaborði við breta meðan
herskipin eru hér innan land-
helgi!
1 útvarpsviðtali við Luns, fram-
kvæmdastjóra NATO i gær kom
fram, að hann væri nú „bjart-
sýnni en áöur” á „lausn” deil-
unnar. Sagði Luns það liggja i
loftinu að hægt væri að ná sam-
komulagi, en Islensku ráð-
herrarnir yrðu þó að ráðgast við
samráðherra sina I Reykjavik
áöur en frá málinu yrði gengið!
I fréttum ntb. fréttastofunnar
er haft eftir breska utanrikisráö-
herranum, að viðræðurnar hafi
verið „hinar jákvæðustu um langt
skeið”, og hugsanlega muni fara
fram frekari samningaviðræðurl
Osló eða Br'ússel á næstunni. Þá
er I sömu frétt haft eftir Crosiand,
að tal Einars Agústssonar um
hugsanlega úrsögn Islands úr
NATO muni eingöngu hafa verið
hugsað fyrir fólk hér heima á Is-
landi, en i samtölum við sig hafi
tónninn hjá Einari greinilega ver-
ið allur mildari!!, sagði breski
utanr Ikisráðherrann.
Þá er það I fréttastofufregnujn
haft eftir embættismönnum hjá
NATO, að ekki væri útilokaö að
takast mundi að finna formúlu,
sem gerði bretunum kleift að
draga herskipin til baka án þess
að „missa andlitið”. — Er þar
sjálfsagt átt við, að togararnir
verði látnir hafa frið að mestu,
þegar herskipin væru farin.
— Skjótra aðgerða er nú þörf
svo takast megi að hrinda tilraun
NATO til að kúga islendinga til
uppgjafar I landhelgismálinu.
Hættan á svikasamningum er á
•næsta leyti. Þjóðviljinn skorar á
landsmenn að taka höndum
saman um aö stöðva'' sókn
NATO gegn lifshagsmunum
okkar.
Sigrum breta en semjum ekki.
Dregið í Blaðbera-
happdrœtti Þjóðviljans
BAKSÍÐA
Friðrik barðist
til sigurs gegn
Karpov
en heims-
meistarinn lét
sig ekki.
Frásögn GSP frá
Amsterdam
SJA 3. SIÐU
Ákvörðun um byggingu aðveitustöðvar RR á lóð
Austurbœjarskóla frestað i borgarstjórn
Ónó
og falskar
uppiysmgar
um lóðastœrð og lóðafjölda var
ástœðan fyrir frestuninni!
Borgarstjórn ákvaö meö sam-
hljóöa atkvæöum á fundi sinum i
fyrrakvöld aö fresta ákvöröun um
byggingu aöveitustöövar fyrir
Rafmagnsveitu Reykjavíkur á
lóö Austurbæjarskólans, þar sem
fram kom á fundinum, aö alls
ekki haföi veriö athugaö til neinn-
ar hlitar hvort fáanleg heföi veriö
önnur lóö undir aöveituhúsiö.
Fram kom á fundi þessum, að
fjölmargir aðrir valkostir gætu
staðið til boða. Fullyrt hafði verið
að aðeins væri um einn valkost að
ræöa annan en lóð Austurbæjar-
skóla og bygging hússins þar
myndi kosta borgarsjóð 70 mil-
jónum króna meira en ef byggt
yrði á skólalóðinni.
Meðal þess, sem upplýst var á
fundinum var, að Sumargjöf hef-
ur fengiö vilyröi fyrir 3000 fer-
metra lóöá milli Sundhallarinnar
og Heilsugæslustöðvarinnar til
þess að reka þar dagvistunar-
stofnun, en ein slik er i nokkurra
metra fjarlægð frá þeim stað,
hinum megin við Sundhöllina.
Aukakostnaöur viö að reisa húsiö
á þeirri lóö yröi i hæsta lagi 10
miljónir króna. _
Viö Eiriksgötu er 3400 fermetra
lóö austan við Hnitbjörg. Þeirri
hugmynd var slegið fram á borg-
arstjórnarfundi hvort ekki væri
hægt að fá Sumargjöf til þess að
skipta á þessari lóö og hinni sem
aö frainan getur, en aukakostn-
aður við byggingu aðveituhúss
við Eiriksgötu er talinn nema um
70 miljónum króna.
Þá var það upplýst á fundinum,
að er einn borgarfulltrúi spurðist
fyrir um þetta hjá Sumargjöf, var
honum sagt aö lóðin viö Eiriks-
götu væri allt of litil, þrátt fyrir
þaö, aö hún er 400 fermetrum
stærri en sú, sem Sumargjöf hef-
Framhald á bls. 14.
Þrjár harkalegar
ásiglingatilraunir
Um sjöleytið siödegis i gær, —
einum klukkutima eftir lok
samningafundar breska utan-
rikisráöherrans og islensku ráö-
herranna i Osló.þá geröi breskt
herskip þrjár tilraunir til aö
sigla á islenskt varöskip á
öræfagrunni.
Aö sögn Gunnars ólafssonar,
talsmanns landhelgisgæslunnar
voru ásiglingartilraunirnar
mjög alvarlegar og harkalegar,
og munaöi aöeins örfáum senti-
metrum, aö herskipinu tækist
aö sigla á varðskipiö.
Þegar herskipiö hóf
ásiglingartilraunir sinar, átti.
varðskipiö 3 og 1/2 mOu ófarna
aö togurum, sem tekiö höföu sig
út úr meginhópnum til veiöa.
Togararnir hlföu og lögöu af
staö i áttina til mcginhópsins,
þegar varöskipiö nálgaöist.