Þjóðviljinn - 22.05.1976, Qupperneq 3
Laugardagur 22. maí 1976 ÞJÖOVILJINN — SIÐA 3
Karpov sigurvegari
Friðrik tapaði biðskákinni og
hreppti þriðja til fjórða sœti
Amsterdam föstudaginn 21.
maf. Frá Gunnari Steini Páls-
syni:
Siöasta umferöin i skákmótinu
hér í Amsterdam var mjög tvísýn
eins og viö var búist og báöar
skákirnar fóru i biö. Friörik haföi
svart á móti Karpof og sótti stift
til vinnings. Hann lenti i geysi-
legu timahraki en tókst aö yfir-
stiga þaö og koma skákinni I biö.
Hann er peöi undir og aö flestra
áliti meö öllu lakari stööu.
Browne lenti einnig i timahraki I
skák sinni viö Timman en rétt
slapp yfir markiö og er talinn
hafa öllu betri stööu til aö tefla úr
i kvöld.
— Ég held aö þessi staöa sé erf-
iö fyrir okkur báöa, sagöi Friörik
eftir aö skák hans viö Karpof lauk
i dag. — Ég neita þvi ekki aö ég
ætlaöi mér aö ná vinningi úr þess-
ari viöureign þrátt fyrir aö ég
haföi svörtu mennina en þaö virö-
istekkiætla aö takast. Ég varö aö
láta þarna eitt peö og auövitaö
veikir þaö stöðu mina töluvert.
Mér finnst þó sjálfum eins og ég
sagöi áöan og þess vegna bauö ég
Karpof jafnteflifyrir stuttu. Hann
tók þvi ekki og vill tefla skákina
áfram, þá væntanlega til vinn-
ings.
Fyrstu punktarnir i dagbókinni
frá i dag eru frá kl. 15.30 en þá
höfðu kapparnir teflt i hálfa
þriöju klukkustund:
F.riörik ólafsson mætti vel
undirbúinn til átakanna viö Karp-
of og gærdagurinn fór allur i
undirbúning og „stúderingar” á
skákum heimsmeistarans. Ef lit-
iö er á stööuna i mótinu er ekki ó-
liklegt aö Friörik vilji freista þess
að ná vinningi úr þessari skák þvi
þaö er hans eina von til að ná
fyrsta sætinu sem hann hefur þó
að öllum likindum glataö meö
hinu örlagarlka og klaufalega
tapi fyrir Browne á miðvikudag-
inn.
Friörik hefur notað hálfa aðra
klukkustund af h'ma sinum nú
þegar en Karpof hins vegar aö-
eins hálfa. Hér i blaöamannaher-
berginu finnst mönnum liklegt aö
Friðrik sé að leita aö vinnings-
möguleikum i stöðunni og þess
vegna noti hann allan þennan
tima sem vissulega býöur ákveö-
inni hættu heim, nefnilega þeirri
aö klukkan ráöi aftur úrslitum i
skák Friöriks hér I Amsterdam.
Nú er stóra spurningin hvaö
Karpof ætlar sér. Honum nægir
jafntefli til aö ná fyrsta sætinu en
vinni Timman i dag yröu þeir
tveir efetir og jafnir. Vilji Karpof
hins vegar vera einn á toppnum
veröur hann aö tefla til vinnings,
telja menn stööu hans öllu betri
en Karpofs en vissulega óttast
þeir llka að tlmahrak sé fram-
undan.
Hollenski stórmeistarinn Donn-
er og alþjóölegi meistarinn Böhm
eru nú aö skoða stööu Friðriks og
Karpofsnákvæmlega ásamt fleiri
hérlendum spámönnum og
greinilega er um margar leiöir aö
velja til að tefla úr henni. Þess
má geta aö þeir Böhm og Donner
eru báöir væntanlegir andstæö-
ingar Friðriks og Guömundar
Sigurjónssonar á IBM-mótinu
sem háö veröur hér I Hollandi i
júli nk.
Skák Timmans og Brownes er
Ljósmyndarar þyrpast hér að heimsmeistaranum Karpof til aö
festa hann á filmu. Hann hefur þó sýnt ljósmyndurum fuilan fjand-
skap þar til I gær aö hann sat fyrir þægur sem lamb.
—mynd — gsp.
a.m.k. meðan staöan I skák
Timmans og Brownes er þaö óljós
aö ekki er hægt að sjá fyrir úrslit-
in.
Eins og stendur er skák
Friöriks og Karpofs nokkuö væn-
leg til mikils bardaga. Ef til vill
veröur samiöum jafntefliáöur en
yfir lýkur en úr þvi sem komið er
gengur það örugglega ekki átaka-
laust fyrir sig. Friörik stýrir
svörtu mönnunum i sikileyjar-
vörn og aö loknum 17 leikjum
ekki eins athyglisverð enn sem
komiö er. Þeir hafa leikið álika
marga leiki og hinir tveir en
Timman hefur notaö u.þ.b.
klukkustund minna en Browne
sem virðist eiga i erfiöleikum
meö þá stööu sem upp er komin.
Timman hefur notaö 50 minútur
en Browne 1 klst. og 50 min.
KI. 16.45: Greinilega mun
Friörik lenda I miklum erfiöleik-
um i skák sinni gegn Karpof.
Hann á eftir 17 leiki i 40 leikja
„múrinn” og hefur aöeins 10 min-
útur til afnota, Karpof hins vegar
meira en klukkustund. Staöan er
afar flókin, mannakaup hafa nær
engin veriö enn sem komið er og
þótt skákin sé athyglisverð þorir
enginn að segja til um hvor hefur
betristöðu. Ef eitthvaö er hallast
menn þó aö þvi aö Karpof hafi aö-
eins rýmri stöðu, ekki sist vegna
yfirvofandi timahraks andstæö-
ingsins.
Menn eru á þvl aö Friðrik hafi
veriö einum of djarfur I þessari
skák, leitandi aö vinningi af alefli
en Karpof teflir af öryggi eins og
venjulega og gefur ekki á sér
höggstað.
Browne er kominn I mikiö
timahrak og hollendingurinn er
talinn hafa betri stööu þótt hann
hafi ekki notað mikinn .tima. Þeir
hafa lokið 22 leikjum og eru
komnir út i endatafl sem ekki er
mjög flókið aö tefla úr. Þvl búast
menn ekki viö aö timaskorturinn
muni há Browne jafn mikið og
Friöriki.
Kl. 17.15: Rétt i þessu tókst
Friðriki að ná 40 leikja markinu
meö miklum endaspretti þar sem
hann gaf sér varla tima til að
skrifa leiki sina niöur. Karpof
tefldi lika mjög hratt undir lokin
til þess að gefa Friöriki ekki færi
á aö hugsa á sinum tíma og þess
vegna var harður atgangur uppi á
4.hæöinni núna slðustu minúturn-
ar. Friðrik er talinn hafa lakari
stööu og er hann peöi undir. Vinn-
ingsmöguleikar Karpofs erutölu-
veröir og líklega sættir heims-
meistarinn sig ekki við jafntefli
úr því sem komið er.
Browne hefur enn ekki lokið 40
leikjunum og hefur 4 minútur fyr-
ir þá 10 leiki sem eftir eru. Hann
er talinn hafa öllu betri stööu
þessa stundina ef ekki er tekiö til-
lit til timans en skák þeirra hefur
veriö fremur meinleysisleg frá
byrjun.
Kl. 18.00: Báðar skákirnar eru
komnar i biö. Friðrik og Karpof
léku 43 leiki áöur en þeir hættu en
SKRIFAR FRÁ
SKÁKMÓTINU
í HOLLANDI
Timman og Browne 40 leikjum.
Framundan er þvi áframhald-
andi bardagi I kvöld.
Skák Friðriks og Karpofs gekk
þannig fyrir sig: Hvítt: Karpof Svart: Friðrik. Sikileyjarvöm:
I. e4 C5
2. Rf3 e6
, 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rc6
5. Rb5 d6
6. c4 Rf6 '
7. Rlc3 a6
8. Ra3 Be7
9. Be2 0-0
40. 0-0 b6
11. Be3 Bb7
12. Db3 Rd7
13. Hfdl Rc5
14. Dc2 ~ Bf6
15. Hacl Be5
16. Rabl Dh4
Leikur Friðriks 16. ..Dh4 er
skapur leikur. Friðrik vill sækja á kóngsvæng og tekur meö þess-
um leik nokkuð mikla áhættu.
Þetta voru fyrstu merki þess, aö nú ætti að tefla til vinnings og
Karpof svarar drottningar-
leiknum af mikilli varúð.
17. g3 Df6
18. f4 Bd4
19. Dd2 e5
20. Rd5 Dd8
Miðtafliö er áíTiéfjast og er
afar flókið og erfitt fyrir báða
aðila. Karpof hefur e.t.v. aðeins
betristööu, ekkisistvegna þess,
að Friðrik hefur eytt miklum
tima I byrjunar- og fyrri hluta
miðtafls. Karpof villnúna sækja
á kóngsvæng og Friðrik veröur
að gæta d-linunnar. Peö hans á
d6 er veikt, og takist Karpof aö
neyða Friörik í biskupakaup er
pæðiö aö öllum likindum fallið.
20 leikir eru búnir og Friðrik
Framhald á bls. 14.
Jóhanna
Bogadóttir
opnar
í Galterí
SÚM
í dag kl. 4.00 opnar
Jóhanna Bogadóttir mynd-
iistarsýningu í gallerí
SÚAA/ Vatnsstíg 3B, Rvk.
Jóhanna er fædd i Vestmanna-
eyjum áriö 1944: hún stundaði
nám i París, S—Frakklandi og
Kaupmannahöfn. Þetta er þriðja
einkasýning hennar i Reykjavik,
en alls hefur hún haldiö sjö einka-
sýningar úti á landi og auk þess
tekið þátt I fjölda samsýninga hér
heima og erlendis. Um þessar
mundir tekur hún m.a. þátt I al-
þjóðlegum grafiksýningum
(biennölum) i Bretlandi og Pól-
landi.
A sýningunni I galleri StJM eru
um 22 graflkmyndir og 14 teikn-
ingar, unnar á siöustu þremur
árum.
Sýningin er opin daglega frá kl.
4.00— 10.00 og stendur til 30. mai
n.k.
Jóhanna Bogadóttir
22 íslendingar hafa fengið góðari bata
af áfengissýki á Freeport Hospital i
New York á tveimur árum
Yfirmaður stofn-
unarinnar
í heimsókn hér
Á undanförnum tveimur áruni
hafa 22 islenskir áfengissjúkling-
ar dvalist um skeiö á meðferðar-
deild Freeport Hospital fyrir á-
fengissjúklinga I New York. Þyk-
ir það með eindæmum hvað náðst
hefur góður árangur i meöferð á-
fengissjúkdómsins á þessari
stofnun og hafa þessir einstakl-
ingar, sem nú eru allir komnir
heim, bundist samtökum uin að
fá yfirmann stofnunarinnar
Joseph P. Pirro til þess að koma
tii islands og segja frá þeim aö-
fcrðum scm efstar eru á baugi i
meðferð áfengissjúklinga i
Bandarikjunum.
Joseph L. Pirro hefur einkum
starfað fyrir aðila vinnumarkað-
arins i Bandarikjunum að rann-
sóknum og meðferð á áfengis-
vandamálinu sem atvinnusjúk-
dómi. Hann hefur t.d. komið á fót
meöferðarstofnunum i sambandi
við bandarisku lögregluna og raf-
veitustarfsmenn þarlenda.
Joseph Pirro kemur til lands-
ins i dag og heldur fyrsta fundinn
á Hótel Loftleiðum kl. 15 á morg-
un. Hann er opinn almenningi. A
mánudag kl. 20 flytur hann erindi
fyrir kennara og presta á Hótel
Loftleiöum kl. 20.A þriöjudags-og
miðvikudagsmorgun verða fund-
ir, sem aðilum vinnumarkaðarins
er boðið til á Hótel Loftleiðum. A
þriðjudagskvöld kl. 20 halda AA
samtökin opinn fund með Pirro i
Langholtskirkju. Fimmtudaginn
27. mai verður kvöldráðstefna að
Hótel Loftleiðum kl. 20 fyrir
lækna, sál- og félagsfræöinga og
hjúkrunarfólk. A föstudaginn 27
mai kl. 9.30 árdegis flytur svo
Joseph L. Pirro erindi á Hótel
Loftleiðum fyrir dómara, lög-
fræðinga og löggæslumenn.
Prófessor Pirro er félagsfræð-
ingur að mennt og hefur starfað
að meðferð og endurhæfingu á-
fengissjúklinga um aldarfjórð-
ungsskeiö. Auk þess að vera yfir-
maður meðferðardeildar Free-
port-sjúkrahússins, sem nýtur
mikils álits i Bandarikjunum, er
hann framkvæmdastjóri „Insti-
tute on Alcoholism for Social
Workers” i New York.