Þjóðviljinn - 22.05.1976, Blaðsíða 5
Laugardagur 22. mal 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Atvinnumiðlun stúdenta:
64 stúdentar á skrá
Gylfi Kristinsson frkv.stj.
Stúdentaráðs sagöi I viðtali við
blaðið I gær að nú væru 64
stúdentar á skrá hjá Atvinnu-
miðlun stúdenta. Tekist hefur
að útvega 10—12 manns fasta
sumarvinnu og 5—6 hafa komist
i Ihlaupavinnu.
— Þetta virðist þvl ekki vera
eins slæmt og á sama tlma I
fyrra þegar80—90mannsvoru á
skrá. Það ber þó að hafa I huga
að þá var allt útlit fyrir stórt
verkfall og menn héldu að sér
höndunum.
Núna er stöðug hreyfing á
þessu, þaðhringja að meðaltali
svona 4—5 atvinnurekendur á
dag. Ekki ber á þvl að neitt sé
erfiðara að útvega kvenfólki
vinnu, það hefur þó nokkuð ver-
iö spurt um fólk I þessi hefð-
bundnu „kvennastörf” eins og
vélritun og saumaskap.
En þótt færri hafi látiö skrá
sig núna en I fyrra segir það
kannski ekki alla söguna. Fólk
er flest enn I prófum og sumar
deildir veröa ekki búnar fyrr en
10. júní. Þaö er því ekki víst aö
menn hafi almennt tekiö við sér
ennþá og llklegt má teljast aö
eitthvað eigi eftir að fjölga á
skránni. Það gæti reynst erfitt
aö útvega þeim vinnu sem eru
lengst I prófum þvi nú eru allir
menntaskólar búnir eða að
verða búnir —það er hlutur sem
hefur breyst á slðustu árum, áð-
ur stóöu þeir flestir fram I júni.
Viö ætlum að halda þessari
starfsemi gangandi fram ijúli.
Viðteljum þetta mjög brýnt þvl
eins og alþjóð veit fá stúdentar
ekki nema 85% af fjárþörfinni i
lánum svo sumarvinnan er
flestum brýn nauðsyn til aö end-
ar nái saman, sagði Gylfi.
—ÞH
Fréttastofa sjónvarps
gagnrýnd í útvarpsráði
Ólafur R. Einarsson fulltrúi Alþýðubandalagsins
í útvarpsráði lét bóka sérstök mótmæli
A fundi útvarpsráðs I gær gerði
Ölafur R. Einarsson fulltrúi
Alþýðubandalagsins i ráðinu að
umtalsefni fréttaflutning
sjónvarpsins á sunnudag af
Keflavíkurgöngu og útifundinum
á Lækjartorgi að sérstöku um-
talsefni. Lét hann bóka afstöðu
slna þar sem hann átaldi harð-
lega aö fréttastofa sjónvarps
hefði ekki séð ástæðu til að gera
lokum Keflavikurgöngu og úti-
fundi á Lækjartorgi teljandi skii.
Fréttastjóri sjónvarps, Emil
Björnsson, andmælti þessum
skoðunum Ólafs harðlega og
sagði að fréttastofan hefði skipu-
lagt þegar á laugardagsmorgun
meðferð Keflavikurgöngu og úti-
fundar i fréttum sjónvarpsins
og þeirri linu hefði verið fylgt
allt til enda. Aðrir útvarpsráðs-
menn en Ölafur vildu sem
minnst tjá sig um málið.
Bókun Ólafs R. Einarssonar er
á þessa leið:
,,Ég leyfi mér aö átelja þaö
harölega að fréttastofa stjón-
varps skuli ekki hafa séö ástæðu
til að gera lokum Keflavlkur-
göngu og fjölmennum útifundi
hernámsandstæöinga s.l. laugar-
dag nein teljandi skil I sjónvarps-
fréttum sunnudaginn 16. mai.
Samkvæmt fréttum sjónvarpsins
á laugardag var það mat frétta-
stofunnar aö hér væri um stór-
atburð aö ræða og upphaf
göngunnar gerð itarleg skil. Þvi
virðist það undarlegt fréttmat að
skýra I örstuttu máli frá lokum
göngunnar og 10-12 þúsund
manna fundi, án teljandi mynda-
efnis. Blaöaskrif, umræður og
fréttir þessa viku hafa mótast af
þvi að I kjölfar Keflavlkurgöngu
hafa herstöðva- og Nato-málin
komist i brennidepil þjóðfélags-
umræðunnar. Þvl má fullyrða að
upphaflegt fréttamat sjónvarps-
ins var rétt og þvi ber að harma
það að svo virðist sem öfgafull
blaðaskrif og væntanlega hring-
ingar skuli hafa brenglað eðlilegu
fréttamati,og þannig náö tilgangi
sinum.”
Rannsóknarráð rlkisins leyfir:
18 erlenda leiðangra
Á hverju sumri um langt árabil
hafa komið hingað erlendir leið-
angrar visindamanna sem
einkum hafa áhuga á jarðfræði
landsins og nátturu. Ef að líkum
lætur verður það eins i ár.
Gunnar Jónsson hjá
Rannsóknaráði rikisins sagði i
viðtali við blaðið að þegar hefði
verið sótt um leyfi fyrir 22
visindaleiðangra. Þar af hefðu 18
umsóknir verið samykktar en
hinar i athugun.
Meðal þeirra sem eru i athugun
er stór rússneskur leiðangur en
ákvörðun um leyfisveitingu til
hans var skotið til rikisstjórnar-
innar sem ekki hefur enn sagt sitt
álit.
Sovéska visindaakademian
hefur sótt um að fá að senda
hingað 18 manns. Af þeim eiga 12
aö vera i f jóra mánuði, þrir i þrjá
og þrir i tvo mánuði. Myndi leið-
angurinn hefjast i júnimánuði og
standa fram á haust. Einnig hafa
sovétmenn i hyggju að • senda
hingað rannsóknaskip með leið-
angrinum og er fyrirhugað að það
verði hér I einn mánuð.
Leiðangurinn mun fást við
alhliða jarðfræðirannsóknir.
Hann mun hafa með sér 15 tonn af
dýnamíti sem nota á til að fram-
kalla smáskjálfta á linu sem
dregin er frá Borgarfirði um
Skorradalsvatn til Þingvalla.
Nefnast rannsóknir sem þessar
bergmálsmælingar. Einnig munu
leiðangursmenn fara viða um
land, safna sýnum og gera
kannanir.
Gunnar nefndi einnig þýskan
leiðangur sem kemur til iand-
mælinga i Kelduhverfi. Þjóð-
verjar hafa staðið að slikum
könnunum allt frá þvi á milli-
striðsárunum og er markmiö
þeirra að safna gögnum um land-
rek. Sagði Gunnar að mikill
fengur væri að fá þá hingað ein-
mitt á þessum tima.
Þýska rannsóknaskipið Meteor
mun hafa hér viðdvöl i sumar og
gera athuganir á landgrunninu.
Einnig munu nokkrir bandariskir
og breskir jarðfræðileiðangrar
væntanlegir. Loks má nefna
nokkra breska skólaleiðangra en
þeir geta ekki talist hreinir
visindaleiðangrar. I þeim verða
allt upp I 50 skólanemar sem ferð-
ast um landið, skoða jökla og
náttúruna og gera einfaldar mæl-
ingar, td. á skriði jökla
—ÞH
I Norrœna húsinu um helgina:
Bókasafn —
Sýning á listmunum úr tré — Stig Petters-
son frá Sviþjóð.
Sýningasalir i kjallara —
Yfirlitssýning á verkum Siri Derkert —
Siðustu dagar, opið 14.00—2^.00. (Sýning-
unni lýkur á sunnudagskvöld)
Samkomusalur
Kvikmyndasýning kl. 16.00 á sunnudag.
Sýndar verða kvikmyndir frá Þelamörk i
Noregi.
Verið velkomin NORRÆNA HÚSIÐ
Frá fjölbrautaskól
anum í Breiðholti
Innritun nýrra nemenda i skólann fer
fram i húsakynnum stofnunarinnar að
Austurbergi dagana 1.—4. júní frá kl.
13—18 (frá kl. 1—6). Umsóknir þeirra, sem
ekki geta mætt til innritunar nefnda daga,
skulu hafa borist til skrifstofu skólans
sama stað fyrir 10. júni.
Allar upplýsingar eru veittar i skólanum.
Skólameistari.
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, Pick-upp-bifreið
og landbúnaðar-traktor, er verða sýnd að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 25. mai kl.
12—3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
5.
Sala varnarliðseigna.
SVEINSPRÓF
í húsgagnasmíði
Sveinspróf i húsgagnasmiði i Reykjavik
1976 verður haldið eftir miðjan júni.
Vegna breytinga á fyrirkomulagi próf-
anna verður haldinn fundur i Iðnskólanum
mánudaginn 24. mai kl. 16.00 með væntan-
legum próftökum. Eru viðkomandi minnt-
ir á að senda umsóknir um sveinspróf til
undirritaðra sem fyrst.
Prófnefnd.
sfjj^Blómabúðin MÍRA
Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430
Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590
Blóm og gjafavörur i úrvali