Þjóðviljinn - 22.05.1976, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. mai 1976
Skrifið
eða
hringið.’
Sími: 17500
Fjárhags-
aðstoð við
Filistea?
Ljóster nú orðið að Stofnlána-
deild landbúnaðarins vantar
nokkur hundruð miljónir króna
til þess að geta fullnægt lánsum-
sóknum frá bændum á þessu
ári. Er i þessu sambandi talað
um 800 miljónir. Þetta þýðir, að
ýmsar brýnar framkvæmdir i
sveitum verða að bíða betri
tima. Gefur auga leið hversu
það er bagalegt, ekki hvað sist
fyrir frumbýlinga, sem ekki
hafa úr of miklu að spila en
framkvæmdir allar verða
dýrari með hverju ári, sem
liður.
Þótt mikið hafi verið byggt i
sveitunum, bæði yfir fólk og
fénað, einkum næstliðin 30 ár,
þá verður hvorki þrot né endir á
þörfinni. Það sýna lánsumsókn-
irnar og það er engin hætta á
þvi, að bændur byggi að gamni
sinu. Þvlllkt „sport” eru þeir
manna óliklegastir til að
stunda.
Jafnframt þvi, að
lánsumsóknir eru þannig
skornar niður hefur verið sett
„þak” á framkvæmdir þannig,
að ekki er lánað út á byggingar,
sem fara yfir ákveðna stærð.
Það er ekki óskynsamlegt.
Fjárhús yfir 700—1000 fjár og
fjós yfir 40—60 nautgripi eru
vafasamar framkvæmdir og
slik stórbú naumast hagkvæm,
hvorki fyrir bændastéttina né
þjóðfélagið I heild.
Hitt er öllu lakari saga ef að
Stofnlánadeildin, sem lengst af
hefur verið fjárvana miðað við
þær þarfir, sem hún hefur þurft
að sinna, hefur veitt þeim
mönnum fyrirgreiðslu við
jarðakaup, sem alls ekki hyggja
þar á búsetu og venjulegan bú-
rekstur, dvelja þar kannski
aðeins ungann úr sumrinu,
hremsa hlunnindi jarðanna en
nýta þær ekki að öðru leyti og
leggja þær nánast I eyði. Fyrir
fáum dögum heyrði ég merkan
bónda fullyrða, að þetta hefði
gerst. Og nú vil ég spyrja, og
vænti svars frá þeim, tsem vel
mega vita hið rétta: Er þetta
satt? Hafa sjóðir, sem ætlað er
það hlutverk, að styrkja
nauösynlegar og aðkallandi
framkvæmdir bænda veitt
jarðabröskurum, Filisteunum,
sem Jónas frá Hriflu nefndi svo
á sinni tið, fjárhagslega fyrir-
greiðslu við iðju sina? Sé svo,
sem ég vona að reynist rangt,
þá er það með öllu forkastan-
legt og brýtur algjörlega I bága,
við tilgang landbúnaðarsjóð-
anna.
Nú kann að vera að þeir, sem
annast þ'essa fjárúthlutun, viljt
halda þvi fram, að ekki sé alltal
auðvelt að átta sig á til hvers
þeir, sem fyrirgreiðslur fá, ætli
að nota jarðirnar. Er hug-
myndin að nytja þær sem
venjulegar bújarðir eða nota
þær sem fótaskinn? En hefur
nokkurt eftirlit verið haft með
þessu? Séu menn spurðir um til-
ganginn má segja, að taka verði
þá trúanlega. Og þó munu
Filestearnir allajafna nokkuð
auðkenndir. Er ekki hugsanlegt
að búa þannig um hnúta, að þeir
skili fjármunum aftur, sem
uppvlsir verða að þvl, að hafa
fengið þá undir fölsku yfirskini?
Það væri að vísu ekki nema
hálfur sigur þvi jörðunum gætu
þeir sjálfsagt haldið eftir sem
áður.
Ég endurtek: Vonandi reynist
þessi orðrómur rangur, þvi það
er með öllu forkastanlegt að
sjóðir landbúnaðarins veiti
þeim mönnum fjárhagslega
aðstoð, sem eru einhverjir
mestu meinsmenn hinnar raun-
verulegu bændastéttar.
Bóndi
Besti sólardagur hins nýja sumars heilsaði reykvíkíngum i gær: sólin skein
ailan daginn og reykvikingar tóku henni vel að vonum. Margir sóluðu sig í
Nauthólsvíkinni þar sem Sigurdór tók þessa mynd, og ekki var lakara að njóta
volga vatnsins í læknum.
Hundseðlið og
manndómur
Keflavikurgangan hefur farið
svo á sálina á Ihaldinu, að
Mogginn veit ekki sitt rjúkandi
ráðog geltir aðrússum dageftir
dag eins og venjulega þegar á
bjátar eða fremja á einhver
óþokkabrögð gegn islenskri
þjóð. Rússar hafa jafnan látið
þetta gelt eins og vind um eyru
þjóta og sveia ekki einu sinni
rakkagrey junum.
Eitt gætu þó rússar gert og
það væri að bjóða Ihaldinu að
halda næsta landsfund sinn á
geðveikrahæli i Sovétrikjunum.
Rússneskir geðlæknar eru
heimsfrægir, og sjón er sögu
rikari.
Svo er eitt enn. Ef rússar
kæmu nú hingað I raun og veru,
eins og Mogginn segist óttast
svo mjög, þá er eitt alveg vist:
Ihaldið mundi flaðra upp um
rússa jafn ámátlega og upp um
kanaogbreta, þvl að hundseðlið
er samt við sig.
Hitt er svo jafn öruggt, að
barátta herstöðvaandstæðinga
yrði þá jafn nauðsynleg eftir
sem áður. Sú barátta verður
áreiðanlega ekkiháðaf íhaldinu
né vl-dótinu, þvl að vafalaust
verður hægt að græða á rússum
ekki siður en könum.
Sigurður Baldursson
Miklar
jramkvœmdir
fyrirhugaðar
Atvinnuástand er gott I Siglu-
firði um þessar mundir, sagði
Gunnar Rafn blaðinu I gær.
Sigluvík og Stálvik eru
nýkomnar til hafnar, önnur með
60 smálestir en hin með 120.
Miklar framkvæmdir eru
fyrirhugaðar hjá bænum i
sumar. Má þar fyrst minnast á
hitaveituframkvæmdirnar, en
stefnt er að þvi að ljúka lögnum
hitaveituæða um bæinn. Má
ætla, að við það komi til með að
vinna um 50 manns.
Þá er áformað að skipta um
jarðveg I þremur götum á
Eyrinni og undirbúa þær undir
lagningu varanlegs slitlags.
Hefur áætlun verið gerð um að
leggja varanlegt slitlag á götur
bæjarinsá næstu 10 árum og eru
fyrirhugaðar framkvæmdir i
sumar fyrsti áfangi á þeirri
braut.
Enn er þugmyndin að unnið
verði að hafnarframkvæmdum
Frá Siglufirði
fyrir um 30 miljónir króna.
Loks er það svo framhald
virkjunarframkvæmda við
Neðri-Skeiðfoss I Fljótaá og
standa vonir til að sú virkjun
komist I gagnið i haust.
Okkur þykir raunar býsna
þungt fyrir fæti með fjármagns-
útveganir til hitaveitu- og
virk junarframkvæmda og
virðist naumast nægilegt hald i
þeim fyrirheitum stjórnvalda
að slfkar framkvæmdir njóti
forgangs um fjármögnun.
Nú, hér má bæta því við, þótt
annaö mál sé, að bæjarstjórnin;
samþykkti nýlega áskorun á
rikisstjórnina um að ljá ekki
máls á landhelgissamningum
viðbreta og aðrifta samningun-
um við þjóðverja ef að „bókun
6” kemur ekki hið fyrsta tilj
framkvæmda.
Tónlistarkennslt
á Ströndum
, Sú nýlunda hefur nú borið við
jhér, — og er vissulega
fagnaðareftii, — að tónlistar-
kennari úr Reykjavik hefur
verið hér að störfum undanfarið
og er raunar enn, sagöi Pálmi
Sigurðsson I Klúku Lands-
hominuIgær.Mun sýsluneftidin
hafa veitt nokkurt fjármagn til
þessarar starfsemi. Sem
stendur er kennarinn aö
störfum á Drangsnesi, en
einnig hefur hann verið á
! Hólmavlk og auk þess farið um
sveitirnar. Kennslan verður aö
teljasthafa verið sæmilega sótt,
enda þótt annrlki sé mikið á
þessum árstima. Nauðsynlegt
væri að koma sllkri kennslu á i
skólunum hér, og vonandi er
þetta upphaf aö öðru meira á
þeásu sviöi.
Sem áður verður skólahúsiö á
Klúku opið fyrir ferðafólk I
sumar. Notaði fólk sér mjög af
þvi I fyrra og var húsið þá full-
setið á bverri nóttu um alllangt
skeið. Erekki ástæða til að ætla
annað én að svo verði einnig á
sumri komanda. Geta má þess,
að sundUaug er á staðnum.
Tlð hefúr veriö hér köld og
rysjótt það, sem af er vorinu.
Gróðurlítið er þvi enn og spretta
með seinna móti á ferð.
Sauðburður stendur nú sem
hæst. Fénaðarhöld eru sæmileg
og ekki hægt að segja að um
nein óvenjuleg vanhöld sé að
ræða.
Margir stunda hér grásleppu-
veiðar um þessar mundir, bæði
úr þorpunum og sveitum,en hún
gengur fremur stirðlega vegna
hins óstöðuga tiöarfars. A sjó
gefur ekki nema öðru hvoru og
netin vilja fara I bendu þegar
umvitjanir verða stopular og
mikið af netum I sjó, en þeim
hefur fjölgaö mjög á seinni
árum. Hins vegar virðist mikið
um grásleppu og mundi veiði
góð, ef betur viðraði. Kaupfélag
Steingrimsfjarðar tekur mikið
af hrognunum, en svo salta
menn þau einnig sjálfir. Mikil
búbót er að þessum veiöum
þegar hægt er að stunda þær að
einhverju ráði.