Þjóðviljinn - 22.05.1976, Page 11
Laugardagur 22. mal 1976 ÞJODVILJINN — SIÐA 11
SVERRIR HÓLMARSSON SKRIFAR
ALÞYÐU-
LLIKIHS
AIþýöuleikhúsi5 sýnir
KRUMMAGULL
eftir Böövar Gubmundsson
Leikstjóri: Þórhildur Þorleifs-
dóttir.
Alþýöuleikhúsiö hóf starfsemi
sina i mars meö frumsýningu á
Neskaupstaö, en hefur siöan veriö
á flakki um Austurland, Noröur-
land og Suöurland. Mér auönaöist
aö skoöa þritugustu og fimmtu
sýningu leikhússins á Akureyri nú
i vikunni.
Alþýöuleikhúsiö er róttækt um-
feröaleikhús, sem hefur þann til-
gang aö færa öllum islendingum
list sem vekur til umhugsunar og
umræöu um samfélagsmál.
Fyrsta verkiö sem leikhúsiö
sýnir, Krummagull eftir Böövar
Guömundsson, er samiö sérstak-
lega fyrir leikhúsiö, meö stærö
leikhópsins og þarfir hans i huga.
Þetta var vafalaust besta lausnin
eins og á stóð, og reyndar er
Krummagull framúrskarandi
verk, fyndiö og snjallt og afar
leikrænt.
Krummagull er dæmisaga eöa
fabúla sem segir sögu mannkyns-
ins og rekur það einkum og séri-
lagi hvernig tækniþróun leiðir af
sér kúgun og stéttaskiptingu og
að lokum eitrun alls umhverfis
mannsins. Böövari tekst að leiöa
þetta fram á einstaklega skýran
og skemmtilegan hátt, hæfilega
einfait til að hvert barn geti skil-
iö, en samt ekki svo einfeldnings-
lega aö fullorönum leiöist. Yfir-
leitt held ég aö engum geti leiðst á
þessari sýningu. Hún er f jörug og
hröð, uppfull af hny ttinni oröræöu
og kostulegum tiltektum. Þór-
hildur Þorleifsdóttir hefur sviö-
sett leikinn af mikilli hugkvæmni
og útsjónarsemi i notkun hreyf-
inga og mótað henni mjög skýran
og skemmtilegan stil.
Þaö leiöiraf eöli og aðstæöum
þessa leikhúss að þaö verður að
fara nokkuö aöra leiö en farin er I
heföbundnu leikhúsi. Leikmynd
veröur aö vera afar einföld og öll-
um búnaöi veröur aö stilla mjög i
hóf til þess aö hægt sé að ferðast
um meö sýningar og setja þær
upp I hvers kyns húsakynnum
sem er. Alþýðuleikhúsiö hefur
brugöist viö þessum vanda á
mjög skynsamlegan hátt, lagt
höfuðaherslu á llkamlega hreyf-
Maria Árnadóttir, Þráinn Karlsson og Kristin ólafsdóttir i Krummagulli.
ingu leikaranna og textaflutning,
þ.e. grundvallaratriöi leikrænnar
tjáningar, en hafnaö öllum hefö-
bundnum og natúraliskum lausn-
um. Ég hygg að hér hafi verið
farin hárrétt leiö,ekki einungis af
hagkvæmnisástæöum, heldur
einnig vegna þess aö list sem
ætlar sér aö vera framsækin á
pólitisku sviöi veröur einnig aö
vera þaö á hinu listræna sviöi.
Leikhópur Alþýöuleikhússins
skilar þessu verki af mestu prýði.
Þeir Arnar Jónsson og Þráinn
Karlsson eru gamalreyndir
leikarar og báöir mjög vel heima
I þeirri llkamstækni sem sýning
þessi útheimtir. Þaö er langt slö-
an ég hef séö Arnar nota sfna frá-
bæru hreyfilist meö eins góöum
árangri og hér. Þráinn er einstak-
lega geöþekkur leikari og ræöur
yfir sérlega opinni leiktækni sem
gerir honum kleift aö ná mjög
nánu sambandi viö áhorfendur.
Þær Kristln ólafsdóttir og Maria
Arnadóttir æru langt frá þvi eins
sviösvanar. Kristin ræöur yfir
töluveröri tækni og hefur frábæra
rödd, bæöi til söngs og tals. Marla
er nær alger byrjandi og vantar
enn mikiö á likamstækni hennar,
en rödd og raddbeiting er meö
ágætum.
Þaö er sannarlegt gleöiefni
fyrir alla unnendur leiklistar,
einkum þá sem eru jafnframt rót-
tækir I stjórnmálum, að upp skuli
risiö nýtt, róttækt leikhús á landi
hér, og aö þaö skuli hafa fariö af
stað með slikum glæsibrag. Ég
óska Alþýðuleikhúsinu gæfu,
gengis og langra lifdaga. Og nú er
loksins hægt að hvetja allaislend-
inga til aö fara og sjá sýningar
þessa leikhúss, þvi að þaö er ekki
ómerkasti þátturinn I starfsemi
þess að þaö hyggst gefa öllum
löndum vorum, jafnvel i hinum
afskekktustu byggðum, tækifæri
til að njóta góðrar og vekjandi
leiklistar.
Sverrir Hólmarsson
— — —' — ——• —
tm í * f É 1 W fS JIII I Wat W # f ««4 MIB §11 f5 111 1 lll jjj
Þið eruð
bara
smákallar
Eins og fram hefur komiö 11
blöðum ákváöu loftskeytamenn á
fjórum strandstöövum aö hætta I
allri þjónustu viö bresku |
veiöiþjófana, nema I slysatilvik-
um. Þessi ákvöröun var tekinn 12. ,
mars siöast liöinn. Var um aö \
ræöa samstööu loftskeytamanna
á Isafiröi, Siglufirði, Neskaupstað
og Hornafiröi.
Viö höföum tal af einum loft-
skeytamanna i Neskaupstaö
Magnús Waage, og báöum hann
aö rifja máliö lltillega upp og
segja okkur frá framgangi þess.
Magnús sagöi, aö engin athuga- 1
semd heföi komiö frá stjórnvöld-
um né frá yfirstjórn Pósts og
sima, og „ekki fyrr en Óli Tynes
fór á Gúrku. Hann kallaði upp
bæöi Siglufjörö og Neskaupstaö,
en hvorugur vildi afgreiöa hann
frekar en aöra um borö I herskip-
unum. Viö höföum ákveöiö aö
veita ekki undanþágu vegna mis-
notkunar,sem mjög bar’á vegna
undanþága, sem veittar voru til
þess aö færa slasaða menn I land
á sinum tima og óþarfi ætti aö
vera að rifja upp.
Eftir þetta tók Visir til og
hamaöist þar til póst- og sima-
málastjóri, i samráöi viö ráö-
herra og ráðuneyti, fyrirskipaöi
okkur aö taka upp afgreiðslu viö
breta á nýjan leik. Þessi tilskipun
barst okkur i þrennu lagi, fyrst
með umburðarbréfi þann 24.4.
sem orðað var á svo furöulegan
hátt, aö skilja mátti á ótal vegu,
ma. þann, aö við skyldum ekki af-
greiða breta. Annað umburöar-
bréf var okkur sent þann 27.4. og
var það meö nokkuð ákveönara
oröalagi og I þá veru að afgreiðsla
viö breta skyldi upp tekin. Slöast
kom svo bein skipun til okkar um
að taka upp viöskipti viö breta og
var hún frá stöðvastjórum pósts
og sima á hverjum staðanna fjög-
urra.
— Og þar meö búiö?
— Nei, nei. Viö vildum, kynna
okkur þaö, hvort ekki væri
óheimilt samkvæmt islenskum
lögum aö aöstoða lögbrjóta. Viö
sendum dómsmálaráöherra
skeyti og spuröum hann að þvi
hvort bretarnir væru ekki aö
brjóta islensk lög. Svaraöi hann
þvi til.aö svo væri.
Þá sendum viö honum annaö
skeyti þar sem viö spuröum eftir
þvi hvort ekki væri óheimilt sam-
kvæmt islenskum lögum að að-
stoða lögbrjóta við iðju sina.Svar
viö þessari fyrirspurn barst ekki
alveg eins fljótt og viö hinni fyrri.
A fjóröa degi kom þó svar, sem
kom okkur nokkuö á óvart, en i
þvi vfsaði dómsmálaráðuneytið
okkur á samgönguráðuneytið,
sem svaraaðila við spurningu
okkar. Þangað sendum viö svo
skeyti pg itrekun á skeyti. Svar
barst svo loks þann 15. mai. Þar
eríupphafirættumalltannað en
um var spurt, en undir lokin er að
finna svar, sem i okkar huga út-
leggst svo: Þið eruð bara smá-
kaliar. Það eru ýkkur æðri menn,
sem ákveða hvað gera skuli og
hvernig!
Siöan hefur ráöherra sam-
göngumála lofast til aö taka
máliö enn og aftur fyrir á rikis-
stjórnarfundi, og væntum viö
þess, aö þá fáist botn I þetta og
siðferöi ráöherranna veröi iýöum
ljós; hvort þeir ætla aö skipa
okkur að þjónusta lögbrjóta eöa
ekki.”
Innskot
(Viötal þetta var tekiö viö
Magnús á miðvikudag 19. mal. A
þriöjudagsmorguninn haföi veriö
haldinn rlkisstjórnarfundur. Af
honum höföu loftskeytamenn ekki
frétt. Þar geröist þaö I þessu
máli, að samgönguráðherra lagði
málið fyrir, en engin ákvöröun
var tekin um að breyta fyrri til-
skipunum, þeim aö loftskeyta-
menn skuli afgreiða veiöiþjófana.
Hins vegar var ákveöið aö velta
vöngum yfir málinu enn um hríö.
Stórhugurinn leynir sér ekki. Siö-
feröiö ekki heldur).
Reykjavík og Eyjar ekki
með
— Hvers vegna voru loftskeyta-
menn I Eyjum og Reykjavik ekki
meb i þessum aögeröum ykkar?
— Þaö náöist ekki samstaöa.
Erfitt er að segja af hverju það
var. Þeir viröast lita lög um loft-
skeytasendingar svo alvarlegum
augum, að þeir telji þau öllu æöri.
Einhverjir munu svo hafa verib
hræddir viö að sýna af sér óþekkt
og eiga á hættu aö missa af stöbu-
hækkun i framtiðinni fyrir vikið.
Annars heföi þaö skipt litlu
máli. Bretar hafa verið viö veiöi-
Þessi mynd var tekin af Magnúsi
Waage, sem er fyrir miðri mynd,
er hann kom hingað suður á
dögunum ásamt tveimur kolleg-
um sinum. Yst til vinstri á mynd-
inni er Siguröur Jónasson, 'oft-
skeytamaður I
Neskaupstaöen vinstra megin við
Magnús er Halldór Hilmarsson,
loftskeytamaður á Höfn I Horna-
firði.
þjófnaöinn á þeim stöðum viö
landiö, þar sem f jarskipti eiga sér
ekki staö um þessar tvær stöövar.
90% útgerðarsamtöl
— Hefur mikil afgreiösla og
þjónusta við veiöiþjófana farið
fram, siðan ykkar var skipað aö
taka hana upp á ný?
— Nei. Þaö er litið enn þá. Helst
hefur þaö verið I gegn um Höfn,
en breytist að sjálfsögðu nU þegar
flotinn er farinn af þessum mið-
um.
Fyrir þaö, aö viö lokuðum á
bretana, afgreiddu þessar fjórar
stöövar á að giska 100 -150 samtöl
á viku. 90% af þessum samtölum
. voru útgerðarsamtöl; vanga-
veltur um lengd úthaldsins og
söludaga, samtöl, sem miklu
skiptir fyrir bresku veiðiþjófana
að fá afgreidd, þvi eins og
kunnugt er þá selja þeir aflann á
frjálsum markaði, og þvi getur
öllu skipt fyrir þá, hver söludagur
er valinn.
Bjartsýnir
— Hvert verður svo framhaldö?
— Viö erum bjartsýnismenn og
væntum þess, að rikisstjórnin sjái
að sér. Við erum I nokkurskonar
biöstöðu, og meðan hún varir
leyfum við okkur bjartsýni.
—úþ
Það eru ykkur œðri menn, sem ákveða hvað gera skuli og hvernig