Þjóðviljinn - 19.09.1976, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Sunnudagur 19. september 1976.
MOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Ctgefandi: Ótgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: EiOur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Umsjón meO sunnudagsblaOi:
Arni Bergmann
(Jtbreiöslustjóri: Finnur Torfi Hjör-
leifsson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólavöröust. 19. Sfmi 17500 (5 Hnur)
Prentun: Blaöaprent h.f.
AÐ LÆRA AF REYNSLUNNI
Morgunblaðið kynnir um þessar mundir
heyfenginn af mannvitsbrekku Sjálf-
stæðisflokksins, Guðmundi H. Garðars-
syni alþingismanni. Þvi miður kemur i
ljós að ótið sú sem bændur á suður- og
vesturlandi hafa orðið að berjast við i
sumar er bliðviðri i samjöfnuði við hrak-
viðri þau sem greinilega hafa geisað um
mannvitsbrekkuna, enda er heyfengurinn
eftirþvi. Samt er afrakstrinum hampað i
Morgunblaðinu og á að sanna það að
islendingar hafi á undanförnum rúmum
þremur áratugum aðeins haft góða
reynslu af samskiptum sinum við Banda-
rikin og Nató, ekki sist á sviði viðskipta-
mála.
Staðreyndirnar eru þvi miður allt aðrar.
Þegar lýðveldi var stofnað á íslandi 1944,
var landið hersetið af Bandarikja-
mönnum. Mörgum þótti vænt um hversu
fljót bandarisk stjómvöld voru til að
viðurkenna lýðveldisstofnunina, en fyrir
nokkru hefur sagnfræðingurinn Þór
Whitehead sannað að fyrir ráðamönnum
Bandarikjanna hafi vakað það eitt að
tryggja sér aðstöðu á íslandi til fram-
búðar. Enda fór það svo að þegar striði
lauk sviku bandarisk stjórnarvöld há-
tiðleg loforð Roosevelts forseta um brott-
för Bandarikjahers en kröfðust i staðinn
þriggja herstöðva til 99 ára. Siðan hefur
verið reynt að framkvæma þá stefnu i
áföngum. Með samningnum 1946 tryggðu
Bandarikin sér áframhaldandi yfirráð
yfir Keflavikurflugvelli. Árið 1949 voru
islendingar sviknir inn i Nató með
loforðum um að hér yrði hvorki her né
herstöðvar á friðartimum. Siðan kom
herinn eins og þjófur á nóttu 1951. Þá tók
við eitthvert mesta niðurlægingartimabil
islenskrar nútimasögu. Framleiðslustarf-
semi islendinga var takmörkuð, en
þúsundum atvinnuleysingja sópað i her-
námsvinnu. Starfsmenn Sjálfstæðisflokks,
Alþýðuflokks og Framsóknarflokks tóku
að sér njósnir um skoðanir manna i þágu
hernámsliðsins. íslendingar voru gerðir
háðari Marshall„gjöfum” en nokkurt
annað riki. Meira en fjórðungur gjald-
eyristekna þjóðarbúsins kom frá
hernámsliðinu, meðan atvinnuvegir
landsmanna voru afræktir. Verstu smán
þessara niðurlægingartima hefur siðan
verið hrundið með markvissri baráttu
hernámsandstæðinga, en engu að siður er
ljóst að Bandarikin og þægustu þjónar
þeirra hugsa sér að Island verði bandarisk
herstöð um ófyrirsjáanlega framtið.
Annað hliðstætt dæmi er landhelgis-
málið. Þegar islendingar stækkuðu land-
helgina i fyrsta skipti lögðu bretar á okkur
viðskiptabann og ætluðu að svelta okkur
til hlýðni, þvi að Bretland var þá lang-
stærsti útflutningsmarkaður islendinga.
Þvi tókst að hnekkja með þvi að taka upp
viðskipti við Sovétrikin. Siðan hafa bretar
tvivegis beitt hernaðarofbeldi innan is-
lenskrar lögsögu og notið við þau óhæfu-
verk beins og óbeins stuðnings jafnt Atl-
antshafsbandalagsins sem hernáms-
liðsins. Báðir þessir hernaðaraðilar hafa
reynst islendingum verri en gagnslausir i
viðureign við hernaðarofbeldi, og ljóst er
að þaðan er einskis stuðnings að vænta i
þeim alvarlegu átökum sem enn kunna að
biða framundan.
Kalda striðið sem hófst að lokinni
siðustu heimsstyrjöld varð þvi miður til
þess að sundra islendingum i gagnstæðar
fylkingar, einmitt þegar brýnast var að
styrkja hið nýstofnaða lýðveldi með öllum
tiltækum ráðum. Þessi innri sundrung
varð islendingum til óþurftar i átökunum
við þau einu riki, sem hafa ásælst réttindi
okkar og hagsmuni, Bandarikin og Bret-
land. Nú er kalda striðinu lokið, nema i
mannvitsbrekkum þeim sem kól til varan-
legs tjóns. Af þessari reynslu verða
islendingar að læra. Það er ljóst að engar
efnahagssamsteypur eða hernaðarblakkir
tryggja sjálfstæði Islands, það verða
landsmenn að gera með þvi að ráða sjálfir
yfir landi sinu, auðlindum og efnahags-
kerfi. Það skiptir ekki máli að deila um
liðna tið, heldur að læra af henni.
—m
Endurnýjandi skurð-
læknmgar «
m Wt .
Þegar skurölæknirinn Nikolaj
Krakovski fy.-ir tuttugu árum
siöan endurnýjaöi meö nýrri
skurötækni aöalslagæö i sjúklingi
var baö stórvibburöur i lækna-
visindunum. Siöan þá hafa
endurnýjandi æöaskuröiækn-
ingar þróast ört og hafa fengiö
mikla þýöingu.
Markmiö æöaskuröaögeröa er
aö koma starfsemi skaddaöra
bióöæöa í eölilegt horf, segir
prófessor Krakovski, sem nú
veitir forstööu eigin deild viö
Visjnevskistofnunina i skurö-
lækningum i Moskvu. Og hann
bætir viö: Stundum getur veriö
um aö ræöa mikla erfiöleika i
þessu sambandi. Þess vegna
bindum viö mjög miklar vonir viö
endurnýjandi skurölækningar.
Til eru margar tegundir æöa-
sjúkdóma. En frá sjónarmiöi
skurölæknisfræöinnar eru þeir
allir á þann veg, aö slagæð hættir
aö flytja blóð og færa liffærum og
vefjum næringu. I grennd viö eöa
utan um stóra slagæð getur t.d.
myndast krabbamein. Spurningin
er, hvernig er unnt að skera burt
slik mein og varöveita hina lifs-
nauösynlegu slagæð, sem liggur i
gegn um þaö? Skurölæknar fylgja
jú alltaf þeirri reglu, að illkynja
meinsemd skuli skera „burt meö
rótum”, þannig aö ekki myndist
dótturmeinsemd i liffærinu. En
verður þá ekki um leið aö taka
hluta af æöinni burtu meö æxlinu?
Jú, baö er eina leiöin. Róttæk
skuröaögerö er óhjákvæmileg En
hér hefur endurnýjandi skuröaö-
gerð möguleika til björgunar. t
stað slagæðarinnar, sem brott
var tekin , er önnur grædd í.
Aögeröin, sem prófessor
Krakovski innleiddi i skurölækn-
ingar fyrir rúmum tuttugu árum,
er i þvi fólgln aö vefur, sem tek-
inn er frá gjafara, i þessu filfelli
æöavefur, er meöhöndlaöur á
sérstakan hátt, þannig að raun-
verulega má geyma hann svo
lengi sem vera skal. Þaö er gert á
þann hátt að fyrst er slagæöin
fryst viö lágt hitastig (-80 til
100 gr. C), siðan er hún þurrkuö,
og sett i loftþéttar umbúðir til að
koma i veg fyrir rotnun. Þegar
nota skal slagæöina þarf aðeins
aö væta hana i volgu vatni og hún
er tilbúin til igræöslu i lifandi lif-
færi.
Kostir svona igræöslu eru aug-
ljósir,segir prófessor Krakovski.
1 fyrsta lagi er hér um að ræöa
fullgildan vef, enda þótt hann sé
ekkilifandi. Ekki er hætta á nein-
um aðlögunarerfiðleikum.
Gerviæðar eru vissulega sterkari
og eru þess vegna notaðar við aö-
geröir á stórum æöum þar sem
blóöþrýstingurinn er mikill. En i-
grædda æöin er nátturlegri, lif-
fræöilegri. Þar að auki er hún
léttari og samlagast fyrr lifandi
vefjum likamans. Notkun þeirra
við skurðaögeröir eru rökrétt,
þegar um er aö ræöa meöalstórar
blóöæöar. Hér á okkar stofnun
höfum viö framkvæmt um 800
skurðaðgeröir af þessari teggund
á sjúklingum meö sjúkdóma i
æðakerfinu.
Skurðaðgerðir á slagæðum
Mikiö hefur veriö um skurðaö-
gerðartækni rætt þá sem prófess-
or Krakovski hefur fundiö upp i
sambandi við aðgerð á stóru slag-
æðinni, þ.e. að bæta skaddaöa
slagæö með vef úr likama sjúk-
lingsins sjálfs. Aögeröin er i þvi
fólgin, aö hinn skemmdi hluti
æöaveggsins er styrktur meö
bindivef, sem tekinn er úr vöðv-
um sjúklingsins sjálfs. Árangur-
inn er mjög góður, engra and-
verkana veröur vart og slagæðar
sem liggja út frá stóru slagæöinni
biða ekkert tjón. Uppskurðar--
tækni Krakovskis er einnig góC.
fyrir sjúklinginn (aög.timinn
styttist úr 1 1/2 til 2 timum niö-
ur I 17-20 min.) og mjög einföld.
Hvaða þjálfaöur skurðlæknir sem
er á venjulegu sjúkrahúsi getur
framkvæmt þessa aögerð. At-
hyglisvert tilfelli ber vitni um
kosti þessarar aðferðar. Sjúk-
lingur, sem áöur haföi gengist
gengist undir igræöluaögerö :1
VÍSINDI OG
SAMFÉLAG
deild Krakovskis, reyndi aö lyfta
of þungri byröi, skaddaöist inn-
vortis og hafnaöi aftur á skurti-
arborðinu ári eftir fyrstu aögerfi-
ina. Skurðlæknarnir fengu þarnct
ágætt tækifæri til að kanna áhriif
endurnýjandi æðaskuröaf)-
gerðar ári eftir að hún var gerö.
Komust þeir að raun um að slag-
æö sjúklingsins var i ágætu ásig-
komulagi.
A deild Krakovskis hafa menn
einnig fundið aðferð til endurnýj-
andi skuröaðgerðar sem mið
ar aö þvi að koma aftur á eölilegri
blóðrás um æö sem<8kaddast hef-
ur að völdum blóðtappa, sem oft
valda bólgum i innri vegg slagöa.
M.a. hefur verið smiðað nýtt tæki
sem dregur úr hættunni á þvi að
æöaveggurinn skaddist þegar
blóðtappinn er fjarlægður og ger-
ir alla aðgeröina mjög virkari. 1
eitt skipti var fjarlægöur hálfs
metra langur blóðtappi með þesis-
ari aðferö i gegn um 15mm breið-
an skurð i æöarvegginn. Þessi
aðgerð mun vera einsdæmi i nú-
tima æðaskurðlækningum.
Endurnýjandi skuröaögerðir
framkvæmdar meö aöferöum
Krakovskis eru nú geröar á fjöl-
mörgum sjúkrahúsum um öll íio-
vétrikin.
—AF'N.
Starfsfólk
Okkur vantar starfsfólk. Hreinlegur og
skemmtilegur iðnaður. Talið við Gyðu
Björk.
Leðuriðjan, Brautarholti 4, simi 21754.
TILBVNAR A 3 MIN.!
FAS SAMIIM ]R
— OlFltB í HABEGIMIJ
Ljósmyndastofa AMATÖR
LAUGAVEGI 55 ‘2' 2 27 18