Þjóðviljinn - 21.09.1976, Page 16

Þjóðviljinn - 21.09.1976, Page 16
DMÐMIINN Öllu starfsliði frystihússins í Olafsvík sagt upp: Gífurlegt atvinnuleysi vegna hráefnisskorts er framiindan í vetur Skuttogari virðist eina raunhœfa lausnin á þessum vanda, segir formaður verkalýðsfélagsins Fyrir helgina var öllu starf sliöi f rystihússins í ólafsvik sagt upp störfum og um leið svipt kaup- tryggingu. Hráefnisskort- ur hefur í allt sumar gert reksturinn erfiðan og síð- asta vertíð brást sömu- leiðis. Laust fyrir helgina gerðist það síðan að sex bátar frá ólafsvík sem stunduðu veiðar í dragnót voru sviptir veiðileyfinu vegna lögbrots og þykir í- búum í ólafsvík/ sem að einum þriðja hluta vinna við fiskvinnslu/ því útlitið æði dökkt. Aö sögn Hinriks Konráðssonar formanns Verkalýðsfélagsins á Ólafsvik, voru átta bátar þaðan á dragnót og eru þvi aðeins tveir i gangi um þessar mundir. Sagði Hinrik menn vongóða um að leyf- in fáist þó jafnvel aftur fljótlega gegn loforði um bót og betrun. Stjórnmálamenn i S-Afríku Eru vongóðir um árangur SALISBURY 20/9 (Reuter) — Forsætisráðherrar Ródesfu og Suður-Afriku spáðu þvi i dag aö samningaferð Henry Kissingers utanriksiráðherra Bandarikj- anna tii suðurhluta Afriku kynni að leiða til þess aö unnt verði að leysa Ródesiu-vandamálið innan tiðar. Ian Smith, forsætisráðherra Ródesiu, sagði i Salisbury, höfuð- borg landsins i dag, að viðræður hans og Kissingers i Pretoriu I gær hefðu gefið beinan árangur, sem gæti leitt til lausnar vanda- málsins i nálægri framtið. John Vorster, forsætisráðherra Suður- Afriku sagði einnig að tillögur þær, sem Kissinger bar fram við Ian Smith kynnu að leiða til já- kvæðs árangurs. Kissinger kom í dag til Lusaka, höfuðborgar Sambiu frá Pretoriu, og sagði hann einnig að náðst hefði góður árangur i við- ræðunum við Smith og Vorster um helgina. Samstarfsmenn hans sögðu að Kissinger byggist nú við þvi að stjórn Ródesiu gæfi út skýra orðsendingu i vikunni, sem myndi búa i haginn fyrir frekari samninga. Sögöu þeir að I þessari orðsendingu myndi vera tiltekinn sá timi, þegar svarti meirihlutinn i Ródesiu fengi aðild aö stjórn landsins. Ef undirtektir stjórnar Ródesiu verða eins jákvæðar og Kissinger býst við, sögðu sam- starfsmenn hans að umtalsverður árangur kynni að nást innan tveggja mánaða. Aö sögn sam- starfsmannanna voru tillögur Kissingers á þá leið að svertingj- ar i Ródesiu, sem eru yfirgnæf- andi meirihluti landsmanna, Ian Smith. skyldu taka við völdum i landinu á tveim árum. Ian Smith forsætisráðherra, sem mun nú skýra rikisstjórn sinni frá viðræöunum við Kissing- er, sagði i dag að hann byggist ekki við þvi að ræða frekar viö hann i nálægri framtfð, og sagði hann að nú yrði Kissinger aö gera þaö upp við sig hvort hann teldi að unnt væri að finna láusn á vanda- málunum. Heimildarmenn i Salisbury sögðu að hægri menn i Ródesíu kynnu að snúast gegn Smith ef hann féliist á að tiltaka stuttan tima fyrir stjórnarskipti. Kissinger flaug til Sambiu til aö skýra Kenneth Kaunda, forsætis- ráðherra landsins frá niðurstöö- um viöræðna helgarinnar, og heldur hann síðan áfram til Tansaniu til að gefa Júliusi Nyerere forseta samskonar skýrslu. —-Aflinn á dragnót hefur hins vegar verið ákaflega rýr, sagði Hinrik. — Yfirleitt eru menn hér orbnir æði óhressir yfir ástandinu sem rikt hefur á vinnumarkaðn- um undanfarna mánuði þvi það hefur verið afskapl. litið aö gera og nánast ekkert annað en dagv. að fá fyrir verkafólkið. Hún dugar auðvitað skammt hér sem annars staðar og þess vegna er þungt hljóð i mönnum þegar ekki verður séð fram á betri tima i vetur. Sið- asta vertið var léleg, sumarið sömuleiðis og þegar siðan um eitt hundrað manns er sagt upp kaup- tryggingu á einu bretti er eðlilegt að óánægja komi upp. Likur benda til þess að i mesta lagi verði unnið i tvo til þrjá daga i viku i frystihúsinu og veldur þvi hráefnisskorturinn eingöngu. Hraðfrystihús ólafsvikur var nýlega endurbyggt og eru húsa- kynnin hin fullkomnustu. Að- staða til að taka við verulega aflamagni er hin ákjósanlegasta en hins vegar hefur að sögn Hinriks láðst að tryggja fyrir- tækinu nægilegt hráefni til þess að reksturinn geti gengið nokkuð eðlilega. Sagði hann greinilegt að þörfin fyrir skuttogara væri mikil, bátarnir hafa aldrei getað annað þörfinni einir og er þvi mikill áhugi fyrir togarakaupum um þessar mundir. A Grundar- firði hefur togarinn bjargað at- vinnulifinu gjörsamlega og hefur þar verið rifandi vinna á meðan tugir fólks ganga nú um atvinnu- lausit i Ólafsvik. —GSP. Vií oc umilurn ':arðle,</a bráo'ibirí'úa löí-iih tjeim er oett voru af íslensku ríkisst.iórninni 8. þ.m., op tél.ium þau til beinnar kúírunar or v-'ldnírtslu á okkur s.iómönnum. Vinnubrö.^ð þessi er ÍKrkastaH?€ foraæmanle& ósvífni. Við lýsum því h^r með yfir að við erum reiðubúnir til að hafa'að enr\\ löf þessi. Við skorum á starfsbræður okkar um allt land að rora slíkt hið sama og mótmæla þessu harðlera. ffhöfnin á Mí.ffl VQ ‘ W!CiV l SH j?0 ( íb(\lda.v j ('‘/u.uUvD'U'U T~ j.a A. vc-v 'i- - ( i-. '3 í 't./ \Z.. Æfj^ ( Ib.w L // — Þessi undirskriftalisti barst Þjóðviljanum I hendur I gær. Það er áhöfnin á Hamrasvani SH 201 sem mótmælir bráðabirgðalögum Undirskriftasöfnun sjómanna Geysimikil þátttaka „Stefnt er að þvi að undir- skriftasöfnuninni Ijúki 26. októ- ber og verða þá listarnir afhent- ir Alþingi. A þeim degi er eitt ár liðið siðan rikisstjórnin samdi við okkur og þá verður væntan- lega ný forysta tekin við mál- efnum sjómanna að afioknu sjó- mannaþingi. Sá dagur verður þvi táknrænn á margan hátt. Búið er að senda undirskrifta- iistana út um land en þeir munu ekki hafa enn komist á leiðar- enda allir. Hérna suður með sjó er verið að skrifa undir af full- um krafti og það heyrir til und- antekninga ef menn skrifa ekki undir.” Þessi orð mælti Sigurpáll Ein- arsson i Grindavik við blaða- mann Þjóðviljans i gær en hann ereinn af forvigismönnum sam- takanna gegn þrælalögum rikis- stjórnarinnar. Mér skilst á lögfræðingum að ekki þurfi að bera bráðabirgða- lögin undir Alþingi af þvi að þau eru sett til ákveðins tima, sagði Sigurpáll. Við viljum með þessum undir- skriftum bera málið inn á Al- þingi til þess að bráðabirgðalög- in verði ógilt. — GFr Dragnótaveiðin hefur verið óvenjulítil í sumar: Kolinn sveik og það er uppgjöf í sjómönnum Að sögn Jóns B. Jónssonar i sjávarútvegsráðuneytinu hefur dragnótaveiðin i sumar verið með allra minnsta móti og miklu færri bátar notast við þessi veiðarfæri heldur en búist var við. Kolinn sem svo gjarnan hefur fengist I dragnótina hefur litið látið sjá sig það sem af er og áhugi meðal sjó- manna er þvi ekki mikili. — Það hafa verið um tólf bátar fyrir norðan og eitthvað svipað fyrir vestan, sagði Jón. — Miklu fleiri bátar hafa þó leyfi eða 29 samtals, til samanb. má geta þess að 34 bátar stunduðu drag- nótaveiðar fyrir norðurlandi allt timabilið i fyrra en þá höfðu 49 bátar leyfi. 1 sumar var byrjað fyrir norðan þann 15. júli á drag- nót en mánuði fyrr fyrir vestan. Eins og kunnugt er að fréttum voru sex bátar frá Ólafsvik svipt- ir dragnótaveiðileyfum i siðustu viku. Aðspurður sagði Jón að þeir hefðu ekki verið teknir á óleyfi- legum veiðisvæðum heldur hefði komið i ljós við aflarannsókn að allt of mikið væri af smáfiski um borð. Reglum um möskvastærð var breytt fyrir þetta veiðitima- bil, möskvarnir stækkaðir og var þannig fyrirhugað að koma i veg fyrir smáfiskadráp. Að sögn Jóns virtust bátarnir sex ekki hafa brotið þessar reglur heldur sýnd- ist mönnum að skipverjar hefðu misnotað veiðarfærin á einhvern hátt og þá liklega með þvi að hnýta fyrir pokann. Belgurinn kemur þannig i stað pokans og tekur með sér mikið magn af smáfiski sem annars sleppur. — gsp Tito farinn að ná sér BELGRAD 20/9 (Reuter) —Titó forseti Júgóslaviu er nú smám saman að ná sér aftur eftir lifrar- sóttina, sem hann fékk fyrir niu dögum, og var tilkynnt I dag að hann hvildi sig á sveitasetri i Belje i Norður-Júgóslaviu. Einnig var sagt að hann hefði I gær rætt við fimm ráðamenn i kommún- istaflokknum og rikisstjórninni. Þetta er fyrsta tilkynningin um heilsu Titós, siðan skýrt var frá þvi fyrir niu dögum að hann yrði að hvila sig i nokkrar vikur. Tito er 84 ára að aldri.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.