Þjóðviljinn - 16.01.1977, Qupperneq 8
8 — SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. janúar 1977
PUNKTAR
UM
Tarsan eftir B. Hogarth
TEIKNIMYNDASOGUR
Struwwelpeter eftir H. Hoffmann (1809—1894)
Ólafur Kvaran
skrifar um
myndlist:
Teiknimyndasögur af
ýmsum toga njóta mikilla
og almennra vinsælda.
Áætlað er að um
300.000 000 manna eða tí-
undi hluti mannkynsins
fylgist reglulega með ýms-
um myndasögum i dag-
blöðum, vikublöðum og
tímaritum. Um margra
áratuga skeið hefur
amerísk framleiðsla verið
ráðandi á þessum markaði
og frá aldamótum hafa
þar í landi verið gerðar um
2000 seríur. Sú sería sem í
dag nýtur mestra vinsælda
er ,,Blondie'', eftir Chic
Young, sem birtist í u.þ.b.
1600 dagblöðum, en fast á
eftir fylgja „Beetle
Bailey" eftir Mort Walker
og,,Peanuts" eftir Charles
Schulz, sem birtast í u.þ.b.
1000 blöðum.
Uppruni
Teiknimyndasögur (seriur)
komu fyrst fram i dagblööum i
lok siöustu aldar. Þaö var áriö
1897, sem „The Katsenjammer
Kids” (Knold og Tot) eftir
Rudolph Dirks birtist i einu stór-
blaöanna i New York og naut þeg-
ar frá upphafi gifurlegra vin-
sælda.
Myndfrásagnir eöa myndasög-
ur geröar fyrir alþýöu manna eru
þó ekki uppgötvun 19. aldar, held
ur má rekja uppruna þeirra, allt
til siömiöalda. A 15. öldinni kom
fram sú nýjung aö gera fleiri en
eitt eintak bæöi I oröi og mynd, en
þegar á 13. og 14. öld höföu veriö
geröar tilraunir til aö gera mynd-
ir i fleiri en einu eintaki meö þvi
aö klippa eöa skera út stokka.
Myndir trúarlegs efnis voru eink-
um framleiddar á þennan hátt og
tóku klaustrin tréristuaöferöina i
sina þjónustu I ríkum mæli.
Prentuö blöö meö myndum úr llfi
Jesú Krists og kristinna dýrlinga
voru einnig heft saman i smábæk-
ur og má þar nefna „fátækrabibl-
Iuna” (Biblia Pauperum). þar
sem texti og mynd voru skorin
i sama stokk og myndefniö sótt
jöfnum höndum I gamla og nýja
testamenntiö. A 16. öld fékk tré -
ristan keppinaut: lausa málm
bókstafi og aörargrafiskar aöferö-
ir eins og koparstungu og ætingu,
en sökum þess hve dýrar þessar
myndir voru átti öll alþýöa
manna engan aögang aö þeim.
Bændur og verkamenn uröu aö
láta sér nægja sinar ódýru tré -
rist.ur. En aftur á móti er i þess
um tréristum alþýöunnar oft aö
finna eftirlikingar og einfaldan
ir á þeim grafisku myndarööum,
sem meistarar eins og Dúrer og
Holbein geröu og siöar Callot og
Goya. Nokkrir þessara meistara
komu lika auga á þann mögu-
leika aö koma boöskap sinum til
alþýöunnar meö myndarööum
sem auöveldlega mátti yfirfæra i
stil alþýölegra frásagna, eins og
t.d. William Hogarth, sem geröi
margar „siöbætandi” frásagnir
sem einungis voru ætlaöar til aö
skera i tré. Þótt myndefni þess-
ara tréristna væri i upphafi fyrst
og fremst trúarlegs eölis þá uröu
þau brátt margbreytilegri.
Striðshetjur, ævintýramenn, sjó
ræningjar og byltingarmenn
bættust fljótlega viö sem mynd
efni á 16. og 17 öld. Góöhjartaðir
og göfugir ræningjar allt frá Hróa
hetti til Cartouche fengu lifsferil
sinn skráðan i þessum myndum
alþýöunnar. Og öll formgeröin er
i þessum myndum mjög á sömu
lund. Hver persóna er skorin meö
ákveðnum linum, sem aðgreina
skýrt hvern flöt, sem liturinn er
siöan lagöur á. Það sem um er
fjallaö skal vera augljóst og
greinilegt, forðast er allt sem lýt-
ur aö flóknum rýmisverkunum og
allt látbragö persónanna skal tjá
á einhlitan hátt, reiöi, hræöslu
eöa gleði. Einstaka sinnum, tala
persónurnar i þessum myndum,
en það varð siöar algilt i nútima
teikniserium. I list miöalda, t.d. i
bókalýsingum, er oft til staöar
„talband”, sem persónurnar
héldu á eöa aðrir héldu á fyrir
framan munn þeirra. T.d. er i
handriti frá 15 öld mynd er sýnir
samtal Jóstefs og konu Pótifars.
„Dormi mecum” (Sofðu hjá
mér) hljóðar textinn i talbandi
hennar, en Jósef svarar um hæl
með sinu talbandi: „Það get ég
ekki gert og syndgaö þannig á
móti minum herra”.
Samt virtist það svo aö talbönd
hafi fyrst og fremst verið bundjn
viö ádeilur, pólitiskar karikatúr-
myndir og aörar skemmtimyndir
eins og i karikatúrmyndum Gill-
roys og Rowelandsson á 19. öld-
inni, sem um margt eru beinar
fyrirmyndir nútima teikniseria.
Nýr lesendahópur
Um miðja 19. öldina var litó
grafian (steinprentiö) notuö til
aö gera þrykk fyrir alþýöu manna
og haföi þaö ma. i för meö sér aö
litlu fjölskyldufyrirtækin sem áð-
ur höföu framleitt tréristuna
lögöust niöur eða uröu aö stóriön-
aöi, þar sem hin flókna og dýra
aöferð litógrafiunnar kraföist
stórra upplaga og jafnframt aö
útbreiöslan gengi hratt. Þar meö
var einnig hafin þróun sem leiddi
til oliuþrykksins og eftirprentana,
sem lögöu gjörsamlega undir sig
markaöinn. Samsetning lesenda-
hópsins breyttist einnig á 19. öld-
inni. Með aukinni leskunnáttu al-
mennings minnkaöi markaöurinn
fyrir þessa myndir handa full
orönum. En útgefendurnir fundu
brátt nýjan markaö þar sem voru
börn og unglingar og i mörgum
barna- og unglingabókum færöu
menn sér i nyt hina einföldu frá-
sögn tréristunnar. Ræningja- og
striössögur sem eitt sinn voru
sagöar ólæsum almenningi i
myndum voru nú færöar i einfald-
ara form fyrir börn. Ein af þess-
um sögum er varö viöfræg var
„Struwwelpeter”, eftir þýska
lækninn Heinirch Hoffman, og
haföi hann mikil áhrif á aöra
teiknara og rithöfunda. Tvo aðra
höfunda á 19. öldinni er vert aö
minnast á, vegna mikilla áhrifa
þeirra á nútima teikniseriur, þá
Rodolphe Toeffer og þá ef til vill
einkum þjóöverjann Wilhelm
Busch.Sá siöarnefndi byggði
myndir sinar á hinni þýsku tré-
ristu og teiknihefð, og saga hans
um uppátæki hinna brellnu
drengja „Max og Morits”, hlaut
mikla útbreiðslu og var i raun
meira lesin af fullorönum en
börnum. Einn þeirra sem kynnt-
ist sögu Busch var Rudolph Dirks,
sem siðar fluttist til Bandarikj-
anna, þar sem hann i anda „Max
og Morits”, skapaöi seriuna
„Knold og Tot”, sem markar
upphafið að nútima teikniserium.
Um myndmál seríanna
Nú mætti spyrja hvar sé aö
finna meginforsendur þess mynd-
máls, sem seriuteiknarar um
aldamótin notuöu. 1 seriunni um
„Knold og Tot” er skemmtilega
teiknuö figúra, negrakóngurinn
sem hefur eins og aörar persónur
áberandi teiknuö augu, auk þess
sem hann hefur griöarlega stórt
hvitt nef með svörtum hnapp. 1
málverki frá u.þ.b. 1890 er
ógerningur aö hugsa sér persónu
meö slikt andlit — en samt gat
höfundurinn Rudolph Dirks teikn-
aö persónur sinar á þennan hátt
án þess lesendur andmæltu. Ein
meginforsendan fyrir þessu frelsi
seriuteiknarans var myndhefö
karikatúrlistarinnar. Karikatúr
teikningar eiga sér langa forsögu
allt frá Carracci á 16 öldinni, en á
19. öldinni hlutu satiriskar teikn-
ingar mikla útbreiðslu bæöi i
Evrópu og Ameriku. Svo aö enda
þótt ekki væri aö finna áþekkar
persónur i málverkum I lok 19.
aldar og I seríum frá sama tima
þá hafa þessar teikningar langa
hefö að baki.
1 þessum skemmtiteikningum
frá aldamótum er einnig aö finna
ýmis myndræn tákn sem nú koma
fyrir i næstum hverri skemmti-
seriu, til aö mynda sá háttur aö
teikna augu sem svarta punkta
eöa stóra hringi eins og Dirks
geröi i „Knold og Tot”.
Ævintýrasériurnar sem nutu
mikilla vinsælda á fjóröa ára-
tugnum kröfðust aftur á móti
annarra persónugeröa. Þaö var
aö sjálfsögðu ekki trúveröugt i
öllum tilvikum aö teikna hetju
sem leit út eins og Andrés Ond
eöa félagar hans. Fyrirmyndir aö
mörgum þessara hetja I ævintýra-
seriunum má raunar finna i hinni
akademisku listhefö; t.d. sagðist
Burna Hogarth, höfundur Tars
ans, sækja áhrif til Michelangelo,
en aðrir teiknarar notuðu gjarna
andlit samtima kvikmynda-