Þjóðviljinn - 16.01.1977, Side 15
Sunnudagur 16. janúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA — 15
Laurence Olivier i hlutverki
pyntingameistarans Christian
Szell.
Það er skýrt tekið f ram í
kynningu á þessari mync^
jólamynd Háskólabíós, að
hún sé það sem engilsaxar
kalla „thriller" — eða það
sem íslendingar kalla á
sínu ylhýra nútímamáli
„krimmi". Með þessu slær
leikstjórinn varnagla og
firrir sig f rauninni allri
ábyrgð. Nú þarf hann ekki
að svara neinum spurning-
um, krimmar eru bara
krimmar og útrætt um það.
Og ef við sættum okkur við
þetta hljótum við að viður-
kenna að Maraþon-maður-
inn er fráfærlega vel
gerður krimmi. Öhugnan-
lega spennandi. Svo spenn-
andi, að áhorfandinn hugs-
ar Ijótt þegar hlé er gert á
sýningunni til að selja
neytendunum kók og spila
f yrir þá vísnabókarplötuna
(Aldrei var ég hrifin af
þeirri plötu, en í hléinu í
Háskólabíó var hún næst-
um verri en mannsmorð —
hver stjórnar þessu?
Úr því kóksalarnir þurfa
eridilega að fá sínu fram-
gengt geta þá ekki áhorf-
endur gert þá lágmarks-
kröfu til plötusnúða kvik-
myndhúsanna að þeir setji
sig inní andrúmsloft
viðkomandi myndar og
velji ekki tónlist sem kem-
ur manni úr jafnvægi,
heldur sé í einhverju
samræmi við það sem
verið er að trufla fyrir
manni? Eða er kannski
verið að selja manni vísna-
plötuna lika?)
En þótt John Schlesinger vilji
losna við spurningar vakna þær
engu aö siður. Ég held það stafi af
ákveðnu misræmi sem er milli
efnisins og þeirrar meöferðar
sem það hefur hlotið. Schlesinger
er góður kvikmyndastjóri með
næmt auga fyrir smáatriðum og
dramatiskri uppbyggingu. Hann
kann einnig mætavel að skapa
þrúgandi andrúmsloft, það sáum
viö sfðast i myndinni Dagur plág-
unnar, sem Háskólabió sýndi i
sumar. Dustin Hoffman er góöur
leikari og „andhetja” af guös
náð. Laurence Olivier er hafinn
yfir gagnrýni. Svona mætti lengi
telja. öllu þessu púöri er eytt á
efni sem i raun og veru er vont.
Þaö er þetta sem verið er aö af-
saka með þvi að kalla myndina
„thriller”. Mér þykir sú afsökun
hrökkva skammt.
Ingibjörg Haraldsdóttir skrifar um kvikmyndir:
Maraþon-
maöurinn
Hversvegna er efnið vont?
Komið er inn á mál sem eru
meiri að vöxtum en svo að um
þau verði fjallað á þennan hátt,
að minu áliti. Sögulegum stað-
reyndum er blandað saman við
allskyns imyndanir og hugdettur
og einhvernveginn fer þetta út
fyrir ramma hins „hreina reyf-
ara” — verður rassböguleg föls-
un. Kannski stafa þessi viðbrögð
áhorfandans af þvi að hann hefur
þegar séð þess nokkur dæmi að
hægter að gera góðan krimma og
viðhafa um leið heiðarleg vinnu-
brögð, koma að sögulegum og
pólitiskum staðreyndum osfrv.
Hér er hinsvegar einhver þoka yf-
ir öllu. Auschwitz og McCarthy-
timabilið renna saman i eitt.
Aðalatriðið er ekki hvað gerðist,
heldur hvernig það gerðist.
Auschwitz kemur inn .i spilið af
þeirri einu ástæðu að það var svo
hrottalegt sem þar gerðist. öllu
erfiðara er að sjá hvað það kemur
aðalpersónunni, sem Dustin Hoff-
man leikur, við. Ég skil heldur
ekki hversvegna „yfirlæknirinn”
i Auschwitz (Olivier) er að flækja
Hoffman inn i sitt demantamál,
þvi siður hversvegna hann sendir
á hann kvenmann.
Þessar efasemdir og spurning-
ar hefðu ekki vaknað i huga min-
um ef hér væri aðeins um
miðlungskrimma að ræöa. Hins-
vegar er ég þannig skapi farin aö
mér sárnar þegar kvikmyndalist-
in er notuð i illum tilgangi. T.d.
þegar boðið er upp á pyntingar
sem skemmtiatriði. Eða þegar
vitsmunalifi áhorfenda er mis-
boðið með þvi að færa harmleiki
mannkynssögunnar niður á
grýlu- og bolaplanið. Einkum
finnst mér þó sárgrætilegt að
hugsa til þeirrar kvikmyndar
sem aðstandendur „Maraþon-
mannsins” hefðu getað skapað,
hefðu þeir sett sér annaö og
mannúðlegra markmið en að
kitla þessar frægu „lægstu hvat-
ir.”
Dustin Hoffman, andhetja
Látið
drauminn rœtast..
Tú, suðurs
með
SUNNU
VETRARÁÆTLUN JAN. FEB. MARZ APRiL
KANARlEYJAR 8. 15, 29. 5. 19, 26. 12, 19. 2. 6. 23.
Aðeins það
besta er nógu
gott fyrir
Sunnufarþega.
Áfangast./Brottfarard. APRÍL MAÍ JÚNÍ JÚLÍ ÁGÚST SEPT. OKT. NÓV. DES.
MALLORCA 3. 17. 1. 22. 6. 19. 3. 24. 31. 7. 14. 21. 28. 4. 11, 18. 25. 2. 16. 30. 12. 3, 18,
COSTA BRAVA 3, 17. 1, 22. 6, 19. 3. 24, 31. 1. 15, 29. 12.
COSTA DEL SOL 1, 17. 6, 20. 3, 17. 8, 29. 5, 12, 19, 26. 2. 9. 16, 30.
KANARÍEYJAR 2, 6, 23. 14. 2, 16. 7. 28. 11. 25. 8, 22. 8, 22. 12. 3, 17, 23.
GRIKKLAND 5. 19. 10. 24. 7, 21. 5, 19. 2,9,16. 23. 30. 6. 13, 20. 27. 11, 25.
MALLORCA dagflug é sunnud. Eftirsóttasta paradís Evrópu. Sjórinn, sól-
sklnið og skemmtanallflð eins og fólk vill hafa það. Tvær Sunnuskrifstofur, og
hópur af íslensku starfsfólki. barnagæsla og leikskóli. Bestu og eftirsóttustu
hótel og íbúðir, sem hægt er að fá, svo sem: Royal Magaluf, Porto Nova, Antillas
Barbados, Guadalupe, Helios og Hotel 33 fyrir unga fólklð (Klubb 32).
paradísareyjar I vetrarsól. Hóflegur hiti, góðar baðstrendur, fjölbreytt skemmtana-
lif. Kanarieyjar eru frihöfn með tollfrjálsa verslun. Hægt að velja um dvöl á
vinsælustu og bestu hótelum og ibúðum á Gran Canaria og Tenerife svo sem:
Koka, Corona Blanca, Corona Roja, Los Salmones, Hotel Waikiki og Tenerife
Playa. Sunnu skrifstofa með islensku starfsfólki nú opin allan ársins hring.
COSTA BRAVA dagflug á sunnudögum— mánudögum. Lloret de Mar, eftirsótt-
asti skemmtiferðastaðurinn á hinni fögru Costa Brava strönd. Við bjóðum
glæsilegar og friðsælar fjölskyldu íbúðir Trimaran, rétt við Fanals baðströndina.
einnig hið vinsæla Hotel Carolina og sérstakt unglingahótel i miðbænum.
skammt frá baðströndinni. Fjöldi möguleika á fjölbreyttum skoðunarferðum, til
fríríkisins Andorra, Barcelona, Frakklands, siglingar með ströndinni. Óvenju lit-
skrúðugt skemmtanalíf. Sunnu skrifstofa með þjálfuðu starfsfólki á staðnum.
COSTA DEL SOL dagflug á föstud. Heillandi sumarleyfisstaður, náttúrufeg-
urð. góðar baðstrendur, fjölbreytt skemmtanallf og litrlkt þjóðlíf Andalusiu.
Margt um skoðunar og skemmtiferðir, til Afriku, Granada, Sevilla. Nú bjóðum
við eftirsóttustu lúxusibúðirnar við ströndina I Torremolinos Playa Mar, með
glæsilegum útivistarsvæðum, sundlaugum og leikvöllum, loftkældar lúxus-
ibúðir. Einnig Las Estrellas, Hotel Don Pablo, Hotel Palma Sol og Hotel Equvador
fyrir unga fólkið. Eigin skrifstofa Sunnú i Torremolinos með þjálfuðu starfsfólki.
Bamagæsla og leikskóll.
KANARkEYJAR vetur, sumar, vor og haust, dagflug á laugardögum-fimmtudög-
um. Sólskinsparadís allan ársins hring. Nú fá íslendingar í fyrsta sinn tækifæri
til sumarleyfisdvalar á Kanaríeyjum. Fúsundir þekkja af eigin reynslu þessar
GRIKKLAND dagflug á þriðjud. Nýr og heillandi sumarleyfisstaður íslend-
inga. í fyrsta sinn beint flug frá íslandi til Grikklands, á rúmum 5 klst. Óviðjafn-
anleg náttúrufegurð og sögustaðir sem heilla. Góðar baðstrendur í fögru um-
hverfi í baðstrandarbæjum 15-25 km frá Aþenu. Fjölbreytt skemmtanalíf. Ný
glæsileg hótel og íbúðir. Einnig hægt að dvelja á hóteli og smáhýsahverfi á
eynni KRÍT. Reyndir íslenskir fararstjórar Sunnu á stöðunum.
KAUPMANNAHÖFN Tvisvar i mánuði janúar — april. Einu sinni i
viku mai — október. íslensk skrifstofa Sunnu opin i Kaupmannahöfn í Júni —
september, til þjónustu við Sunnufarþega.
LONDON Vikulega allan ársins hring.
AUSTtJRRlKI skiðaferðir.Til Kitzbuhel eða St. Anton.Brottför alla þriðjudaga
janúar—febrúar og mars, 7 eða 14 daga.
KANADA í samvinnu við vestur íslendinga getur Sunna boðið upp á
3 mjög hagstæðar flugferðir til Winnipeg. Brottfarardagar: 27. maí, 4 vikur. 26.
júní, 3 vikur. 15. júli, 3 vikur. Áætlað flugfargjald 54.800. Efnt verður til ferða ís-
lendinga i sambandi við flugferðirnar um islendingabyggðir nýja íslands, Banda-
ríkjanna, Calgary, og Kyrrahafsstranda. F>eim se'm óska útveguð dvöl á islenskum
heimilum vestra. Ceymið auglýsinguna.
FERflASKRIFSTOFAN SUNNA LffKJARGOTU 2 SIMAR 16400 12070