Þjóðviljinn - 23.01.1977, Blaðsíða 20
20 — SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. janúar 1977
Krossgáta
nr. 65
LÍNEV JÓHANNESDÓTTIR
KERLINCARSLÓniB
Stafirnir mynda islensk
orð eða mjög kunnugleg
erlendi heiti, hvort sem
lesið er lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt
númer og galdurinn við
lausn gátunnar er sá að
finna staflykilinn. Eitt
orð er gefið og á það að
vera næg hjálp, því að
með þvi eru gefnirstafiri
allmörgum öðrum
oröum. Það eru þvi eðlileg-
ustu vinnubrögðin aö
setja þessa stafi hvern i
sinn reit eftir þvi sem töl-
urnar segja til um. Einnig
er rétt að taka fram, aö i
þessari krossgátu t.
gerður skýr greinarmun-
ur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a
aldrei komið i stað á og
öfugt.
/ Z 3 H S V 6> V 7 8 9 10 11 12 /3 19 9 (9
/5- v / 1 /(> 10 s 10 11 S 10 IS S? 18 19 S 1
/ 20 19 22 2$ 9 $9 1 10 15' 12 2S 99 É 2(p
/ 13 21 /9 11 9? 9 H 19 9? /9 S 11 <y> 3 8 99 25
<? 9 75 <7 1 20 99 2S s 8 9 V 99 9 13 20 25
28 2S /r /7 9 * .<? 23 21 9 IS 8 13 S 9 <y>
29 S5 13 V 1 Ú 10 S <p 23 30 )0 íi <x> 21 9 $5
11 IS is 9- 2S 9 12 13 TT S 9 99 /3 30 9 99 %
)o 18 u- 9 /6 2* 2S /3 9 V 21 8 9 99 9 20 <?
'fT s) > <? 15' l(o V 9 2 1 23 S 21 2S <y> ) 20
)sr S £2 10 2? 9- S 1 2S 21 2S 2S S w 31 9 ir~
/3 9 / J?3 15 H-
Setjið rétta stafi i reitina
neðan viö krossgátuna. Þeir
mynda þá nafn á frægum skák-
snillingi. Sendiö þetta nafn sem
lausn á krossgátunni til af-
greiðslu Þjóðviljans, Siöumúla 6
Rvk., merkt „Verðlaunakross-
gáta nr. 64”. Skilafrestur er
þrjár vikur.
Verðlaun að þessu sinni eru ný
bók, Kerlingarslóðir eftir Lin-
eyju Jóhannesdóttur. Otgefandi
er Heimskringla. Liney hefur til
þessa verið fyrst og
fremst þekkt fyrir barnaleikrit
sin og barnasögur. Með þessari
bók haslar hún sér nýjan völl.
Sögutimi er frá vori til vetrar og
sögusviðið er Reykjavik nú-
timans. í sögunni er fjallaö um
vandamál sem ekki hefur fyrr
verið tekið til meðferðar i is-
lenskum bókmenntum, þ.e
börn unglingsstúlkna og afdrif
þeirra.
Verðlaun fyrir
krossgátu nr. 61
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 61 hlaut
Þóra K. Arnadóttir, Stórageröi 34 Rvk.
— Verðlaunin eru skáldsagan Kamala
eftir Gunnar Dal.
Lausnarorðið var SÆBORG
Undarlegur sértrúarflokkur:
Viðurkennir ekki
djöfulsins lævísa
, tæknispilverk
Skáldsögu
Hitler
gerist páfi
Nokkuð langur er oröinn listi
yfir þá menn sem vilja græða á
miklum áhuga á hcimsstyjöldinni
siðari og þá sérstaklega á aðai-
skipuleggjanda hennar, Adolf
Hitler.
Einn slikur er breskur reyf-
arahöfundur sem heitir Frederic
Mulley. Hann hefur samið skáld-
sögu sem gerir ráð fyrir þvi að
Hitler vinni striðið, enda heitir
bókin Hitler has won. Kemur það
þá á daginn, að Hitler hefur þann
metnað að gerast páfi, lætur hann
vigja sig til prests og handtekur
siðan Pius páfa og lætur krýna sig
á stól Péturs postula.
Sigur Hitlers er að visu ekki
langvinnur, þvi garpur einn úr
striðinu og fylgismaöur foringj-
ans gerist andnasisti og skýtur
hinn brúna páfa til bana á Péturs-
toginu. Sagan er full með klám og
fimmaurabrandara á borð við
þennan hér:
Hitler er orðinn páfi og segir við
fylgdarmann sinn: „HannGöring
ætlar að skrifta. Þér skulið trufla
okkur þegar tvær stundir eru
búnar, annarsverður hann aldrei
búinn að þessu, mannskrattinn.
Norður-Ameriku hefur oft veriö
likt við deiglu þar sem fólk af
ýmislegum uppruna hefur veriö
brætt saman i nýja þjóð. Hópar
innflytjenda hafa fyrr eöa siðar
reynt að sporna gegn þessari þró-
un i nafni trúar sinnar eða þjóð-
legra sérkenna, en flestir hafa
orðið aö láta undan hinum þunga
valtara amriskrar þróunar — eða
að minnsta kosti hafa þeir orðið
að semja um málamiðlun við
amriska fjölmiðlun, tækni og
lifnaðarhætti.
Einstaka sértrúarsöfnuðir hafa
samt reynst furðu þrautseigir.
Eru þarm.a. til nefndir svonefnd-
ir Amish. Amishar eru klofnings-
hópur úr hreyfingu mennonita,
sem I lok sautjándu aldar sögðu
skilið við trúbræöur sina sem
þeim fundust ekki nógu strangir i
trúnni. Var foringi þeirra Jakob
Amman, og við hann eru „amish”
kenndir. Flutti hann með liði sinu
vestur um haf frá Þýskalandi i
byrjun átjándu aldar.
Amishar eru nú taldir um 70
þúsundir og búa þeir i ýmsum
fylkjum, flestir þó I Lancaster
County 1 Pennsylvaniu. Þeir hafa
eftir föngum reynt aö lifa
nákvæmlega sama lifi og forfeður
þeirra, enda telja þeir nútima
tækni verk djöfulsins. Þeir nota
þvi ekki bila, hiusta ekki á út-
varp, horfa ekki á sjónvarp. Þeir
tala enn sin á milli þýska mál-
lýsku frá Pfalz. Þeir ganga I ein-
földum, heimaofnum klæönaði og
nota t.d. alls ekki hnappa. Karl-
menn eru I svörtum síðum frökk-
um og undir þeim i kragalausum
heimasniðnum skyrtum. Hatta
hafa þeir á höfði og skeggið vex
villt á vöngum þeirra. Konum er
banr.að allt prjál og lita þær út
ems og bændakonur á hollenskum
málverkum frá 17. öld. Börnin
eru klædd nákvæmlega eins og
foreldrar þeirra.
Átta börn i fjölskyldu
Amisharnir hafa átt i ýmsum
útistöðum við löggjafarvaldið.
Þeir hafa barist fyrir þvi að hafa
börnin I eigin skólum, þar sem
þau fá mjög naumt skammtaða i
einum bekk þá þekkingu sem ætt-
feðurnir telja nægja til grandvars
lifernis. Þeir hafa lika neitað að
gegna herþjónustu — og þeir
neita einnig að hengja rauða raf-
magnslukt aftan á hestvagna
sina.
Meðalfjölskylda i þessum
skrýtna söfnuði á átta börn, enda
er þaö lifsregla hjá þessu fólki, að
„hvert vor sé nýtt barn i vögg-
unni”.
En þrátt fyrir þrjósku amisha
er upplausn i þeirra liði. Einna
mest hefur það truflað þá I
Lancasterhéraði i Pennsylvaniu,
að hinir skrýtnu lifnaðarhættir
þeirra hafa dregiö þangað um
þrjár miljónir túrista á ári
hverju. Amisharnir eru þar meö
orðnir einskonar furðuskepnur I
dýragarði. Og feröamanna-
straumurinn hækkar stórlega
lóða-og jarðaverð i héraöi þeirra,
og truflar möguleika þeirra á að
reka sinn búskap með fornum
hætti — en búskapur þessi er ein-
mitt það sem hingað til hefur
bjargað þeim frá snörum þess
andskota sem býr i borgum og
notar tryllitæki.
Og þvi er hvislað, að furðu
margir amishar feli transistor-
tæki undir stórum höttum sinum
eða kápum....
Amishar I Pennsy.lvaniu: Lifa elns og forfeður þeirra um 1800