Þjóðviljinn - 15.03.1977, Side 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 15. mars 1977
Fjárhagsáœtlun
Húsavíkur 1977
Bæjarstjórn Húsavikur samþykkti á fundi sinum 10. febrúar s.l. fjár-
hagsáætlun Húsavikurbæjar fyrir áriö 1977.
Helstu tekjuliðir á rekstrarreikningi bæjarsjóðs eru:
a. Útsvör kr. 140.088.000.00
b. Fasteignagjöld kr. 39.870.000.00
c. Framlag úr Jöfnunarsjóði kr. 28.580.000.00
d. Aðstööugjöld kr. 24.032.000.00
e. Hlutdeild i tekjuskatti
Johns Manville h.f.
kr. 15.000.000.00
Helstu gjaldaliðir á rekstrarreikningi bæjarsjóðs eru:
a. Yfirstjórn kaupstaðarins kr.
b. Almennar tryggingar og félagshjálp kr.
c. Fræðslumál kr.
d. Vaxtakostnaður kr.
e. Hreinlætismál kr.
f. Æskulýðs- og Iþróttamál kr.
31.450.000.00
31.370.000.00
25.505.000.00
18.050.000.00
13.605.000.00
12.905.000.00
Helstu gjaldaliöir á eignahreyfingarreikningi eru:
a. Götur, gangstéttir og holræsi kr.
b. Byggingarframkvæmdir kr.
c. Framlag til Dvalarheimilis aldraðra kr.
d. Iþróttamannvirki kr.
57.350.000.00
71.000.000.00
18.000.000.00
5.800.000.00
Lækkandi verð á þakjárni
Verðlag á þakjárni hefur farið
lækkandi að undanförnu, að þvi
er segir i Sambandsfréttum.
Frá þvi að innkaup á járni voru
gerð á slðasta ári og fram á
hausthækkaöi verðiðum 20% en
lokt s.l. byrjaöi það að lækka og
er nú verðiö orðið lægra en á
sama tima I fyrra.
Heildarinnflutningur á þak-
járni hefur árlega verið um
4000-4500 tonn, nú um sinn, og
þar af kaupir SIS nú á annaö
þús. tonn. SIS kaupir járnið frá
Belgíu og verður þaö flutt beint
til kaupfélaganna viö flestar
hafnir landsins.
—mhg
Fasteignasalan sem er í yðar
þjónustu býður yður að
sjálfsögðu alla aðstoð við
kaup og sölu fasteigna.
Spörum hvorki tíma né
fyrirhöfn við að veita yður
sem besta þjónustu
dSdPCp fasteignasala
Öldugötu 8
símar: 28644 : 28645
Solumaður
Fmnur Karlsson
heimasími 43470
Valgarður Sigurðsson log^r.
Arshátíð
Alþýðubandalagsins á Suðurlandi verður
haldin föstudaginn 18. mars kl. 21:00 i Sel-
fossbiói.
Dagskrá:
Ávarp
Upplestur.
Gamanvisur
Dans.
Fjöimennið.
FRA FASKRUÐSFIRÐI
'*k , \v ■ r’ <- \'' %*&'*$£*£*'**/* *’
- Vv.:: ■ ■ :■ :
Góður affti
og atvinna
Eftirfarandi fréttir bárust
Landpósti frá tlðindamanni
Þjóöviljans á Búðum við
Fáskrúðsfjörð, Birgi
Sigurðssyni, þann 8. þ.m.:
Enn berst loðna.
Hingaö hafa nú borist um
11.500 lestir af loðnu til bræðslu.
Siðast I dag landaði Skirnir AK
hér 400 lestum. Bræðsla hefur
gengið ágætlega, en verksmiðj-
an bræðir um 200 lestir á sólar-
hring. Nú er allt þróarrými fullt
en á morgun tæmist einn tank-
ur.
í hraöfrystihúsi Pólarsildar
h/f hafa verið frystar um 60
lestir af loðnu, og er þaö aöeins
brot af þvi, sem unnt hefði verið
að anna. Kemur þaö m.a. til af
þvi, að þróarrými verksmiöj-
unnar erlltið og þvi koma bátar
sjaldan með loönufarm hér inn
og ennfremur hafa margir
farmar verið slæmir, loðnan
smá og léleg til frystingar.
Loönu hefur verið ekið hingað
á bilum frá Stöðvarfirði,
Reyöarfirði og Eskifirði.
Afferming loðnuafurða hefur
gengið greiðlega, farnar eru 900
lestir af mjöli og 500 af lýsi.
Tveir bátar eru gerðir út á
loðnuveiðar héðan frá Fá-
skrúðsfirði en það eru Hilmir,
sem fengið hefur um 11 þús.
lestir og Flosi, sem er með um
4.300 lestir
Mikill fiskur — mikil
vinna
Togararnir Hoffell og Ljósa-
fell hafa aflað ágætlega frá ára-
mótum og er afli þeirra nú orð-
inn rúmar eitt þús. lestir sam-
tals. 1 siðustu viku lönduðu þeir
hér báðir, Hoffelliö 160 lestum
og Ljósafell 80 lestum. Afli Hof-
fells var geysiinikill i þessari
veiðiferð og fyllilega ástæða til
þess að segja frá hónum I
fréttum, en ekki hefi ég orðið
var við að t.d. fréttaritari
útvarpsins hafi séö ástæðu til
þess að senda slika frétt.
Togararnir leggja upp afla
sinn hjá Hraðfrystihúsi Fá-
skrúðsfirðinga en hjá hrað-
frystihúsi Pólarsildar h.f.
leggja upp bátarnir Þorri og
Sólberg. Þeir hafa stundaö veið-
ar með linu þar til nú fyrir
stuttu að þeir tóku net. Afli á lin-
una var ágætur frá áramótum
en hinsvegar var langsótt.
Óhætt er að segja að vel liti út
með netaveiðina, þaö sem af er.
Þorri landaði i dag 36 lestum.
Fiskurinn er verkaður bæöi i
frystingu og salt hjá báðum
vinnslustöövunum. Hjá Hrað-
frystihúsi Fáskrúðsfirðinga
hafa verið frystir 6000 kassar og
saltaðar um 130 þús. lestir.
Mikil vinna hefur veriö við
fiskvinnsluna og geta allir feng-
iö vinnu, sem vilja, m.a. vinnur
margt fólk úr sveitunum i kaup-
túninu um þessar mundir. Sumt
af verkafólkinu er þó lengra að
komið. Siöan i janúar hafa unnið
hér hjá Hraðfrystihúsi Fá-
skrúðsfirðinga 10 útlendar
stúlkur og hafa reynst ágætir
starfskraftar. Eru þær frá Skot-
landi, Nýja Sjálandi og Astraliu.
Snjóflóð í Skriðum
Samgöngur hafa verið meö
besta móti þaö sem af er vetri
og vegir aldrei verið ófærir
marga daga i senn. I siðustu
viku snjóaði nokkuð og bleytti
svo. Snjóflóð hafa viða falliö I
fjöllum og i skriðunum milli
Vattarness og Skálavikur féllu
snjóflóö á þjóðveginn bæði á
sunnudag og i gær. Engir bilar
uröu fyrir þessum snjóflóðum,
sem betur fer, þvi að ekki heföi
þá af þeim þurft að spyrja. I gær
munaði hinsvegar ekki miklu að
illa færi, þar sem snjóflóð féll
rétt framan við bensinflutn-
ingabil, sem var á leið héðan til
Eskifjarðar. Vegurinn er nú
aftur orðinn fær.
Rólegt mannlíf.
Þaö vill oft veröa svo, að lifiö I
kauptúnum landsins mótast
fyrst og fremst af atvinnunni.
Svo er einnig hér. Vinnan tekur
mestan tima manna. Félagslif
er þvi tæpast um að tala I eigin-
legum skilningi. Hinsvegar eru
haldin ýmis mannamót, þorra-
blót og dansleikir og hafa verið
vel sótt. Af andlegri iðkan fara
hinsvegar fáar sögur.
bs/mhg
bækur
Earey Rome and the
Etruscans.
R.M. Ogilvie. Fontana/Collins
1976.
Þetta er fyrsta bindi Fontana
útgáfunnar i bókarööinni „Font-
ana History of the Ancient
World”. Höfundur þessar bók-
ar hefur sett saman nokkr-
ar bækur um rómverska sögu
og triiarbrögð. Hann rek-
ur sögu Rómar allt frá komj
etrúska til Rómar um 600 f.Kr.
og til þess tima að gallar
hertaka Róm 390 f. Kr. öll þessi
saga er mjög erfið viöfangs, ýms-
ir hafa leikið sér að sögu etrúska
og látiö imyndunaraflið ráða um
of og byggt kenningar sinar á
mjög hæpnum forsendum. Ogil-
vie vinsar úr frumheimildum það
sem má með öryggi segja aö hafi
gerst og ekki hafi gerst. Það er
full þörf á handhægri útgáfu af
sögu Rómar, fornleifafræðin hef-
ur verið vegvisir siðustu áratug-
ina um myrkviði þessarar sögu
og margt hefur komið i ljós, sem
áður var ekki vitað og ýmsar
kenningar, sem áður voru taldar
fullgildar, misst gildi sitt. Forn-
leifafræðingar hafa ekki verið á
eitt sáttir um timasetningu fyrstu
byggðar á þeim slóðum þar sem
Rómaborg stendur. Það getur
skakkað nokkrum öldum um
timasetninguna, en vist er aö þaö
voru tvenns konar samfélög mjög
snemma þar sem nú er Róm,
annaö samfélagið var á Palatine-
hæöinni hitt Esquline-hæö.
Greftrunarsiðir þessarara sam-
félaga voru fráburgðnir hvorir
öðrum leirkerastlllinn einnig, svo
að Róm verður ekki einnar þjóðar
eða eins samfélags borg fyrr en
siðar. Höfundurinn hefur dregið
saman nýjustu vitneskju um
borgina eilifu og kemur henni til
skila á auðskilinn og vandaðan
hátt. Þetta er vel skrifuð bók og
þörf.
Die Texfuberlieferung der
anfiken Liferatur und der
Bibel.
Von H. Hunger, O. Stegmuller
u.a. Mit einem Vorwort von
Martin Bodmer. Deutscher
Taschenbuch Verlag 1975.
1961 komu út tvö bindi hjá
Atlantis-útgáfunni i Zlirich með
þessum titli, annað bindið f jallaði
um miöaldir. Nú er fyrra bindi
þessarar útgáfu hér gefiö út, ann-
að bindið veröur ekki endurprent-
að að svo stöddu. Hér er rakin
saga varðvéislu handrita fornaid-
ar og þeirra breytinga sem á
þeim uröu eftir þvl sem timar
liðu. Agætur inngangur fylgir,
þar sem er rakin saga bókagerð-
ar frá upphafi og fram til loka
fornaldar. Agætar bókaskrár og
höfunda og safnskrár fylgja
þessari endurprentun. Þetta er
mjög þörf handbók fyrir þá sem
stunda klassisk fræði og guöfræöi.