Þjóðviljinn - 16.03.1977, Qupperneq 12
12 SIÐA — ÞJÓOVILJINN Miövikudagur 16. mars 1977
ÁSKORENDAEINVÍGIN 197
Enn eití jafnteflið á Loftleiðahótelinu
Spasskí á örugg svör við
varfæmistafknennsku Horts
sem ekki lét til skarar skríða í gær frekar en fyrri daginn
og aukast nú vinningslíkur Spasskís enn frekar
HORT
SPASSKY
Enn einu sinni lét tékk-
neski stórmeistarinn Hort
sér nægja jafntefli í ein-
vígi sínu gegn Spasskí í
gær. Hort hafði hvftt og
náði öllu þægilegri stöðu,
en Spasskf byggði upp
örugga varnarstöðu og
Hort komst ekkert áleiðis.
Með sama áframhaldi,
sem Spasski er áreiðan-
lega fús til að velja, er Ijóst
að úrslit einvigisins eru
ráðin. Hort á ekki um ann-
an kost að velja heldur en
að ráðast til atlögu, var-
færnisleg taflmennska
hans er greinilega ekki til
þess fallin að vinna upp
forskot Spasskís, sem hef-
ur ævinlega svör á reiðum
höndum.
En i gær lagði Hort ekki I aö
flækja stöðuna. Það hlýtur þó aö
vera eini möguleiki hans á meðan
Spasski teflir til jafnteflis, en um
leið er tekin áhætta, sem leitt get-
ur til vinnings eða taps á báða
bóga. Slika áhættu hafa áhorfend-
ur á Loftleiðahóteli ekki enn feng-
ið að sjá; báðir hafa stórmeistar-
arnir teflt af varfærni, en annar
þó i allt öðrum tilgangi en hinn.
Spásski stefnir nefnilega með
sama áframhaldi að vinningi i
einviginu á meðan aðstaða Horts
verður æ erfiðari. Og i næstu skák
hefur tékkinn svart og er þvi jafn-
vel i taphættu, a.m.k. ef hann
heldur ekki að sér höndum og
raðar mönnum sinum i vörnina.
Vonbrigði áhorfenda i gær urðu
mikil. Menn bjuggust við geysi-
legum átökum; nú hlyti Hort að
geysast i sókn með hvltliða. En
það var öðru nær. Tékkinn hafn-
aði að visu jafnteflisboði Spasskis
einu sinni, en eftir aðeins 25 leiki
stóðu kapparnir þó upp frá nánast
ótefldri skák og skiptu bróðurlega
með sér vinningnum. Þá höfðu
þeir þráleikið um stund og er þvi
ekki hægt að segja hvor hafi boðið
samninginn i gær.
Hvitt: Vlastimil Hort
Svart: Boris Spassky
Spánskur leikur.
1. e4-e5
2. Rf3-Rc6 3. Bb5-Bc5
(Hér tók Hort sér góða umhugs-
un, samfleitt 30 minútur. Hvað
var maðurinn að hugsa? spurði
einhver. Sjálfsagt var hann að
gera það upp við sig hvort hann
ætti að leika 4. c3 sem myndi
leiða til snarpra átaka eftir 4. -
f5. Nei, Hort liggur greinilega
ekkert á að jafna metin, og vel-
ur þvi rólegra framhald.)
4. o-o
(Þessi skák verður skjótt jafn-
tefli sagði annar og yfirgaf sal-
inn. Hann reyndist sannspár.)
4. -Rd4
5. Rxd4-Bxd4 7. d4-c6
6. C3-Bb6 8. Bc4
(Mun algengara framhald er 8.
Ba4. Nefna mætti t.d. skákina
Ljubojevic-Durao, en þar varö
framhaldið 8.-d6 9. Ra3 Bc7 10.
d5 Bd7 11. dxc6 bxc6 12. Rc4 De7
13. f4 og hvitur náði betri stöðu
og vann sannfærandi.)
8. -d6
9. Db3-Dc7 11. a4-Rf6
10. dxe5-dxe5 12. a5
(Þegar hér var komið sögu tóku
ýmsir áhorfendur andköf. Peös-
fórn? Nei, peðið er baneitrað i
öllum sinum einfaldleika: 12. -
Bxa5 13. Bxf7+ og hvitur nær
yfirburðum.)
12. -Bc5
13. Dc2-0-0 16. Rb3-c5
14. b4-Be7 17. b5-h6
15. Rd2-Bd7 18. Be3-Had8
(Hvitur hefur örlital yfirburði,
en Hort skortir alla reisn til að
gcra sér mat úr þeim yfir-
burðum og skákin koðnar niður I
jafntefli.)
Dr. Euwe vill halda skrif-
stofu FIDE i Amsterdam
erfitt að lægja ófriðaröldurnar í alþjóðasambandinu, segir Friðrik
Eins og skýrt er frá á
forsiðu blaðsins i dag
heimsótti hinn hol-
lenski forseti alþjóða-
skáksambandsins
Friðrik ólafsson til
Bad Lauterberg i gær
Fór Euwe þess á leit
við Friðrik að hann
tæki við forsetastarfinu
að ári liðnu, en sjálfur
er Euwe farinn að full-
orðnast mjög og treyst-
ir sér ekki til þess að
gegna þessu átaka-
mikla starfi lengur.
Vafalaust hefur Euwe
ekki sist augastað á
Friðriki vegna tiltölu-
legs hlutleysis íslands í
pólitiskum erjum sam-
bandsins, og má e.t.v.
segja að Friðriki sé
ekki einasta stillt upp á
milli stórvelda aust-
urs og vesturs, heldur
lika suðurs. Hinar fjöl-
mörgu þjóðir i Asiu og
Suður-Afriku seilast
nefnilega til siaukinna
valda, og ljóst er að
sameinist Evrópulönd-
in ekki um einn ákveð-
inn frambjóðanda
munu veldin i suðri
koma sinum mótfram-
bjóðanda að.
— Ég get nú ekki sagt að ég sé
neitt sérstaklega spenntur fyrir
þessu tilboði, sagði Friðrik. —
Það eru i vændum áframhald-
andi pólitiskar erjur i FIDE og
margs konar erfiöleikar siðustu
árin munu væntanlega ekki lag-
ast til muna á næstunni. En hitt
er svo annað að maður fengi
þarna tækifæri til þess að koma
til leiðar ýmsum málum og lag-
færingum, sem hingað til hafa
setið á hakanum hjá FIDE.
En maður hefur ekki mikla
löngun til að glima við pólitisku
vandamálin, a.m.k. eru þau lftt
freistandi svona á að lita úr
fjarska. Ég hef harmað þaö
opinberlega að FIDE skuli hafa
verið notað sem pólitiskt meðal
i gegnum árin og ef þess er
nokkur kostur mundi ég hamla
gegn þeirr þróun eftir mætti. En
það er ekki létt verk, maður
segir ekki já við alla svo að allir
séu ánægöir, og vandinn fyrir
forseta FIDE hverju sinni hlýt-
ur að vera að þræða hinn gullna
meðalveg.
— En hvað um atvinnu-
mennsku þina i skákinni?
— Mér sýnist nú augljóst að
ef ég tæki að mér þetta starf
yrði ég um leið að leggja tafl-
mennskuna á hilluna, og e.t.v.
ermaðuralls ekki reiðubúinn til
þess eins og sakir standa. Euwe
var að visu á annarri skoðun og
sagði það ekki verulegum vand-
kvæðum bundið að tefla áfram,
en ég fæ ekki séð nokkurn
möguleika á þvi i fljótu bragði.
— Flytjast skrifstofur FIDE
þá til Islands?
— Ekki ef farið verður að
óskum núverandiforseta. Euwe
iýsti þeim áhuga sinum að skrif-
stofurnar yrðu áfram i Amster-
dam, sem vissulega liggur mið-
svæöis I Evrópu og er miðdepill
skáklifsins f heiminum oft á tið-
um. En hitt er lika mögulegt að
skrifstofurnar yrðu fluttar til
Reykjavikur.
Fleiri um hituna
Fyrir tiu dögum siðan lýsti
Max Euwe þvi yfir að júgóslav-
neski stórmeistarinn Gligoric
væri mjög vel til þess fallinn að
gegna forsetastarfinu.
Júgóslavia hefur i skákheimin-
um ekki verið talin frekar með
austurblokk heldur en vestur-
blokk og varðveitt hlutleysi sitt
eins og mögulegt hefur verið.
Gligoric þykir ekki ósvipaður
persónuleiki og Friðrik og hann
teflir einnig á mótinu f Bad
Lauterberg. Aðspurður sagðist
Friðrik ekki hafa hugmynd um
hvort Euwe hefði rætt við
júgóslavann um sama mál.
— Mér þykir það hins vegar
afar ótrúlegt, sagði hann. —
Euwe segist geta tryggt mér
nægilegan stuðning til að fá
starfiðeféggefkostámérog þá
hlýtur hann að ráða yfir at-
kvæðum Evrópuþjóðanna og
Bandaríkja Noröur-Ameriku.
Klofningur þessara þjóða um
tvo menn myndi leiða til þess,
aö Asfa og Afrfka gætu samein-
ast um eitt framboð og komið
þar að slnum manni. Svo ég trúi
þvi varla að Euwe hafi tvo menn
I takinu i einu.
—gsp
19. Hfdi-Bc8
20. f3-b6 23. Bd5-Rf6
21. Da2-Hxdl 24. Bc4-Re8
22. Hxdl-Re8 25. Bd5-Rf6
Ul Á 111 3. M
k ■ yty ■ m ■ B
A ■ í ■ Wm
mm iil ip A ÆL ,,
m © pg m | wm
■ Wm mm Wt á
B « S ■
Hér lét Hort á sér skilja að hann ,
hefði gefist upp á öllum vinn-
ingstilraunum og bauð jafntefli,
sem Spassky að sjálfsögðu þáði.
mmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Smyslov
í kröpp-
um dansi
Aðstoðarmaður Spasskis á
Islandi, stórmeistarinn og
fyrrverandi heimsmcistarinn
Vasiii Smyslov, lenti i kröpp-
um dansi er hann tefidi við
bankamenn i fyrrakvöld. Þar
mætti hann harðsnúnu liði,
samtals 34 mönnum, og stór-
meistarinn varð að sætta sig
við tvö töp, fjórtán jafntefli og
aðeins átján vinninga. — Þetta
var geysilega sterkt fjöltefli,
sagði Smyslov við Þjv.-mann I
gær,— rnargir meistarar voru
i hópi andstæðinga minna
þetta kvöld.
Aðstoðarmaður Horts,
Alster, tefldi hins vegar i
fyrrakvöld við leigubifreiða-
stjóra hjá BSR. Fjölteflið fór
fram f Skákstofunni við Haga-
mel,og vann Alster niu skákir
en gerði tvö jafntefli.
Smyslov sagðist reikna með
að tefla a.m.k. tvö fjöltefli til
viðbótar hér á landi. Annað
yrði væntanlega á Akureyri,en
hitt i kaupstað nær Ryekja-
vik.
Þeir, sem sigruðu heims-
meistaránn fyrrverandi voru
Guðjón Sigurðsson, Leifur
Jósteinsson.
Þeir, sem gerðu jafntefli
voru Bragi Björnsson, Bragi
Kristjánsson, Guðjón Jó-
hannsson, Gunnar Björnsson,
Gunnar Gunnarsson, Her-
mann Stefánsson, Hilmar
Karlsson, Hilmar Viggósson,
Jóhann örn Sigur jónsson,
Kristján A. Jóhannesson, Ólöf
Þráinsdóttir, Sólmundur
Kristjánsson, Stefán Þormar
Guðmundsson.