Þjóðviljinn - 16.04.1977, Síða 5
Laugardagur 16. aprll 1977 WóÐVILJINN — StÐA 5
Eystelnn Jónsson vlð opnun kynningaryikunnar í gær:
Eystcinn Jónsson flytur ávarp
Frá setningu kynningarvikunnar
Náttúruvernd stendur og
fellur með því hverju hin
ahnennu samtök fá orkað
Þessa dagana stendur yfir i
Norræna húsinu kynningarvika
Sambands islenskra náttúru-
verndarfélaga og Landverndar.
Þar kynna félögin starfsemi
sina og markmið með erinda-
flutningi og umræðum og
sýndur er mikill fjöldi mynda úr
islensku náttúrulifi.
En hver eru þá verkefni og
markmið islenskra náttúru-
verndarmanna? í sem stystu
máli má segja, að þau séu i þvi
fólgin að vernda náttúru lands-
ins og nýta auðlindir þess af
skynsemi og yfirvegun. Sam-
tökin leitast við að koma i veg
fyrir hverskonar spjöll á lands-
lagi, gróðri og dýralifi og sporna
við þeirri margháttuðu mengun,
sem er hvimleiður fylgifiskur
hins iðnvædda nútimaþjóð-
félags. Þau vilja vinna að þvi að
bæta sambúð manns og lands,
bæta skipulag byggðar og
landsnytja, að mannvirkjagerð
samræmist sem best umhverf-
inu, vernda sögulegar minjar.
Fræðslustarfsemi
Naumast fer milli mála, að
náttúruspjöll hverskonar eru oft
framin vegna vanþekkingar.
Kæruleysi er þar ekki ávallt um
að kenna þótt þess gæti oftar en
skyldi. Fyrir þvi er fræðsla um
náttúruvernd og þýðingu henn-
ar mikilvægur þáttur i starfi
náttúruverndarfélaganna. Sú
fræðsla er ma. fólgin i útgáfu-
starfsemi, sýningum og funda-
höldum. Samtökin leggja sig
fram um að afla vitneskju um
þær framkvæmdir, sem fyrir-
hugaðar eru á hverjum stað og
leitast við að hafa hönd i bagga
með að þær raski umhverfinu
sem allra minnst.
Friðlýsing
Um allt land má finna ein-
staka staði, sem framúrskar-
andi eru að fegurð og fjöl-
breytni eða fágætir af öðrum
ástæðum. Náttúruverndarmenn
beita sér fyrir varðveislu þess-
ara dýrgripa i upprunalegri
mynd þeirra og vinna að skrá-
setningu þeirra. Hefur tekist um
það áhrifarikt og ánægjulegt
samstarf við Náttúruverndar-
ráð. Margirslikir staþir hafa nú
verið friðlýstir, i samráði við
éigendur, — og mun þó betur
mega ef duga skal.
Hlutverk Sambandsins
Samtök náttúruverndar-
manna ná nú yfir landið allt, og
hafa myndað með sér lands-
samtök: Samband isl. náttúru-
verndarfélaga. Hlutverk sam-
bandsins er einkum það, að efla
samstöðu félaganna, að skipu-
leggja sameiginleg verkefni, að
annast samskipti við önnur
félög og stofnanir og að vera
félögunum til ráðuneytis i ýms-
um efnum.
Stjórn Sambandsins er skipuð
formönnum aðildarfélaganna,
sem koma saman til árlegs
aðalfundar og aukafunda er
þurfa þykir. Forseti Sambands-
íns er kosinn til eins árs i senn
og er nú Helgi Hallgrimsson.
Landshlutasamtökin eru aðilar
að Landvernd. Þá hafa þau og
samstarf við Náttúruverndar-
ráð og náttúruverndarnefndir i
bæjum og sýslufélögum. Tekið
hefur verið upp samstarf við
náttúruverndarsamtök á hinum
Norðurlöndunum, i Bretlandi og
Þýskalandi. Sambandið er aðili
að Alþjóða náttúruverndarsam-
bandinu, en það hefur aðsetur i
Sviss.
Spegilmynd náttúrunnar
I kynningarbæklingi sem gef-
inn hefur verið út um sýninguna
komst Helgi Hallgrimsson, for-
seti Sambands islenskra nátt-
úruverndarmanna, m.a. svo að
orði:
— Hér hafa margir lagt hönd
á plóginn til að sýningin mætti
verða sem fullkomnust, miðað
við aðstæður. Yðar gesta er að
dæma um árangurinn. Efalaust
ber sýningin þess merki að
hönnuðir eru margir og hafa
haft mismunandi sjónarmið og
misjafnt fegurðarskyn. Þannig
er sýningin lika spegilmynd
náttúrunnar, með öllum sinum
fjölbreytileik.
Ollum, sem lagt hafa hönd á
undirbúning sýningarinnar er
hér með þakkað, en sérstaklega
þó þeim Stefáni Erni Stefáns-
syni og Hjörleifi Stefánssyni,
sem höfðu yfirumsjón með gerð
sýningarinnar og gerðu sitt
besta til að gefa henni samræmt
og kurteislegt yfirbragð.
Við opnun kynningarvikunnar
i gær fluttu ávörp Lára Odds-
dóttir frá tsafirði, Vilhjálmur
Hjálmarsson, menntamála-
ráðherra, Eysteinn Jónsson,
formaður náttúruverndarráðs
og Hákon Guðmundsson.
—mhg
Við biðium griða fyr-
ir náttúru landsins J
Forseti Islands, menntamála-
ráðherra og aðrir gestir. Fyrir
hönd Sambands islenskra
náttúruverndarfélaga býð ég
yður öll hjartanlega velkomin
til upphafs þessarar kynningar-
viku.
Nú er vor i lofti og farfuglar
óðum að koma. Við erum einnig
hér staddir, nokkrir furðufuglar
úr ýmsum byggðum landsins,og
biðjum um áheyrn yöar.
Við höfum boðið yður hingað
af þvi að við þykjumst hafa ein-
hvern boðskap að flytja, boð-
skap sem aö visu er ekki nýr á
nálinni, en þó ekki á allra vör-
um.
Við biðjum yður þvi að leggja
við hlustirnar og leyfa augunum
að sjá. Þaðsem við viljum segja
er i stuttu máli þetta: — Við
biðjumst griða fyrir náttúru
landsins, móöurina miklu, sem
hefur aliö okkur og fóstrað. Við
biðjumst vægðar fyrir lifið i
landinu, fyrir bræður okkar og
systur meðal jurtanna og meðal
dýranna, sem lif okkar byggist
á, en er varnað máls og hafa enn
mjög takmörkuð réttindi i okkar
réttarriki. Við biðjumst vægðar
fyrir okkur sjálf, börn landsins.
Þetta er okkar erindi við yður
og við alla þá, sem á okkur vilja
hlýða eða horfa á það sem við
höfum tilreitt hér. Viö höfum
reynt að túlka þennan boðskap
nánar i máli og myndum og
gera hann hverjum manni að-
gengilegan, svo sem við höfum
vit til. Við biðjum yður að visa
honum ekki á bug heldur hug-
leiða hann.
Það má ef til vill kallast djarft
fyrirtæki af fámennum félögum
úr hinum dreyfðu byggðum
landsins, að efna til slikrar
kynningar hér, i háborg gróðans
og peningavaldsins. Við vonum
þó, að meö þvi takist okkur að
vekja ofurlitla athygli á við-
fangsefnum okkar og þá er til-
ganginum náð.
Að lokum viljum við þakka
öllum, sem lagt hafa hönd að
undirbúningi sýningarinnar og
dagskrárliðanna eða koma þar
fram. Sérstaklega ber okkur að
þakka Norræna húsinu fyrir
þann skilning, sem það hefur
sýnt málefnum okkar, með þvi
að umbera okkur hér i heila
viku og taka þátt i boði hins
norska gests, sem hingað er
væntanlegur innan fárra
klukkustunda.
Ég lýsi þvi svo yfir, að
kynningarvika Sin hefur verið
opnuð.
Ávarp Láru Oddsdóttur við opnun kynningarvikunnar