Þjóðviljinn - 16.04.1977, Page 20

Þjóðviljinn - 16.04.1977, Page 20
MOÐV/IMN Laugardagur 16. aprll 1977 Aðalsfmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Útan þessa tima er hægt aö ná I blaðamenn og aðra starfs- menn blaðsins f þessum sfmuim Ritstjörn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. @81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans f sfma- skrá. Getur nokkuð gott komið fráatvinnu- rekendum? Verið er að undirbúa breyting- ar á vinnufyrirkomulagi við ræstingar á barnaheimilum borgarinnar svipaðar og urðu fyrir nokkrum árum i skólunum. Verður þá tckið upp svokallað timamæit ákvæði i stað þess að áður var greitt fyrir ákveðinn fcr- metrafjölda. Til grundvallar þessu tímamælda ákvæði liggja útreikningar, sem verkfræði- skrifstofa Helga Þórðarsonar gerir og er þá allt skrifað upp og mæit og fundin út ákveðin tima- cining, sem fer i að vinna hvert verk. Eftir þessa útreikninga er svo ákveðið timakaup, sem er 677 kr. á timann. Það eru samtök atvinnurek- enda, sem fara fram á þessar breytingar og á skrifstofu Verka- kvennafélagsins Framsóknar fékk blaðið þær upplýsingar að breytingarnar væru til bóta fyrir verkakonurnar, sem vinna þessi verk. Ef þær færu eftir þeirri verk- lýsingu, sem þær fá i hendur eftir að hafa lært hin nýju vinnubrögð ættu þær að hafa meira kaup eftir en áður. Hins vegar vildi verða mis- brestur á að konurnar færu nógu vel eftir verklýsingunni og gerðu oft meira en til væri ætlast og einnig gætu mælingarnar stund- um ekki staðist en þá ættu þær að kvarta við verkalýðsfélagið, og yrði stykkið þá mælt að nýju. Framsókn fer yfir alla út- reikninga og leggur blessun sina yfir þá áður en þeir koma til framkvæmda. Vonandi er það rétt að hér sé um að ræða bættan hag ræstinga- fólks, en einhvern veginn hvarflar að manni það sem sagt' var austur i Gyðingalandi forðum daga: „Getur nokkuð gott komið frá Nasaret?” —hs Mesta atvinnuleysi eftir stríö PARIS 15/4 Reuter — Atvinnu- leysingjar i Frakklandi voru rúmlega miljón talsins i mars, samkvæmt skráningu, og hafa aldrei verið fleiri þar i landi eftir siðari heimsstyrjöld. 1 febrúar voru rúmlega 972.000 frakkar skráðir atvinnulausir. Þetta þýðir að 4,6% vinnuaflsins i Frakklandi eru nú án atvinnu. Á morgun hefst að Kjar- valsstöðum Brúðuleikhús- vika, sem Félag áhuga- fólks um brúðuleikhús stendur að og verða f jórir aðilar með leikbrúðuverk i gangi alla vikuna. Leikbrúðuland sýnir Meistara Jakob, 10 litla negrastráka og Fræið. Jón Guðmundsson og Leikbrúðuland sýna Að skemmta skrattanum, i leikgerð Helgu Hjörvar.en efnið er sótt i þjóðsög- ur. Þá kemur fram á sjónarsviöið nýtt brúöuleikhús, sem hefur val- Hallveig Thorlacius og Helga Steffensen frá Leikbrúðulandi með leikbrúður, scm vcrða á sýningunni. Ljósm. gel. ið sér nafnið Brúðuheimilið og sýnir nýtt verk eftir Nínu Björk Árnadóttur og nefnist það Steinn- inn sem hló. Og einnig kemur i heimsókn sænskt brúðuleikhús, sem leikur hér gestaleik þrisvar sinnum, nk. sunnudag, mánudag og þriðjudag.. Þegar blaðam. leit inn á æfingu i gær var verið að æfa Steinninn sem hló. Leikarar eru 5.en leikur- inn fjallar um litinn strák, Steina, og móður hans, sem er að byggja og vinnur þvi tvöfalda vinnu. Hún hefur litinn tima til að sinna Steina. en einu sinni þegar þau fara niður i fjöru gerist nokkuð merkilegt. Þau hitta hláturmild- an stein og einnig sel, sem reynist vera kennari Steina i álögum. Ekki er vert að rekja efni leiksins frekar, en óhætt mun að segja að bæði börn og fullorðnir muni hafa af honum gagn og gaman. Hin verkin sem flutt verða á Brúðuleikhúsvikunni eru einnig hvert öðru vandaðra og i verkinu Að skemmta skrattanum eru fluttar rimur eftir Þorgrim Starra. Alla vikuna verður auk þess sýning á leikbrúðum og verður hún opnuð kl. 2 á morgun en fyrsta leiksýningin hefst kl. 3 og verður þá sýnt Að skemmta skrattanum. Sýningar verða siðan daglega og oftar um helgar en vikunni lýkur sunnudaginn 24. april. —hs Frá æfingu á Stcininum sem hló. — Ljósm: gel Bemhöftstorfan er tákn fyrir húsafriðun abnennt segja íslendingar í Lundi Blaöinu hefur borist eftirfar- andi fréttatiikynning frá samtök- um islendinga I Lundi i Sviþjóð: — Eins og kunnugt er hafa þau tiðindi gerst að Bernhöftstorfan i Reykjavik hefur orðið fyrir miklu tjóni vegna ikveikju. Stjórnvöld hafa látið húsin á torfunni drabb- ast niður i óreiöu undanfarin ár en Torfusamtökin hafa dyggilega reynt að sporna við að þessi hús og sögulegar minjar og menn- ingarsvæði höfuðborgarinnar yrðu hreinsunareldinum að bráö. Samtökin hafa fengið miklu áorkað i baráttunni og mótað örugga stefnu i húsfriðunarmái- um okkar islendinga. Bernhöftstorfan hefur verið tákn i baráttunni fyrir húsfriðun almennt, fyrir manneskjulegu umhverfi, gegn steinkassaæði og kauphallarprjáli verslunarauð- valdsins. Ætla má að kaupa- héðnar Reykjavikur hyggi nú gott til glóðarinnar að hrúga einni stórversluninni enn á miðlægum stað i borginni. Við undirritaöir islendingar i Lundi, sem styðjum endurbygg- ingu húsanna i upprunalegri mynd höfum ákveðið að leggja fram 400 kr. sænskar sem gjöf til Torfusamtakanna og viljum með þvi hvetja fólk á Islandi til að halda baráttunni áfram. Oftvarþörf, en nú er nauðsyn. Utanríkisráð- herra írlands í heimsókn Utanrikisráðherra Irlands. dr. Garrett Fitzgerald, kemur I opin- bera heimsókn til Islands dagana 5. til 6. mai n.k. i boði Einars Agústssonar. Dr. Fitzgerald ræð- ir hér við starfsbróður sinn og embættismenn utanrikisráðu- neytisins og mun eiga viðræður við forseta Islands og fleiri is- lenska ráðamenn. SÝNING Á VEGGSPJÖLDUM tJrval tillagna i veggspjaldasamkeppni Þjóð- viljans verður sýnt i Þjóðviljahúsi, Siðumúla 6, i dag kl. 10-6 og á morgun (sunnudag) kl. 2-6.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.