Þjóðviljinn - 11.06.1977, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 11.06.1977, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 11 júní 1977 Erlendar fréttlr Lyf unnið úr laxi handa nýrnayeikum Rannsóknarnefnd viö háskól- ann i Glasgow i Skotlandi undir forustu Dr. James Dobbie upp- götvaði nýlega aö breytingar samkvæmt náttúrulögmáli á nýr- um i laxi, verða þegar fiskurinn gengur úr fersku vatni i sjó. Rannsóknarmennirnir voru aö Jóhann J.E. Kúld fiskimé/ rannsaka lax sem var á leið til sjávar og héldu fyrst ab hann væri veikur af nýrnabólgu. Þeir komust að raun um að svo var ekki, heldur var að gerast hér breyting á nýrum fisksins samkvæmt náttúrulög- máli, þegar hann skiftir um frá fersku vatni til sjávar. I fersku vatni þurfa nýru fisksins að vinna meira en i sjó. Dr. Dobbie komst að raun um, að þessari breytingu stjórnuðu hormónar, sem finnast hjá konum sem hafa börn á brjósti. Rannsóknarnefnd háskólans vann nú þessa hormóna úr laxi og voru þeir gefnir konu sem þjáöist af nýrnaveiki. Aö stuttum tima liðnum batnaði henni, og nýru hennar fóru aftur að vinna eðli- lega. Ráðstefnu nýrnasér- fræðinga sem stóð yfir á Italiu þegar þetta geröist, var tilkynnt um niðurstöðu rannsóknanna og þann árangur sem fékkst. I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I Frá höfninni i Halifax.en þar verður alþjsðleg sjávarútvegssýning I sumar. Sj ávar útvegssýning í Halifax Tilkynnt hefur verið nýlega að alþjóðleg sjávarútvegssýning verði haldin iHalifax dagana 31. ágúst til 7. september" i ár. Fjöldi þátttakenda i sýningunni hafa þegar tilkynnt að þeir verði þar með vörusýningar. Þátt- tökufyrirtæki eru bæði frá Bandarikjunum, Kanada svo og mörgum strandrikjum Evrópu. Borgin Halifax liggur á Nova Scotia á austurströnd Kanada og er talin höfuðborg fylkisins. Borgin er talin hafa 180 þúsund ibúa, en stutt frá henni er borgin Dartmouth með 70 þúsund ibúa, en alls eru i Nova Scotia fylki taldir kvart miljón ibúa. 1 Dart- mouth er merk rannsóknar- stofnun sem rekin er af háskól- anum i fylkinu og er rann- sóknarsviðið sérstaklega hafið og allt sem þvi viðkemur. 1 Halifax er lika rannsóknar- stofnun Halifax Fisheries Laboratory sem annast rann- sóknir á sviöi fiskveiða og fisk- iðnaðar. Sjávarútvegssýningin verður i þremur stórum vöru- skemmum við höfnina sem þekja 6,400 ferm. Skemmur þessar eru á meðfylgjandi mynd merktar no. 20, 21 og 22. Halifaxborg er byggð i fögru umhverfi og var byrjað aö reisa borgina á sautjándu öldinni. 1 hverfum frá þeim tima, eru til gangstéttir úr eik eða voru siðast þegar ég var þar f siðasta heimsstriði. Þetta er ein aöal hafnarborgin á austurströnd Kanada. A Nova Scotia er viða mjög mikil og sérkennileg nátt- úrufegurð. I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I I Framtíðaráætlun norð- manna um fiskveiöar 1 tilefni af útfærslu fiskveiðilög- sögunnar i 200 milur við Noregs- strendur þá hefur nú fiskimála- stjórnin, Fiskeridirektoratet samið framtiðaráætlun um fisk- veiðar norðmanna og er hún birt i 10. tölublaði af Fiskets Gang. Áætlunin hefur nú verið send út til umsagnar og athugunar til allra fiskveiðisamtaka Noregs. Samkvæmt þessu uppkasti að framtiöaráætlun um fiskveiðar norðmanna, þá er gert ráð fyrir að heildarafli þeirra haldist svip- aður i framtiðinni. Hinsvegar er reiknað með að samsetning afl- ans breytist, þannig að fiskveiðar til mjöl- og lýsisvinnslu fari smámsaman minnkandi, en að sama skapi aukist framleiösla á manneldisvörum. Með þessu á verðmæti sjávarafurða að stór- aukast þó heildarafli að smá- lestatölu standi i staö. Búist er við i þessu sambandi aö þorskafli, ýsuafli og ufsaafli aukist mikið frá þvi sem nú er. Gert er ráð fyrir að fiskveiðar norðmanna á fjarlægum miðum fari mikið minnkandi á næstu árum, og hverfi máske alveg að lokum. Framtiöar áætlunin byggir á þeim stórauknu möguleikum til fiskveiða útfrða norsku strönd- inní sem á næstu. árum koma i kjölfar útfærslunnar i 200 milur. Aðal fiskimiöin sem hráefnið til vinnslu verður sótt á verða þá þessi: Grunninn frá norsku ströndinni, Norðursjórinn, Bar- entshaf og grunninn i kringum Svalbarða. Atvinnuleys- isstyrkir greiddur með orlofsálagi Norska rikisstjórnin hefur ákveðið að leggja fyrir Stórþing- ið, að héreftir komi orlofsfé á alla atvinnuleysisstyrki I Noregi og að þetta taki gildi á þvi orlofsári sem byrjaði 1. mai s.l. Orlofsgreiðslurnar verða þær sömu og gilda hjá verkalýðsfélög- unum, 10-11% ofan á#reidd laun. Fiskútflutningur fœreyinga fyrstu 4 mánuöi ársins A fyrstu fjórum mánuðum yfirstandandi árs flutti „Föroya Fisksöla” út 18,219 tonn af fisk- afurðum að verðmæti i dönsk- um kr. 165,4 miljónir. Miðaö við sama timabil ársins 1976 þá er þettá 18,9% meiri útflutningur i tonnum og verðmætisaukning sem nemur 39% miðað við árið i fyrra. Aðalfiskvörumarkaðir færeyinga voru þessir: Salt- fiskur, seldur til Spánar fyrir d.kr. 29,4 milj. til Italiu d.kr. 22,3 miljónir, og til saltfiskverk- unarstöðva i Noregi d.kr. 411,000. Freðfiskur á Banda- rikjamarkáð þorskflök fyrir d.kr. 17,6 miljónir og ýsuflök fyrir d.kr. 27,9 miljónir. Rækju útflutningurinn á þessu timabili varö alls d.kr. 29,3 miljónir. Þar af fóru á sænskan markað fyrir d.kr. 7,0 miljónir og til Frakklands fyrir d.kr. 6,1 miljón. Saltsild var seld til Póllands fyrir d.kr. 2,7 miljónir og krydd- sild til Danmerkur fyrir d.kr. 1,7 miljónir. Breskir togarar- fundu auð- ug blá- löngumið Breskir togarar fundu ný- leg auðug blálöngumið á hafssvæðinu milli Skotlands, trlands og Rockall. Skuttog- arinn Boston Blenheim kom nýlega af þessum miðum eftir stutta útivist með 106 tonn af blálöngu. Blálangan er sögð hafa fengið frekar góðar móttökur á breskum markaði. Blálanga hefur að undanförnu verið flutt inn frá Frakklandi á fiskimark- aö i Hull. Blálanga er talin vera sérstaklega gott hráefni i fiskibollur, þá er hún lika eftirsótt reykt. Aukín áhersla á framleiðslu matsmjöls úr fiski Hið lögverndaða samvinnu- félag norskra sjómanna, út- gerðarmanna og verksmiöjueig- enda um sölu á fiskimjöli og búk- lýsi úr fiski, auglýsti nýlega eftir framkvæmdastjóra sem á að annast matarmjöls framleiðsluna hjá Norsildmel. Staðan mun verða veitt að lokn- um sumarfrium. Ætlast er til að hinn nýji framkvæmdastjóri hafi yfirumsjón með allri matmjöls- framleiðslu i Noregi svo og kynningu og markaðsleit fyrir mjölið bæði á eigin vegum og i samvinnu við F.A.O. i Róm. Norðmenn eru nú taldir standa i allra fremstu röð matmjölsfram- leiöenda úr fiski og hafa þeir kostað miklu til að ná þessum árangri. Hinsvegar hefur mat- mjölsframleiðsla þeirra fram að þessu aðeins numið litlu broti af heildarframleiðslu fiskimjöls, eða sem svarar 7000 tonnum á móti 450.000 tonnum af fóðurmjöli á árinu 1976. Norskt manneldis- fiskimjöl hefur að undanförnu verið selt i Nigeriu undir nafninu „Joyfish” i neytendaumbúðum úr plasti. Þá er nú að hefjast markaös kynning og auglýsinga herferð um ágæti norsks manneldismjöls i Ghana i Afriku en þar er nú að byrja sala á mjölinu undir heitinu „Easyfish”. Frá Skotlandi — Noregi — Bretlandi — Feereyjum — Kanada — USA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.